Morgunblaðið - 18.11.1979, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1979
WÉmmmm
mmm
■ ,-*a5a8g? - i
* ]
íMémmmÆM
iniwVv.iVr»
ggr .
111111
0.v.'
.
|$g
i£pgí
■E2V.V;
ÍSLENZK
ÞJÓÐFRÆÐI
ÉÉísáiS
lÉttHHMMNMÍI
#pift
atát
if§g
ífSKWjíSsdw
Hi
At««fcfcLt<ur r^.á/liVi flh-ÚaW.i<. '|
. UTU
SOTARIN
aðstodarmaður í orkusparnaði
FAUCH 410 eða Litli sótarinn er kominn alla leiðfrá
Þýskalandi til að aðstoða þig við að ná sem bestri nýt-
ingu út úr miðstöövarkatlinum þínum. Með hans hjálp
leggur þú þinn skerf af mörkum til orkusparnaðar.
Hefurðu annars hugleitt hvort að olíueyðsla miö-
stöðvarketilsins sé ekki óeðlilega mikil? Ef svo er, þá er
mjög líklegt að sótmyndun hafi orðið í reykgöngunum
eða innan á ketilveggjunum sem veldur því að olíu-
eyðslan fer langt yfir lágmark.
Sé svo í pottinn búið er Litli sótarinn sá aðstoðar-
maður sem þú þarfnast.
Með honum fylgir nákvæmur leiðarvísir á íslensku
sem þú skalt kynna þér vel áður en þú hefst handa.
Með aðstoð Litla sótarans getur þú lækkað kynd-
ingarkostnaðinn verulega og stuðlað þannig að mikil-
vægum orkusparnaði á þessum orkuþverrandi tímum.
Litli sótarinn erávallt til taks
á bensínstöðvum ESSO
£sso,
Olíufélagið hf
schnel
ennsto
_ Mur *ur
*m H&xmwi****™ ’
Friðþjófur Þorsteins-
son forstjóri - Minning
Fæddur 30. október 1912
Dáinn 16. október 1979.
Mig setti hljóðan er ég frétti
andlát móðurbróður míns, þá
staddur erlendis.
Minningarnar hrannast upp,
sólskinsdagar lífsins líða um hug-
ann og upp rifjast liðnar stundir í
gleði og sorg. Erfitt er í sárum
harmi að sætta sig við lögmál
lífsins, þó ljóst hafi verið hvert
stefndi. Með þessum fátæklegu
orðum langar mig til að þakka
frænda fyrir einlæga vináttu og
tryggð í blíðu og stríðu. Trú hans á
æðra líf var bjargföst og sönn, veit
ég að honum verður vel tekið í
nýjum og betri heimi.
Friðþjófur Þorsteinsson, for-
stjóri, lést í Borgarspítalanum
þann 16. okt. s.l., eftir stranga
baráttu við erfiðan sjúkdóm.
Hann var fæddur í Reykjavík 30.
október 1912, sonur hjónanna Jó-
hönnu Greipsdóttur, Sigurðssonar
bónda í Haukadal í Biskupstung-
um, og Þorsteins Finnbogasonar,
kennara og bónda í Fossvogi,
Björnssonar bóna á Hjallanesi á
Landi, síðar í Spanish Fork, UT-
AH, U.S.A.
Ungur missti Friðþjófur móður
sína, þá aðeins tólf ára, og næst
elstur sex systkina. Strax að loknu
barnaskólanámi og fermingu
hófst lífsbaráttan fyrir alvöru.
Hann starfaði fyrst hjá Gos-
drykkjaverksm. Heklu, síðan lá
leiðin í Sanitas h.f., þar sem hann
vann um árabil, lengst af sem
verkstjóri. Árið 1953 keypti hann
Efnagerðina Val h.f., ásamt fleir-
um, og hóf svo fullt starf þar 1955.
