Morgunblaðið - 14.11.1979, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1979
5
BÓKAÚTGÁFAN Rabén &
Sjögren í Stokkhólmi heíur
hafið útgáfu bókaflokks sem
nefnist Dikt i Norden. Með
þessum bókaflokki er ætlunin
að kynna helstu nútímaskáld á
Norðurlöndun. Ritstjóri bóka-
flokksins er skáldið og ljóða-
þýðandinn Christer Eriksson.
Fyrsta bókin í þessum flokki
er úrval ljóða Jóhanns Hjálm-
arssonar og nefnist það Landet
vilar i egen dikt eða Landið
sefur í eigin ljóði. Þýðandinn,
Christer Eriksson, skrifar inn-
gang að bókinni þar sem Jóhann
Hjálmarsson er kynntur fyrir
sænskum lesendum. Ljóð eftir
Jóhann Hjálmarsson hafa að
undanförnu birst í ýmsum
DIKT I NORDIiN
jÓHANN IIJÁLMARSSON
LANDET
VILAR I KCíKN
DIKT
RABÉN SH'V iRFN
Jóhann Hjálmarsson
Úrval ljóða eftir
Jóhann Hjáhnarsson
kemur út í Svíþjóð
sænskum tímaritum og blöðum
og einnig í Noregi, Danmörku og
Finnlandi.
Landet vilar i egen dikt er 72
bls. og eru í bókinni 43 ljóð, flest
úr Athvarfi í himingeimnum
(1973). Einnig eru birt ljóð úr
öðrum bókum skáldsins, frá
þeirri fyrstu Aungli í tímann
(1956) til Lífið er skáldlegt
(1978). Aftast í bókinni eru
skýringar.
Jafnframt því sem Rabén &
Sjögren sendir frá sér ljóð Jó-
hanns Hjálmarssonar í bóka-
flokknum Dikt i Norden koma út
í sama flokki eftirfarandi bækur
í eins formi: Jord och járn eftir
Norðmanninn Rolf Jacobsen,
þýðandi Christer Eriksson;
Náktergalen och geváret talar
samma sprák eftir Danann Ivan
Malinovski, þýðandi Lasse Söd-
erberg og Hjártat, mitt viktig-
aste slagvapen eftir finnska
skáldið Pentti Saaritsa í þýðingu
Claes Andersons.
Ritstjóri Dikt i Norden,
Christer Eriksson, hefur dvalist
hér á landi. Hann þýddi ljóðin í
Landet vilar i egen dikt í sam-
vinnu við Jóhann Hjálmarsson
en annaðist sjálfur val ljóðanna.
Á næstunni hyggst hann kynna
fleiri íslensk skáld í þessum nýja
norræna bókaflokki.
Hafísrannsóknir Veð-
urstofunnar efldar
HAFÍSRANNSÓKNIR hafa verið
efldar við Veðurstofu íslands og
sinnir hafisdeild stofnunarinnar
hafísrannsóknum og öðrum verk-
efnum er hafís varða. Starfa við
deildina tveir veðurfræðingar,
dr. Þór Jakobsson og Eiríkur
Sigurðsson.
Eiríkur hefur að undanförnu
unnið að gagnaúrvinnslu og samn-
ingu ritsins Hafís við strendur
íslands, en þar er að finna lýsingu
á útbreiðslu hafíss við landið árin
1968—1971. Gögn um hafís er
berast Veðurstofunni verða eftir
sem áður varðveitt og verður haft
samráð við Landhelgisgæsluna og
Hafrannsóknastofnun um hafísat-
huganir. Einnig verður höfð sam-
vinna við erlendar stofnanir.
Rannsóknir munu aðallega bein-
ast að Austur-Grænlands-
straumnum og nágrenni hans og
verður m.a. stefnt að því að finna
þær aðferðir er best duga til að
segja fyrir um horfur á ísmagni
norður af íslandi. Við hafískönnun
með Landhelgisgæslunni fyrir
nokkru kom í ljós að ís við
Grænland er með minna móti, en
hefur þó farið vaxandi.
„Götnræsis-
kandidataru
Ný bók Magneu Matthíasdóttur
ÚT ER komin hjá Almenna bóka-
félaginu skáldsagan Göturæsis-
kandidatar eftir Magneu J.
Matthíasdóttur. Þetta er önnur
skáldsaga þessa unga höfundar
— áður hafa komið út eftir
Magneu ljóðabókin Kopar, 1976
og skáldsagan Hægara pælt en
kýlt, 1978.
