Morgunblaðið - 14.11.1979, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 14.11.1979, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1979 31 • Úr leik KR og Vals í LauKardalshöilinni í fyrrakvöld. Þar tapaði Valur sínum fyrsta leik i úrvalsdeildinni og hafa þá öll liðin tapað einum leik. SÍKurvegarinn í kvöld bætir því stöðu sina mjög. Körfuknattleikur Fram — ÍR í kvöld nú þessi: 59:68 4 3 1 343:324 6 3 2 1 244:229 4 3 2 1 244:236 4 3 2 1 212:205 4 4 1 3 322:241 2 3 0 3 238:266 0 EINN leikur fer í kvöld fram í úrvalsdeildinni i körfuknattleik. Þá mætast ÍR og Fram í íþrótta- húsi Hagaskólans. Hefst leikur- inn klukkan 19.00. Mótið gerist nú býsna spennandi, en öll liðin hafa nú tapað leik. Staðan i úrvalsdeildinni í körfuknattleik i Valur-KR Valur UMFN ÍR KR is Fram Bandaríkin sigruðu aftur BANDARÍSKA golfsveitin, skip- uð þeim Haie Irwin og John Mahaffey tryggðu Bandarikjun- um sigur á HM í golfi sem fram hefur farið i Grikklandi siðustu dagana. Þeir félagar slógu sam- anlagt 575 högg, fimm höggum betur en Skotar sem urðu í öðru sæti. Bandaríkjamenn sigruðu því annað árið í röð og Mahaffey var aðili að siguriiði USA í fyrra sem og nú. Félagi hans þá var Andy North. Irwin keppti nú einnig í annað skiptið í kcppn- inni, siðast 1974, er hann ásamt Lee Trevino varð í þriðja sætinu. Irwin lék hina rúmlega 6 kíló- metra löngu braut dagana fjóra á 285 höggum, en það var besti árangur einstaklings í keppninni og hreppti hann sérstök verðlaun fyrir afrekið. Mesta athygli vakti þó 22 ára gamall Vestur Þjóðverji að nafni Bernard Langen, sem lék á aðeins tveimur höggum minna en Irwin. Eitt leiðindamál blossaði upp á HM að þessu sinni, er gríska ríkisstjórnin skipaði suður afríska liðinu fyrirvaralaust að hafa sig á brott. Blessuð pólitíkin gekk þar berserksgang og var um tíma mikil ólga meðal all margra liða. Var um tíma útlit fyrir að sumar myndu draga sig út úr keppninni í mótmælaskyni. Ekkert varð að vísu úr, en hætta er talin á því, að brottrekstur Suður Afríku kunni að skaða HM-keppnina í fram- tíðinni. Sigursælir KR-ingar KR sigraði i þremur flokkum Reykjavíkurmótsins í handknattleik, en úrslitaleikir í yngri flokkunum fóru fram með leynd í Laugardalshöll- inni um heigina. Sigruðu KR-ingar í 1., 3. og 4. fiokki karla. Vikingur sigraði í 2. flokki karla og í 2. flokki kvenna sigruðu Valsdömur. I tveimur flokkum fengust ekki úrslit sökum jafntefla og verður að leika að nýju. Mætast Fram og Víkingur í 4. flokki karla og Fram og ÍR í 3. flokki kvenna. Mistök leiðrétt VEGNA rangra upplýsinga voru áhorfendatölur, sem gefnar voru upp í grein um leik Vals og KR í körfuknattleik í blaðinu í gær nokkuð fjarri lagi. Það rétta er að 1413 áhorfendur greiddu að- gangseyri en ekki 2100 eins og stóð i blaðinu. Milljónir runnu í sjóo Magna á Grenivík — óvenjuleg fjáröflun í Grenivík VÆGAST sagt óvenjuleg fjáröfl- un til handa iþróttafélagi fór fram á Grenivík um síðustu helgi, er íbúar þorpsins sýndi stuðning sinn við iþróttafélagið Magna i verki. Magni komst óvænt i 2. deild íslandsmótsins i knattspyrnu á síðasta keppnis- timabili og varð afleiðingin sú, að leikmenn liðsins urðu að leggja mun meira á sig heldur en Evrópumeistararnir Nottingh- am Forest hafa samþykkt að seija landsliðsmanninn Tony Woodcock til Kölnar fyrir 600.000 sterlingspund, ef kapp- inn hefur áhuga á að fara, sem er í Knatlspyrna 1 áður hafði tíðkast. T.d. var æft á Akureyri þrisvar í viku meira eða minna allan veturinn. Fóru þá 2—3 jeppabifreiðir 100 kíló- metra leið i alls kyns fantafærð, samtals óku ieikmenn Magna um 23,000 kílómetra til æfinga. Þegar að því kom að gera upp ýmsa reikninga í haust að keppn- istímabili loknu varð að fara að huga að peningum. Stakk þá ekki alveg víst eins og staðan er. Hann er á báðum áttum. en framkvæmdastjórinn Brian Clough hefur lagt hart að honum að gera upp hug sinn fyrir helgina. Og Clough hefur einnig boðið Woodcock þriggja ára samning sem tryggir kappanum mun hærri tekjur heldur en hann hefur fyrir. Hvað verður er því allt á huldu. ungur maður að nafni Þorsteinn Harðarson upp á því að fá báta þorpsins til þess að róa eina helgi og gefa aflann. Þó að ekki væri farið fram á lítið, var þetta óðara samþykkt og á laugardaginn komu í frystihúsið á staðnum 8 tonn af fiski. Fólk dreif víða að og gaf alla sína vinnu. Komu rúmlega 3,3 milljónir í buddu Magna og er meira á leiðinni, því að samið var um helgarróður og enn á eftir að veiða á sunnudegi og vinna allan þann afla. — Kristleifur Meldal, formaður Magna sagði í stuttu spjalli, að hann hefði ekki orðið þess var að nokkur hefði séð eftir vinnu sinni og væru heimamenn hreyknir af því hversu almenn þátttaka hefði verið, „menn komu víða að til þess að leggja sitt af mörkunum þrátt fyrir að veðrið væri snarvitlaust. Það er sannarlega ánægjulegt að starfa fyrir félag sem hefur slíkan stuðning við bakið" sagði Krist- leifur. gg. Woodcock til Kölnar?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.