Morgunblaðið - 29.08.1979, Side 32
á ritstióro og skrifstofu:
10100
JD«r0unbUibi>»
MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 1979
Hækka búvörur um og
yfir 20% á næstunni?
VERULEG hækkun á verði búvara
á að koma til framkvæmda á næst-
unni. Ekki ligxja enn fyrir endan-
legar niðurstöður um hverjar verði
hækkanir á verði einstakra búvöru-
texunda en ætia má að meðaihækk-
un verði um eða yfir 20% og á þeim
vörum, sem mest hækka gæti hækk-
unin orðið meiri. Nýtt verð á mjólk
og mjólkurvörum tekur að öllum
likindum gildi um næstu helgi en
nýtt verð á kjöti og fslenskum
kartöflum tekur væntanlega gildi
um 15. september n.k.
Sexmanna nefnd hefur undan-
farna daga setið á stöðugum fundum
vegna þessa nýja verðs. Er nefndin
nú að leggja síðustu hönd á samn-
inga um verðlagsgrundvöll landbún-
aðarvara og er vonast til þess að
samningum um hann verði lokið
fyrir næstu helgi. Þá tekur nefndin
til við að ákveða vinnslu- og dreif-
ingarkostnað mjólkurvara og er
stefnt að því að nýtt mjólkurverð
taki gildi strax eftir næstu helgi.
Verð á kjöti hækkar vart fyrr en um
miðjan september, eins og undanfar-
in ár eða um það leyti, sem sláturtíð
hefst. Um líkt leyti er þess að vænta
að nýtt kartöfluverð taki gildi.
Rússneskt njósna-
dufl fannst á reki
LjÓHm. Mbl.: RAX.
Rússneska njósnaduflið, sem fannst á reki útaf Horni í síðustu viku.
Dufiið er nú geymt í porti Landhelgisgæzlunnar við Seljaveg.
UM MIÐJA siðustu viku barst
Landhelgisgæzlunni tilkynning um
dufl á reki 30 sjómflur austur af
Horni. Varðskipið Þór var sent á
staöinn og kom það með duflið til
Reykjavfkur á laugardaginn. Við
athugun reyndist hér vera um að
ræða rússneskt njósnadufl sömu
gerðar og þau rússnesku dufl sem
hafa fundizt við landið öðru hverju
á undanförnum árum, annað hvort
á reki eða rekin á fjörur.
Þetta dufl er níunda rússneska
njósnaduflið, sem Landhelgisgæzl-
unni hefur verið tilkynnt um á
undanförnum árum.
ítarleg rannsókn hefur farið fram
á duflunum og leiddi hún ótvírætt í
ljós að þau eru af rússneskum
uppruna. Er það hlutverk þeirra að
nema hljóð í sjónum og er þeim
ætlað að vera á miklu dýpi. Munu
duflin vera hluti er-n meiri njósna-
búnaðar, sem Sovétmenn hafa komið
fyrir í sjónum hér við land ög annars
staðar.
Prinsinn fór í gær
— fékk nm 40 laxa
KARL prins af Waies héit af landi brott um ellefuleytið í gærmorgun, tveimur dögum fyrr en áætlað
var, og er það vegna morðsins á Mountbatten jarli, náfrænda prinsins. Karl prins mun hafa veitt
tæplega 40 laxa þann tíma sem hann var við veiðar í Hofsá i Vopnafirði og lét hann sem fyrr mjög vel
af dvölinni þar. Prinsinn ætlaði að fara frá Egilsstaðaflugvelli klukkan níu í gærmorgun en vegna
svartaþoku var ekki taiið ráðlegt að fara Hellisheiði og var því farin lengri leiðin yfir Möðrudalsöræfi
til Egilsstaða. Lögreglan á Vopnafirði ók prinsinum þessa 180 kflómetra leið og sýnir myndin
prinsinn nýstiginn út úr lögreglubflnum á Egilsstaðaflugvelli. Ljósm. mu.: Jóhann d. Jónsson.
Tómas Arnason um efnahagsmálatillögur Framsóknar:
Erum komnir í þær stellingar að
segia hingað og ekki lengra
„ÞAÐ MÁ segja, að við séum
komnir í þær steilingar að segja
hingað og ekki lengra,“ sagði
Tómas Arnason fjármálaráð-
herra, er Mbl. spurði hann um
starf sérstakrar efnahagsmála-
nefndar Framsóknarflokksins,
sem nú vinnur að tillögum um
stefnuna í efnahagsmálum á
næsta ári. Nefndinni var falið að
afla upplýsinga frá Noregi um
stöðvun kaupgjalds og verðlags
þar í landi, taka til hennar
afstöðu og reikna framvindu
efnahagsmála með slíkri aðgerð
og ná inn í efnahagsmálastefnu
Framsóknarflokksins og upphaf-
iegt efnahagsmálafrumvarp
ólafs Jóhannessonar. Búist er við
að nefndin ljúki störfum á næstu
7 til 10 dögum og að þá komi
þingflokkur og framkvæmda-
stjórn Framsóknarflokkssin sam-
an tii fundar og kveði upp úr um
það, hverjar tillögur flokksins í
efnahagsmálum verði, en þær
verði kynntar í byrjun
september.
