Morgunblaðið - 29.08.1979, Page 5
MORGUNBLAÐID.-MIÐVIKUD AGUR 29„ÁG6ST-j979--
5
Ungfrú Ameríka
stödd á íslandi
FEGURÐARDROTTNING
Bandaríkjanna 1979, Kylene
Barker frá Virginiu, kom
hingað til lands í gær ásamt
fleiri bandarískum fegurðar-
drottningum. Erindið er að
skemmta bandarískum her-
mönnum á Keflavíkurflug-
velli. Ungfrúrnar komu frá
Evrópu, þar sem þær héldu
sams konar skemmtanir fyr-
ir bandaríska hermenn.
*Myndirnar sýna ungfrúrn-
ar ganga frá borði flugvélar-
innar og ungfrú Barker
skrifa nafn sitt á skinn fyrir
starfsmenn flugstöðvarinn-
ar, en á skinnið hafa margar
frægar persónur ritað nafn
sitt í tímans rás.
Ljósm. Helmir Stíifsson.
Allmargar deilur
hjá sáttasemjara
SAMNINGAFUNDUR var í gær haldinn með íram-
reiðslumönnum og eigendum veitingahúsanna, en boðað
hefur verið verkfall í þessari kjaradeilu á Hótel Sögu 3
daga í næstu viku. Að sögn Torfa Hjartarsonar
sáttasemjara ríkisins er orðið mjótt á mununum milli
deiluaðila, en ekki hefur náðst samkomulag um hvað
kallast skuli lokað samkvæmi.
Þetta deiluatriði hefur verið
lagt fyrir samvinnunefnd deilu-
aðila. þar sem fjallað verður um
það og þess freistað að ná sam-
komulagi um það. Er þess vænzt
að nýr sáttafundurjjeti orðið eftir
helgina.
I gær var tekin fyrir kjaradeila
BMH, Bandalags háskólamanna
og Tjármálaráðherra fyrir hönd
ríkissjóðs. Er það mál í athugun,
en einnig eru nokkur bæjar- og
sveitarfélög með deilur við starfs-
fólk sitt hjá sáttasemjara. í kjara-
deilu BSRB, Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja við fjármála-
ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs
hefur verið haldinn einn sátta-
fundur. Annar fundur hefur ekki
verið boðaður.
Að sögn Torfa Hjartarsonar
verða nú tekin fyrir á næstu
dögum mál starfsmannafélaga
bæjarfélaganna og sveitarfélag-
anna, en þau er að miklu leyti
hliðstæð deilu fjármálaráðherra
við BHM og BSRB. í gær var
fundur vegna Mosfellshrepps og
Sauðárkróks, Húsavíkur, Selfoss,
Hafnarfjarðar og Kópavogs.
Enn hefur enginn sáttafundur
verið boðaður í deilu prent-
iðnaðarins og Grafiska sveina-
félagsins, en grafiskir hafa boðað
vakta- og yfirvinnubann, sem
hefjast á eftir helgina.
Tveir fengu afla á
Jan Mayen-svæðinu
UNDANFARNA sólarhringa
hafa allmörg skip tilkynnt loðnu-
nefnd um afla, en veiði er þó enn
mjög treg. Er t.d. algengt að það
hafi tekið skipin allt að 5 dögum
að fá þennan afla og 30—40 köst.
Tvö þeirra skipa, sem tilkynntu
loðnunefnd um afla í gær, fengu
hann á Jan Mayen-svæðinu, örn
fékk þar 570 lestir og Ililmir 540
lestir. Á Jan Mayen-svæðinu eru
nú þrjú skip, Keflvíkingur,
Magnús og óli Óskars. Flest eru
hin skipin á miðunum úti af
Vestfjörðum.
Á mánudag tilkynntu eftirtalin
skip um afla: ísleifur 300, Svanur
300, Faxi 100, Guðmundur 400,
Gísli Árni 220, Bergur II 170,
Pétur Jónsson 200, Kap II 60,
Ljosfari 120, Albert 300, Skarðsvík
200, Óskar Halldórsson 250, Þórs-
hamar 300, Jón Kjartansson 350,
Húnaröst 280.
Samtals: 3550 lestir tilkynntar á
mánudag.
Þriðjudagur: Örn 570, Hilmir
540, Helga II 200, Súlan 130,
Sæbjörg 100 tonn.
TORGSINS
IÐNAÐARMANNAHÚSINU
HALLVEIGARSTÍG
.....*-J
□ Herraskyrta
kr. 2.500.-
□ Kv. rúllukraga
bolur kr. 1.490.
□ Ullargarn
□ Barnaúlpur
kr. 18.500.-
■ ■ .............................................................-................................................- - -......................................................................................................................- ■
lönadarmannahúsinu,
Hallveigarstíg.