Morgunblaðið - 29.08.1979, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1979
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1979
17
Útgefandi hf. Árvakur, Raykjavík.
Framkvaamdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannassan,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guómundsson.
Fróttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson
Ritstjórn og skrifstofur Aðalstræti 6, sími 10100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22480.
Afgreiðsla Sími 83033
Áskriftargjald 3500.00 kr. á mánuöi innanlands.
! lausasölu 180 kr.
. aintakið.
Sama öng-
þveitið áfram
Þegar ríkisstjórnin var mynduð, átti það að verða
hennar fyrsta verkefni að móta efnahagsstefnu til
frambúðar. Hún hefur nú setið í tæpt ár og verið sjálfri
sér samkvæm að því leyti, að enn á það að hafa algjöran
forgang, að marka efnahagsstefnuna til langs tíma,
draga úr verðbólgunni og stöðva verðhækkanir. Að vísu
er hraði verðbólgunnar nú einhvers staðar milli 60 og
70% og talið að verðbólgan nemi 50—55% frá ársbyrjun
til ársloka.
Það gat því engum komið á óvart, þótt flokkur
forsætis- og fjármálaráðherra stæði í ströngum fundar-
höldum nú á mánudaginn. Þar lagði Tómas Árnason
fram tillögur um nýjar skattahækkanir, þar sem gert
mun ráð fyrir 2% hækkun söluskatts og verulegri
hækkun verðjöfnunargjalds. Ætla verður, að framsókn-
armenn hafi hug á að halda þessum tillögum til streitu,
enda lagði fjármálaráðherra áherzlu á, að hann hefði
ekki umboð til að fara út fyrir heimildir fjárlaga og
fjáraukalaga, þótt það gæti valdið röskun á ýmsum
mikilvægum þáttum í þjónustu ríkisins.
Eins og á þessu má sjá, eru ríkisfjármálin nú í hinum
mesta ólestri. Talið er, að fjárvöntunin sé ekki undir 10
milljörðum, en eins og fram kemur í Tímanum í gær,
þvær fjármálaráðherra hendur sínar af þessu ástandi,
en kennir samráðherrum sínum um. Þannig brigzlar
hann þeim um það að gera allt í senn að neita að nýta
heimildir til niðurskurðar á ríkisútgjöldum en mega þó
ekki heyra nýjar skattahækkanir eða auknar lántökur
nefndar.
Lítil hrifning mun vera í Alþýðuflokki og Alþýðu-
bandalagi yfir tillögum fjármálaráðherra. Bent er á, að
fjárlagadæmið sé enn óuppgert, svo að engin trygging sé
fyrir því, að ekki þurfi að koma til enn aukinnar
skattheimtu fyrir jól, þótt fallist sé á hækkun söluskatts
og verðjöfnunargjalds núna. Þess vegna munu þessir
flokkar reyna að þæfa málin sem lengst og helzt fram að
þeim tíma, er þing kemur saman á ný. Ef A-flokkarnir
hafa sitt fram, verður fjármálaráðherra að sætta sig við,
að fjárlagafrumvarpið verði aðeins til málamynda og
verulegur halli á ríkissjóði í árslok.
Enginn vafi er á því, að mestum taugatitringi í
stjórnarflokkunum veldur sú staðreynd, að kjarasamn-
ingar verða allir lausir um næstu áramót. Verkalýðs-
hreyfingin hefur þegar sýnt ríkisstjórninni meira
umburðarlyndi en dæmi er um í sögunni og því
vafasamt, að Guðmundur J. Guðmundsson treysti sér til
að halda áfram að sér höndum, einkum með tilliti til
þess, að Alýðusambandsþing verður á næsta ári. A.m.k.
meðan svo stendur, að ríkisstjónin kemur sér ekki
saman um neina heildarlausn efnahagsvandans, heldur
lætur danka frá degi til dags. Það má því með sanni
segja, að ríkisstjórnin sé heillum horfin, — en þjóðin
bíður þess að fá tækifæri til þess að gera upp sakirnar
við hana.
Reykjauk
Kristinn Ágúst Friðfinnsson.
Davfð Oddsson.
