Morgunblaðið - 23.09.1979, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 23.09.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1979 13 mann, en samkvæmt annarri skoðanakönnun hefur helmingur þjóðarinnar aldrei heyrt hans getið. Staða Bakers, sem er vinsæll þótt hann sé lítt þekktur og hófsamur í stjórnmálum, mundi batna mikið ef Kennedy yrði forsetaframbjóðandi. En líklega mundi framboð Kennedys treysta enn betur stöðu John Connallys, sem hefur svo mikið aödráttarafl að illa skiigreindar hægriskoðan- ir hans hverfa í skuggann. Vinsældir Kennedys virðast hins vegar hafnar yfir stjórnmál. Samkvæmt skoðanakönnunum er hann einfaldlega sá leiðtogi, sem Bandaríkjamenn telja sig þurfa. En ef og þegar hann verður frambjóðandi kemur að því, að brotinn verði til mergjar langur ferill hans í stjórnmálum og frjálslynd afstaða hans í mörgum málum, barátta hans fyrir minni- hlutahópum og andóf hans gegn stórfyrirtækjum, og slík rann- sókn kann að verða neikvæð fyrir hann á sama tíma og allt bendir til þess að Bandaríkjamenn séu að færast til hægri. Óvissa Hann mun eiga fullt í fangi með að fá Suður- og Miðvestur- ríkin til fylgis við sig, en mun ugglaust reyna að friða þau á sama hátt og John bróðir hans með vali sínu á varaforsetaefni, sem hugsanlega gæti orðið Sam Nunn öldungadeildarmaður frá Georgíu. En opinberlega bíður Kennedy enn átekta og hann hefur ekki tekið endanlega ákvörðun. Hann mun líklega bíða fram í nóvember eða desember og á meðan munu peningar streyma í kosningasjóði hans. Honum ber ekki skylda til að tilkynna framboð sitt form- lega fyrr en í árslok, þegar frestur rennur út til að skrá frambjóðendur í fyrstu forkosn- ingunum. Það áþreifanlegasta sem Kennedy hefur sagt um framtíð- ina er að hann muni líta á það sem skyldu sína að gefa kost á sér, unum á næstu tveimur mán- uðum. í orðum hans felst að hann telji það ekki líklegt. Hann getur alltaf dregið sig í hlé, en hann hefur gengið svo langt að óvíst er að hann geti snúið við. Á meðan hefur Carter gálgafrest til að snúa við straumunum. Störf bandaríska þjóðþingsins fram til jóla geta ráðið úrslitum um hver verður næsti forseti Bandaríkjanna. Baráttan fyrir forsetakosningarnar 1980 er raunverulega hafin og í Washington er almennt álitið að Jimmy Carter forseti hafi 60 til 90 daga gálgafrest til að tryggja það að hann geti setið áfram í embætti. Carter þegar allt lék í lyndi. Carter. Þeir eru vissir um, að Carter muni fæla kjósendur frá kjörstöðum ef hann verður til- nefndur, en eru sannfærðir um að Kennedy muni draga til sín óra- grúa kjósenda og fylla kjörstað- ina, hvort sem kjósendur greiða atkvæði með honum eða á móti. Þeir hugsa sem svo, að demokrat- ar kunni að tapa forsetakosning- unum en halda þingmeirihluta sínum. Upplausn En óvíst er hvort þeir mundu tapa forsetakosningunum. Hálf- gert upplausnarástand ríkir í herbúðum repúblikana, þar sem mikill fjöldi frambjóðenda hefur gefið kost á sér, og líklegt er talið að þetta ástand geti haldizt fram að flokksþinginu sem tilnefnir forsetaefni þeirra í ágúst. Ronald Reagan er ennþá sigurstrangleg- astur og hann hefur meira fylgi en Carter samkvæmt skoðana- könnunum. En sama gildir um Howard Baker öldungadeildar- Strax í október velja demókrat- ar í Florida fulltrúa á þing sem kemur saman um miðjan nóvem- ber, réttu ári fyrir kosningarnar, til að undirbúa kosningu fulltrúa á sjálft flokksþingið sem velur forsetaefnið. Það var því engin tilviljun að Carter fór til Florida í „sumarleyfi" sínu og flutti þar ræður, þótt hann hefði vitað um heræfingar Rússa á Kúbu í tvo sólarhringa. Aðeins tveimur mánuðum síðar endurtekur sagan sig í Iowa, sem skiptir öllu meira máli, um miðj- an janúar. Og forkosningarnar fyrir flokksþingið, 35 talsins, hefjast í New Hampshire 26. febrúar. Áhrif þingsins Þegar þá verður komið munu örlög Carters hafa verið ráðin í þjóðþinginu. Dæmið er reiknað þannig, að takist Carter fyrir