Morgunblaðið - 21.12.1979, Qupperneq 22
54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979
Endurminningar
Iranskeisara:
Byltingar-
leiðtogarnir
missa íran til
kommúnista
London 14. des. AP.
FYRRVERANDI íranskeis-
ari viðurkennir í endurminn-
ingum sínum. sem komu út í
London í dag, að hann hafi
gert skyssu með því að reyna
að færa þjóð nánast á stein-
aldarstigi til sjálfstæðis,
frelsis og nútima menningar.
Ilann segir að byltingarleið-
togum þeim, sem nú stýri
landinu, muni ckki verða
annað ágengt en missa það í
hendur kommúnista.
Hann ver stjórnarfar það
sem hann hélt uppi á valda-
tíma sínum og segir að í
nóvember 1978, þegar óeirð-
irnar tóku að magnast fyrir
alvöru, hafi ekki verið nema
um 300 pólitískir fangar í
landinu. Um hina illræmdu
leyniþjónustu SAVAK segir
hann: „Ég get ekki varið allar
gjörðir SAVAKS. Það getur
verið að fólk, sem SAVAK
handtók, hafi verið pyntað.
Okkur kunna sem víða annars
staðar að hafa orðið á mistök.
„En hann gerir engan mun á
hryðjuverkamönnum og póli-
tískum föngum og um hina
síðari segir keisarinn fyrrver-
andi: „Ég get svarið, að farið
var með þá reglum og lögum
samkvæmt og þeir voru aldrei
pyntaðir."
Keisarinn fer hörðum orð-
um um það stjórnleysi og þó
öllu heldur ógnarstjórn sem
nú sé í íran og fjallar meðal
annars um þau hundruð
manna, sem hafi verið tekin
af lífi síðan í febrúar sl. og
segir að sakir sumra þeirra
hafi ekki verið aðrar en þær
að hafa gegnt ábyrgðarstöðu í
hernum meðan hann var keis-
ari.
Fylgst með slysaæfingu Flugbjörgunar-
sveitarinnar í „Ljónagryf junni“:
Nauðsynleg
aðhlynning
veitt þótt um
„platslys“
væri að ræða
Það voru allir mættir suður í Nauthólsvík í húsnæði
Flugbjörgunarsveitarinnar s.l. þriðjudagskvöld til að
taka þátt í æfingu sem var á áætlun, þegar tilkynning
kom um að slys hefði orðið í bílakirkjugarðinum í
Hafnarfirði, Ljónagryfjunni svokölluðu. Maður með
tvö börn hafði verið þar á ferð en ekki komið fram á
réttum tíma.
Þegar var látið til skarar skríða, allur björgunarbún-
aður tekinn til og settur í bílana og haldið af stað suður
eftir. Sveitinni, sem í voru rúmlega 40 menn, var skipt
niður í þrjá hópa og þeim falið að leita hver sitt svæði.
Mjög greiðlega gekk að finna hina týndu, þrátt fyrir
snjókófið og kom þá í ljós að þetta var bara „plat“-slys,
sjúklingarnir voru með gervisár, sem að vísu voru mjög
raunveruleg útlits. Það breytti hins vegar engu og
sjúklingarnir fengu alla þá nauðsynlegu aðhlynningu
sem hægt var að veita og þeir fluttir yfir erfitt landið,
yfir bílflökin, niður í sjúkrabílana sem biðu heitir og
tilbúnir. Enn var látið sem allt væri í alvöru og
sjúklingarnir fluttir í húsnæði sveitarinnar, sem var
ímyndað sjúkrahús.
Þar var hver sjúklingur fyrir sig tekinn fyrir, ef svo
má að orði komast, þ.e. rætt mjög vandlega um
meðferðina sem hann fékk, hvort hún hefði í öllum
tilfellum verið rétt. Almennt voru viðbrögð björgun-
armanna rétt, en auðvitað komu athugasemdir um eitt
og annað sem betur mætti fara og var tilgangi
æfingarinnar þar með náð. — Það er og hefur ætíð
verið á stefnuskrá Flugbjörgunarsveitarinnar að þjálfa
félagana sem allra bezt í skyndihjálp og sjúkraflutn-
ingum, enda æfingar sem þessi oft haldnar. — sb.
Sérskattur á verzlunarhúsnæði:
Veikir atvinnu-
öryggi í verzlun
— sagði Albert Guðmundsson
SIGHVATUR Björgvins-
son fjármálaráðherra
mælti sl. mánudag fyrir
stjórnarfrumvarpi um
framlengingu sérstaks
skatts á verzlunar- og
skrifstofuhúsnæði, sem
upp var tekinn í ár, og
skal skatturinn lagður á
áfram tekjuárið 1980.
Sagði ráðherrann skattinn
lagðan á til þess að sporna
gegn hóflausri fjárfest-
ingu í verzlunarhúsnæði
og auk þess væri gert ráð
fyrir IV2 milljarði í tekjur
eftir þessari skattaleið í
fjárlagafrumvarpi því, er
hann hefur lagt fram.
Albert Guðmundsson (S)
og Friðrik SophusSon (S)
mótmæltu þessari skatt-
lagningu. Sagði Albert að
fjármálaráðherra ruglaði
saman þessum sérstaka
skatti og nýbyggingar-
gjaldi, er hann teldi að
skatturinn spornaði gegn
fjárfestingu. Þessi sérstaki
skattur legðist á húsnæði,
sem þegar væri til staðar í
þessari atvinnugrein og
veikti rekstraraðstöðu
hennar og þar með at-
vinnuöryggi margra þús-
unda manna er til hennar
sæktu um atvinnu og af-
komu. Með því að taka út
úr rekstri atvinnugreinar-
innar svo háan viðbótar-
skatt væri í raun verið að
taka vinnutæki frá henni.
Friðrik sagði kapp krata-
ráðherrans, sem nú kæmi
fram í því að framlengja
þennan skatt, stangast á
við fyrri afstöðu flokksins.
Báðir hvöttu þeir viðkom-
andi þingnefnd til að
gaumgæfa þetta mál mjög
vel og stuðla að því að
þessari ranglátu skatt-
heimtu yrði hætt. Svavar
Gestsson (Abl) lýsti sig
fylgjandi skattlagningunni,
sagði afnám skatta, ef til
kæmi, fyrr eiga að koma
niður annars staðar en í
verzlunarrekstri.