Morgunblaðið - 21.12.1979, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979
39
Koma seglskip af tur
fram á sjónarsviðið
„Vindrósin“ eins og hún mun lita út ef af smíðinni verður, en skipið er
hugsað fyrir hveitiflutninga frá Ástralíu eða Bandaríkjunum til
Evrópu. Hveitiflutningar með seglskipum yrðu fimm sinnum ódýrari
en með vélknúnum skipum. Vindrósin á að ná 14 hnúta hraða í góðum
byr.
Seglskip ciga aftur eftir að
sinna vöruflutningum, að sögn
fróðra manna um sjóflutninga,
en fyrir aðeins fáeinum árum
hefði það þótt brandari ef spurt
hefði verið hvort seglskip ættu
eftir að koma við sögu vöruflutn-
inga. Það sem einkum veldur
þessari þróun eru olíuverðshækk-
anir sem haft hafa í för með sér
aukinn reksturskostnað, og svo
það, að vindurinn kostar ekki
neitt.
Nýlegir útreikningar hafa leitt í
ljós að seglskip geta verið fyllilega
samkeppnisfær við vélknúin skip á
vissum leiðum með ákveðnar
vörutegundir. Er þá miðað við að
smíðuð verði ný seglskip þar sem
nýjasta tækni við skipasmíði yrði
höfð til hliðsjónar.
Einkum eru það hveitiflutn-
ingar frá Ástralíu til Evrópu sem
koma til greina. Hefur brezkt
fyrirtæki látið teikna fimm
mastra seglskútu með þessa flutn-
inga í huga og er fjármögnun
skútusmíðinnar í gangi, en áætl-
aður kostnaður við smíðina er um
15 milljónir Bandaríkjadala, eð a
600 milljónir króna. Hefur skipinu
verið gefið nafnið „Vindrósin" og á
það að ná 14 hnútum í góðum byr.
Verður skipið búið dísilvél til
aðstoðar í logni. Vökvakerfi mun
stjórna seglabúnaði sem hefur í
för með sér hlutfallslega litla
áhöfn miðað við seglskip fyrri
tíma þar sem ekki mun þurfa
nema einn mann þar sem marga
menn þurfti áður við að rifa seglin
í stormi.
Með aðstoð veðurupplýsinga frá
gervihnöttum verður auðveldara
en áður að finna beztu vindbeltin
og að forðast hvassviðri og felli-
bylji. Skúta ætti af þessum sökum
ekki að vera nema í mesta lagi
einni viku lengur en vélskip frá
Ástralíu til Evrópu, en flutnings-
kostnaðurinn verður aðeins
fimmtungur þess sem hann er með
vélskipi. Af þessum sökum er
búist við að nýir möguleikar
opnist í vöruflutningum, einkum
fyrir ýmsar vörur frá þróunar-
löndunum sem þykja of dýrar í
flutningi með vélskipum. Einnig
að hveitiflutningar frá Bandaríkj-
unum til Evrópu verði hagkvæm-
ari með seglskipum.
Því er spáð, að innan fimm til
tíu ára verði sex til tuttugu
seglskip í vöruflutningum milli
heimsálfa, og að um næstu alda-
mót verði þau enn fleiri, ef til vill
miklu fleiri en vélskipin.
Vindrósin er af „klassískri"
seglskipagerð, en einnig er þegar
verið að hanna og gera tilraunir
með annars konar seglskip, t.d.
skip er búið væri loftskrúfum til
að hlaða rafgeyma fyrir raf-
magnsvélar skipsins.
Þá hafa Japanir hafið tilraunir
með líkan af olíuflutningaskipi
sem búið er seglum. Líkanið er 83
tonn og hefur verið í reynslusigl-
ingum á Kyrrahafi. Þær hafa
tekizt vel og sérfræðingr sjá nú
þegar fyrir sér 20.000 tonna olíu-
skip búið seglum.
Það sem einkum hefur staðið
þróun seglskipanna fyrir þrifum í
seinni tíð er að gera má ráð fyrir,
að þau verði lengur í ferðum en
vélknúin skip. Einnig að áætlanir
þeirra verð óreglulegar og að þau
muni eftir sem áður standa vél-
knúnu skipunum að baki við ýmis
skilyrði, einkum á höfnum og
sundum.
ÚTSÖLUSTAÐIR: Karnabær Laugavegi 66-Karnabær Glæsibæ - Eyjabær Vestmannaeyjum - Hornabær Hornafiröi-Epliö Akranesi - Eplið ísafiröi - Cesar Akureyri.
Sá sem veit hvað hann vill,
velur PIOIMEER
Jarðar-
búum
fjölgar
um of
Washington^ 19. des. AP.
HAGSKYRSLUSTOFNUN
í Washington segir í
nýútkominni skýrslu að
nú sé brýnna en nokkru
sinni fyrr að draga úr
mannf jölgun í heiminum.
í skýrslunni segir að
mannfjölgunin nú sé um
1,7%, og hafi að vísu lækk-
að lítillega úr 2% á miðjum
sjötta áratugnum. Engu að
síður fjölgar mannkyni um
200 þúsund á dag.
Þótt reikna megi með því
að enn dragi nokkuð úr
fjölguninni, og hún fari
niður í IV2 %, má reikna
með að íbúar jarðar, sem
nú eru um 4 milljarðar,
verði orðnir 6 milljarðar
árið 2000.
í mörgum þróaðri ríkjun-
um er fjölgunin orðin lítil
sem engin, segir í skýrsl-
unni, en þótt fæðingum fari
fækkandi í þróunarríkjun-
um, fer meðalaldur þar
hækkandi, svo íbúunum
fjölgar enn.