Morgunblaðið - 05.01.1980, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1980
17
Tilkynning frá Kynningardeild Flugleiða:
Viðhald flugvéla hérlend-
is er dýrara en erlendis
Vegna forsíðufréttar Þjóðviljans í
dag, föstudag 4. janúar þar sem
staðhæft er að viðhald flugvéla sé
mun dýrara erlendis en hér á landi,
skal upplýst að þessu er öfugt farið.
Á samanburði kostnaðar á viðhaldi
flugvéla 1973—1978 liggja fyrir töl-
ur um þrjár gerðir flugvéla, það er
F-27 Friendship, Boeing 727 og
Douglas DC-8-63. I þessum saman-
burði er miðað við flugstundir.
Viðhald F-27 flugvélanna fer alger-
lega fram hér á landi. Viðhald
Boeing 727 flugvélanna að mestu
leyti, en viðhald Douglas DC-8
flugvéla fer fram erlendis.
Við athugun kemur í ljós að á
milli áranna 1973 og 1978 hækkaði
viðhaldskostnaður "DC-8 flugvéla
um 24.1%, viðhaldskostnaður
Boeing 727 flugvéla um 173.3% og
viðhaldskostnaður Friendship
flugvéla um 124.1%.
Þegar gerður er samanburður á
viðhaldskostnaði farþegaflugvéla er
eðlilegast að miðað sé við sæti per
flugstund. Sá samanburður milli
þessara þriggja flugvélategunda er
þannig miðað við gengi 3. janúar:
Douglas Dc-8 kr. 712.-
Boeing 727 kr. 1.384,-
Friendship kr. 2.175,-
Eins og áður er sagt fer viðhald
Boeing 727 flugvéla að mestu fram
hér á landi. Eftir flugskýlisbrunann
í Reykjavík þar sem viðhaldsað-
staða Flugleiða fyrir þessar flugvél-
ar eyðilagðist, hafa nokkrar svokall-
að c-skoðanir farið fram erlendis.
Aðrar skoðanir þessara flugvéla
hafa íslenskir flugvirkjar annast í
Keflavík við mjög erfiðar aðstæður
og frumstæð skilyrði.
'Viðhald á Fokker Friendship
flugvélum Flugleiða fer eingöngu
fram hér á landi og að sögn
flugvirkja er aðstaða til slíks við-
halds á Reykjavíkurflugvelli góð.
Lögreglumenn
hlupu uppi þjóf a
FJÓRIR piltar á aldrinum
16—17 ára brutust í fyrri-
nótt inn í Breiðholtsskóla
og stálu þar 39 þúsund
krónum í peningum og
slatta af strætisvagnamið-
Togarinn
kom fram
BJÖRGUNARSTÖÐ í Glycks-
burg í V-Þýzkalandi hafði sam-
band við Slysavarnafélag íslands
í fyrradag vegna þess að þá hafði
ekkert samband verið haft frá
því 30. desember við 2500 tonna
togara frá Cuxhaven, sem Bonn
heitir. —
Slysavarnafélagið gerði Land-
helgisgæzlunni viðvart og hafði
samband við strandstöðvar í
Grænlandi. Ekki var þó nein
skipuleg leit hafin að togaranum
enda talið að hann myndi vera
lagður af stað heim og kominn
langleiðina. I gærmorgun barst
svo SVFÍ tilkynning frá þýzku
björgunarstöðinni um að togarinn
væri kominn fram, var þá á
heimleið, staddur vestur af Skot-
landi. Þegar þessi tilkynning barst
var SVFI komið í viðbragðsstöðu
með umfangsmikla leit.
um. Einhverjir urðu varir
við ferðir piltanna og létu
lögregluna vita.
Stóð á endum að þegar
lögreglan kom að skólanum
voru piltarnir að koma út
með feng sinn. Kom styggð á
þá eins og vænta mátti þegar
þeir sáu lögregluþjónana og
hlupu þeir hver í sína áttina.
En lögreglumennirnir voru
ekki á þeim buxunum að láta
piltana sleppa og hlupu þeir
piltana fjóra uppi og fluttu
þá á lögreglustöðina.
