Morgunblaðið - 13.11.1979, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 13.11.1979, Blaðsíða 44
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1979 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1979 25 Isiandsmftllð 1. delio | l........ ...:............ Einkunnagjofin KR: Pótur Hjólmarsson 2 Svavar Ásmundsson 1 ÓlafurLárusson 4 Símon Unndórsson 3 Friörik Porbjörnsson 4 Jóhannes Stefánsson 2 Þorvarður Höskuldsson 2 Kristinn Ingason 1 Konráö Jónsson 1 Haukur Ottesen 3 Björn Pétursson 1 VÍKINGUR: Jens Einarsson 2 Kristjón Sigmundsson 2 Guðmundur Guömundsson2 Siguröur Gunnarsson 2 Þorbergur Aóalsteinsson 2 Póll Björgvinsson 5 Árni Indriöason 3 Erlendur Hermannsson 2 Ólafur Jónsson 2 Steinar Birgisson 2 Heimir Karlason 1 Dómarar: Guömundur Kolbeinsson 2 Rögnvald Erlingsson 2 FH Birgir Finnbogason 4 Guömundur Magnússon 3 Valgaröur Valgarösson 3 Snmundur Stefónsson 3 Guömundur Á. Stefónsson 2 Eyjólfur Bragason 1 Árni Árnason 2 Pótur Ingólfsson 3 Magnús Teitsson 2 Geir Hallsteinsson 2 Kristjón Arason 3 Sverrir Kristinsson 2 VALUR: Brynjar Kvaran 2 Brynjar Haröarson 1 Bjarni Guömundsson 2 Höröur Hílmarsson 2 Steíndór Gunnarsson 2 Þorbjörn Jensson 2 Jón H. Karlsson 2 Stefón Halldórsson 2 Ólafur Benediktsson 1 Þorbjörn Guömundsson 2 Gunnar Lúövíksson 1 Dómarar: Óli Olsen og Björn Kristjónsson 2 HK: Einar Þorvaöarson 4 Bergsveinn Þórarinsson 2 Kristinn Ólafsson 2 Hilmar Sigurglslason 1 Ármann Sverrisson 1 Ragnar Ólafsson 1 Erling Sigurösson 2 Kristjón Gunnarsson 2 Friöjón Jónsson 3 Magnús Guðfinnsson 2 Nói Björnsson 1 Gíssur Kristinsson 1 ÍR: Þórir Flosason 4 Bjarni Hókonarson 3 Guöjón Marteinsson 2 Siguröur Svavarsson 3 Guömundur Þórðarson 2 Bjarni Bessason 3 Ársaall Hafsteinsson 3 Pótur Valdimarsson 1 Steínn Öfjörö 1 Höröur Hókonarson 2 Ásgrfmur Friöriksson 1 Bjarni Bjarnason 2 Dómarar: Gunnar Kjartansson og Ólafur Steingrímsson 4 STRAX í FYRSTA leik íslandsmótsins í handknattleik i 1. deild urðu óvænt úrslit. íslandsmeistarar Vals urðu að sætta sig við stórtap gegn ungu en bráðefnilegu liði FH. Langtímum saman í síðari hálfleiknum áttu Valsmenn sér ekki viðreisnarvon í leiknum. Sóknarleikur þeirra var afar fálmkenndur og varnarleikurinn riðlaðist hvað eftir annað og Brynjar og Ólafur í marki Vals gátu cngum vörnum komið við er leikmenn FII komust óhindraðir í hvert dauðafærið af öðru og voru ekki í vandræðum með að skora. Valsmenn verða svo sannarlega að leika betur en þeir gerðu að þessu sinni ætli þeir sér að eiga möguleika á að verja íslandsmeistaratitil sinn í vetur. ■ Þegar hálfleikurinn var hálfnaður var staðan jöfn, 5—5. Þá ná Valsmenn forystunni með marki Gunnars Lúðvíkssonar en Guð- mundur Árni jafnar með fallegu marki úr horninu. FH-ingar héldu 1 síðan forystunni út hálfleikinn og staðan í hálfleik var 9—8. Valur Jaín fyrri hálíleikur: Framan af fyrri hálfleiknum virtust leikmenn beggja liða vera frekar taugaóstyrkir og nokkurt fum var í sendingum og tækifæri fóru forgörðum á báða bóga. Þetta lagaðist eftir því sem líða tók á leikinn. FH-ingar voru fyrri til að skora. Guðmundur Magnússon læddi boltanum í netið, Stefán