Fulltrúi Framsóknarflokksins
í Æskulýðsráði:
Afgreiðsla Sjafnar og
fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins óheiðarleg
TIL MJÖG HARÐRA orðaskipta kom á íundi Æskulýðsráðs
Reykjavíkur í gær milli fulltrúa í ráðinu. Upphaf þessara
orðahnippinga var bókun, sem fulltrúi Framsóknarfiokksins í
ráðinu, Kristinn Ágúst Friðfinnsson, óskaði eftir að færð yrði í
fundargerð ráðsins. Segir þar að hann telji afgreiðslu Sjafnar
Sigurbjörnsdóttur og fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í borgarráði á
veitingu framkvæmdastjórastöðu Æskulýðsráðs óheiðarlega og
Iýsa vanvirðu við Kristján Benediktsson borgarfulltrúa. Davíð
Oddsson einn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í ráðinu lagði þá fram
bókun þar sem hann vekur athygli á því að Kristinn Ágúst
Friðfinnsson hefði sjálfur greitt atkvæði með ótvíræðri áskorun
til borgarráðs um að afgreiða ráðningu framkvæmdastjóra
Æskulýðsráðs undanbragðalaust á borgarráðsfundi s.l. föstudag.
Fundur Æskulýðsráðs í gær var fyrsti fundur ráðsins með hinum
nýráðna framkvæmdastjóra þess, ómari Einarssyni.
Bókun Kristins Ágústs Frið-
finnssonar fer hér í heild á eftir:
„Vegna veitingar borgarráðs á
framkvæmdastjórastöðu hjá
Æskulýðsráði Reykjavíkur, óska
ég eftir, að eftirfarandi verði
fært til bókar:
Þar sem samþykkt æskulýðs-
ráðs um, að borgarráð hraðaði
afgreiðslu á veitingu fram-
kvæmdastjórastöðu Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur var gerð án
vitundar um beiðni og loforð
samstarfsmanna borgarfulltrúa
Kristjáns Benediktssonar um að
fresta afgreiðslu málsins þar til
hann væri viðstaddur og borg-
arfulltrúa Sjöfn Sigurbjörns-
dóttur var þetta kunnugt á
borgarráðsfundi, þá tel ég að
heiðarleg og eðlileg vinnubrögð
hennar hefðu verið að stuðla að
því, að við það loforð yrði staðið.
Ég tel því afgreiðslu Sjafnar
og fulltrúa Sjálfstæðisflokksins
á máli þessu óheiðarlega og lýsa
vanvirðu við borgarfulltrúa
Kristján Benediktsson."
Vegna bókunar Kristins ósk-
aði Davíð Oddsson eftir að
eftirfarandi yrði bókað:
Ég vek athygli á því að
Kristinn Ág. Friðfinnsson, full-
trúi Framsóknarflokksins,
greiddi sjálfur án athugasemda
atkvæði með ótvíræðri áskorun
til borgarráðs um að afgreiða
ráðningu framkvæmdastjóra
Æskulýðsráðs Reykjavíkur und-
anbragðalaust á borgarráðs-
fundi s.í. föstudag.
I ljósi þessa er bókun þessa
fulltrúa ótrúleg og óskiljanleg
og honum vægast sagt ekki til
sórna."
Þá óskaði Kristinn Ágúst
Friðfinnsson að eftirfarandi
yrði bókað:
„Vegna bókunar Davíðs
Oddssonar vil ég benda á að í
bókun minni kemur fram að
samþykkt Æskulýðsráðs
Reykjavíkur var gerð án vitund-
ar um það að borgarfulltrúa
Kristjáni Benediktssyni hefði
verið lofað frestun á máli þessu,
þar til hann yrði viðstaddur
borgarráðsfund."
Ekki voru lagðar fram fleiri
bókanir vegna þessa máls en í
lok fundarins urðu harðar deilur
milli fulltrúa meirihlutaflokk-
anna í ráðinu vegna þessa máls.
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir borgarfulltrúi:
Verðum enn að bíða og vona að
Guðrún og Adda Bára „nenni
að gera eitthvað af skynsemi”
Sjofn
VEGNA fréttar í Morgunblaðinu
síðastliðinn sunnudag, þar sem
því er haldið fram að við Guðrún
Helgadóttir höfum báðar mætt á
borgarráðsfund sl. föstudag, vil
ég taka fram eftirfarandi.
