Morgunblaðið - 23.09.1979, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.09.1979, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1979 Á flótta 50% af flóttafólki frá Vietnam eru börn undir 12 ára aldri Margar átakanlegar sögur eru sagðar um flóttafólk víðs vegar að úr heiminum. Stundum eru fréttirnar svo tíðar, að margir hætta að gefa þeim gaum. Vandamálin verða f jarlæg og koma „mér“ ekki við lengur. Athyglisvert er þó að heyra, hve margt af þessu flóttafólki eru börn. Það gæti t.d. verið verðugt verkefni í samfélagsfræði eða kristinfræði að biðja börnin um að viða að sér efni um flóttafólk í myndum og máli og reyna að fá þau til þess að setja sig í spor þessa fólks, sem hvergi'a athvarf. Fullyrt er, að yfir 50% af flóttafólki frá Vietnam, sem flúið hefur til Malasíu á bátum, séu börn innan við 12 ára! í flóttamannabúðunum í Tai eru einnig um 40% flóttafólksins börn, og fyrir skömmu var sagt frá kaþólska prestinum Rafael Maria Fabreto, sem flúði ásamt 99 drengjum frá heimili í Nicaragúa, sem hann rak þar fyrir munaðarlausa drengi. Flýðu þeir fótgang- andi yfir fjöllin til Hondúras, fjarri öllum flóttamanna- leiðum. Þrjár stuáarfil gamans Óli bað kennarann um leyfi til að fara heim úr skólanum af því að honum Hði svo illa. „Sjálfsagt, óli minn,“ svar- aði kennarinn. „Ilvar líður þér illa?“ „Oérna í skólanum“. svaraði Á hverju lifir þú svo, ungi maður? Ég skrifa. Og hvað skrifarðu helst? Ég skrifa heim til foreldra minna til að biðja þá um peninga! Börnin höfðu aðeins fengið eitt verkefni til að skrifa ritgerð um: Spennandi knattspyrnukeppni! — Rétt eins og það væri gert ráð fyrir því, að allir hefðu áhuga á knattspyrnu og hlytu að hafa séð spennandi leiki! Aumingja Pétur sat og hugs- aði. Hann var einn þeirra, sem hafði aldrei séð knatt- spyrnuleik. Hann hafði allt önnur áhugamál. Þegar tím- inn var nær á enda, beygði hann sig samt yfir stilabók- ina sina og skrifaði eftirfar- andi: „Það kom úrhellis rigning, svo að þeir urðu að fresta þessari spennandi knatt- spyrnukeppni!" HEILSUVERNDARSTÖD REYKJAVlKUR Fæða og nestis- val barna Skólinn er hafinn á flestum stöðum á landinu. Sum börn eru stutt í skólanum, önnur lengur. Sum hafa með sér næringarríka fæðu, önnur litið sem ekkert — og hafa jafnvel ekki borðað heima hjá sér áður en þau fóru í skólann. Rétt fæðuval er þýðingarmikill þáttur í vellíðan okkar. Heilsuverndarstöð Reykjavíkur hefur gefið út bækling, sem ætlaður er foreldrum og forráðamönnum skólabarna. Þar segir m.a. Nestið á helst að vera: Mjólk eða hreinn ávaxtasafi, brauð — gróft brauð með áleggi, t.d. osti, grænmeti, eggjum, kjöt— eða fiskmeti. Ávextir og gulrætur. Til að tryggja, að líkaminn fái öll þau næringarefni, sem hann þarfnast, verður daglega að neyta af öllum fæðuflokkunum, sem eru sjö talsins: 1. Grænmeti (m.a. C-vítamín, A-vítamín og í sumu járn). 2. Ávextir og ber (m.a. C-vítamín). 3. Kartöflur og rótarávextir (kolvetni og vítamín). 4. Mjólk og ostur (eggjahvítuefni, kalk og B-vítamín). 5. Kjöt, fiskur og egg (eggjahvítugjafi, egg og innmatur, einkum lifur, er mjög járnauðug). 6. Brauð og kornmatur (einkum B-vítamín). 7. Smjör, smjörlíki og olía (m.a. A-vítamín og lítilsháttar D-vítamín). Þá er og minnst á nauðsyn þess, að barnið fái lýsi og borði rétta fæðu og á réttum tímum. Slen og máttleysi skólabarna getur stundum stafað af næringarskorti.svefnleysi eða hvers konar óreglusemi í lifnað- arháttum. Það er því afar nauðsynlegt, að börn fái reglulegan svefn — og næringarríka fæðu, ekki síst 15 fyrstu æviárin meðan þau eru að stækka og þroskast. Barnabœnir Vertu, Guð faðir, faðir minn í freslarans Jesú nafni. Hönd þín leiði mig út og inn svo allri synd ég hafni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.