Morgunblaðið - 21.12.1979, Síða 18
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979
Islenskt-norskt vina-
f élag stof nað í Drammen
SHÞ Osló. Mánud. 10. des:
Sunnudaginn 9. desember var
stofnað í Drammen „Islandsk-
Norsk Vennskapsforening í
Drammen og omegn“. Áfundinum
mættu 75 manns af báðum þjóð-
ernum, sem gengu í félagið.
Fyrir nokkrum árum kom fram
sú hugmynd frá Ingibergi Bald-
vinssyni og Sigíði Vilhelmsen að
stofna til félags Norðmanna og
íslendinga. Var þetta auglýst, en
eini þátttakandinn auk þeirra var
Atli Björnli lögmaður, sem nú er
konsúll íslands í Drammen. Lá nú
hugmyndin niðri um sinn. Það var
svo í sumar, að henni var hreyft
að nýju, með ofagreindum ár-
angri.
Stofnfundur var svo boðaður
sunnudaginn 9. desember. Gerði
Sigríður þar fyrst grein fyrir
tilefni fundarins, en síðan hélt
íslenski sendiherrann í Osló, Páll
Ásgeir Tryggvason, tölu og óskaði
félaginu allra heilla. Var hann
mættur á fundinum ásamt konu
sinni. Fundarstjóri var kosinn
Ingibergur Baldvinsson og Sigurð-
ur H. Þorsteinsson fundarritari.
Þá voru samþykkt lög fyrir félagið
og kosin stjórn samkvæmt þeim.
Formaður var kjörin frú Sigríður
Vilhelmsen, varaformaður Sigurð-
ur H. Þorsteinsson, ritari Inger
Helene Boasson-Eriksen, gjald-
keri Magnús Óskar Magnússon og
meðstjórnendur Jan Skjönhaug og
Ingibergur Baldvinsson.
Sigurður H. Þorsteinsson sagði
síðan frá aðdraganda félagsstofn-
unarinnar og Sigríður Vilhelmsen
þakkaði traustið fyrir hönd
stjórnar.
Þá var gengið til dagskrár
skemmtifundar. Ivar Orgland
stjórnaði samsöng og las íslensk
ljóð bæði á fummáli og í þýðingum
sínum. Einnig var sýnd kvikmynd
ferðamálaráðs, „Island den feil-
döpte öy“. Ennfremur var hress-
ing á borðum, kaffi, brauð og
kökur. Sungu menn ættjarðarlög
beggja þjóða, skemmtivísur og
jólalög. Mikill og góður rómur var
gerður að kvikmyndinni.
Að lokum flutti Atli Björnli
lögmaður tölu, þar sem hann
minntist fyrri tilrauna og óskaði
félagi þessu heilla og góðs starfs,
en hann hefir verið sá sem hefir í
raun annast allt skrifstofuhald
fyrir félagið og tekið á móti pósti
þess. Nú er kjörinn ritari og var
það sem áður segir Inger Helene
Boasson-Eriksen. Þeir sem vilja
skrifa félaginu geta samt sent
bréf sín til: Advokat Atli Björnli,
Islands Visekonsulat, Ströms Torv
Flytjendur:
Haraldur Sigurðsson - Laddi
Þórhalldur Sigurðsson - Halli
Ragnhildur Gísladóttir - Ragga
# #
Eg hef aldrei heyrt skemmtilegri plötu
Kotturinn Guttormur
(Aldrei að segja aldrei Guttormur
_ — Kýrin Ljómalind
Nýkjörin stjórn félagsins, talið frá vinstri: Sigurður H. Þorsteinsson
varaformaður, Jan Skjönhaug meðstjórnandi, Sigríður Vilhelmsen
formaður, Inger Helene Bóasson-Eriksen ritari, Ingibergur Baldvins-
son meðstjórnandi og Magnús Ó. Magnússon gjaldkeri.
Ljósm. Steinar Olsen
9, N-3000 Drammen.
Takmark félagsins samkvæmt
lögum þess er að vera félagsskap-
ur fastbúandi íslendinga og Norð-
manna til að auka þekkingu og
kynni einstaklinga og þjóðanna.
Ætlunin er að halda fundi með
þetta fyrir augum, ýmist
skemmtifundi eða starfsfundi þar
sem fólk getur komið saman, rætt
um málefni og lesið blöð og
tímarit. Einnig er stefnt að menn-
ingartengslum, myndlistarsýning-
um og kynningum listamanna.
Hefir þegar verið farið á fjörurnar
við Svein Björnsson listmálara í
Hafnarfirði um að halda sýningu
hér, sem hann hefir tekið vel í.
Jólasprengjur
London, 19. des. AP, ' **
UNDANFARNA tvo sól-
arhringa hefur lögreglan í
London fundið fimm
sprengjur í pökkum og
bréfum, sem sendar höfðu
verið í pósti tii kunnra
Lundúnabúa. Ekki er vitað
hvaðan sprengjurnar
koma, en talið að hryðju-
verkamenn írska lýðveld-
ishersins, IRA, hafi sent
þær til að hefna fyrir
herferð lögreglunnar gegn
þeim í fyrri viku. Svo virð-
ist sem nöfn viðtakenda
sprengnanna hafi verið val-
in af handahófi úr upp-
sláttarbókum
í fyrri viku voru 25
manns handteknir í
London grunaðir um aðild
að hryðjuverkum, og voru
þeir leiddir fyrir rétt þar í
borg í dag. Voru níu þeirra
úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald í viku.
Austurríski leikarinn Helmut Berger og ítalska
leikkonan Ela Martinelli stinga saman nefjum við
athöfn í Rómaborg þar sem veittar Voru viðurkenn-
ingar fyrir besta klæðaburð karls og konu í
heiminum.