Samkomulag er um að ég sé
varamaður Björgvins Guðmunds-
sonar í borgarráði, en Adda Bára
Sigfúsdóttir varamaður Sigur-
jóns Péturssonar, eða einhver
annar Alþýðubandalagsmaður,
að henni forfallaðri. Þar sem
Kristján Benediktsson, borgar-
ráðsmaður, er eini borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins, ræður
varamannalistinn hver tekur
sæti Kristjáns í borgarráði,
þegar hann er fjarverandi. Adda
Bára Sigfúsdóttir er fyrsti vara-
maður, ég annar og Guðrún
Helgadóttir er þriðji varamaður
samkvæmt kosningu í borgar-
stjórn sl. vor. í umræddu tilviki
föstudaginn 24. ágúst sl. sat Adda
Bára Sigfúsdóttir borgarráðs-
fund, sem varamaður Sigurjóns
Péturssonar, sem er í sumarleyfi.
Af skiljanlegum ástæðum gat
Adda Bára því ekki mætt fyrir
Kristján Benediktsson, var ég því
daginn áður boðuð á þennan
borgarráðsfund sem varamaður
Kristjáns Benediktssonar, sem
einnig er í fríi. Það er hins vegar
rétt, sem segir í umræddri frétt,
að Guðrún Helgadóttir mætti til
leiks, en hún mætti hins vegar
óboðuð, varð Guðrún því frá að
hverfa, en ekki „himinlifandi",
eins og hún segir í viðtali við
Morgunblaðið, sem birtist í gær. í
þessu viðtali slettir Guðrún mjög
úr klaufunum, eins og hún á
vanda til.
Eftir að hafa hrakyrt mig,
Björgvin Guðmundsson og lög-
menn borgarstjórnarskrifstof-
unnar, sem hún telur ófæra um
að gegna hlutverki sínu, klykkir
Guðrún Helgadóttir út með
þessu: „Meira er ekki um það að
segja, enda önnur mál á stunda-
töflu þeirra borgarfulltrúa, sem
nenna að gera eitthvað af
skynsemi“. Hér mun Guðrún
væntanlega eiga við „Laufás-
borgarmálið, sem hún stofnaði til
og ber abyrgð á, en það er
ljótasta mál, sem upp hefur
komið síðan ég settist í borgar-
stjórn. Það má vel vera, að þær
stallsystur Guðrún Helgadóttir
og Ádda Bára Sigfúsdóttir,
„nenni að gera eitthvað af skyn-
semi“. Við hin, sem með þeim
sitjum í borgarstjórn, verðum því
að halda áfram að bíða og vona.
Stjórnarnefnd dagvistunarstofnana:
Gerður vill Sjöfn burt
Guðrún stendur með Gerði
en Sjöfn gefur sig ekki
Gerður
Guðrún Sjöfn
ÞEGAR Reykjavíkurborg tók við
rekstri dagvistarstofnana af
Sumargjöf var ákveðið að sá
málaflokkur kæmi undir félags-
málaráð, sem skipaði þó sérstaka
undirnefnd til að fara með dagleg
stjórnunarmál og tryggja gott
samband við hinar einstöku stofn-
anir. Upphaflega voru tveir full-
trúar úr félagsmálaráði (einn frá
meirihluta og annar frá minni-
hluta) kosnir f þessa nefnd ásamt
embættismönnum, fulltrúa for-
stöðumanna heimilanna og full-
trúa frá Sumargjöf. Eftir síðustu
kosningar gerðu fulltrúar hins
nýja meirihluta tillögu um að
hinum pólitísku fulltrúum í
stjórnarnefndinni yrði fjölgað
um einn, yrðu tveir frá meiri-
hluta og einn frá minnihluta.
Kjörnar voru Guðrún Helgadótt-
ir, sem er formaður stjórnar-
nefndarinnar, Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir og Bessí Jóhannsdóttir.
Mun ákvörðun um fulltrúa meiri-
hlutans f nefndina hafa kostað
mikil illindi milli þeirra Gerðar
Steinþórsdóttur og Guðrúnar
Helgadóttur annars vegar en
Sjafnar Sigurbjörnsdóttur hins
vegar. Hafði Gerður sem formað-
ur Félagsmálaráðs og fulltrúi
Framsóknarflokksins þar mikinn
áhuga á að taka sæti f stjórnar-
nefndinni. Sjöfn hafði hins vegar
sitt fram.