I þessari sérstöku efnahags-
málanefnd Framsóknarflokksins
eru ráðherrarnir Steingrímur
Hermannsson og Tómas Árnason,
Vinstri flokkamir í borgarstjóm:
Allt logandií iUdeiIum
formaður og ritari flokksins, Guð-
mundur G. Þórarinsson gjaldkeri,
Einar Ágústsson varaformaður,
og meðal annarra nefndarmanna
eru Halldór Ásgrímsson, Helgi
Bergs og Jón Skaftason. Megin-
markmið nefndarinnar mun vera
efnahagsstefna, sem hafi það
mark að verðbólgustigið í lok
ársins 1980 verði svipað því marki,
sem upphaflega var sett fyrir
þetta ár, eða um 30%. Til þessa
munu Framsóknarmenn mjög að-
hyllast einhverja útfærslu á verð-
stöðvunarlögum Norðmanna með
tengingu við viðskiptakjaravísi-
tölu ásamt ákveðnum hámörkum
eða „þökum" fyrir hinar ýmsu
stærðir efnahagsmálanna á næsta
ári.
MIKLAR SVIPTINGAR eiga sér stað um þessar mundir í samstarfi
meirihlutaflokkanna þriggja f borgarstjórn Reykjavíkur. Þannig er
ágreiningur milli flokkanna um veitingu starfs framkvæmdastjóra
Æskulýðsráðs Reykjavfkur eins og komið hefur fram f fjölmiðlum að
undanförnu. Sjöfn Sigurbjörnsdóttir borgarfulltrúi var varamaður
Kristjáns Benediktssonar á fundi borgarráðs sfðastliðinn föstudag
þar sem ráðið var f stöðuna. En sú fundarseta Sjafnar hefur vakið
mikia reiði framsóknarmanna og alþýðubandalagsmanna f Reykjavfk.
Jón Aðalsteinn Jónasson, for-
maður fulltrúaráðs Framsóknar-
félaganna í Reykjavík, segir í
samtali við Tímann í gær, að hann
telji afgreiðslu stöðuveitingarinn-
ar algert ofbeldi og að grundvöllur
samstarfsins í meirihluta borgar-
stjórnarinnar sé þar með brost-
irn.
v nn Ágúst Friðfinnsson
íiUi Framsóknarflokksins í
Æskulýðsráði Reykjavíkur lét
bóka á fundi ráðsins í gær, að
hann telji „afgreiðslu Sjafnar og
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins á
máli þessu óheiðarlega og lýsa
vanvirðingu við borgarfulltrúa
Kristján Benediktsson". í kjölfar
þessarar bókunar áttu sér stað
hörð orðaskipti milli fulltrúa
meirihlutaflokkanna um málið.
í grein í Morgunblaðinu í dag
segir Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
borgarfulltrúi, að samkomulag sé
um að hún sé varamaður Björg-
vins Guðmundssonar í borgarráði
og Adda Bára Sigfúsdóttir vara:
maður Sigurjóns Péturssonar. í
greininni segir Sjöfn að þar sem
Kristján Benediktsson borgar-
ráðsmaður sé eini borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins ráði vara-
mannalistinn hver taki hans sæti í
borgarráði þegar hann er fjarver-
andi. Sigurjón Pétursson hafi ver-
ið fjarverandi síðastliðinn föstu-
dag og Adda Bára Sigfúsdóttir því
verið varamaður hans. „Af skilj-
anlegum ástæðum gat Adda Bára
því ekki mætt fyrir Kristján
Benediktsson. Var ég því daginn
áður boðuð á þennan borgarráðs-
fund sem varamaður Kristjáns
Benediktssonar sem er í fríi,“
segir Sjöfn Sigurbjörnsdóttir í
grein sinni. Hún svarar og gagn-
rýni Guðrúnar Helgadóttur í
Morgunblaðinu í gær og segir að
Guðrún hafi mætt til leiks á
þennan fund borgarráðs, „en hún
mætti hins vegar óboðuð," segir
Sjöfn í greininni.
Loks hefur á síðustu dögum
komið upp ágreiningur um hver
skuli vera fulltrúi meirihlutans í
stjórn dagvistunarstofnana í
Reykjavík. I Morgunblaðinu í dag
er greint frá innbyrðis deilum
milli þeirra Guðrúnar Helgadótt-
ur og Gerðar Steinþórsdóttur ann-
ars vegar og Sjafnar Sigurbjörns-
dóttur hins vegar um það hver
skuli skipa sæti annars fulltrúa
meirihlutans í stjórnarnefndinni.
Sjá nánar miðopnu:
„Vinstri stjórn í Reykjavík“.
Alþýðuflokksmenn vinna nú
einnig að endurnýjun tillagna
sinna í efnahagsmálum, en þeir
hafa lýst því yfir að þeir séu
reiðubúnir til viðræðna um tillög-
ur Tómasar Árnasonar um aukna
tekjuöflun fyrir ríkisstjóð á þessu
ári í tengslum við mörkun efna-
hagsstefnu til lengri tíma. Þing-
flokkur og framkvæmdastjórn
Framsóknarflokksins samþykkti
formlega á fundi í fyrradag tillög-
ur Tómasar um hækkanir óbeinna
skatta til að brúa bil ríkissjóðs á
þessu ári.
Sjá samtal við Sighvat Björg-
vinsson formann þingflokks
Alþýðuflokksins: „Bfðum eftir-
væntingarfullir tillagna for-
sætisráðherra“, bls. 2.