Morgunblaðið - 10.01.1980, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980
3
Jónas H. Haralz ólafur G. Einarsson Gudmundur Þórarins Halldór Asgrimsson Geir Gunnarsson Svavar Gestsson Kjartan Jóhannsson Sighvatur Bjórjrvins
Sjálfstæðismenn ræða við
f ulltrúa hinna f lokkanna
Margeir
í 2.-3.
sæti
MARGEIRI Péturssyni alþjóðleg-
um meistara hefur gengið vel á
alþjóðlega skákmótinu i Prag. Er
hann í 2.—3. sæti eftir 11 umferð-
ir með 7 vinninga, jafnmarga og
Sovétmaðurinn Spiljker. Efstur
er Júgóslavinn Ilic með 8 vinn-
inga. Jón L. Árnason hefur 4'/2
vinning og jafnteflislega biðskák
gegn stórmeistaranum Vasjukov.
í síðustu fjórum umferðunum
hefur Margeir hlotið 3‘/2 vinning,
hann vann Tékkana Hruska, Jan-
ak og Medana en gerði jafntefli
við Ambros, sem einnig er Tékki.
Jón gerði jafntefli við Ambros,
Spiljker og Kúbumanninn Vilela.
Tvær umferðir eru eftir og teflir
Margeir þá við Spiljker og Vilela.
Á hann talsvert góða möguleika á
því að hreppa eitt af efstu sætun-
um í mótinu.
INNLENT
ÞEIR Jónas H. Haralz
bankastjóri og Ólafur G. Einars-
son formaður þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins áttu í gær viðræð-
ur við fulltrúa hinna stjórnmála-
flokkanna; framsóknarmennina
Guðmund G. Þórarinsson og Hall-
dór Ásgrímsson, alþýðuflokks-
mennina Kjartan Jóhannsson og
Sighvat Björgvinsson og alþýðu-
bandalagsmennina Svavar Gests-
son og Geir Gunnarsson. Fundirn-
ir fóru fram í Þórshamri. Mbl.
spurði Jónas H. Haralz í gær-
kvöldi um þessa fundi, en hann
kvaðst ekkert vilja um þá segja.
Guðmundur G. Þórarinsson al-
þingismaður sagði, er Mbl. spurði
hann í gær um fund framsóknar-
manna með Jónasi og Ólafi:
„Það vær rætt um álitsgerð
Þjóðhagsstofnunar, sérstaklega
var rætt um leiðir fjögur og fimm,
sem að vísu finnst enginn faðir að,
þar sem þetta eru ekki tillögur
Sjálfstæðisflokksins og ekki tillög-
ur Geirs Hallgrímssonar.
Það er skoðun okkar framsókn-
armanna, að við sjáum ekki leið til
þess að afla þessara 25 til 30
milljarða króna, sem nota á til að
fá svigrúm til kjarabóta fyrir þá
lægstlaunuðu. Og við höfum enn
meiri efasemdir um að það megi fá
frið á vinnumarkaðinum um þess-
ar tillögur."
Svavar Gestsson alþingismaður
sagði, er Mbl. spurði hann í
gærkvöldi um fund hans og Geirs
Gunnarssonar með þeim Jónasi og
Ólafi:
Þeir Jónas og Ólafur gerðu
okkur grein fyrir tillögum og
útreikningum Þjóðhagsstofnunar
á þeim. Inn í dæmið vantar þó
áhrifin á helztu þjóðhagsstærðir
og peningamálapólitík.
Hins vegar liggja fyrir áhrif
tillagnanna á kaupmáttinn og þau
eru mjög ljót að mínu mati.“
Sighvatur Björgvinsson fjármála-
ráðherra sagði í samtali við Mbl. f
gær:
„Við hittum að máli þá Jónas
Haralz og Ólaf G. Einarsson, sem
undirstrikuðu sérstaklega að ekki
væri um tillögur að ræða, en
viðræðurnar fóru fram á grundv-
elli hgumynda Sjálfstæðisflokks-
ins. Um þær hugmyndir er bezt að
segja sem fæst.
Við spurðum þá nánar út í ýms
atriði og fengum frekari upplýs-
ingar en á skjölunum er að finna
og ég á von á því, að við fáum
frekari upplýsingar á morgun.“
Helgiathöf n áður
en Týr hélt til
gæzlustarfa á ný
Akureyri, 9. jan.
