Morgunblaðið - 14.12.1979, Page 14

Morgunblaðið - 14.12.1979, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. DESEMBER 1979 Þetta gerðist 14. desember 1975 — Frakkar bjóða Egyptum aðstoð til að koma upp her- gagnaiðnaði. 1973 — Fyrstu myrkvanir af völdum orkukreppu í Bretlandi. 1962 — Kenneth Kaunda mynd- ar fyrstu stjórn blökkumanna í Norður-Rhódesíu. 1961 — Stórsókn gæzluliðs SÞ tii Elizabethville í Kongó. 1960 — Tuttugu ríki undirrita samning um stofnun efnahags- bandalags Atlantshafsríkja í Paris. 1954 — Enosis-málið á Kýpur leiðir til óeirða í Aþenu. 1946 — Allsherjarþingið sam- þykkir stofnun aðalstöðva SÞ í New York. 1945 — George Marshall sendur til Kína til að miðla málum. 1941 — Bandarískir landgöngu- liðar veita viðnám á Wake-eyju. 1939 — Rússland rekið úr Þjóðabandalaginu — Orrustan á . Rio de la Plata. 1937 — Japanir mynda kínverska leppstjórn í Peking. 1927 — Bretar viðurkenna sjálf- stæði íraks — Kínverjar og Rússar slíta stjórnmálasam- bandi. 1918 — Sidonio Paes, forseti Portúgals, ráðinn af dögum. 1916 — Danir samþykkja í þjóðaratkvæði að selja Banda- ríkjamönnum Dðnsku Vestur- Indíur fyrir $25 milljónir. 1913 — Grikkir innlima Krít. 1911 — Roald Amundsen kemur fyrstur manna á Suðurpólinn. 1877 — Serbar fara í stríð gegn Tyrkjum með Rússum. 1822 — Verona-ráðstefnu lýkur. 1542 — Valdataka Maríu Skota- drottningar við lát Jakobs V. Afmæli. Tycho Brahe, danskur stjörnufræðingur (1546—1601) — James Bruce, skozkur land- könnuður (1730—1794) — Roger Fry, brezkur listmálari (1866— 1934) — Lee Remick, bandarísk leikkona (1935------). Andlát. George Washington, stjórnmálaleiðtogi & hermaður, 1799 — Albert drottningar- maður 1861 — Baldwin jarl, stjórnmálaleiðtogi, 1947 — Walter Lippmann, fréttaskýr- andi, 1974. Innlent. „Vísir", fyrsta íslenzka dagblaðið, hefur göngu sína 1910 — Bændaflokkur stofnaður 1933 — „Coot“, fyrsti togari íslend- inga, strandar á Keilisnesi 1908 — d. Árni Helgason biskup 1869 — Helgi Helgason tónskáld 1922 — Vígð kirkja á Eyrarbakka 1890 - 25 farast í fárviðri 1935 — Hæstiréttur dæmir í Olíumál- inu 1963 — Carl Sæmundsen gefur hús Jóns Sigurðssonar 1966 — f. Hannes Pétursson 1931. Orð dagsins. Sú blekking að tímarnir hafi verið betri en þeir eru nú hefur trúlega ríkt á öllum tímum — Horace Greeley, bandarískur ritstjóri (1811— 1872). fgekSZ Kjötúrvalið hefur aldrei verið meira. Svínakjöt — Lambakjöt — Nautakjöt — Kálfakjöt — Folaldakjöt — Rjúpur — Kalkúnar — Villigæsir — Unghænur — Kjúklingar — Léttreyktir kjúklingar — Endur Niðursoðnir ávextir Kokteil 1/1 ds. 834 1/2 ds. 504 Perur 1/1 ds. 730 1/2 ds. 446 Ferskjur 1/1 ds. 693 1/2 ds. 426 Ananas 1/1 ds. 854 Kínv. 1/2 ds. 415 Ananasmauk 376 gr. ds. 484 Fengers rauðkál Beauvais rauðkál 595 gr. gl. 987 570 gr. gl. 1.047 115Ö gr. gl. 1.726 Sveppir 1/4 ds. skornir 488 sveppir 1/4 ds. skornir 375 Samodan marmelaði. Jarðaberja 