Morgunblaðið - 14.11.1979, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1979
11
Músagildran
— eftir Agöthu Christie
Það er gleðilegt að vita af
þeirri áhugaleikstarfsemi, sem
fer fram hér á landi. Þar er á
ferð menningarstarf, sem
sprottið er af einlægum áhuga
og ást á viðfangsefninu. Starf-
semi, sem oft kostar ótrúlegt
erfiði og fjárútlát. Þetta er þeim
mun gleðilegra á tímum þegar
helst ekkert er lagt á sig nema
gegn borgun. Að vísu á leik-
starfsemin úti á landi í dálítilli
samkeppni við þá karlaklúbba að
amerískri fyrirmynd, sem hér
hafa skotið upp kollinum líkt og
gorkúlur á seinustu árum, en
hún heldur velli. Enn einn sigur
andans yfir efninu.
verk til að þurfi að eyða í
mörgum orðum. Þetta spennandi
sakamálaleikrit Agöthu sálugu
Christie hefur gengið lengur á
fjölunum en nokkuð annað verk
eða 27 ár í London, að því er mig
minnir. Ástæðan fyrir vinsæld-
um þess er vafalaust hve það er
ógnþrungið og spennandi. Þess-
ari spennu tekst leikstjóranum,
Þóri Steingrímssyni, vart að ná.
Til þess er atburðarásin of hæg.
Kannske skemmir það að hafa
séð verkið og muna lausnina.
Annars var leikmynd, þótt lítt
frumleg væri, og gervi leikara
allvel fallið til að mynda um-
gjörð um spennu. En leikurinn
Sviðsmynd.
Leikfélag Selfoss er eitt af
virkari áhugamannaleikfélögum
landsins. Frá stofnun þess 1958
hefur það sett upp 26 verk.
Meðal annars 1969 Skálholt
Kambans í samvinnu við Leik-
Lelkllst
eftir ÓLAF M.
JÓHANNESSON
félag Hveragerðis, 1972 Lukku-
riddarann eftir Synge og 1976
Atómstöðina í samvinnu við
Leikfélag Hveragerðis (fjarska
ánægjuleg sýning) svo eitthvað
sé nefnt. Leikfélag Selfoss er
meðlimur í nýstofnuðum sam-
tökum leikfélaga og leikdeilda
Sunnanlands, sem eiga aðild að
Bandalagi íslenzkra leikfélaga.
Að þessu samstarfi munu standa
hvorki meira né minna en 12
félög. Óska ég þeim velfarnaðar
og vona að þau njóti fyrir-
greiðslu hins opinbera. Án
menningarlífs líkjast margir
hinna smærri staða úti á landi
stórum verksmiðjum. Þeir sem
framleiða gjaldeyrinn eiga ann-
að og betra skilið.
Músagildran, sem þeir Sel-
fossmenn nú ráðast í, er of þekkt
var of hægur. í leikritinu mæðir
mikið á Katli Högnasyni, sem
leikur Trotter leynilögreglu-
mann, og Kristínu Steinþórs-
dóttur, sem leikur Mollie Rals-
ton, t.d. í aðalspennukaflanum
þar sem þau eru ein á sviðinu og
upp kemst hver er morðinginn.
Sá þáttur náðist ekki á flug. Þar
var og alröng lýsing. Annars
áttu þau Ketill og Kristín all-
góða spretti annarsstaðar í verk-
inu. Sigríður Karlsdóttir, í hlut-
verki ungfrú Caswell, býr hins
vegar yfir dramatískri spennu,
athyglisverð. Gylfi Þ. Gíslason
(sá kekkvíski er hættur að leika
fyrir nokkru) i hlutverki Kristo-
fers er kraftmikill, má vara sig á
ofleik. Axel Magnússon, í hlut-
verki Paravicini, er bráðfyndinn.
Þóra Grétarsdóttir röggsöm sem
frú Boyle. Pétur Pétursson, sem
Giles Ralston, er dálítið stífur,
varkár, en kemur þó litlausri
persónu Ralston til skila. Sig-
urður Lúðvíksson verður, undir
styrkri leikstjórn Þóris, að
dæmigerðum virðulegum Breta.
Séð í ljósi þess að allt er þetta
fólk áhugafólk, sem fer til æf-
inga þreytt að loknum vinnu-
degi, þá er árangur þess ágætur
og þegar best tekst til stór fínn.
Hlýtt lófatak í lok sýningar er
þessu fólki laun, það verður ekki
metið til peninga.
Geðhjálp — ný félagasamtök
Framhaldsstofnfundur nýrra
félagssamtaka til styrktar
þeim sem eiga við geðræn eða
sálræn vandamál að stríða var
haldinn í október s.l. Hlaut
félagið nafnið Geðhjálp, sam-
tök sjúklinga, aðstandenda og
velunnara. Stofnfélagar eru
100 en formaður félagsins er
Sigríður Þorsteinsdóttir
hjúkrunarfræðingur.
Dagskrá félagsins fram að
áramótum verður sem hér seg-
ir. Opið hús í salarkynnum
Kleppsspítalans kl. 20.30,
mánudaginn 19. nóvember,
föstudaginn 30. nóvember og
mánudaginn 10. desember.
Fyrirlesari 19. nóvember verð-
ur Sigrún Júlíusdóttir félags-
ráðgjafi og 30. nóvember dr.
Tómas Helgason yfirlæknir.
[.ASIMINN KR:
2248D vií'
ÞURRKAÐ
OREGON
PINE
2x5“ og 21/2x5“.
Ennfremur mikiö úrvai af
gólflistum fyrir parket,
loftlistum og skillistum.
Sendum í póstkröfu.
^ - U
Höfðatúni 2, Reykjavík. Sími 22184
TOPPURINN
frá Finnlandi
Argerö
1980
komin
1 50 ára
3 ára
ábyrgð
á myndlampa
• 26 tommur
• 60% bjartari mynd
• Ekta viður
• Palesander, hnota
• 100% einingakerfi
• Gert fyrir fjarlaagöina
• 2—6 metrar
Sérstakt
kynningarverö
Verö kr. 739.980 -
Staögr. 699.980- ¥
Greiöslukjör frá ^ ,
•250.000 kr. út ’ ’Zk.
og rest á 6 m
* • Fullkomin bjónusta
tiiillHíllfiL
Verslióisérverslun meó
LITASJÓNVÖRP og HUÓMTÆKI
i 29800
BUÐIN Skipholti19
— /