Morgunblaðið - 21.12.1979, Blaðsíða 12
44
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979
Snillingur, sem ekki
mátti vamm sitt vita
Gunnar M. Magúss: Sigurðar bók
Þórðarsonar
Útgefandi: Setberg, Reykjavík
1979
Sigurður Þórðarson var mér á
vissan hátt kunnur og nákominn
áður en ég sá hann. Faðir hans,
séra Þórður Ólafsson, varð að
loknu prófi prestur í Dýrafjarð-
arþingum og bjó á Gerðhömrum
norðan fjarðarins. Frá 1904 var
hann svo prestur á Söndum í
Dýrafirði og síðan prófastur, unz
hann lét af prestskap. Hann
fermdi bæði föður minn og móður
og síðan mig, og segi ég frá því í
ævisögu minni, hvað ég átti hon-
um að þakka í trúarefnum. Hann
Bökmenntlr
eftir GUÐMUND
G. HAGALÍN
varð og vinur foreldra minna, og
eftir að þau fluttust í Haukadal
frá Lokinhömrum, kom hann
ávallt til þeirra, þegar hann fór á
anexsíuna í Hrauni í Keldudal eð
akom þaðan, og vel minnist ég
þess, þegar hann var í kjöri til
Alþingis 1914 og foreldrar mínir
voru einu atkvæðin hans í Hauka-
dal. Kosningunni lauk þannig, að
tveggja atkvæða munur var á
honum og Matthíasi frænda mín-
um Ólafssyni, sem naut svo til
óskoraðs fylgis frænda og vina í
Haukadal, enda þar búsettur um
áratugi.
Eg heyrði það snemma, að eldri
sonur séra Þórðar, Sigurður að
nafni væri sönghneigður. Hann
varð lærisveinn í unglingaskóla
séra Sigtryggs Guðlaugssonar,
nam orgelleik hjá Kristni bónda
bróður séra Sigtryggs, og söng-
fræði hjá prestinum, sem hafði
mikið dálæti á söng og hljómlist
og hafði samið sönglög. Og þarna
samdi Sigurður lag, sem séra
Jótagjöl; sem marga dreymir um
Attt ti/hfjómffutnings fyrir:
HEIMIL/D — BÍLINN
OG DfSKÓTEKfD
Gunnar M. Magnúss
Sigtryggur lét nemendur sína
syngja, og þá er ég var nemandi í
Núpsskóla, fékk klerkurinn söng-
elski nýtt lag frá lærisveini þeirra
bræðra. Man ég alltaf, hve barns-
lega glaður klerkur var, þegar
hann sagði þesi tíðindi. Síðan
kenndi hann nemendum sínum
lagið, og oft var það sungið og
raulað. Ég var tveimur og hálfu
ári yngri en Sgurður, og í Núps-
skóla var ég aðeins 15 ára gamall.
Þar var minnzt 300 ára fæðingar-
afmælis Hallgríms Péturssonar,
og tók ég mig til og orti tvær vísur
í tilefni þess. Séra Sigtryggur bar
lof á vísurnar og sagði brosandi í
áheyrn nemendanna, að fyrir
skemmstu hefði sótt skólann verð-
andi tónskáld, og nú sæti á
skólabekk á Núpi verðandi ljóð-
skáld. Þess læt ég svo getið, að
sama skóla sóttur Jón úr Vör,
Steinn Steinarr og Guðbergur
Bergsson.
Leiðir okkar Sigurðar Þórðar-
sonar lágu fyrst saman sumarið
1918. Þá kom hann heim frá námi
í Þýskalandi, þar sem hann var í
nánum tengslum við þá Pál ísólfs-
son gg Jón Leifs. Ég var þá
blaðamaður við Fréttir, fór á fund
Sigurðar og átti fystur íslenzkra
blaðamanna viðtal við hann. Síðar
tókst með okkur góður kunn-
ingsskapur, og var ég nokkrum
sinnum gestur á heimili þeirra frú
Aslaugar Sveinsdóttur frá Hvylft
í Önundarfirði, og vel minnist ég
Sigurðar sem embættismanns frá
því að við Valur Gíslason unnum
að fyrstu samningum íslenzkra
Iistamanna vð Ríkisútvarpið.
Það er vandi að rita sögu látins
manns þannig, að hún gæðist lífi,
en Gunnari Magnúss hefur tekizt
það furðu vel.
