Morgunblaðið - 21.12.1979, Side 25
fclk i
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979
57
I nafni hinna fátœk-
ustu meðal fátœkra ...
+ NORÐMENN höfðu komið
berfættu nunnunni úr fætækra-
hverfum Kalkúttaborgar, Móður
Tereseu, úr jafnvægi er þeir tóku
á móti henni í Osló á dögunum,
er hún kom þangað til að veita
viðtöku Nóbelsverðlaunum. —
Móttökurnar sem hún hlaut voru
fyllilega sambærilegar við það er
Norðmenn taka á móti konung-
um og öðrum þjóðarleiðtogum og
vel það. Eftirminnileg, segja
blöðin, verður blysförin um göt-
ur borgarinnar henni til heiðurs.
— Þessi fréttamynd er tekin við
athöfnina í Osló er Móðir Teresa
hafði tekið við Nóbelsverðlaun-
unum, komin í ræðupúltið. Þakk-
ar gjöfina, sem hún kvaðst hafa
tekið á móti í nafni hinna
fátækustu meðal fátækra.
Nærstaddir munu lengi minn-
ast þeirra orða hennar í ræðunni
er hún sagði:
„Stærsta ógnunin
við friðinn í heiminum í dag eru '
ópin frá ófædda barninu sak-
lausa.“ Því má bæta við að þeir
sem vinna hérlendis fyrir fjár- j
söfnun til Móður Tereseu hafa
opnað gíróreikning í bönkunum
sem er nr. 23900—3.
Glugginn
í Dallas
+ NAFN Lee Harvey Oswalds,
mannsins, sem myrti John F.
Kennedy, tengist nú beint
minningarreit um þennan at-
burð, sem bráðlega verður
komið á fót í Dallas, þar sem
forsetinn var myrtur. Her-
bergið í stórbyggingu þeirri, er
Lee Harvey var i, er hann
skaut forsetann til bana, verð-
ur gert að minningarreit um
þennan atburð. Byggingin hef-
ur verið lokuð síðan. Herbergið
á sjöttu hæð byggingarinnar
verður lagfært þannig, að þar
verði allt með sama sniði og er
Lee Harvey tók sér stöðu við
glugga herbergisins með hinn
langdræga riffil og skaut for-
setann. Forstöðumaður vérk-
legra framkvæmda í borginni
hefur allan veg og vanda af
þessu. Hann sagði við frétta-
ritara Reuters: Allir, sem
koma hingað til bæjarins, vilja
fá að sjá gluggann, sem Lee
Harvey skaut út um. Svo er að
sjá sem aðkomumenn hafi
tæplega áhuga á öðru, en að
komast upp í herbergið og geta
horft út um gluggann, yfir
vettvang þessa heimssögulega
viðburðar.
Þeir munu berjast um
völdin í Kanada
+ ÞESSI brosandi náungi, með barðastóra hattinn til
vinstri er kanadíski stjórnmálamaðurinn og fyrrum
forsætisráðherra Kanada í 11 ár, Pierre Trudeau. —
Þetta er dálítið óvenjuleg mynd af honum. Á flestum
fréttamyndum er hann t.d. berhöfðaður. — Myndin er
tekin fyrir fáeinum dögum. Nú er hann að leggja í
hann aftur — kosningabaráttuna, eftir að forsætis-
ráðherrann Joe Clark (til hægri) féll við atkvæða-
greiðslu í kanadíska þinginu: 139 atkv. gegn 133.
Trudeau hafði sagt flokksmönnum sínum í haust að
hann myndi draga sig í hlé. En eftir að þessi staða
kom upp á þinginu, hafði hann orðið við áskorunum
flokksmanna sinna um að takast formennskuna aftur
á hendur og leiða flokk sinn til sigurs á ný, en
kosningarnar fara fram 18. febr. næstkomandi.
Verð kr. 8.750.
Tilboðsverð 7.500.
Basso
Erectus
«-“■— Verð kr. 8.750.
Tilboðsverð 7.500.
Þaö fer ekki framhjá neinum sem hlustar á þessa plötu aö um snilli
Árna á hljóöfæri sitt eru engar ofsagnir. Ásamt honum leika á
plötunni Mike Melwoin á píanó, Peter Robinson á strengjavél,
Mitch Holder á gítar, Jaoe Porcaro á percussion, David Grigger á
trommur og svo konsertmeistarinn Jerry Vinci. Plata sem sannir
tónlistarunnendur veröa aö eignast.
Verð kr. 8.750,
Tilboðsverð 7.000.
Plötuhreinsarar
frá Groove Tube
Verö kr. 2.500.-
Kassettutöskur í mörgum litum og
stæröum á góöu verði
Sendum í póstkröfu
L.ugavegi 33 — Simi 11508 — 101 Raykjavík.
Við gefum 10% afslátt af öllum
plötum séu keyptar 2 eöa fleiri
plötur í einu.
1 11i •111