Halldórsson jafnaði fyrir Val úr vítakasti. Jafnræði var með liðun- um allan fyrri hálfleikinn og aldrei skildi nema eitt mark liðin. Knattspyrnufélagiö VÍÐIR í Garöi vantar þjálfara fyrir nœata keppnistímabil. Upp- lýsingar í síma 92-7290 næstu daga. Valsmenn úr jafnvægi: Lið FH kom mjög ákveðið til leiks í síðari hálfleiknum, og var ljóst strax í upphafi leiksins að þeir ætluðu að . selja sig dýrt. Varnarleikur þeirra var mjög góð- ur svo og markvarsla Birgis Finn- bogasonar. Þá var sóknarleikurinn yfirveg- aður og ekki skotið nema í góðu marktækifæri. Steindór Gunn- arsson jafnaði að vísu leikinn 9—9 í upphafi hálfleiksins en Kristján Arason og Guðmundur Magnús- son koma FH tveim mörkum yfir 11—9. Þorbjörn Jensson minnkar muninn í 11 — 10, en næstu fjögur mörk voru frá FH og staðan breyttist í 14—10. Á þessum tíma náði FH-liðið mjög góðum leik- kafla og yfirspiluðu Valsmenn algjörlega. Þegar síðari hálfleikur var hálfnaður var staðan 16—12, og var þá eins og Valsmenn vöknuðu af vondum draumi. Þeir sáu að sigurinn var að ganga þeim úr greipum og gerðu örvæntingar- fulla tilraun til að jafna metin en allt kom fyrir ekki. FH-ingar höfðu lengst af fimm marka for- ystu það sem eftir var og sigur þeirra var sanngjarn og verð- skuldaður. Óvænt frammistaða FH: Ekki er hægt að segja annað en að lið FH hafi komið verulega á óvart með góðum leik bæði i vörn og sókn. Geir Hallsteinsson sagði eftir leikinn: „Það sem við höfum verið að æfa gekk upp hjá okkur. Og það hefur líka sitt að segja að það er ekki reiknað með okkur í toppbaráttunni." Lið FH var afarjafnt í leiknum, og ekki er gott að gera upp á milli leikmanna. Besti maður liðsins var þó Birgir markvörður sem varði allan leikinn mjög vel. Sæ- mundur Stefánsson kom vel frá varnarleiknum og ungu mennirnir Valgarð, Guðmundur Magnússon og Pétur Ingólfsson áttu allir góðan leik. Þá var Kristján Ara- son atkvæðamikill. Geir Hall- steinsson er kjölfestan í liðinu og heldur öllu spili vel gangandi. Lið Vals átti svo sannarlega slakan dag. Getur það verið að jafn leikreyndir spilarar og hjá Val láti það henda sig að hugsa að einhver leikur sé unninn fyrir fram? Það hvarflaði að manni þegar maður horfði á hið ráðleysi- lega spil Vals. Enginn einn bar af í liðinu allir voru niðri á sama lága planinu, boltinn var ekki látinn ganga, mikið var um hnoð og ótímabær skot reynd. í stuttu máli: íslandsmótið 1. deild, Laugardalshöll 10. nóv. Valur - FH 17-21 (8-9) Mörk Vals: Stefán Halldórsson 6v, Þorbjörn Guðmundsson 3, Þor- björn Jensson 2, Steindór Gunn- arsson 2, Stefán Gunnarsson, Jón Karlsson, Gunnar Lúðvíksson og Bjarni Guðmundsson, eitt mark hver. Mörk FH: Valgarður Valgarðsson 4, Kristján Arason 4, Guðmundur Magnússon 3, Geir Hallsteinsson 3 (lv), Guðmundur Árni Stefánsson 2, Pétur Ingólfsson 3, Magnús Teitsson og Sæmundur Stefánsson eitt mark hvor. Brottvísanir af leikvelli: Guð- mundur Stefánsson og Valgarður Valgarðsson FH í 2 mín. Hörður Hilmarsson Val í 2 mín. Misnotuð vítaköst: Brynjar Kvar- an varði frá Geir Hallsteinssyni og Sverrir Kristjánsson varði frá Stefáni Halldórssyni. Dómarar: Óli Olsen