Morgunblaðið - 29.08.1979, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1979
Ragnheiður Gísladótt-
ir — Minningarorð
Fædd 6. apríl 1884
Dáin 21. águét 1979.
Hún Ragnheiður á Bragagöt-
unni er dáin. Hún mun ekki
framar taka á móti gestum og
veita beina, ekki framar strjúka
litlu barnabarnabarni um vanga.
Níutíu og fimm ára lífsgöngu er
lokið og nú er hún horfin inn á þá
Guðsríkisbraut, þar sem óhvikul
trúarsannfæring hennar sagði
henni, að biðu vinir á vegi.
Ragnheiður Gísladóttir var
fædd hinn 6. apríl 1884 í Innri-
Fagradal í Saurbæ í Dalasýslu og
var því á 96. ári, er hún lézt hinn
21. águst síðastliðinn. Faðir henn-
ar var séra Gísli Einarsson, prest-
ur í Hvammi í Norðurárdal og
síðar prófastur í Stafholti. Gísli
var bróðir Indriða Einarssonar,
leikritaskálds, og dóttursonur
Gísla Konráðssonar, sagnaritara.
Móðir Ragnheiðar var Vigdís
Pálsdóttir, alþingismanns á Dæli í
Víðidal. Ragnheiður var elzt sjö
systkina og eru þau nú öll látin.
Hún ólst upp í Hvammi með
foreldrum sínum unz hún stofnaði
eigið heimili, að undanskildum
einum vetri, en þá var hún í
Kvennaskólanum í Reykjavík.
Eftir þá námsdvöl fékkst hún
dálítið við kennslu í heimasveit
sinni. Haustið 1911 giftist hún
Hermanni Þórðarsyni frá Glit-
stöðum í Norðurárdal. Hermann
hafði tekið kennarapróf frá Flens-
borg vorið 1904 og var nú skóla-
stjóri á Patreksfirði. Árið 1913
hófu þau búskap á Glitstöðum, en
Hermann kenndi um langt skeið
við Hvítárbakkaskóla og hafði auk
þess nokkra heimakennslu. Á
Glitstöðum bjuggu þau til ársins
1927, en þá fluttu þau að Sigmund-
arstöðum í Þverárhlíð. Til Reykja-
víkur fluttu þau 1937, en þá höfðu
flest barna þeirra hafið skóla-
göngu, en Hermann kenndi meir
en aldarfjórðung við Laugarnes-
skólann. Ragnheiður og Hermann
eignuðust átta börn, sem öll eru á
lífi. Þau eru: Unnur, kennari, gift
Hans Guðnasyni, bónda á Hjalla í
Kjós. Svavar, efnaverkfræðingur.
Kona hans er Ursula Funk, þýzkr-
r ættar. Gísli vélaverkfræðingur,
væntur danskri konu, Betty
Epelmann. Guðrún, kennari, gift
Alfreð Kristjánssyni. Vigdís kenn-
ari. Ragnar, efnafræðingur. Val-
borg, lyfjafræðingur. Hennar
maður var Kurt Steinager, lyfja-
fræðingur. Ragnheiður, forstöðu-
maður víxladeildar Landsbank-
ans.
Eftir að Hermann féll frá árið
1962 hélt Ragnheiður heimili með
tveim dætra sinna, þeim Vigdísi
og Ragnheiði.
Þessi upptalning helztu æviatr-
iða segir aðeins lítið brot af sögu
Ragnheiðar Gísladóttur. Enn er
ótalinn langur vinnudagur hús-
freyju á barnmörgu sveitaheimili,
áhyggjur og erfiðleikar lífsbarátt-
unnar, en líka auðnustundir við
áfangalok. í lífi hennar eins og
reyndar okkar flestra — skiptust
á skin og skúrir — hið óumbreyt-
anlega samspil sorgar og gleði. Sú
saga verður ekki skráð, hún skal
geymd með þeim, sem hana
þekkja.
Það var árið 1966, að fundum
okkar Ragnheiðar bar fyrst sam-
an, er ég kvæntist dótturdóttur
hennar og nöfnu. Tvennt vakti
einkum í fyrstu athygli mína í fari
þessarar lágvöxnu konu: sú unun,
sem hún hafði af að taka á móti
gestum og hve vel hún fylgdist
með þjóðmálum, jafnt ómerki-
legum dægurflugum sem örlaga-
ríkum stórmálum.
