Morgunblaðið - 14.11.1979, Page 2

Morgunblaðið - 14.11.1979, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1979 Miklar skemmdir af eldi í risíbúð ELDUR varð laus i húsi við Njálsgötu 74 kl. 16.45 í gær og urðu talsvert miklar skemmdir í risi þar sem eldurinn átti upptök sin. Ekki urðu skemmdir á öðrum hæðum. Enginn var í íbúðinni þegar eldurinn kom upp, en auðséð var að hann hafði leikið lausum hala í nokkurn tíma þvi rúður sprungu í ibúðinni. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Arnarnes: Einbýlishúsalóðir á niu milljónir króna VERÐ á lóðum fyrir einbýlishús á Arnarnesi i Garðabæ er nú um fimm þúsund krónur fermetrinn, en að undanförnu hafa fasteigna- sölur auglýst nokkrar lóðir þar til sölu. Stærð lóðanna er frá 1100 fermetrum og upp í 1800 fermetra, og allt þar á milli. Samkvæmt þvi er verð hverrar lóðar frá krónum 5,5 milljónum upp i 9 milljónir króna. Lóðaverð er þó eitthvað ódýrara á Hegranesinu, og eins eru sjávarlóðir dýrari en þær sem áður eru nefndar. Samkvæmt upplýsingum sem blaðamaður Morgunblaðsins fékk hjá Lögfræðiskrifstofu Vilhjálms Árnasonar, sem auglýst hefur lóðir til sölu, eru lóðirnar seldar eins og þær eru, ekkert er innifalið í verð- inu, gatnagerðargjöld, rafmagns- eða vatnsleiðslur eða neitt slíkt. Slíkum kostnaði má því bæta við fyrrnefnt lóðaverð. Samræming sóknar og af rakstursgetu aðahnál fiskiþingsins Grundarfjörður: Stöðva skelveiðibát með lögregluvaldi 20 manns við vinnslu skelfisks LÖGREGLUVAKT var sett um borð í skelfiskbátinn Grundfirðing II. í Grundarfirði i gær til þess að stöðva veiði hjá bátnum sem hefur farið i nokkra róðra til þess að afla hráefnis fyrir vinnslustöð sem stað- ið hefur ónotuð i tvö ár i Grundar- firði. Morgunblaðið innti Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráðherra eftir hans afstöðu i málinu, en báturinn hefur ekki fengið veiði- leyfi hjá ráðuneytinu. 20 manns vinna við vinnsluna í Grundarfirði. .„Það er hugmynd ráðuneytisins," sagði Kjartan, „að farið sé eftir lögum í landinu og Grundfirðingar hafa ekki rétt til þessara veiða. Hugmyndin sámkvæmt lögunum er að um nægiiega stóran skammt sé að ræða til þess að unnt sé að byggja upp hagkvæma vinnslu og sú vinnsla er í Stykkishólmi." Aðspurður um hvað yrði gert í málinu sagði ráðherrann: „Málinu hefur verið vísað til sýslumanns og hann ætti að fara að drífa sig í að grípa til aðgerða ef hann er ekki búinn að því.“ Útvegsmaður Grundfirðings II er Soffanías Cecilsson og hann á einnig skelfiskvinnsluna í Grundarfirði sem áður var rækjuvinnsla. „Þessi deila hefur staðið í mörg ár,“ sagði Soffanías, „fyrst vegna rækjuveiða sem ég hóf 1967, en þá þróaði ég upp góða stöð og tókst einum að græða á rækjuvinnslunni. Þá fór ráðuneytið að láta undan öfundar- og öfgaöflum og nú er búið að stöðva alla rækjuvinnslu í Breiðafirði á þeirri forsendu að svo mikið af bolfiski og ýsu veiðist, en það er allt stórþorsk- ur og stórýsa. Vegna þessa hafa mínar vinnsluvélar verið dauðar í tvö ár, en til þess að nýta þær keypti ég mér millistykki í búnaðinn, hrist- ara fyrir 2 millj. kr. úr eigin vasa, og þannig get ég notað tækin til skelvinnslu. Þá er það sem ráðuneyt- ið kemur