Fyrirlestr-
ar Landfræði-
félagsins
FYRIRLESTRAR Landfræðifé-
lagsins hefjast að nýju eftir ára-
mót, mánudaginn 7. janúar n.k. kl.
20.30 í stofu 201 í Arnagarði. Þá
flytur Sigurður G. Þorsteinsson
fulltrúi hjá Framkvæmdastofnun
ríkisins erindi sem nefnist
„Svæðaskipting landbúnaðar-
framleiðslu — hugmynd að lausn
á vanda landbúnaðar". Öllum er
heimill aðgangur.
(Fréttatilkynning).
VARÐANDI frétt Þjóðviljans um
verð á þotueldsneyti sem Flugleið-
ir kaupa til notkunar á flugvélar
félagsins skal eftirfarandi tekið
fram:
í ummælum forstjórans var
eingc ígu átt við þróun eldsneytis-
verðs að því er varðar Atlants-
hafsflug félagsins, enda beinast
allar varnaraðgerðir félagsins að
þessum þætti rekstursins.
Staðreyndir eru eftirfarandi:
Frá því í október 1978 og til
dagsins í dag hafa meðalhækkanir
erlendis orðið um 90% og frekari
hækkana er að vænta á næstunni,
þannig að staðan í dag er sú sem
forstjóri gat um, að eldsneytisverð
erlendis hefði hækkað um nær
helming.
Varðandi eldsneytisverð á ís-
landi þá kostaði þotueldsneyti í
Keflavík í október 1978 liðlega 50c
hvert gallon. Verð á farmi sem
kæmi í dag er áætlað allt að 150c
og er þá miðað við Rotterdam-
skráningu á þessari stundu. Hefur
því eldsneytisverð hér þrefaldast.
Það skal tekið fram að örlitlar
birgðir eru enn af eldsneyti sem er
um 10% undir þessu verði.
Allar staðhæfingar um að hér
sé farið með rangt mál eru því út í
hött.
Kynningardeild Flugleiða,
Reykjavíkurflugvelli.
Hér er hinsvegar um fáar einingar
að ræða og verður viðhaldskostn-
aður því hlutfallslega hærri en
þegar um stóran flugflota er að
ræða.
Viðhald Dc-8 þota Flugleiða hefur
hins vegar farið fram erlendis og
eru ástæður aðallega tvær. í fyrsta
lagi er engin skýlisaðstaða til slíks
viðhalds hér á landi og í öðru lagi er
viðhaldið erlendis mun ódýrara.
Þar sem viðhald DC-8 þotanna fer
fram sem hluti af stærri flugflota
næst mun meiri hagkvæmni og m.a.
vegna þess er viðhaldskostnaður
lægri.
Ymsar fleiri orsakir geta að
sjálfsögðu legið til ódýrara viðhalds
erlendis. Sem dæmi má nefna að hér
á landi starfa eingöngu fulllærðir
flugvirkjar að viðhaldi. Erlendis
starfar meðal annars ófaglært fólk
undir stjórn flugvirkja og á þeirra
ábyrgð að viðhaldi og annast ýmis
vandaminni störf.
Það atriði sem vegur máski hvað
mest í hinum óhagstæða saman-
burði á viðhaldi hérlendis og erlend-
is er hin gengdarlausa verðbólga á
Islandi sem gerir allan samanburð
fyrir viðhald hér á landi mjög
óhagstæðan.
Frá Kynningardeild Flugleiða,
Reykjavíkurflugveili.
Þrettánda-
hljómleikar
á Selfossi
HLJÓMLEIKAR verða haldnir í
iþróttahöllinni á Selfossi á þrett-
ándanum, 6. janúar n.k. Koma
þar fram Brimkló, Brunaliðið,
Halli og Laddi, IILH-flokkurinn,
Rut Reginalds, Strengjasveitin
og fleiri.
Hefjast tónleikarnir klukkan 22,
en allir skemmtikraftarnir gefa
vinnu sína og rennur ágóðinn
óskiptur til Steindórs G. Leifsson-
ar, ungs Selfossbúa, sem sl. þrjú
ár hefur þurft að dvelja á sjúkra-
húsi vegna afleiðinga umferðar-
slyss. Fríar sætaferðir verða frá
Hveragerði, Stokkseyri og Eyrar-
bakka.