Ragnheiður laðaði að sér fólk og
var oft harla gestkvæmt í eldhús-
inu hjá henni. Þar voru börnin,
barnabörnin og fjölskyldur þeirra
og gamlir kunningjar, jafnvel úr
fjarlægum landshlutum. Margs
þurfti hún að spyrja um menn og
málefni, enda vel minnug og
ættfróð í bezta lagi. Ég minnist
margra slíkra stunda og eftir að
við hjónin fluttum frá Reykjavík
voru það í mörg ár eins konar
óskráð lög, að á hennar heimili
skyldum við búa er við heimsækt-
um höfuðborgina. Er árin liðu
kynntist ég Ragnheiði betur og
þeim innra manni, sem hún hafði
að geyma. Þótt aldursmunur væri
mikill og hún oftast fátöluð um
eigin hagi, skildist mér þó æ betur
hve myndir lífsbaráttunnar eru
margvíslegar.
Að miðla öðrum var hennar
aðall og það gerði hún af reisn.
Sjálf sóttist hún ekki eftir verald-
legum gæðum sér til handa — að
gleðja og gleðjast með öðrum var
henni dýrmætara en söfnun jarð-
neskra gæða.
Þótt líkaminn bognaði hin allra
síðustu árin, var andlegt þrek
hennar lítt bugað. Hún fylgdist
með börnum sínum og fjölskyld-
um þeirra, fagnaði nýjum afkom-
endum sem ætti hún í þeim hvert
bein og bað þeim þeirrar blessun-
ar, sem hún vissi bezta. Á köldu,
íslenzku sumri ylja vettlingarnir,
sem hún prjónaði í vor, höndunum
á litlu dótturdótturdætrum henn-
ar.
Fyrr í þessum mánuði hafði hún
dvalið í vikutíma með dætrum
sínum og kærri frændkonu í
sumarbústað við Álftavatn. Dag
einn skömmu eftir heimkomuna
stóð hún fjölda manns fyrir beina
og tók snemma á sig náðir um
kvöldið, glöð og hress eftir
ánægjulegan og annasaman dag.
Hún komst ekki aftur til meðvit-
undar — líf hennar fjaraði hægt
út.
Ragnheiður Gísladóttir lifði
hljóðlátu en annasömu lífi, sem
hún kvaddi á hljóðan hátt.
Bernharð Haraldsson.
_Vér 8jáum hvur sumar rennur
mefl bóI ytir dnuAnns hnl
og lyftir (ellffnn nldingarA
þvf Allu, sem drottinn gaf“
M.J.
Þegar ég frétti lát Ragnheiðar
frændsystur minnar, komu mér í
hug þessar ljóðlínur skáldsins.
Ragnheiður Gísladóttir var fædd í
Fagradal í Dalasýslu. Barnung
fluttist hún að Hvammi i
Norðurárdal, þar sem hún ólst upp
í stórum systkinahópi á heimili
foreldra sinna, sr. Gísla Einars-
sonar og konu hans Vigdísar
Pálsdóttur. Heimilið í Hvammi
var menningar- og myndarheimili,
sem mótaði börnin sín. Það var
glaður hópur og fylgdi þeim
systkinum birta og hlýja í félags-
starfi unga fólksins í dalnum.
Ragnheiður var elst af þessum
hópi. Það ríkti mikil reglusemi í
Hvammi og voru börnin vanin við
vinnu og öll venjuleg sveitastörf.
Meðal annars mjólkaði Ragnheið-
ur ær í kvíum, sem þá var títt.
Ragnheiður stundaði nám í
Kvennaskólanum í Reykjavík í
einn vetur. Að námi loknu dvaldi
hún með foreldrum sínum, en
stundaði barnakennslu um skeið.
Hún giftist Hermanni Þórðarsyni
frá Glitstöðum í Norðurárdal.
Settust þau að á Patreksfirði, þar
sem Hermann varð kennari, en
fluttust heim að Glitstöðum eftir
skamma dvöl þar vestra og hófu
búskap þar. Á Glitstöðum var ég
eitt sinn gestur þeirra hjóna, þá sá
ég Ragnheiði fyrst. Þá var hún í
önn dagsins og breiddi sig yfir
stóran barnahóp. Hún var létt og
rösk í hreyfingum, og hávaðalaust
hafði hún stjórn á öllu, var auðséð
hvað fallega heimilið var mótað.
