Morgunblaðið - 10.01.1980, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980
Verða símtöl við útlönd
dýrari um iarðstöðina?
„ÉG eíast um að samtöl við
útlönd verði ódýrari með
tilkomu jarðstöðvarinnar í
vor,“ sagði Jón Skúlason
póst- og símamálastjóri í
samtali við Mbl. í gær, „og
3 nýjar íslenzkar
kvikmyndir frum-
sýndar i vetur
þRJÁR nýjar íslenzkar kvikmyndir verða frumsýndar í vetur, en
meginhluti kvikmyndunarinnar fór fram á s.l. ári. Fyrsta myndin,
sem verður frumsýnd, er Land og synir eftir sögu Indriða G.
borsteinssonar og verður hún frumsýnd í janúarlok. Kvikmyndin
Veiðiferðin eftir handriti Andrésar Indriðasonar verður frumsýnd í
febrúarlok og Óðal feðranna verður frumsýnt í apríl.
Land og synir er nú fullbúin en
Ágúst Guðmundsson, sem er leik-
stjóri, gerði jafnframt handritið
eftir sögu Indriða. Framleiðandi
er Jón Hermannsson, en ísfilm
gerir myndina. Kvikmyndatakan
kostaði liðlega 60 millj. kr., en um
100 manns unnu að verkinu s.l. ár.
Myndin er á breiðfilmu og í lit.
Veiðiferðin, mynd Andrésar
Indriðasonar og Gísla Gestssonar
fyrir börn og fullorðna, verður
frumsýnd í febrúarlok en um
þessar mundir er unnið að hljóð-
setningu myndarinnar að lokinni
upptöku á tónlist sem Magnús
Kjartansson samdi fyrir myndina.
Sýningartími er 1% klukkustund.
Óðal feðranna verður frumsýnd
í apríl, en um þessar mundir er
verið að klippa myndina. Hrafn
Gunnlaugsson er leikstjóri, Snorri
Þórisson sá um kvikmyndun og
Jón Þór Hannesson um hljóðupp-
töku, en þessir þrír eru aðstand-
endur myndarinnar. Kostnaður er
um 60 millj. kr. og verða síðustu
senur myndarinnar teknar um
helgina í Reykjavík.
samkvæmt núgildandi regl-
um er útlit fyrir 22% sölu-
skatt á slík samtöl í gegnum
teljara í staðinn fyrir 4%
skatt á samtöl í gegnum
stöð eins og nú er. Það er
hins vegar hugsanlegt að
þessi söluskattur verði felld-
ur niður.“
Fyrstu mánuðina eftir að
jarðstöðin verður komin í notkun
verður aðeins hægt að hringja
beint til Vestur-Þýzkalands þar
sem kerfið fyrir ísland inn á
Norðurlönd og fleiri lönd verður
ekki tilbúið fyrr en n.k. haust.
Ríkissjóður íslands á jarðstöð-
ina að um það bil tveimur þriðju,
en Mikla norræna símafélagið á
um 'A. íslendingar hafa rétt til
þess að borga Mikla norræna út
sinn hluta í fyrirtækinu árið 1985.
• •
Metsala Ogra
TOGARINN Ögri frá Reykjavík
seldi afla sinn i Grimsby í gær og
fyrradag og fékk togarinn hæsta
verð sem íslenzkt fiskiskip hefur
fengið bæði í íslenzkum krónum
og erlendum gjaldmiðli.
Ögri seldi 242 tonn af fiski,
aðallega þorski og fékk fyrir
aflann 144.400. sterlingspund eða
jafnvirði 129 milljóna króna. Með-
alverð var 532 krónur fyrir hvert
kíló. Fyrra met var 130 þúsund
sterlingspund. Skipstjóri á Ögra
er Brynjólfur Halldórsson.
Önnur góð sala var í Grimsby í
gær. Togarinn Jón Dan seldi 188
tonn fyrir 105 milljónir króna,
meðalverð var 555 krónur fyrir
hvert kíló.
Benedikt Gröndal forsætisráðherra:
Mótmælti innrásinni við
sovézka sendiherrann
Heimsóknar varaforsætisráðherra Sovétríkjanna ekki óskað
Frá kvikmyndun Óðals feðranna. Frá vinstri: Jón Þór Hannesson,
Snorri Þórisson. Hrafn Gunnlaugsson og Þórður Magnússon leikari
frá Borgarnesi. Ljósmynd Ragnheiður Harvey.
BENEDIKT Gröndal forsætisráð-
herra tilkynnti Streltsov, sendi-
herra Sovétríkjanna á íslandi, að
ekki væri óskað eftir fyrirhug-
aðri heimsókn varaforsætisráð-
herra Sovétrikjanna til íslands í
byrjun næsta mánaðar, en um
leið mótmælti forsætisráðherra
innrás Sovétrikjanna í Afghan-
istan.
„Við áttum fund í forsætisráðu-
neytinu í morgun," sagði Benedikt
í samtali við Mbl. í gær, þegar
hann vár spurður um viðræðurnar
við sovézka sendiherrann. „Sendi-
herrr.nn fór fyrst að tala um
kjarnorkusprengjur í Evrópu, en
ég vék talinu strax að innrásinni í
Afghanistan og lýsti því yfir, að
við Íslendingar hefðum miklar
áhyggjur af þróun mála varðandi
Afghanistan, því við teldum að sú
þróun myndi spilla valdajafnvægi
á stóru svæði í Austurlöndum. Var
jafnvægið þó í mikilli hættu fyrir
vegna ástandsins í íran.