Með dugnaði, þrautseigju og löng-
um vinnudagi dafnaði og óx fyrir-
tækið fljótt og vel. 1965 eignaðist
Friðþjófur síðan verksmiðjuna
einn og rak hana til dauðadags.
Svo var dugnaður og áhugi hans
mikill að síðustu vikurnar áður en
hann lagðist inn á sjúkrahúsið,
var hann studdur á skrifstofu sína
á hverjum degi, því þar vildi hann
koma og vera svo lengi kraftar
entust. Synir Friðþjófs hafa allir
starfað meira og minna við fyrir-
tækið. Undirritaður var einn
fyrsti starfsmaður fyrirtækisins
og starfaði þar fyrstu þrjú árin, og
svo aftur nokkrum árum síðar og
var þá í sjö ár. Þegar ég kom aftur
sá ég hversu mjög fyrirtækið hafði
vaxið og komið fram með nýjung-
ar í íslenskum matvælaiðnaði.
Friðþjófur var góður drengur og
dáður af öllum sem þekktu hann,
elskaður og virtur af starfsfólki
sínu alla tíð, raunbetri mann er
erfitt að finna.
Friðþjófur átti Unni Björns-
dóttur, Jónssonar skipstjóra í
Ánanaustum í Reykjavík, en
missti hana 15. september 1937,
eftir stutt hjónaband. Þau voru
barnlaus.
Friðþjófur kvæntist aftur,
Huldu Dagmar Þorfinnsdóttur, og
áttu þau fimm syni. Þeir eru
Þorsteinn Finnur póstútibússtjóri
í Reykjavík, Jóhann Greipur
framkvæmdastjóri í Hafnarfirði,
Reynir Þór sölumaður í
Reykjavík, Þráinn Örn bifreiða-
stjóri í Reykjavík og Ásgeir, sem
síðustu árin hefur verið hægri
hönd föður síns. Síðustu árin bjó
Friðþjófur með Sigrúnu Jónsdótt-
ur og áttu þau þrjú börn, þau eru
Eva, starfar í Val, Unnur, 13 ára,
og Þröstur 11, ára. Á yngri árum
var Friðþjófur mjög virkur í
skátahreyfingunni og unni henni
alla tíð. Yndi hafði hann af lax- og
silungsveiðum, man ég hvað fyrst
eftir mér í veiðiferð sem ég fekk
að fara í með þeim Friðþjófi og
föður mínum og ömmubróður
mínum, Sigurði Greipssyni í
Haukadal. Ein mín fegursta æsku-
minning er frá dvöl við Geysi,
þegar þau Friðþjófur og Hulda, þá
nýgift, fóru með mig í sundlaugina
og léku við mig þar í volgu
vatninu, það var mikil lífsreynsla
og ánægjuleg fyrir lítinn dreng.
Friðþjófur starfaði um árabil í
Oddfellowreglunni og átti þar
marga sína bestu vini. Hann var
sannur sjálfstæðismaður alla tíð
og vann mikið og vel fyrir flokk-
inn.
Ég bið góðan Guð að blessa og
hugga alla ástvini hans í þeirra
miklu sorg og minningin um
góðan dreng mun lifa í hjörtum
okkar allra.
Júlíus Kolbeins.
Leiðrétting
í minningargrein um Hauk Jó-
hannesson á bls. 18 í blaðinu í
fyrradag misritaðist nafn móður-
hans. Hún heitir Arna Hjörleifs-
dóttir en ekki Arna Jóhannesdótt-
ir. Eru hlutaðeigandi beðnir vel-
virðingar á þessari misritun.
Misritun
i fyrirsögn
Nafn frú Þórunnar Jónasdóttur
sem minningargrein birtist un
hér í blaðinu í fyrradag, misritað
ist í fyrirsögn, en þar stóð Jóns
dóttir. — Eru allir hlutaðeigendui
beðnir afsökunar á þessum mis-
tökum.
Al'(»I.V.SIN(iASIMINN ER:
22480