og Björn Kristjánsson og dæmdu þeir leik- inn nokkuð vel. — þr. ÍR-ingar báru sigurorð af HK á heimavelli þeirra síðarnefndu að Varmá í Mosfellssveit á sunnudag. Sigur ÍR gat þó verið minni, jafntefli hefði verið sanngjörnustu úrslit leiksins. IIK-menn misnot- uðu ekki færri en fimm vítaköst í leiknum, og munar um minna í hnífjofnum leik. Það var ekki fyrr en á lokamínútum leiksins að Sigurði Svavarssyni, tókst að skora sigurmarkið í leiknum. ÍR-ingum gekk afar illa að finna smugu á vörn IIK og ef skot fór í gegnum vörnina þá varði Einar Þorvarðarson allt sem á markið kom. En markverðir beggja liða áttu stórgóðan leik. Staðan í hálfleik var 11 mörk gegn 9 IR í vil. En þegar 27. mínútur voru liðnar af síðari hálfleiknum hafði ÍR-ingum aðeins tekist að skora tvö mörk og staðan var jöín 13—13. En það kom þeim rcyndar ekki að sök. heilladísirnar voru þeim hliðhollar að þessu sinni og þeim tókst að ná í bæði stigin. Leikur þessi var reyndar leikur markvarðanna. Þór Flosason i marki ÍR gerði sér Íítið fyrir og varði fimm vítaköst og fjöldann allan af hörkuskotum. Og i marki IIK var og gaf Þóri lítið eftir. Einar varði Ganjíur lciksins: IR-liðið hafði frumkvæðið í leiknum fyrsta korterið og virkaði þá öllu sterkara. En HK-menn eru jafnan erfiðir heim að sækja og slepptu þeir IR-ingum aldrei langt á undan sér í mörkum. Um miðjan fyrri hálfleikinn jafna HK-menn metin 5—5, og ná síðan forystunni með marki Hilmars Sigurgísla- sonar 6—5. Bjarni Hákonarspn skoraði næstu þrjú mörk fyrir IR og kemur þeim yfir og er flautað var til hálfleiks hafði IR tveggja marka forskot 11—9. Mikil spcnna í síð ari hálflciknum Síðari hálfleikur var spennandi og ekki mátti á milli sjá hvort liðið var sterkara. IR hafði þriggja marka forskot þegar 12 mínútur voru liðnar af hálfleiknum, en þá var eins og broddurinn færi úr sóknarleik þeirra og þeir réðu ekki við sterka vörn HK og góða markvörslu. HK jafnar leikinn 13—13, og nú kom langur leikkafli hjá báðum liðum, þar sem ekki tókst að skora mark. Vítaköst voru varin á báða bóga og góð marktækifæri fóru forgörðum hjá báðum liðum. Einar Þorvarðarson í miklum ham þrjú vítaköst í leiknum. HK ÍR 14 — 15 Þegar aðeins þrjár mínútur eru til leiksloka skorar svo Bergsveinn Þórarinsson laglega úr horninu og kemur HK yfir 14—13. Nú var allt á suðupunkti í húsinu. Stuðn- ingsmenn HK hrópuðu allt hvað þeir máttu og ekki heyrðist mannsins mál fyrir látum og hávaða. Það var rétt svo að greina mætti flaut dómara. En HK var illa á verði í vörninni og Guðmundur Þórðar- son jafnaði svo til strax fyrir IR. Næsta sókn Hk rann út í sandinn með óyfirveguðu skoti. IR-ingar bruna upp og Sigurður Svavarsson skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok og færði félagi sínu tvö dýrmæt stig. Liðin Lið IR var allgott í leiknum en þó var leikur þess nokkuð sveiflu- kenndur. Besti maður lisins var markvörðurinn Þórir Flosason. Þá átti Bjarni Bessason og Ársæll ágætan leik. Lið HK verður erfitt heim að sækja í vetur fyrir hvaða lið sem er. Það var slæmt fyrir liðið að þessu sinni að misnota fimm vítaköst. Hefur það efalaust kostað þá sigurinn