Morgunblaðið - 21.12.1979, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. DESEMBER 1979
61
hreyfingar, en fram að þessu má
segja, að það komi nokkuð seint á
lífsbraut manna. Það er ekki fyrr
en viðkomandi hefur leitað til
læknis vegna líkamlegrar van-
líðunar.
Nú hin allra síðustu ár hefur þó
borið við að sjúkraþjálfarar hafi
farið á vinnustaði og til félaga-
samtaka og leiðbeint fólki með
starfsstöður og vinnuhagræðingu,
auk þess sem brýnt hefur verið
fyrir því að nauðsynlegt sé að
halda líkamanum í góðri þjálfun,
því eins og dr. Jakob hefur eftir
bílstjóranum: „Ég á þessum
líkama svo mikið að þakka, að ég
má ekki fara illa með hann.“ Þessi
bílstjóri lagði mikla áherslu á að
sætið í bíl sínum væri gott og
setstaða rétt.
En eins og segir í greinarkorni
dr. Jakobs um vinnustellingar:
Það er ekki nóg að vekja athygli á
þessum málum öðru hvoru í fjöl-
miðlum, heldur þarf að fylgja
þessu eftir af dugnaði. Utlagður
kostnaður myndi fljótt skila sér í
minni fjarveru úr vinnu og skóla
og minni útgjöldum til sjúkrahús-
vistunar þessa fólks.
Kristín Erna Guðmundsdóttir,
sjúkraþjálfari."
Árgerö 1980 komin
Sérstakt jólatilboð
250.000 út og rest á 6 mán.
• Gleymdist
kurteisin?
Árný Guðmundsdóttir:
— Mig langar að greina frá
litlu atviki er kom fyrir mig í
vikunni þegar ég var að kaupa mér
efni í sængurföt í gamalli og virtri
verzlun í bænum, sem ég hefi
verslað lengi við. Þar er mjög góð
og kurteis afgreiðslustúlka, sem
ég hef átt samskipti við áður og
ekki haft neitt við hennar störf að
athuga. En þegar ég er að sauma
og er komin að lakinu þá kemur í
Ijós að ég hafði um 3.70 m í stað
6.30 m eins og ég hafði beðið um
og því gat ég ekki saumað lak á
hjónarúm úr þeirri lengd. Ég
hringdi í konuna og lét vita af
vandamáli þessu og bjóst síðan við
góðum móttökum er ég kom í
búðina til að fá meira efni. En þá
bar svo við að mér fannst nærri
sem mér yrði hent út. Að lokum
fékk ég þó 2 m til viðbótar, en mér
finnst ekki nóg að sýna kurteisi ef
fólk getur síðan ekki viðurkennt
yfirsjónir, sem var augljóslega
búðarinnar í þessu tilviki. Auðvit-
að hefði ég átt að koma fyrr, ég
viðurkenni það, ég kaupi efnið á
föstudegi, en er ekki komin að
lakinu í saumskapnum fyrr en á
miðvikudag, en samt sem áður
verð ég að segja að ég bjóst ekki
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlega skákmótinu í
Waddinxveen í Hollandi í sumar
kom þessi staða upp í skák
stórmeistaranna Sosonkos, Hol-
landi, og Kavaleks, Bandaríkjun-
um.
29... Rxh4! 30. gxh4 Dxh4 31.
Rxd6 Rg5 32. Bxa6 f3! 33. Bfl
Rh3+ 34. Bxh3 Dxh3 35. Re3 gw
og hvítur gafst upp.
Anatoly Karpov heimsmeistari
sigraði á mótinu. Hann hlaut 5
vinninga af 6 mögulegum. Kaval-
ek hlaut 3 v., Hort 2 V6 og Sosonko
rak lestina með 1 % v.
við svona viðtökum hjá gamal-
reyndu afgreiðslufólki í vandaðri
búð. Sú sem átti hlut að máli
þarna er einmitt mjög fær í starfi
enda hef ég mest verslað í þessari
búð og ekki séð eftir því.
• Neyðin er
líka nær
Nokkrar ömmur, er höfðu
komið saman, óskuðu eftir að
koma eftirfarandi á framfæri:
— Um þessar mundir er mikið
talað um neyð fólks og þá einkan-
lega úti í heimi og er alls konar
fjáröflun í gangi til hjálpar. Inn-
anlands eru einnig í gangi happ-
drætti fyrir hina ýmsu líknar-
starfsemi félaga og alls staðar er
þörf fyrir fjárframlög okkar, sem
megum sjá af nokkrum krónum.
Okkur finnst hins vegar að
nokkuð oft gleymist sú neyð sem
er okkur næst, þ.e. hér innanlands,
og hafa nokkrar okkar, sem vinna
á Grensásdeildinni, oft orðið vitni
að því hversu erfitt það er fyrir
fatlað fólk að komast út í lífið að
nýju eftir slys og sjúkdóma sem
hefta starfsgetuna. Þarf ekki að
hafa mörg orð um það, en okkur
finnst sem t.d. Hjálparstofnun
kirkjunnar megi líka hugsa um
þetta fólk, neyðin er líka hjá
okkur sjálfum, við þurfum að
sinna okkar fólki og rétta því
hjálparhönd. Það gerist ekki nema
einhver hafi forgöngu um málið og
því vildum við beina því til
Hjálparstofnunarinnar hvort hún
gæti ekki tekið þessi mál upp líka,
en ekki einbeitt sér að hörmung-
um úti í heimi, eins og gert hefur
verið mikið af að undanförnu.
Enginn deilir um þörf fólksins í
stríðshrjáðum löndum, en neyðin í
okkar eigin landi hefur líka
gleymst og farið framhjá okkur.
HÖGNI HREKKVlSI
a J?
„'EG 6V6T V/O/AD K) OETie QærOK}"
SIGGA V/öGA £ á/LVERAW
TÖKUM NOTUÐ TÆKI UPP í NÝ
Verö 22“ 711.980,-
26“ 749.850.-
r
Verslióisérverslun með
UTASJÓNVÖRP og HLJÓMTÆKI
k
Viðskiptavinir
athugið
að H.F. Ölgeröin Egill Skallagrímsson veröur
lokuö á aðfangadag og gamlársdag.
ÖLL RAFMAGNS-
HANDVERKFÆRI
4
RR BYGGINGAVÖRUR HE
SUÐURLANDSBRAUT 4. SlMI 33331.
1 1 EFÞAÐERFRÉTT- 8) NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU