Morgunblaðið - 21.12.1979, Side 4
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979
Jóla-
skemmtun
í skóla
með hálfrar
Ljóðið eftir Stefán Jónsson um skrópasýkina flutt með tilþrifum. Skólabækurnar, pennastokkurinn og
reglustikan við rúm „sjúklingsins". Ljósm. Emilia
aldar hefð
Fylgst með því sem gerist á sviðinu. Margir foreldrar voru mættir til að sjá börn sín stíga fyrstu skrefin á
fjölunum.
Krakkarnir fluttu Jólasveinaljóðið eftir Jóhannes úr Kötlum og léku jafnóðum hvern jólasvein.
Austurbæjarskólinn er í ár
hálfrar aldar gamall og á
sínar eigin hefðir umfram
aðra barna- og grunnskóla
bórgarinnar. Og hann á meira
að segja eigin höfunda, sem
hann nýtir sér vel á jóla-
skemmtunum á þessu 50. af-
mælisári skólans. Fluttu skóla-
nemendur mikið af efni eftir
fyrrverandi kennara í Austur-
bæjarskólanum í gær. Enda
ekki í kot vísað, þar sem eru
menn á borð við Jóhannes úr
Kötlum, Stefán Jónsson og
fleiri.
Önnur hefð hefur haldist í
Austurbæjarskólanum, sú að
láta alla eða nær alla nemendur
koma fram sjálfa á skóla-
skemmtunum og vera þátttak-
endur engur síður en áhorfend-
ur. Þess vegna eru hóparnir
smærri í einu, en hver skemmt-
unin tekur við af annarri.
Byrjað kl. 10 í gærmorgun með
9 og 10 ára börnum, þá 7 og 8
ára og loks 11 og 12 ára
börnum, en 7, 8 og 9 ára
bekkirnir luku deginum með
diskódansi í leikfimissalnum,
þar sem hægt er að þekja gólfið
með flekum.
Það var sérlega gaman að
koma á skemmtunina í gær-
morgun í gamla samkomusaln-
um, sem hefur þann kost að
brött hækkandi sætaröð veitir
smáum sem stórum gott útsýni
yfir sviðið. Áður var þar oft
þröngt á þingi, meðan í skólan-
um voru 17—18 hundruð börn,
og ekki fengu allir sæti. En nú
er hægt að bjóða foreldrum
litlu leikaranna og voru ófáir
mættir ásamt kennurum. Enda
hafa foreldrar sjálfsagt orðið
að undanförnu að lifa með
þessum mikla undirbúningi
fyrir skemmtunina, þegar leik-
arar gátu ekki sofið fyrir
taugaóstyrk.
Kór Austurbæjarskólans söng, og mörg barnanna léku líka í
söngleiknum Litlu Ljót undir stjórn söngkennarans, Péturs H.
Jónssonar.