í leiknum. Einar Þorvarðarson markvörður var besti maður liðsins. Hann varði allan leikinn mjög vel og hefur alla tilburði til að komast í fremstu röð markvarða hér á landi. Þá vakti athygli ungur efnilegur leikmaður, Friðjón Jónsson, með góðum leik. Hilmar Sigurgíslason var allt of skotbráð- ur í leiknum og Ragnari Ólafssyni þeim reynda keppnismanni bæði í golfi og handboltaknattleik, brást illa bogalistin í vítaköstunum að þessu sinni. Dómarar í leiknum voru þeir Gunnar Kjartansson og Ólafur Steingrímsson og dæmdu þeir leikinn mjög vel. í stuttu máli: Iþróttahúsið Varmá Mosfellssveit. HK — ÍR 14 — 15 (9-11) Mörk ÍR: Bjarni Hákonarson 4 (lv), Bjarni Bessason 3, Ársæll Hafsteinsson 2, Guðmundur Þórð- arson 2, Guðjón Marteinsson 2, Hörður Hákonarson 1, Sigurður Svavarsson 1. Mörk HK: Friðjón Þórðarson 3, Ragnar Ólafsson 3 (lv), Hilmar Sigurgíslason 3, Kristján Gunn- arsson 2, Magnús Guðfinnsson, Kristinn Ólafsson og Bergsveinn Þórarinsson 1 hver. Brottvísun af leikvelli: Bjarni Bessason ÍR í 2 mín. Misnotuð vítaköst: Þórir Flosa- son varði fjögur vítaköst frá Ragnari Ólafssyni og eitt frá Ármanni Sverrissyni og tvívegis frá Herði Hákonarsyni. — þr. • Þorbjörn Guðmundsson Valsmaður kemur vel út á móti nýliðanum í FH-liðinu Eyjólfi Bragasyni áður leikmanni með Stjörnunni, Steindór Gunnarsson reynir að hindra línumanninn sem býr sig undir að grípa boltann. Ljósm.Rax. FH-ingar lögðu meistara Vals Naumara gat það ekki verið hja IR-ingum KR-ingar sprungu á síóustu mínútunum KR Víkingur 21 — 24 ÞEGAR litið er á lokatölurnar í leik Vikings og KR í 1. deild íslandsmótsins í handbolta. 24 — 21, mætti ætla að Víkingur hafi unnið nokkuð öruggan sigur á KR. En það er fjarri sannleikan- um. Þegar fjórar mínútur voru til leiksloka skoraði Páll Björg- vinsson úr víti fyrir Víking, en í næstu sókn KR reyndi Símon Unndórsson vægast sagt ótíma- bært skot, úr harðlæstu færi, Víkingar brunuðu upp og Páll skoraði öðru sinni úr hraðaupp- hlaupinu. Aðeins ein minúta og 32 sekúndur til leiksloka, sigur- inn í höfn. Næsta mark var einnig hraðaupphlaup hjá Víkingi. Það var blóðugt fyrir KR-inga að svona skyldi fara, snemma í síðari hálfleik höfðu þeir fjögurra marka forskot, 14 — 10, og lengst af gáfu þeir Víkingum ekkert eftir nema síður sé. En sem sé, þegar mest á reið, vantaði yfirvegun og því fór sem fór. Það var strax í upphafi mikill barningur, Sigurður Gunnarsson skoraði fyrsta markið fyrir Víking, en Símon jafnaði með þrumuskoti. Síðan voru jafntefl- istölur allt upp í 9—9, en þá skoruðu þeir Friðrik og Símon fyrir KR, komu KR í 11—9, Páll minnkaði muninn úr víti, en Símon átti lokaorðið, 12—10 í hálfleik. Það markverðasta við gang mála í fyrri hálfleik, var frammistaða Ólafs Lárussonar. Hann sýndi þarna takta sem menn kannast við af honum úr ostaauglýsingum sjónvarpsins, skoraði hvert markið af öðru, mörg með þrumufleygum. Átti Ólafur örugglega þarna einn sinn besta leik fyrir KR. KR-ingar hófu síðari hálfleik- inn af miklum fimbulkrafti, Frið- rik skoraði úr vinstra horninu og fiskaði síðan víti á sömu slóðum, sem Ólafur skoraði úr af öryggi. Víkingar sigu