Morgunblaðið - 23.09.1979, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.09.1979, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR 208. tbl. 66. árg. SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. r Island studdi Pol Pot Sameinuðu þjóðunum — 22. september — Reuter — AP ÍSLENDINGAR voru meðal þeirra þjóða er greiddu atkvæði tillögu er gerði ráð fyrir þvi að sendinefnd stjórnar Pol Pots, er hrakin var frá völdum í Kambód- íu, tæki sæti Kambódíu á Alls- herjarþinginu í stað sendinefnd- ar stjórnar Heng Samrins, sem komst til valda í Kambódiu snemma á árinu fyrir tilstyrk Sovétmanna og Víetnama. Tillag- an var samþykkt með 71 atkvæði gegn 35. Auk íslendinga greiddu Danir og Norðmenn tillögunni atkvæði, en Finnar og Svíar sátu hjá. Rúmenar og Júgóslavar einir austantjaldsþjóða greiddu tillög- unni atkvæði. Alls sátu 34 þjóðir hjá við atkvæðagreiðsluna, sem fór fram eftir heitar umræður. Verkfalli aflýst í Rotterdam Rotterdam — 22. september AP — Reuter VINNUDEILU þeirri sem lamað hcfur umferð um höfnina í Rott- erdam siðastliðnar fjórar vikur hefur nú verið aflýst og verka- menn hef ja störf á ný á mánudag. Margir verkamannanna hafa snúið til vinnu síðustu daga, en alls náði verkfallið til 7.000 hafn- arverkamanna. Heitt varð í kolum við höfnina á miðvikudag, er nokkur hundruð verkamanna reyndu að stöðva vinnu starfsfólks við gámamóttöku. Lögregla skarst í leikinn og beitti hundum og vatnsbyssum. Nú styttist dagur og skuggarnir lengjast óðum. Ól. K. M. tók þessa mynd af kveðjukossi síðdegissólarinnar fyrir fáeinum dögum. Bokassa neitað mn hæli í Frakklandi París, Bangrui. 22. sept. AP, Reuter. NÁNAR gætur voru hafðar á Caravelleþotu Bokassa, fyrrum keisara í Mið-Afrikukeisaradæminu þar sem hún stóð á her- flugvelli skammt frá París í dag. Frönsk stjórnvöld neituðu Bokassa um land- vistarleyfi, að sögn AP- Bítlarnir ekki af tur saman? New York, 22. september. Reuter. TALSMAÐUR Paul McCartneys fyrrverandi Bítils sagði í dag, að ekkert væri hæft í fréttum þess efnis, að McCartney hefði fyrir sitt leyti samþykkt að Bítlarnir kæmu saman og lékju á hljómleikum til styrktar vietnömsku báta- fólki. í ljósi þessa þykir næsta ólík- legt, að Bítlarnir komi saman aftur, en þeir komu síðast fram saman á hljómleikum 1967 og allt frá því hafa árangurslausar tilraunir verið gerðar til að fá þá til að halda hljómleika. Síðasta verk hljómsveitarinnar var að leika inn á hljómplötu árið 1970. Skýrt var frá því hjá Samein- uðu þjóðunum í gær, að Kurt Waldheim framkvæmdastjóri hefði m.a. reynt að koma sam- einingu Bítlanna í kring og rætt við George Harrison, einn þeirra, í síma. Hljómleikahald- ari í Los Angeles skýrði og frá því, að Harrison hefði samþykkt hljómieikahaldið og að sér væri kunnugt að Ringo Starr og McCartney væru jafnframt reiðubúnir til að koma fram, en ekki hefði náðst samband við John Lennon. fréttastofunnar. Bokassa kom til Frakklands í gær á einkaþotu sinni eftir að hafa verið steypt af stóli í byltingu á fimmtudag. Að sögn var Bokassa einungis leyft að lenda í Frakklandi þar sem þota hans var að verða eldsneytislaus. Hon- um hafði verið neitað um lendingarleyfi á Orly- flugvelli í París. Talsmaður Giscard d’Estaing, forseta Frakklands, sagði að Bok- assa yrði ekki leyft að fara frá þotunni vegna þess að dvalar hans væri ekki óskað í landinu. Bokassa hefur franskt vegabréf. Hann hlaut mörg heiðursmerki fyrir framgöngu sína í franska hernum í síðari heimsstyrjöldinni og síðar í Indókína. Bokassa var í Lýbíu þegar honum var steypt af stóli og búist var við að þota hans héldi þangað. David Dacko, sem nú hefur tekið við forsetaembætti í landinu, sagði að hann hefði skipulagt byltingartilraunina í samvinnu við Frakka og vinveittar afrískar þjóðir síðustu tvo mánuðina. Bok- assa steypti Dacko af stóli árið 1965 og hann sat í 10 ár í stofufangelsi en 1976 gerði Bok- assa hann að sérlegum ráðgjafa sínum. Byltingin var án blóðsút- hellinga. Fólk streymdi á götur út til að fagna byltingunni en Dacko sagði að kosningar færu fram í landinu innan fárra mánuða. Dýrt að gætapáfa New York, 22. sept., Reuter. ÖRYGGISGÆSLA vegna heim- sóknar Jóhannesar Páls páfa til New York 2. og 3. október næst- komandi mun kosta borgina um þrjár milljónir dollara, eða rúman milljarð króna, að því er skýrt var frá í dag. Um 11.000 lögregluþjón- ar munu sinna öryggisgæzlunni, sem verður hin umfangsmesta í sögu borgarinnar. Þeysireið á skriðdreka Oldenburg, Vestur-Þýzkalandi. 22. september, Reuter. DRUKKINN hollenzkur hermaður tók í morgunsárið traustataki skrið- dreka er tilheyrði Nato-herjum í norðurhluta Vestur-Þýzkalands og lét síðan gamminn geysa eftir hrað- brautunum. Hermanninum þótti nóg komið er hann hafði ekið skriðdrek- anum um 100 kílómetra og gafst þá upp.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.