Eg áréttaði að við teldum að
friðvæðing væri ekki svæðisbund-
ið mál og þó að það hefði verið
fyrirhugað fyrir allnokkru að
varautanríkisráðherra Sovétríkj-
anna kæmi hingað til lands í
byrjun næsta mánaðar til þess að
ræða samskipti landanna og slök-
un í Evrópu, þá óskuðum við ekki
eftir því að ráðherrann kæmi og
að ferðinni yrði frestað um
óákveðinn tíma.
Eg benti sendiherranum á, að
það væri erfitt fyrir okkur að hafa
trú á tali um detente og friðvæð-
ingu í Evrópu þegar slíkir atburð-
ir gætu gerzt í nálægum heims-
hluta."
Flutningabílar
f uku hér og þar
í illviðrinu fyrri hluta vik-
unnar urðu nokkur dæmi
þess að stórir flutningabílar
fuku um koll. Á myndinni er
einn stór vöruflutningabíll
sem varð að lúta veldi Kára,
en það var við bæinn Tröð í
Fróðárhreppi á Snæfellsnesi
sem vindurinn skellti
bílnum. Engin alvarleg
meiðsli urðu á ökumannin-
um.
Þá fauk stór flutningabíll frá
Kaupfélagi Búðardals á hliðina á
veginum milli Árdals og Skelja-
brekku í Andakílshreppi. Tveir
voru í bílnum og slasaðist annar á
hendi.
Óskar Einarsson, formaður Vöku:
„Skorum á lýðræðis-
sinna að mótmæla“
— við sovézka sendiráðið kl. 14 í dag
í DAG kl. 14.00 verður mótmæla-
staða við sovézka sendiráðið i
Garðastræti vegna innrásar Sov-
étrikjanna inn i Afghanistan og
vegna landvinningastefnu þeirra
siðustu árin. Að mótmælastöðunni
standa Vaka, félag lýðræðissinn-
aðra stúdenta, og félög lýðræðis-
sinnaðra framhaldsskólanema á
höfuðborgarsvæðinu.
„Hér eru miklir atburðir að ger-
ast,“ sagði Óskar Einarsson, form-
aður Vöku, í viðtali við Morgunblað-
ið. „Við verðum að gera okkur grein
fyrir því, að heimsfriðnum er ógnað
með því grímulausa ofbeldi, sem
ráðamenn í Sovétríkjunum beita.
Enginn getur lengur efazt um það,
að hætta stafi af þessum stærstu
alræðisríkjum heims. Enginn getur
iengur leyft sér að vera nytsamur
sakleysingi. Við skulum ekki gleyma
því, að Sovétríkin hófu kalda stríðið
með því að leggja undir sig öll
Austur-Evrópuríkin, koma þar á
sósíalisma og alræðisstjórn. Síðustu
tvo áratugina hafa þau haldið áfram
að leggja undir sig lönd, Kúbu,
Angóla, Mósambik, Eþíópíu, Víet-
nam, Laos og Kampútseu. Ógnar-
Oskar Einarsson læknanemi,
formaður Vöku.
stjórnin í þessum löndum er jafnvel
enn blóðugri en hún var í Austur-
Evrópu. Sovétríkin réðust inn í
Ungverjaland 1956, Tékkóslóvakíu
1968 og Afghanistan 1979. Hvaða
land verður næst?
Við skorum á lýðræðissinna, hvar
í flokki sem þeir standa, að mót-
mæla þessari innrás og mótmæla
einnig landvinningastefnu mann-
anna í Kremlkastala með því að
standa í hálftíma við sovézka sendi-
ráðið í dag. Sofandahátturinn var
bezti bandamaður Hitlers, þegar
hann lagði undir sig hvert landið af
öðru. Nú hafa kommúnistar tekið
við af þjóðernis-sósíalistum sem
óvinir lýðræðisríkjanna, rauði litur-
inn hefur tekið við af brúna litnum,
eins og Tómas Guðmundsson orti
um:
— t gær var hún máske brún
þessi böðulshönd.
sem blóðug og rauð i dag sinu
vopni lyftir,“
sagði Öskar að lokum.
Fréttaritari okkar í Grundarfirði, Bæring Cecilsson, tók myndina
Ríkisstjórnin vill ekki
styðja popptónlistina
RÍKISSTJÓRNIN vísaði frá
beiðni Hljómplötuútgáfunnar um
styrk til handa 16 íslenzkum
hljómlistarmönnum vegna ferðar
þeirra á hljómlistarhátið í Cann-
es á næstunni, en þar hefur
íslendingum verið boðið ásamt
tveimur öðrum þjóðum að
skemmta.
Samkvæmt upplýsingum Jóns
Ólafssonar hjá Hljómplötuútgáf-
unni vísaði menntamálaráðheri
á fjárveitinganefnd til þess £
kanna möguleika fyrirgreiðslu, t
hljómlistafólkið heldur utan
næstu viku. Kvaðst Jón ætla s
kanna málið þar, en hann sagði a
kostnaður við þessa ferð fyrir ]
manna hóp væri alls um 16 mill
kr. með ferðakostnaði, flutnini
þljómtækja, leigu á sýningarbf
o.fl.
♦