RÉTTARHÓLDUM í sjó- og
verzlunardómi Akureyrar vegna
atburðanna um borð í varðskip-
inu Tý á mánudagsmorgun lauk
kl. rúmjega 15 í dag. Ásgeir
Pétur Ásgeirsson, aðalfulltrúi
bæjarfógetans á Akureyri og
forseti dómsins, sagði síðdegis,
að 12 skipverjar af Tý hefðu
komið fyrir rétt í dag en ekkert
nýtt hefði komið fram í málinu.
Staðfestar skýrslur hafa verið
teknar af öllum skipverjum og eru
Flugstöðin í
fullum gangi
AÐ GEFNU tilefni vilja Flugstöð-
in og Arnarflug geta þess að
Flugstöðin h/f í Reykjavík hefur
ekki lagt niður starfsemi sína, svo
sem skilja má í fréttum ýmissa
fjölmiðla að undanförnu. Hins
vegar hefur Arnarflug keypt eina
flugvél af Flugstöðinni og tekið á
leigu afgreiðslu og viðhaldsað-
stöðu í húsakynnum Flugstöðvar-
innar á Reykjavíkurflugvelli.
Flugstöðin mun verða þar áfram
til húsa og verður náin samvinna
með þessum tveim flugfélögum í
leiguflugi og öðrum óreglubundn-
um verkefnum.
þær samhljóða að mestu. Fullt
samræmi er með þeim öllum hvað
varðar alla atburðarás og liggur
hún því ljós fyrir. Hins vegar
hafði háttsemi Jóns D. Guð-
mundssonar síðustu dagana komið
mönnum misjafnlega fyrir sjónir,
eða þeir veitt henni mismikla
athygli. Þó urðu flestir þess
áskynja, að eitthvað þjakaði hann
og lá á honum eins og mara, en
það hafði hann ekki viljað ræða
við neinn þrátt fyrir spurningar
sumra félaga hans. Þetta þarf þó
ekki að vera skýring á verknaðin-
um og ekkert hefur frekar komið
fram við réttarhöldin hvaða
ástæður lágu til hans.
Réttarskjölin verða nú send til
ríkissaksóknara til endurskoðun-
ar, en hann getur farið fram á
framhaldsrannsókn ef honum sýn-
ist svo.
Um kl. 16 í dag kom séra Pétur
Sigurgeirsson vígslubiskup um
borð í varðskipið Tý að beiðni
Bjarna Helgasonar skipherra og
Jóns Magnússonar lögfræðings
Landhelgisgæzlunnar og annaðist
þar stutta og látlausa helgiathöfn.
Hann flutti ritningarorð, bað fyrir
öllum hinum látnu og lýsti drott-
inlegri blessun.
Skömmu síðar lét varðskipið úr
höfn á Akureyri. Sv. P.
Á fundinum um oliukaupin i gær.
Olíukaupin rædd áfram í dag
BREZKA samninganefndin um
olíusölu til íslands ræddi málin
við íslenzku olíuviðskiptanefndina
á fundi í Reykjavík í gær og
verður fundum fram haldið í dag.
Að sögn Kenneth Vaughan, tals-
manns brezku nefndarinnar, var
farið yfir ýmis atriði á fundinum í
gær og kvað hann fundinn hafa
verið ánægjulegan og að vel hefði
gengið að fjalla um hin ýmsu
atriði. M.a. var rætt við viðskipt-
aráðherra, en Vaughan kvaðst
ekki telja að gengið yrði frá
samningum á fundinum í dag,
fremur síðar í mánuðinum ef til
kæmi.
Fréttapakkar fyrsta sjón-
varpsefnið um jarðstöð?
MORGUNBLAÐIÐ innti Pétur
Guðfinnsson framkvæmdastjóra
Sjónvarpsins eftir því í gær hvað
væri i deiglunni varðandi efni fyrir
sjónvarpið um jarðstöðina þegar
hún kemst í gagnið í vor. Pétur
sagði að það sem helst væri um að
ræða i fyrstu lotu væri að fá
daglega fréttapakka sem stöðvar
Ráðizt á búðir íslenzka
hjálparliðsins í Thailandi
RAUÐU khmerarnir, fylgis-
menn Pol Pots fyrrverandi leið-
toga Kambódíumanna, gerðu
harða árás á Non Sametbúðirn-
ar i Thailandi þar sem islenzka
hjálparliðið er við störf 4. jan-
úar s.I. samkvæmt skeyti sem
Rauða krossi íslands barst i
gær.
Eggert Ásgeirsson fram-
kvæmdastjóri Rauða krossins
sagði að enginn íslendinganna
hefði hlotið meiðsl eða þess
háttar heldur hefði hjálparliðið
ásamt 9000 flóttamönnum verið
flutt á brott þegar í stað og munu
hjálparliðarnir taka að sér störf
á öðrum stöðum við landamærin.