í fyrsta kaflanum, Leitinni að
tóninum, segir frá skemmtilegum
atvikum úr bernsku tónskáldsins,
og sýna þau, að snemma hefur
Gæðiog
smekklegt útlit__________
SIEMENS-ryksugunnar grundvallast á
áratuga tækniþróun og sérhæfðri fram-
leiðslu SIEMENS-verksmiðjanna.
SIEMENS-ryksugan er hljóðlát og auðveld
í notkun.
Rafeindastýrður 1000W-mótor tryggir
mikinn sogkraft, sem aðlaga má
aöstæðum hverju sinni.
Leitið upplýsinga um SIEMENS-ryksugur
og sannfærist um kosti þeirra.
SIEMENS
-ryksugur sem endast
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4, Reykjavík
Simi 28300
krókurinn beygst til þess, sem
verða vildi. Þá er gerð grein fyrir
ætt Sigurðar og uppeldi og síðan
skólaárum hans innan lands og
utan, því næst borgaralegum
störfum hans. Gaman er að því, að
Gunnar hefur fegnið í hendur
blaðaauglýsingu frá kennsluárum
Sigurðar í Kvennaskólanum, en
þar mun hann fyrst hafa stofnað
söngflokk. Auglýsingin fer hér á
eftir:
Söngskemmtun Kvennaskólans
í Bárunni miðvikudaginn 9. maí
1923
Kvennakór (55 námsmeyjar) syng-
ur undir stjórn Sigurðar Þórðar-
sonar
Píanóundirspil: Frk. María Ein-
arsdóttir
Einsöngur: Frk. Ingibjörg Bene-
diktsdóttir
Píanóundirspil: Hr. Markús
Kristjánsson
Þá segir í kaflanum frá stofnun
Karlakórs Reykjavíkur og fyrstu
opinberu söngskemmtunum hans,
einnig fyrstu utanför kórsins.
Síðan er fjallað um feril Sigurðar
og gengi hans sem söngstjóra
tónskálds og frábærs borgaralegs
starfsmanns — og þá einkum hjá
Ríkisúrvarpinu þar sem hann var
alltaf stoð og stytta fyrirtækisins
og hollvinur þeirra, sem þar störf-
uðu. Þá er greint frá starfsbræðr-
um hans í Karlakórnum. Frá
þessu öllu er greint í 5 köflum
nákvæmlega og í eðlilegri röð,
Sigurði fylgt allt til þess að yfir
lauk og eftir hann var mælt af
mjög svo mörgum sem dáðu hann
sem tónskáld og söngstjóra og
ekki sízt sem frábæran eljumann
og valmenni.sem ekki mátti á
neinu sviði vamm sitt vita.
í næstsíðasta kaflanum. Bak við
tjöldin, er skýrt frá viðhorfi Sig-
urðar til eilífðarmálanna. Hann
var þar heill, svo sem gagnvart
hverju því, sem hugur hans gaf
gætur, var sannfærður spiritisti
og þeim þakklátur félagi, sem
stóðu að sálarrannsóknum hér á
landi. Það er svo ekkert undarlegt,
þó að honum yrði að orði, þá er
hann frétti lát dr Níelsar Dungal:
„Nú held ég að Dungal verði
hissa“. Þetta voru eins og vænta
mátti engin köpuryrði, þó að
Dungal hefði skrifað stóra bók til
að afsanna, að hann taldi á
vísindalegan hátt, lífið eftir dauð-
ann.
Síðasti kafli bókarinnar heitir
Samfylgdin, og er hann viðtal við
frú Aslaugu Sveinsdóttur. Er
hann næsta fróðlegur, og er þar
meðal annars fjallað um þá sáru
harma, sem þeim Sigurði og As-
laugu bar að höndum, þar sem var
missir þeirra tveggja barna, sem
þau eignuðust, dreng, sem lézt á
níunda ári og telpu, sem lifði
aðeins á fjórða ár. Þar um er bezt
að fara sem fæstum orðum, en
flestir munu geta gert sér að
einhverju leyti í hugarlund, hvað
foreldrarnir liðu, þegar hinn
mikla missi bar að höndum. Um
vinnubrögð Sigurðar og heimilis-
hætti getur frú Áslag af sinni
góðu og rólegu yfirvegun, og
vissulega verður þessi kafli les-
andanum minnisstæðari en flest
annað í bókinni, þó að yfirleitt
hafi Gunnari Magnúss farizt
verkið vel úr hendi.
I bókinni er fjölmargt ljós-
mynda.