650 gr. gl. 1.442 Hindiberja 650 gr. gl. 1.442 Sólberja 650 gr. gl. 1.442 KJÖRORD OKKAR ER LÁGT VERD GÓD ÞJÓNUSTA Ætlaði Golda að svipta sig lífi? Tel Aviv 14. des. AP. GOLDA Meir, fyrrverandi for- sætisráðherra ísraels, var al- varlega að hugsa um að svipta sig lífi í Yom Kippur striðinu 1973, vegna þess hún taldi sig persónulega ábyrga fyrir því tjóni, sem ísraelar biðu fyrstu daga stríðsins, að því er náinn vinur hennar sagði í dag. Þó svo að hún herti sig upp og hyrfi frá sjálfsmorðshugmynd- um „lauk lífi minu þessa októ- berdaga“ sagði hún þessum vini sínum, Yaakov Hazan, fyrrver- andi þingmanni. Við athöfn, sem var haldin í gær til að minnast þess, að ár var liðið frá láti Goldu Meir, sagði Hazan frá þessu. „Ég gat aldrei fyrirgefið mér — ég gat aldrei losað mig undan þessari ógnarþungu sektarkennd," hafði hann eftir Goldu og bætti við, að þó að sérfræðingar ýmsir hefðu reynt að sýna henni fram á, að flest annað en andvaraleysi hennar hefði þarna verið valdur, hefði hún aldrei borið sitt barr eftir þetta. Saudi-Arabía hækkar olíuna Bahrain. 13. dosombor. Routor. SAUDI-ARABÍA Arabiska furstasambandið og Qatar ákváðu í dag, skommu fyrir fund OPEC i Caracas, að hækka hráoliuverð um sex dollara tunnuna eða 33 af hundraði að því er oliuráðherra furstasambandsins, Mana Al-Oteiba, tilkynnti i dag. Skömmu eftir tilkynninguna hækkaði verð á gulli í London í 458,75 dollara únsan sem er nýtt met. Verðhækkunin mun gilda frá deginum í dag þótt þess væri ekki getið. Enn hefur fréttin ekki verið staðfest í Saudi-Arabíu og Qatar. Verðhækkunin mun þjóna þeim tilgangi að koma í veg fyrir átök við róttæk ríki eins og íran og Líbýu á fundinum í Caracas. Olía selst þegar á um 40 dollara tunnan á skyndimarkaðnum í Rotterdam. Bent er á, að samþykki Saudi- Arabíu við verðhækkuninni boði meiriháttar stefnubreytingu, þar sem stjórn landsins hefur á liðn- um árum staðið gegn þrýstingi annarra OPEC-ríkja, sem hafa hækkað verðið, og hvatt til hóf- semi i þágu efnahagskerfis alls heimsins. Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum verður sennilega sætzt á það í Caracas að nýja verðið verði 17,56 dollarar tunnan, en það er það verð sem Arabíska furstasam- bandið hefur ákveðið, ef til vill fyrir fyrra árshelming 1980. Olíuverð OPEC hefur flotið á bilinu 18 til 23,5 dollarar tunnan. En íran, Libýa, Alsír og Nígería hafa nýlega hækkað sitt verð talsvert langt yfir núverandi þak vegna hins háa olíuverðs á skyndi- mörkuðum. fiPHJúPun ÓmÓTSTPEÐIlEG SHfilDSflGfl EPTIR SUSflfl ISflflCS „Sprikklandi af fjöri, afburðaskemmtileg1 ■ • „ómótstæðileg" . . . „hrífandi afþreying sem heldur lesandanum föstum " . . . Þannig voru umsagnir gagnrýnenda um þessa skáldsögu Susan Isaacs. AFHJÚPUN er bráðfyndin, beitt og afhjúpandi lýsing á hjónalífi, glæpum, samdrætti og leynibralli. lounn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.