Nú hefur Gerður enn á ný gert
kröfu til að taka sæti í þessari
nefnd og vill koma Sjöfn í burtu.
Sjöfn vill ekki gefa sig og hefur
þetta mál verið á dagskrá félags-
málaráðs nokkrum sinnum en oft-
ar en einu sinni verið frestað að
beiðni meirihlutans. Hafa þær
stöllur þó haft frumkvæði að því
að ræða þessi innbyrðis vandamál
sín fyrir opnum tjöldum á fundum
félagsmálaráðs. Þannig hefur
Gerður Steinþórsdóttir haldið því
fram, að Sjöfn hefði aðeins tekið
sæti í stjórnarnefndinni til eins
árs í fyrra og málið ætti því að
koma til endurskoðunar nú. Þessu
hefur Sjöfn harðlega mótmælt og
sagzt vera komin í stjórnarnefnd-
ina til að sitja þar út kjörtímabil
borgarstjórnar þ.e. næstu þrjú
árin.
Guðrún Helgadóttir útskýrði
það einnig á fundi félagsmálaráðs,
að eftir kosningar í fyrra hefði
oddviti þeirra alþýðubandalags-
manna og aðalsamningamaður um
myndun meirihluta vinstri flokk-
anna þriggja, Sigurjón Pétursson,
gert flokksmönnum sínum grein
fyrir því, að svo hefði um samizt
um skipan fulltrúa meirihlutans í
undirnefndir einstakra ráða borg-
arinnar, þar sem einungis tveir
eða einn yrðu kosnir, að Alþýðu-
bandalagið ætti tilkall til for-
mennsku sakir yfirburða sinna
yfir hina meirihlutaflokkana tvo
en hinn fuiltrúinn skyldi jafnaðar-
lega vera formaður þess ráðs, sem
undirnefndina kysi. Vill Guðrún
því halda því fram, að Gerður
Steinþórsdóttir eigi tilkall til sæt-
is í stjórnarnefnd dagvistunar.
Ekki er enn ljóst hvernig málinu
lyktar en á fundi félagsmálaráðs
lýstu þær Guðrún og Gerður því
yfir að málinu yrði áfrýjað til
oddvita flokkanna, þeirra Sigur-
jóns Péturssonar, Björgvins Guð-
mundssonar og Kristjáns Bene-
diktssonar, sem nú munu líklega
vera komnir úr sumarfríi.
Norbmenn v.
Sams^sJI
[grundvÖll\tfj
BnrTíró^™
. “““
—..........
okkur vio svou» 4Bur bois.» '•*•”“,£
wí-sswsSí; ss
aftur. elns og ta„s. haftn
„Vonlaust að
treysta þessum
samstarfs-
aðilum lengur”
— segir formaður fulltrúaráðs Framsóknar-
félaganna um samstarf meirihlutaflokkanna
„GREINILEGT er að vonlaust er
að treysta þessum samstarfs-
aðilum lengur“, sagði Jón Aðal-
steinn Jónsson, formaður full-
trúaráðs Framsóknarfélaganna f
Reykjavík, meðal annars í viðtali
við Tfmaann í gær. Jón Aðal-
steinn á þá við samstarfsaðila
Framsóknarflokksins í meiri-
hluta borgarstjórnar
Reykjavfkur.
I viðtalinu sagði hann einnig að
„það sé þá alveg eins gott að láta
íhaldið hafa stjórnina á borginni
aftur, eins og að láta Sjöfn ráða
ferðinni."
Tildrög viðtals Tímans við Jón
Aðalstein er afgreiðsla borgarráðs
á skipun framkvæmdastjóra
Æskulýðsráðs Reykjavíkur síðast-
liðinn föstudag. En þá skipaði
borgarráð Ómar Einarsson í stöð-
una, en einnig hafði sótt um hana
Gylfi Kristinsson stjórnarmaður í
Sambandi ungra framsóknar-
manna.