Þungi heimilisins hvíldi mikið á
henni, því Hermann var kennari á
Hvítárbakka allmarga vetur. Þau
hjón fluttu úr Borgarfirðinum
þegar mæðiveikin herjaði hvað
mest á sauðfé bændanna þar. Þau
settust að i Reykjavík, þar sem
Hermann varð kennari. Þar
rifjuðust upp kynni okkar Ragn-
heiðar að nýju. Á heimili þeirra
hjóna var ég tíður gestur um 14
ára tímabil og eftir lát Hermanns,
hjá þeim mæðgum. Ragnheiður
var sama mikla húsmóðirin, mót-
uð af dugnaði og myndarskap.
Allir þeir, sem kynntust þessari
gáfuðu, góðu konu, fundu að sterk-
ustu einkenni hennar voru kær-
leikur og fórn. Stillt og prúð var
hún veitandinn á heimili sínu,
gladdist af því að gleðja og styrkja
aðra. Það sönnuðust á henni ljóð-
línur Davíðs: „Hinn fórnandi
máttur er hljóður".
Ég minnist með ánægju þeirra
stunda, er við sátum í stofunni
hennar og ræddum lífið og tilver-
una. Hún var einlæg trúkona,
varðveitti hreina Guðstrú og taldi
sig hafa örugga vissu fyrir fram-
haldi lífsins eftir dauðann og
endurfundi við látna ástvini. Það
var nautn að ræða við hana um
eilífðarmálin og finna hlýjuna
streyma til manns frá hennar
trúarvissu. Þá komu mér oft í hug
hin spöku orð Einars Ben.: „
Musteri Guðs eru hjörtun sem
trúa“.
Ég sagði hér að framan að
Ragnheiður hefði breitt sig yfir
börnin sín. Það gerði hún einnig
yfir barnabörnin, sem mörg
dvöldu hjá þeim mæðgum, er þau
voru við nám í Reykjavík Þá veitti
hún þeim skjól og bætti úr
mörgum þeirra þörfum. Einar
Ben. sagði í kvæðinu um móður
sína:
„En bæri ég heira m(n brot og rainn harm
þú broBtir af djúpum sefa
þú vógBt upp björg á þlnn veika arra
ú visBÍr ei hik eAa efa.
alheim ég þekktl einn einasta barm.
sem allt kunni aA fyrirgefa".
Þetta fagra erindi úr kvæðinu
finnst mér einkenni fyrir Iif Ragn-
heiðar Gísladóttur, bæði ég sjálf-
ur og afkomendur hennar geta
tekið undir það. Við hjónin þökk-
um hjartanlega vináttu hennar til
hinstu stundar.
Það var ánægjulegt að frétta
það, að Ragnheiður fékk að kveðja
þetta líf þrautalaust, eftir að hafa
lifað sín síðustu ár umvafin umsjá
og hlýju Ragnheiðar dóttur sinn-
ar, og barna sinna yfirleitt. En
mestar þakkir færi ég þeim
systrum Ragnheiði og Guðrúnu
fyrir umsjá móður sinnar.
Ragnheiður var alin upp i
Norðurárdal í Borgarfirði, hún
unni héraðinu og ekki síst Norður-
árdalnum. Hún var dóttir dalsins.
Það voru henni jafnan
ánægjustundir að geta heimsótt
vinina í dalnum, og ég veit að hún
hefir litið yfir dalinn sinn um leið
og hún fór.
Já. nú er RngnhelAur frcnka m(n fartn.
„Og mAAIr GuAb lét móti henni fara
sinn mikla hvfta flokk. sinn englaskara“
D.St.
Bjarni Ilalldórsson
Uppsölum.
Kveðja frá erlendri tengdadóttir.
„Því þó ég talaði tungum engla
og manna, en hefði ekki kær-
leikann, þá væri allt mitt tal,
sem hljómandi málmur og
hvellandi bjalla."
Ég gleymi því aldrei, hversu
gömul sem ég kann að verða,
hvernig tekið var á móti mér.
Eiginmaður minn og tengdafað-
ir höfðu að vísu tekið á móti mér á
flugvellinum, en það voru móttök-
ur tengdamóður minnar, Ragn-
heiðar Gísladóttur, sem mér
aldrei líða úr minni.
Við vorum umsvifalaust leidd
inn í svefnherbergi þeirra, þetta
herbergi varð síðan heimili okkar
næsta ár.
Hjálp sú, og ástúð, sem okkur,
ekki sízt mér, útlendingnum, var
sýnd, var meiri en orð fá lýst.
Þegar við siðan næsta ár flutt-
um í okkar eigið (leigu)-húsnæði,
var það ekki það langt frá, að
stöðugt náði hjálpararmurinn og
umhyggja til okkar.
Barn okkar, og síðan börn okk-
ar, döfnuðu í þeirri vissu, að á
einum stað var fastur blettur,
„Hjá ömmu“.