jól að fá þingið tl að samþykkja Salt-samninginn og lög um ágóðaskatt muni hann hafa eins mikla möguleika og hver annar til að hljóta endurtilnefningu og endurkosningu. Ef verðbólgan fer niður fyrir tíu af hundraði, sam- drætti verður haldið í skefjum og olíubirgðir verða nægjanlegar er talið að hann hafi betri mögu- leika en aðrir. Það er því mikið komið undir þinginu og þegar síðast var vitað virtist það hafa snúið við honum baki. En Carter vonar, og sú von er ekki fráleit, að almenningsálit- ið neyði þingið til að samþykkja nokkrar eða allar þessar ráðstaf- anir. Tuttugu og fjórir öldunga- deildarmenn demókrata gefa kost á sér til endurkjörs á næsta ári, margir þeirra í vafakjördæmum, og verið getur að þingmenn telji hagsmunum sínum bezt borgið með því að styðja forsetann. Carter telur, að skatturinn og Salt-samningurinn verði sér til bjargar, en atburðir sumarsins hafa skaðað hann. Eftir á að hyggja finnst mönnum að fundir hans í Camp Gavid með áhrifa- mönnum um landsmálin hafi sýnt óákveðni, að breytingarnar á ríkisstjórninni hafi sýnt fum, að val Hamilton Jordans hafi sýnt dómgreindarskort, að brottrekst- ur Ándrew Youngs hafi verið uppgjöf fyrir áhrifamiklum þrýstihópum og að ferð hans um Missisippi hafi jafngilt van- rækslu við störf. hafði sóað kröftum sínum í bar- áttuna gegn Ronald Reagan. Ósigrar í forkosningum munu heldur ekki aftra Carter. Hetja hans, Harry Truman, dró sig í hlé snemma árs 1952 þegar hann hafði orðið að þola eins útreið og Carter á í vændum á næsta ári og sama gerði Lyndon Johnson 1968. En hvorugur þeirra var eins þrjózkur, sjálfsöruggur og valda- fíkinn og Carter, sem mun áreið- anlega halda baráttunni áfram. George McGovern öldunga- deildarmaður mun þegar hafa leitað fyrir sér um stuðning meðal demókrata og upp er kom- in hreyfing um að fá Carter til að afsala sér völdunum í hendur Walter Mondale varaforseta, sem hefur sloppið óskaddaður úr ógöngum ríkisstjórnarinnar. Jerry Brown ríkisstjóri hefur þegar gefið kost á sér. En Edward Kennedy er eina alvarlega ógnun- in við Carter. Bandaríkjamenn hafa beðið eftir því í tíu ár að Kennedy gerði upp við sig, hvort hann ætti að keppa að forsetakjöri. Og nú virðist hann hafa tekið af skarið. Rétt í þann mund sem hreyfingar stuðningsmanna hans í 19 ríkjum voru farnar að gefa upp alla von og töldu að þær gætu ekki sann- fært fólk um að hann mundi gefa kost á sér, þóttust þær fá merkið, sem þær höfðu beðið eftir, frá Kennedy. Með tilkynningunni um að kona sín og móðir muni styðja framboð sitt virðist Kennedy hafa stigið svo stórt skref að hann geti ekki snúið við. „Bardagi aldarinnar“ Tilkynnmg hans mun koma af stað ýmsum hræringum, þar sem Carter hefur heitið því að berjast unz yfir lýkur. „Ef strákarnir frá Massachusetts takast á við strák- ana frá Georgíu," sagði Richard Nixon fyrrum forseti þegar hann heyrði fréttina,“verður þetta bardagi aldarinnar." Skömmu áður bauð Carter Kennedy til hádegisverðar og mönnum var skemmt þegar til- kynnt var að þeir hefðu ekki rætt stjórnmál. Nú er vitað, að tveim- ur vikum fyrir þennan fund hafði Carter send Kennedy leynileg skilaboð þess efnis, að hann mundi ekki draga sig í hlé og að hann mundi þrauka hversu auð- mýkjandi ósigra sem hann mundi bíða í fyrstu forkosningunum. Með þessa vitneskju að veganesti gaf Kennedy yfirlýsingu sína. Kennedy hefur á bak við eyrað, að þeir 24 öldungadeildarmenn demókrata, sem keppa að endur- kjöri á næsta ári, vilja miklu fremur að hann verði í efsta framboðssæti flokksins en Fyrri reynsla Aftur á móti hefur Carter söguna með sér. Allir forsetar, sem hafa sótzt eftir endurkjöri, hafa verið tilnefndir. Ef forseti hefur mætt keppni frá öflugum keppinauti hefur mótaðilinn allt- af sigrað. Þannig hreppti Carter forsetaembættið 1976 þegar Ford Kennedy ásamt Joan konu sinni á tennismóti. Gálgafrestur Carters og ógnun Kennedys

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.