Morgunblaðið - 29.08.1979, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1979
13
Það eru fleiri en blómaskreytingamenn sem hafa yndi af þvf að
setja saman fallegar blómaskreytingar. Hér er gömul mynd af
H.C. Andersen í hópi aðdáenda, þar sem hann er að gera
blómaskreytingu. Myndin er tekin 14. júní 1865.
Blómáhátíð á
haustnóttum
— vegna hálfrar aldar af-
/
Við laxveiðar á Islandi:
Hertoginn af Wellington, sir
Forte og Connally ríkisstjóri
HERTOGINN af Wellington, sir
Charles Forte, hóteleigandinn
heimskunni, John Connally fyrr-
verandi rfkisstjóri í Texas og
fleiri heimskunnir menn hafa
dvalið á íslandi að undanförnu
við laxveiðar.
Connally fyrrverandi ríkis-
stjóri var sem kunnugt er í
bifreiðinni með Kennedy forseta
þegar hann var myrtur. Connally
fór af landi brott í fyrradag
ásamt 7 öðrum í einkaþotu, en
þeir höfðu stundað veiðar í Laxá í
Dölum. Veiði var þar hins vegar
dræm, enda slæmar veiðiaðstæð-
ur og lítið vatn í ánni.
I síðasta mánuði dvaldi hertog-
inn af Wellington í Haffjarðará
við laxveiðar ásamt vini sínum
sir Charles Forte hóteleiganda
sem á um 800 hótel víðs vegar um
heim, en hótelhringur hans heitir
Trust Houses Forte.
Þá hafa dvalið hér að undan-
förnu við laxveiðar ýmsir heims-
kunnir menn á sviði jarðfræði,
viðskipta og verzlunar og hrís-
grjónaræktar.
Vika gegn vímuef num
í TILEFNI af barnaári Samein-
uðu þjóðanna hefur Unglinga-
reglan leitað eftir stuðningi
annarra félagasamtaka í þeim
tilgangi að efna sfðar á þessu
ári til herferðar gegn vímuefn-
um. í janúar var þessi hug-
mynd kynnt í barnaársnefnd.
Síðan hefur verið ákveðið að
herferð þessi skuli standa dag-
ana 21.—27. okt. n.k.
Ennfremur hefur verið safnað
undirskriftum þjóðkunnra
manna, sem skera á almenning
að taka þátt í fyrirhuguðum
aðgerðum. Þá hafa verið haldnir
tveir fundir með fulltrúum ým-
issa félagasamtaka er veita vilja
málinu lið. Þrjár nefndir hafa
verið skipaðar og eiga eftirtaldir
menn sæti í þeim:
1. Fjölmiðla- og fræðslu-
nefnd: Valgeir Gestsson frá
Sambandi grunnskólakennara,
Ingólfur Guðmundsson frá
Bindindisfélagi islenskra kenn-
ara, Halldór Árnason frá ís-
lenskum ungtemplurum, Reynir
Karlsson, æskulýðsfulltrúi rík-
isins.
2. Fjármálanefnd: Árni Norð-
fjörð frá Unglingareglu, Árelíus
Níelsson frá Bindindisráði krist-
inna safnaða, Evelyn Hobbs frá
áfengisvarnarnefnd kvenna,
Kristinn Vilhjálmsson frá Ungl-
ingareglu.
3. Allsherjarnefnd: Hilmar
Jónsson frá Unglingareglu, Karl
Helgason frá Áfengisvarnar-
ráði, Sigurður Guðgeirsson frá
Alþýðusambandi íslands,
Sigrún Einarsdóttir frá Kvenfé-
lagasambandi íslands og Berg-
þóra Jóhannsdóttir frá Stór-
stúku íslands.
Fleiri félagasamtök munu
vafalítið bætast í hópinn.
Fyrir hönd allsherjarnefndar,
Hilmar Jónsson.
mælis Blóma & ávaxta
EIN ÞEKKTASTA blómaverzlun Reykjavíkur, Blóm &
ávextir, hefur um þessar mundir starfað í hálfa öld og
hafa forsvarsmenn verzlunarinnar af því tilefni ákveðið
að efna til mikillar blómahátíðar, sem mun standa
dagana 29. og 30. sept. og lýkur að kvöldi 1. október og
verður á Hótel Loftleiðum.
Þekktur danskur blóma-
skreytingamaður Erik Bering
kemur hingað ásamt tveimur
aðstoðarmönnum sínum og út-
býr skreytingar í sölum Loft-
leiðahótels bæði úr afskornum
og þurrkuðum blómum, á veg-
um verzlunarinnar Evu verður
tízkusýning og kynning á
vetrartízkunni og Elsa Haralds-
dóttir mun sjá um hárgreiðslur.
Hótel Loftleiðir verður með
sérstakan matseðil afmælisdag-
ana og blómadrykkurinn „Sól“ á
boðstólum.
Stofnendur Blóma & Avaxta
voru Ólafía Einarsdóttir og
Ásta Jónsdóttir. Þetta var
fyrsta sérverzlun sinnar teg-
undar og fyrstu árin voru einnig
seldir þar ávextir.
Hendrik Berndsen keypti
verzlunina 1942 og rak hana til
dauðadags 1966, að dóttursonur
hans og alnafni tók við og hefur
rekið hana síðan.
Á kynningarfundi með blaða-
mönnum vegna hátíðar þessar-
ar var rifjað upp að á öldum
áður hefði blómvöndur þótt
ómissandi hjá hefðardömum og
sjá má á málverkum frá
renaissance-tíma og jafnvel á
dögum 18. aldar að blómið þótti
ómissandi á myndum. En
ástæðan fyrir því að konur báru
blóm á þessum tímum var að
ilmandi blóm drógu úr sterkri
lykt af óþvegnum likama, þar
sem minna var lagt upp úr
baðferðum. Þó að fyrri kynslóð-
ir klæddust silki og knippling-
um var hreinlæti ábótavant í
meira lagi og komu þá blómin
sér vel, helzt ef þau höfðu
sterka lykt. Þessi blóm voru
borin í sérsmíðuðum blóma-
höldum sem nú sjást varla. En
Erik Bering sagði að hann hefði
á síðustu árum lagt sig eftir að
safna slíkum höldum, sem oft
væru hin mesta gersemi að
búnaði og á hann nú gott safn
af þeim.
Erik Bering sýnir Grace prinsessu af Monaco blómaskreytinga
sínar.
Að lokinni ógleymanlegri
utanlandsferð komið þér filmum yðar
til okkar í vinnslu, því auðvitað
viljið þér ekkert annað en
Lilmvndir
í sérllokki
HANS PETERSEN NF
BANKASTRÆTI AUSTURVER GLÆSIBÆR
S: 20313 S:36161 S:82590
Umboðsmenn um allt land