aftan að mér eins og raun ber vitni. Ég sótti um leyfi fyrir skelfiskveiði 10. jan. s.l. en fékk svar 22. jan. þess eðlis að mér var synjað um skelfiskvinnslu, en ekki var minnst á veiðina. Það er þannig í lögum sem þetta mál varða að það er bannað að auka fjárfestingar í skelvinnslu, en ég var búinn að setja allar mínar vélar upp löngu áður nema millistykkið sem ég nefndi áður. Þessi aðför að mér er því ekkert annað en pólitískur slagur af verra tagi og ég hef heyrt sagt eftir ráðherra að Eiður Guðnason vilji hafa þetta svona og því verði það svo að Stykkishólmur búi einn að hráefninu. Beztu skelfiskmiðin eru út af Grundarfirði og Barðastrand- arsýslunni, en Kjartan vill færa þetta allt á silfurfati til kapítalism- ans í Stykkishólmi. Ég ætla að hlíta því að róa ekki á morgun vegna þess að við höfum hráefni í vinnsluna, en hann rær hinn daginn svo fremi að ekki verði um borð menn með gyllta borða, en við róum náttúrulega ekki með þá. Ef við verðum stöðvaðir þá er hér um misbeitingu á valdi að ræða og það verður þá að koma í ljós.“ Ríkharður Másson fulltrúi Andr- ésar Valdimarssonar sýslumanns tók skýrslur í málinu í gær og verða þær sendar saksóknara í dag til dómsmeðferðar. UMRÆÐUM var í gær haldið áfram á Fiskiþingi, sem er hið 38. i röðinni, en þvi lýkur á föstudag. Helzta mál þingsins í gær voru umræður um samræmingu sókn- ar og afrakstursgetu fiskstofn- anna. Nokkrar umræður urðu um orkumál og flutti Þorsteinn Gíslason m.a. erindi um orkunýt- ingu síldarverksmiðjanna víðs vegar um land og Emil Ragnars- son flutti erindi um orkunotkun skipa og báðir kynntu þeir hug- myndir sínar til sparnaðar. Þá fjallaði Hannes Þ. Hafstein framkvæmdastjóri Slysavarnafé- lags íslands um tilkynningar- skyldu íslenzkra skipa og mikil- vægi hennar, og Ingólfur Falsson fjallaði almennt um öryggismál sjómanna. Ekki er búist við neinum ákveðnum niðurstöðum umræðna eða ályktunum fyrr en í lok þingsins á föstudag. Sjá ennfremur kafla úr ræðu Kjartans Jóhanns- sonar bls. 14. „Allar bú- vörur eiga að hækka“ „ÞAÐ eiga allar búvörur að hækka um næstu mánaðamót samkvæmt því sem gert er ráð fyrir,“ sagði Gunnar Guð- bjartsson formaður Stéttar- sambands bænda í samtali við Mbl. í gær, en hann kvað beðið eftir útreikningi launavísitöl- unnar. Meðal þess sem hann kvað koma til útreiknings á nýju búvöruverði er hækkun á kjarn- fóðri, olíuhækkun o.fl., sem hefði hækkað frá 1. sept. s.l., þar á meðal laun, en hann taldi líkur á að hækkunin yrði innan við 10%. 167 starfa við yfir- stjóm menntamála 81 á launaskrá skólarannsóknadeildar Benedikt Gröndal forsætisráðherra: „V erðbótavísitalan fer dálítið hærra en nokkurn grunaði“ BENEDIKT Gröndal forsætisráð- herra hefur boðað fulltrúa ASÍ, BSRB og beggja atvinnurekenda- samtakanna á fund hjá sér í dag til þess „að ræða launamál I samhandi við 1. des. og vísitölu- bætur,“ sagði ráðherrann í sam- tali við Mbl. í gærkvöldi. Kvaðst hann myndu leggja fram ákveðnar hugmyndir en vildi ekki ræða þær á þessu stigi. Aðspurður jm væntanlegar hækkanir á bú- vörum sagði Benedikt að þær myndu fylgja öðrum málum sem um væri að ræða. „Hagstofan hefur ekki lokið útreikningi á verðbótavísitölu," sagði forsætis- ráðherra, „en allt bendir til þess að hún fari þó dálítið hærra upp en nokkurn hefur grunað. Vandamál- ið verður því erfiðara og verðbólg- an meiri en spáð hefur verið allt fram á síðustu daga.