Morgunblaðið - 21.12.1979, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979
37
Mikið var borið í dagskrána.
Fyrst söng kór Austurbæjar-
skólans og var efnisval allt
tengt skólanum. Byrjað á sálm-
inum fallega, Hátíð fer að
höndum ein, sem Jóhannes úr
Kötlum bætti á sínum tíma við
fleiri erindum að beiðni söng-
kennara skólans, sem fannst
eitt erindi of lítið. Þá var
sungið jólaljóð, eins og Sigur-
sveinn D. Kristinsson, þáver-
andi söngkennari, gerði, þ.e. í
tvöfaldri keðju, með annarri
röddinni fimmund neðar. Og
síðan „Upp skepna hver göfga
glöð“, sem Hallgrímur Jakobs-
son söngkennari hafði á sínum
tíma gert við texta Einars
Braga og núverandi söngkenn-
ari gróf upp í einhverjum
skápnum. Og loks „Sjá himins
opnast hlið“ í raddsetningu
Róberts A. Ottóssonar, en Guð-
ríður Magnúsdóttir, ekkja
hans, er kennari í skólanum.
Þá léku börnin með miklum
tilþrifum kvæðið um Jólasvein-
ana eftir Jóhannes úr Kötlum,
sem lengi kenndi við Austur-
bæjarskólann. Og því næst
kvæðið um skrópasýkina eftir
Stefán Jónsson, sem kenndi í
skólanum árum saman í stofu
17 á efri hæðinni. Stefán var oft
nefndur faðir hans Gutta og því
átti vel við að börnin fluttu og
léku Guttakvæðið. Endirinn á
dagskrá barnanna var söngleik-
urinn Litla Ljót eftir Hauk
Ágústsson, sem fjallar sem
kunnugt er um Indjána og
komu þar margir litríkir Indí-
ánar fram. Nú er komin til
sögunnar tækni, sem gerir fært
að varpa sviðsmyndum á bak-
vegg leiksviðsins, sem er mikil
hagræðing frá því að bera inn
leiktjöld á svo þröngu sviði,
eins og áður var gert. Einnig
má þar sýna kvikmyndir og var
sýnd stutt gamanmynd með
Chaplin, áður en krakkarnir
fluttu sig yfir í leikfimissalinn,
þar sem biðu hljóðfæraleikar-
arnir, söngkennarinn Pétur H.
Jónsson við píanóið og Eyjólfur
Bjarni Alfreðsson með fiðlu og
léku fjörlega undir sönginn
meðan gengið var kringum
jólatréð.
Torgið efst á blaði,
þegar farið er í bæinn til fatakaupaí
Mokkakápa 215.000
Herramokkajakki 150.000
Duffys stakkar 34.000
Barnahúfa 8.900
Lúffur 5.800
_
sími: 27211