Athugasemd frá Kynningardeild Flugleiða:
Meðalhækkanir
eldsneytisverðs
erlendis um 90%
Snyrtistofan Anita í Keflavík hefur verið flutt að Hafnargötu 23, en
stofan var áður að Tjarnargötu 7., Eigandi stofunnar er Berta
Guðjónsdóttir, snyrtisérfræðingur. Á stofunni er hún með alla
almenna snyrtingu, kennslu í snyrtingu og baknudd. Einnig eru á
boðstólum snyrtivörur og ilmvötn. Snyrtistofan er opin virka daga kl.
10 18, nema mánudaga. Ljósmynd Árný, v/Ljósmyndastoíu Suðurnesja.
„Þjófi í Para-
dís“ mótmælt
Á SÍÐASTA fundi Útvarpsráðs, 28.
desember, var samþykkt með fjór-
um atkvæðum gegn þremur að hefja
flutning sögunnar Þjófs í Paradís.
Þess vegna þykir okkur rétt að fara
þess á leit við yður, að þér birtið
bréf það, sem hér fer á eftir og sent
var Útvarpsráði síðastliðið vor, þeg-
ar mál þetta kom þar til umræðu.
Um það skal ekki fleira sagt að
sinni.
Reykjavík, 31. desember 1979.
O -
Að gefnu tilefni lýsum við undir-
ritaðir þeirri skoðun okkar, að bók
Indriða G. Þorsteinssonar rithöf-
undar, Þjófur í Paradís, sem út kom
árið 1967, hafi fjallað svo opinskátt
um sakamál nýlátins manns, að ekki
yrði um fyrirmyndina villzt. Við
hörmum útkomu þessarar bókar,
sem hlaut að valda nákomnum
ættingjum manns þessa harmi og
sársauka að óþörfu.
Út yfir tæki þó, ef einnig ætti að
koma til flutningur þessa verks í
útvarp, enda teljum við á því
reginmun, að þeir sem eftir leiti,
geti fengið bók keypta í bókaverzlun
eða léða úr bókasafni, og hinu, að
efni hennar sé þulið yfir miklum
hluta þjóðarinnar í svo ágengum
fjölmiðli, sem útvarpið er. Svo sár
misgjörð við saklaust fólk, börn sem
fullorðna, væri að okkar dómi óverj-
andi. Enda þótt íslenzk lög virðist
leiða hjá sér dæmi af þessu tagi, svo
að banni við upplestri í útvarp verði
ekki til streitu haldið í krafti þeirra,
teldum við slíkan flutning engu að
síður hneykslanlegt athæfi og brot
gegn frumreglu mannúðar.
Nú fer því fjarri, að við bindum
mál þetta eingöngu við Indriða G.
Þorsteinsson rithöfund og þá, sem
koma við sögu hans, Þjóf í Paradís.
Það er skoðun okkar, að afstaða
Ríkisútvarpsins í þessu sérstaka
máli hljóti að marka stefnu til góðs
eða ills um velsæmi listamanna og
fjölmiða á þeim vettvangi, sem ekki
þykir varlegt, að lög nái til.
Með virðingu,
Reykjavík, 20. maí 1979
Broddi Jóhannesson, Sporðagr. 15,
Helgi Hálfdanarson, Rofabæ 31,
Jóh. Gunnar Ólafsson, Vesturbergi
134,
Jón úr Vör, Kársnesbraut 82,
Kópavogi,
Matthias Jónasson, Þinghólsbr. 3,
Kópavogi.
Ath.
^ANNAEy,
^ v' Innritun hefst 5. og 7. janúar
í Alþýöuhúsinu
frá kl. 1—4, 7. janúar
Kennsla hefst
sama dag í
Félagsheimilinu
Kenndir verða:
BARNADANSAR YNGST
3jA ÁRA
SAMKVÆMISDANSAR
TJÚTT OG ROKK
DISCODANSAR
frá kl. 2—6, 5. janúar
Konu-beat ffyrir dömur 20 ára og eldri.
SÉR HJÓNA OG EINSTAKLINGSFLOKKAR
Komið og lærið nýju disco-dansana