Magnea J. Matthíasdóttir
Um Göturæsiskandidata segir
svo aftan á bókarkápu:
„Reykjavíkursagan Göturæsis-
kandidatar hefði getað gerst fyrir
4—5 árum, gæti verið að gerast
hér og nú. Hún segir frá ungri
menntaskólastúlku sem hrekkur
út af fyrihugaðri lífsbraut og
kemst í félagsskap göturæsis-
kandidatanna. Þar er að finna
margs konar manngerðir og and-
stæður — sumir eru barnslega
saklausir og blíðlyndir, aðrir
harðir og ofsafengnir. Og þeir eiga
það allir sameiginlegt að vera lágt
skrifaðir í samfélaginu, og kaupa
dýrt sínar ánægjustundir. Ástríð-
ur og afbrýðisemi verða umsvifa-
miklar systur komist þær um of
til áhrifa.
Hvað verður í slíkum félagsskap
um unga stúlku frá „góðu“ heimili,
sem brotið hefur allar brýr að
baki sér?“
Göturæsiskandidatar er bæði
gefin út í bandi og sem pappírs-
kilja. Bókin er 170 bls. að stærð og
unnin í Prentverki Akraness.
Sinfóníuhljómsveit Islands:
Rögnvaldur Sigurjónsson einleik-
ari á næstu áskriftartónleikum
FJÓRÐU áskriftartónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands verða
n.k. fimmtudag í Iláskólabíói kl.
20:30. Á efnisskrá eru forlejkur
að Nýársnóttinni eftir Árna
Björnsson, sinfónía nr. 2 eftir
Johan Svendsen og pianókonsert
nr. 2 eftir Rachmaninoff. Einleik-
ari er Rögnvaldur Sigurjónsson
og stjórnandi Karsten Andersen.
Karsten Andersen hóf tónlist-
arnám í fæðingarborg sinni Osló
og lagði aðaláherslu á fiðluleik og
lék fyrst með Fílharmóníuhljóm-
sveitinni í Osló, en var árið 1945
ráðinn aðalstjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitarinnar í Stavangri.
Hann var aðalstjórnandi Sinfón-
íuhljómsveitar íslands í fjögur ár,
1973-1977.
Rögnvaldur Sigurjónsson píanó-
FÉLAG íslenskra rithöfunda
gengst fyrir kvöldvöku á Hótel
Esju á morgun, 15. nóvember, kl.
8.30 í tilefni barnaárs.
Eftirtaldir barna- og unglinga-
bókahöfundar flytja stutt framsögu-
Rögnvaldur Sigurjónsson verður
einleikari á næstu tónleikum Sin-
fóniuhljómsveitarinnar.
erindi og lesa úr verkum sínum:
Eiríkur Sigurðsson, Indriði Ólafs-
son, Bjarni Th. Rögnvaldsson, Fil-
ippía Kristjánsdóttir (Hugrún) og
Ragnar Þorsteinsson.
Áð lokum verða fyrirspurnir og
almennar umræður.
leikari fæddist á Eskifirði árið
1918 og stundaði hann fyrst nám í
Tónlistarskólanum í Reykjavík
þar sem kennari hans var Árni
Kristjánsson. Fór hann síðan til
framhaldsnáms í París og síðar
New York. Hefur Rögnvaldur
ferðast til tónleikahalds víðs veg-
ar um Bandaríkin, Kanada og
Evrópu og gert fjölmargar upp-
tökur fyrir íslenskt útvarp og
sjónvarp. Þá hefur hann einnig
leikið á hljómplötur og hefur hann
um árabil verið píanókennari við
Tónlistarskólann í Reykjavík.
Fjölskyldu-
bingó hjá Hvöt
HVÖT félag sjálfstæðis-
kvenna í Reykjavík heldur
bingó að Hótel Sögu,
Súlnasal, annað kvöld,
fimmtudaginn 15. nóv.
Fjöldi góðra vinninga verður
fyrir alla fjölskylduna og til jóla-
gjafa. Má þar nefna ferðavinn-
inga, máltíðir á veitingahúsi,
heimilistæki, bækur, hljómplötur,
matarkörfur og jólamat.
Húsið verður opnað kl. 20 og
bingóið hefst kl. 20.30.
Kvöldvaka Félags ís-
lenskra rithöf unda
úrval af finnskum
kvenkjólum frá
SILO
Austurstræti
sítni: 27211