Spítalarnir og sjúkraskýlin á
staðnum voru rænd öllu sam-
kvæmt fréttunum.
Eggert sagði, að óttast væri að
fljótlega yrði lagt til atlögu við
aðrar búðir, sem í eru um 250
þúsund manns. Þá er búizt við því
að um hundrað þúsund manns
muni flýja yfir landamærin til
Thailands ef þessum hernaði
heldur áfram sem horfir.
„Erfiðleikar eru nú mjög miklir
í Kambódíu, sérstaklega eftir að
flugvellinum í Phnom Penh var
lokað í byrjun ársins. Það hefur
þó verið samið um að opna hann í
klukkutíma á dag, en ekki nýtzt
sem skyldi og þegar hafa þrjár
flugvélar þurft að snúa frá full-
hlaðnar hjálpargögnum.
í þessu sambandi má geta þess,
að miklar efasemdir eru uppi hjá
alþjóðlegum hjálparstofnunum
um hvert framhaldið eigi að vera
í Kambódíu, t.d. hefur Matvæla-
stofnun Sameinuðu þjóðanna
ákveðið að hætta að senda mat-
væli til landsins. Þeim finnst of
lítil trygging fyrir því að hjálpin
berist þangað sem hennar er þörf,
heldur safnist hún fyrir í Phnom
Penh. I dag eru hugmyndir þær
helztar að hjálparstarfið færist
að mestu yfir á hendur Austur-
Evrópuþjóða sem til þessa hafa
ekki verið inni í myndinni.
Rauði krossinn hefur ákveðið
að halda sínu starfi áfram
óbreyttu a.m.k. til mánaðamóta,
en tíminn fram að því verður
notaður til að kanna málin frek-
ar,“ sagði Eggert að síðustu.
Evrópubandalags sjónvarpsstöðva
sendu frá sér hvern dag upp á alls
90 minútur.
Kvað Pétur helztu möguleikana
vera í slíkri samvinnu við aðrar
þjóðir því allt sem gera ætti sér-
staklega fyrir íslendinga yrði feiki-
lega dýrt. Pétur benti á það að allir
stórviðburðir innan Evrópu sem
þættu fyrst og fremst fréttnæmir á
því svæði væru sendir um jarðkerfi
sem væri mjög fullkomið og því yrði
erfitt um vik fyrir íslendinga að
vera með þegar svo bæri undir. Hins
vegar þegar um væri að ræða
sendingar um gervihnött yfir Atl-
antshafið þá væru meiri möguleikar
fjárhagslega, en þessi mál væru ekki
að fullu könnuð ennþá. Aðspurður
sagði Pétur, að tæknilega væri
mögulegt að sjónvarpa Ólympíuleik-
unum í Moskvu beint til Islands, en
líklega yrði það ekki gert að þessu
sinni m.a. vegna þess að þá væri
sjónvarpið í sumarleyfi.
Samþykkt verðlagsráðs:
Frjáls verðlagn-
ing dagblaðanna
VERÐLAGSRÁÐ samþykkti á
fundi í gærmorgun að verðlagning
dagblaða þyrfti ekki framvegis að
hlíta verðlagsákvæðum.
Þetta er gert í samræmi við nýju
verðlagslögin, sem tóku gildi 1.
nóvember s.I., en þar segir m.a.. að
þegar samkeppni sé nægileg geti
verðlagsráð, að fengnu samþykki
rikisstjórnarinnar. vikið frá nú-
gildandi reglum um verðlagningu
og heimilað að fella einstaka flokka
vöru og þjónustu undan ákvæðum,
þ.e. gefa verðlagninguna frjálsa.
Samþykkt verðlagsráðs í gær er
hin fyrsta, sem ráðið gerir eftir að
nýju lögin tóku gildi og er því um
timamótasamþykkt að ræða.
Þorsteinn Pálsson, annar fulltrúi
vinnuveitenda í verðlagsráði, flutti
tillögu um þetta í ráðinu fyrir
áramót en umræðu um hana var
frestað. í gærmorgun flutti Ás-
mundur Stefánsson, annar fulltrúi
launþega, viðbótartillögu um að
samkeppnisnefnd fylgdist með verð-
ákvörðunum dagblaðanna og fylgd-
ist jafnframt með afkomu þeirra.
Var ein tillaga gerð úr tillögum
þeirra Þorsteins og Ásmundar og
hún samþykkt samhljóða.