Hvort gatan hét Lokastígur eða
Bragagata, þá var það alltaf
heima hjá ömmu, þar var alltaf
gott að koma, og alltaf víst at-
hvarf.
Jafnvel, þegar fjarlægðirnar
síðar jukust, hikaði hún ekki við
að senda tengdabörnunum frá
fjarlægum löndum blessun sína.
Ég vil ljúka þessari stuttu grein,
með því, að þakka sjálf alla þessa
ástúð, sem mér framandi var sýnd
á allan hátt.
Betty Ilermannsson
Laugarnesveg 74.
t
Þökkum auðsýnda samúö viö andlót og jaröarför eiginkonu
minnar, móöur okkar, tengdamóöur op ömmu,
ADALHEIÐAR MAGNUSDÓTTUR,
Skipasundi 40.
Magnús Halgaaon,
Halldóra Gunnaradóttir,
Kriatbjörg Gunnaradóttir, Bragi Jónaaon,
Þorsteinn H. Gunnarsaon, Inga Þ. Halldóradóttir,
Arnbjörn Gunnarason, Sigrún Sigurgairsdóttir.
±
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vlnáttu og hlýhug viö andlát og
útför konunnar minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
KARLINNU G. JÓHANNESDÓTTUR
frá ísafiröi,
Haiömörk 68
Hvaragaröi.
Jón Jónaaon
Margrét Jónadóttir Skapti Jósapaaon
Kristín Jónsdóttir Sigmundur Guðmundsson
Þórarinn Jónsson Hanna Bjarnadóttir
Siguróur Albart Jónsson Sigrún Óakarsdóttir
_________________ og barnabörn.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Brúöarkjólar
Til ieigu brúöarkjólar, slör og
hattar. Uppl. f síma 34231.
SkrifstofuhúsnaBÓi
söa Iftil fbúö á jaröhæö sem
nsst miöbssnum óskast tll leigu.
Jopl. f sfmum 50513 og 51560.
' innig má leggja tilboö Inn á
• xi. Mbl. merkt. „N — 893“.
Hjón maó eitt bam
óska eftir 3Ja til 4ra herb. fbúö
frá 1. sept. Fyrlrframgr. Uppl f
sfma 76798.
—1 lyy.i'yw'i
aA 4....A..
Ráóskona óskast
á gott sveitahelmill. Sfmi 71123
eftir kl. 7.
Enskumæiandi stúlka
óskar eftir skrlfstofustarfi. Margt
kemur til greina. Uppl. f sfma
28751.
Keflavík
til sölu 4ra herb. íbúölr á smfö-
um ásamt bflskúr. Sár Inngang-
ur. Skilast tllb. aö utan. Eln-
angraöar aö Innan meö mlöstöö
og milliveggjum. Tllbúnar tll
afhendingar.
Ytri — Njaróvík
3ja herb. fbúö vlö Hjallaveg 5.
Eignamlölun Suöurnesja,
Hafnargötu 57,
sfml 3668.
Glæsilegt málverk
(vatnslltir) frá Grlndavfk eftlr
Gunniaug Schevlng til sölu. Tll
sýnis föstudag kl. 17 — 19 og
laugardag kl. 14 — 16 aö
Bergstaöarstrætl 74A.
Gunnlaugur Þóröarson.
Bútasala — Útsala
Opið á laugardaginn.
Teppasalan
Hverfisgötu 49
sími 19692.
Kristniboðssambandió
Bænasamvera veröur f kristni-
boöshúslnu Betania Laufásvegi
13 f kvöld kl. 20.30. Alllr eru
vefkomnir.
UTIVISTARFERÐIR
Föstud. 31/8
kl. 20
Fjallabakavegur syöri. Markar-
fljótsgljúfur, Emstrur, Hattfell,
Mællfellssandur, Hólmsárlón,
Rauölbotn, Eldgjá, Landmanna-
laugar og margt flelra aö sjá og
skoða. Farseölar á skrlfst.
Lækjarg. 6a, síml 14606.
Útivlst
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
ÖLDOGÖTU 3
SÍMAR11798 og 1S533.
Föstudagur 31. ágúst,
kl. 20.00
1. Þórsmörk
2. Landmannalaugar — Eldgjá
3. Hveravelllr — Þjófadallr
4. Velöivötn — Jökulhelmar —
Kerlingar
Gist f húsum f öllum feröunum.
Nánari upplýslngar og farmlöa-
sala á skrifstofunnl.
Feröafélag fslands