nokkuð á, en þegar síðari hálfleikur var hálfnaður, var enn tveggja marka munur, 17—15 fyrir KR Páll og Ólafur Jónsson jöfnuðu þá fyrir Víking, KR skoraði næst, Konráð, en næstu tvö mörk skoruðu Víkingar og höfðu þar með náð forystunni á mikilvægum tíma. Jafnt var síðan 19—19 og 20—20, en lokasprettin- um hefur þegar verið lýst, Víkingar innbyrtu dýrmætan sig- ur, þeim mun dýrmætari þar sem Valur tapaði fremur óvænt fyrir FH. Þrátt fyrir sigur voru Víkingar í hinum mestu erfiðleikum. KR-ingar klipptu hornamennina lengst af mjög þokkalega úr sam- bandi og upp úr þvi spratt mikil þvaga og brölt á miðjum vellinum, sóknarleikur Víkings riðlaðist. Ól- afur Jónsson skoraði t.d. ekki nema þrjú mörk í leiknum og Erlendur ekkert. Svona á að af- greiða Víkingana, en undir lokin fiskuðu þeir í hornunum nokkur víti. Páll Björgvinsson var í mikl- um ham í leiknum, en einhverra hluta vegna virtist bera lítið á honum, þó að það hljómi fárán- lega þar sem hann skoraði 13 mörk í leiknum. Sigurður Gunn- arsson skoraði nokkur mörk utan af velli, en lét að öðru leyti lítið á sér kræla. Segja má að þetta hafi verið einn af lélegri dögum Víkings, þrátt fyrir sigur. Það er eitt af einkennum toppliðs, að vinna þrátt fyrir slaka frammi- stöðu. KR-ingar geta verið eftir atvik- um ánægðir með frammistöðu sína. En það vantaði herslumun til að halda fengnum hlut og menn verða að halda haus og leika af skynsemi þegar mest á ríður. Það gerðu KR-ingar ekki þegar með þurfti. Lengst af var vörnin mjög föst fyrir og KR-ingar gengu eins langt og möguleiki var með hlið- sjón af nærveru tveggja dómara. Það gerðu Víkingarnir að sjálf- sögðu einnig og var því oft sterk- lega tekið á í varnarleiknum, nokkrar sniðglímur sáust og margir mjaðmahnikkir og hæl- krókar svo ekki sé minnst á hin hefðbundnu brot, hrindingar og fleira. Ólafur Lárusson átti stór- leik hjá KR, einkum í fyrri hálfleik, hann var mun rólegri í þeim siðari. Símon var einnig stórhættulegur í sókninni, en „klikkaði" illa undir lokin. Þá áttu þeir Friðrik Þorbjörnsson og Jó- hannes Stefánsson góðan leik í vörninni og Pétur markvörður varði þokkalega, m.a. eitt vítakast. í stuttu máli: íslandsmótið í handbolta, 1. deild Laugardalshöll: Víkingur — KR 24—21 (10—21) Mörk Víkings: Páll Björgvinsson 13 (7 v), Sigurður Gunnarsson 4, Ólafur Jónsson 3, Steinar Birgis- son og Þorbergur Aðalsteinsson 2 hver. Mörk KR: Ólafur Lárusson 9 (6v), Símon Unndórsson 6, Friðrik Þor- björnsson 3, Konráð Jónsson og Haukur Ottesen eitt hvor. Brottvísanir: Árni Indriðason í 4 mín., Haukur Ottesen, Sigurður Páll og Jóhannes Stefánsson KR og Steinar Birgisson Víkingi í 2 mín. hver. Varin víti: Pétur Hjálmarsson varði vítakast Sigurðar Gunnars- sonar. Dómarar: Guðmundur Kolbeins- son og Rögnvald Erlingsson. - gg. • ólafur Lárusson dregur greinilega hvergi af sér, er hann æðir inn í vítateig Vikings og skorar eitt af níu mörkum sínum í leiknum. Ljósm. Kristján. • Steinar Birgisson bítur á jaxlinn og rembist, en kemst hvergi fyrir Hauki Ottesen sem er að þvælast fyrir honum. Ljósm. Kristján.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.