Morgunblaðið - 21.12.1979, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979
47
Reiðilestur
Thor Vilhjálmsson:
FALDAFEYKIR, greinasafn
225 bls. Lystræninginn 79
Þetta greinasafn Thors Vil-
hjálmssonar hefur að geyma ýms-
ar greinar og pistla sem höfundur-
inn hefur látið frá sér fara síðasta
aldarfjórðung. Flestar þessara rit-
smíða eru mjög stuttar (tvær til
þrjár bls.) en nokkrar lengri og
hafa þær birst í ýmsum blöðum og
tímaritum. Drjúgum hluta bókar-
innar ver Thor til að fjalla um hið
fræga meiðyrðamál sem Krist-
mann Guðmundsson höfðaði
vegna ummæla Thors í grein í
hinu látna bókmenntariti Birting
á fyrri hluta síðasta áratugar. Það
er einkar áhugaverð lesning og
finnst mér reyndar best skrifaði
hluti bókarinnar, enda höfundin-
um mikið niðri fyrir. Kannski er
þarna dæmi um það sem Steinn
Steinarr kallaði „lífsháskann“ og
fannst einatt vanta í kveðskap
ungskálda síns tíma.í þessu fyrr-
nefnda máli hefur Thor þurft að
berjast fyrir sannfæringu sinni og
ég held að það hafi verið eitthvað í
þá áttina sem Steinn hafði í huga
þegar hann sagði þetta um
lífsháskann.
Flestar greinarnar eru frekar
lítið spennandi reiðilestur. Beinir
höfundur þar spjótum sinum m.a.
að úthlutunarnefnd listamanna-
launa og öðrum þeim fram-
kvæmdaaðilum ríkisvaldsins sem
Bökmenntir
eftir
SVEINBJÖRN
I. BALDVINSSON
hafa með málefni lista og lista-
manna að gera og víkur þá til
dæmis í snjallri grein að því
einstæða uppátæki stjórnvalda að
banna fullorðnu fólki að sjá
víðfrægt listaverk, kvikmyndin
Veldi tilfinninganna af því að það
er elskast svo mikið í myndinni, á
sama tíma og kvikmyndahús og
framleiðendur raka saman fé á því
að kenna fólki að meiða og drepa
hvert annað. Eg get ekki sagt að
mér hafi þótt gaman að þessari
sautjándu bók Thors Vilhjálms-
sonar. Á bókarkápu segir reyndar
að í bókinni sé efnið „krufið í
grimmum texta sem leiftrar af
húmor“. Þetta með grimmdina í
textanum finnst mér vel mega til
sanns vegar færa en fullyrðingin
um hið húmoríska leiftur finnst
mér nú eins og nokkrum númerum
of stór.
Ég minnist þess ekki að hafa
heyrt Thor Vilhjálmsson nefndan
húmorista og á ég ekki von á
stórvægilegum breytingum í því
efni þrátt fyrir útkomu þessarar
bókar. Hann er hins vegar að
mínu viti fádæma hagur orðlista-
smiður en betur finnst mér smíði
hans njóta sín í stærri og viða-
meiri verkum.
í eftirmála kemur fram að von
mun á öðru bindi af sama tagi og
ennfremur lætur höfundur þar í
ljós þá von að bók þessi verði til
þess að örðugra verði að gera
honum upp skoðanir. Ég tel ein-
sýnt að sú von muni rætast og
bókin þannig ná tilgangi sínum.
Sagt er að tilgangurinn helgi
meðalið og er það rétt. Ég get þó
ekki varist því að ætla að það gæti
ómögulega skaðað tilganginn þótt
meðalið væri dálítið skemmti-
legra.
Kaupmannahöfn 12/12 79
SIB
Vikublaðið Fólk
hefur göngu sína
NÝTT tímarit hóf göngu sína í
gær vikublaðið Fólk. Utgefandi
þess er Frjálst framtak h.f., og
ritstjóri er Óli Tynes, áður blaða-
maður á Vísi og Morgunblaðinu.
Óli Tynes sagði í samtali við
blaðamenn Morgunblaðsins í gær,
að upplag þessa fyrsta tölublaðs
fólks væri 20 þúsund eintök, en
líklega yrði upplagið þó ekki svo
stórt í framtíðinni, en það færi þó
eftir viðtökum. Þá sagði Óli, að
ætlunin væri að bláðið komi út
vikulega, og verður útkomudagur
þriðjudagur í hverri viku.
Eins og nafnið bendir til er efni
blaðsins stuttar fréttir og viðtöl
við fólk, og mikið er af myndum í
fyrsta tölublaðinu. Blaðið er í
sama broti og flest fyrri rit Frjáls
framtaks, svo sem Frjáls verslun,
íþróttablaðið og
tölublað Fólks er
stærð.
fleiri. Fyrsta
36 síður að
rHftNNES
^SON
AEG
VALIÐ ER
VANDALAUST
JÓLAGJAFIR
EGGJASUÐUTÆKI
BÍLARYKSUGA
NY RYKSUGA
NY KAFFIVEL
DJUPSTEIKINGA
POTTUR
HANDHRÆRIVEL
BRAUÐRIST
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
3ZVJ
BÓKMENNTAVIÐBURÐUR
Hannes Pétursson um^átekapemr
KVÆÐAFYLGSNI HALLGRÍMSSON
í þessari bók er brugðið upp
eftirminnilegum svipmynd-
um af Jónasi Hallgrímssyni,
lífi hans og list. Og Hannes er í senn nógu kröfuharð-
ur fræðimaður og listfengur rithöfundur til að fjalla
um þetta efni á þann hátt sem því er samboðinn. Bók
hans er reist á víðtækri heimildakönnun og snilldarvel
rituð.
Bræöraborgarstíg 16 Síml 12923-19156
„...lestur bókarinnr er skemmtun og hátíð sem
heídur áfram allt kvöidið og alla nóttina og langt
fram á morgun, og allt uns síðasta blaði er flett.“
(JS/Tíminn). „Útkoma Kvæðafylgsna er mikill bók-
menntalegur viðburður.“ (Jón Þ. Þór/Tíminn).
„Eins og vænta mátti er öll bók Hannesar hin læsileg-
asta enda skrifar þar skáld af umhyggju og ástúð um
annað skáld.“ (Heimir Pálsson/Helgarpósturinn).
„Vinnubrögð Hannesar eru einstaklega vönduð og
oft til hreinnar fyrirmyndar.“ (Heiga Kress/Dag-
blaðið).
— í einu orði sagt: KJÖRGRIPUR
i; í • i