í viðtalinu er greint frá því að
áður hefði verið búið að taka
málið fyrir í borgarráði, án þess
að samkomulag hefði náðst þá um
skipan í stöðuna. Jón Aðalsteinn
segir í Tímanum að Björgvin
Guðmundsson hefði þá sótt um að
málinu yrði frestað. Kristján
Benediktsson hefði fallist á frest-
un með því skilyrði, „að afgreiðsla
færi þá ekki fram fyrr en hann
kæmi aftur úr sumarleyfi nú í
byrjun september, og það verði
samþykkt af öðrum borgarfulltrú-
um,“ segir í Tímanum.
„Ég tel þetta því algert ofbeldi
og þar með, að sá grundvöllur sem
samstarfið hefur byggst á, sé
brostinn", sagði Jón Aðalsteinn
við Tímann og bætti því við, að
vegna þess samkomulags sem
flokkarnir þrír höfðu gert með sér
um röðun varamanna hefði
Björgvin Guðmundsson enga
heimild haft til þess að boða Sjöfn
Sigurbjörnsdóttur sem varamann
á fund borgarráðs þar sem skipan
framkvæmdastjóra Æskulýðsráðs
var ákveðin. „Það var Guðrún
Helgadóttir sem átti að sitja
fundinn", sagði Jón Aðalsteinn.
„Þarna er um að ræða að verið er
að taka fram fyrir hendurnar á
löglega kjörnum borgarráðs-
manni. Þetta hlýtur að verða tekið
upp í samstarfsflokkunum, því
svona vinnubrögð er útilokað að
við Framsóknarmenn getum sætt
okkur við. Samstarf gengur ekki
nema að hægt sé að treysta sam-
starfsaðilunum," sagði Jón Aðal-
steinn að lokum í viðtalinu við
Tímann.
Skemmdir í skrúðgörðum
MIKLAR skemmdir hafa í sumar verið unnar á skrúðgörðum og
gróðurreitum í Reykjavík, að sögn Theódórs Ilalldórssonar hjá
Skrúðgörðum borgarinnar sem Morgunblaðið ræddi við í gær. Sem
dæmi nefndi hann skemmdarverk sem unnin voru á Miklatúni f
fyrrinótt.
Þar voru rifin upp blóm úr beði á stóru svæði og þeim dreift um
grasflötina. Fleiri dæmi sagði Theódór að hægt væri að nefna, svo sem
að heilu trén væru snúin niður og brotin, stórir bekkir væru teknir og
þeir snúnir í sundur og bornir langar leiðir, þá var í fyrrinótt brotist inn
í hús Skrúðgarðanna í Hljómskálagarðinum, þar voru verkfæri tekin og
notuð til að brjóta upp lás á báti við Tjörnina og svo mætti lengi telja.
„Austurvöllur er eins og svínastía, hvað sem við reynum að laga, og þar
halda til rónar og alls kyns utangarðsmenn" sagði Theódór. „Það er í
raun og veru furðulegt að við skulum ekki vera búnir að gefast upp fyrir
löngu síðan.“
Theódór Halldórsson við
beðið á Miklatúni sem
skemmdarvargar létu til
sín taka í fyrrinótt. Blóm
hafa verið rifin upp á
stóru svæði og þeim dreift
um nágrennið. Átburðir af
þessu tagi eru mjög al-
gengir í Reykjavík, og
virðist sem skrúðgarðar
og gróðurreitir hafi sér-
stakt aðdráttarafl á
skemmdarvarga.
Margeir annar
NÚ STENDUR yfir í London skákmótið Lloyds Bank
Masters og er alþjóðlegi meistarinn Margeir Pétursson
meðal þátttakenda.
Þegar lokið er 6 umferðum er Englendingurinn Botterill
í efsta sæti með 5 vinninga en í 2.-5. sæti eru Margeir, van
Baarle, Westerinen, Crough og Jensson með 4Vz vinning.
í 6. umferðinni vann Mar inni Slupsk. Lokið er tveimur
geir Hodgson, van Baarle umferðum og gerði Jón jafn-
vann Balinas en Westerinen tefli í báðum skákum sínum.
og Botterill gerðu jafntefli. Á FIDE-þinginu í Puerto
í Póllandi teflir Jón L. Rico var Jón útnefndur al-
Árnason á skákmóti í borg- þjóðlegur meistari í skák.