“ FJÖLDI starfsmanna mennta- málaráðuneytisins og fræðslu- stjóranna átta víða um land er nú um eitthundrað sextiu og sjö samkvæmt þeim upplýsingum sem Mbl. hefur aflað sér, þar af eru alls áttatíu og einn starfs- maður á launaskrá skólarann- sóknardeildar. Auk ráðuneytisstjóra eru starfandi í menntamálaráðuneyt- inu eitthundrað og þrjátíu starfs- menn. í safna- og listadeild eru fjórir starfsmenn, í háskóla- og listadeild fimm, í greiðslu- og bókhaldsdeild þrír, í verk- og tæknimenntunardeild fjórir, í íþrótta- og æskulýðsmáladeild fjórir og aðrir starfsmenn fjór- tán. Þá eru eins og áður sagði starfandi áttatíu og einn starfs- maður hjá skólarannsóknadeild, þar af sextán í fullu starfi, einn í % hluta starfi, tveir í % hluta starfi, fimm í Vz starfi, tveir í V> hluta starfi og fimmtíu og fjórir í tímavinnu hjá deildinni. Starfs- menn skólarannsóknardeildar skiptast eftirfarandi: deildar- stjóri, einn ráðgjafi, einn fulltrúi, þrír ritarar, tuttugu og einn námsstjóri og námsefnishöfundur, vegna dönsku einn starfsmaður, vegna íslenzku fimm starfsmenn, vegna íþrótta fjórir, vegna kristnifræði fimm starfsmenn, vegna líffræði fjórir starfsmenn, vegna mynd- og handmenntar sjö starfsmenn, vegna samfélagsfræði þrettán starfsmenn, vegna stærð- fræði fjórtán starfsmenn og vegna tónmenntar einn starfsmaður. Hjá fræðslustjóranúm í Reykja- vík starfa samtals sautján starfs- menn, hjá fræðslustjóranum á Reykjanesi fimm starfsmenn, hjá fræðslustjóranum á Suðurlandi tveir starfsmenn, þar af annar í hálfu starfi, hjá fræðslustjóranum á Austurlandi tveir starfsmenn, þar af annar í hálfu starfi, hjá fræðslustjóranum á Norðurlandi eystra fimm starfsmenn, þar af tveir sálfræðingar semeiginlega fyrir allt Norðurland, hjá fræðslu- stjóranum á Norðurlandi vestra tveir starfsmenn, þar af annar í hálfu starfi, hjá fræðslustjóranum á Vestfjörðum tveir starfsmenn, þar af annar í hálfu starfi og loks hjá fræðslustjóranum á Vestur- landi eru tveir starfsmenn, þar af annar í hálfu. „Þú ættir að byr ja á því að skjóta Friðrik Sophusson“ Á FUNDI i Menntaskólanum við Hamrahlíð fyrir skömmu gerðist það, að einn nemenda hélt ræðu þar sem hann veittist harkalega að Ólafi Ragnari Grímssyni prófessor, frambjóð- anda Alþýðubandalagsins, og sakaði hann um að vera ótrúan byltingunni. ólafur Ragnar var frummælandi á fundinum, auk þeirra Guðmundar Þórarins- sonar frá Framsóknarflokkn- um, Vilmundar Gylfasonar úr Alþýðuflokki og Friðriks Soph- ussonar frá Sjálfstæðisflokkn- um. Ólafur Ragnar tók það óstinnt upp, er hann og Alþýðubanda- lagið var sagt hafa svikið bylt- inguna, og spurði áðurnefndan nemanda hvort hann gengi með byssu í vasanum. Því var svarað neitandi, og sagði Ólafur hann þá ekki hafa neitt vald til að rífa sig, þar sem ekki væri hægt að gera byltingu án vopna. „En ef þú hefðir byssu, ættir þú að byrja á þvi að skióta Friðrik Sophusson,“ sagði ólafur Ragn- ar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.