Morgunblaðið - 10.01.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980
5
Aka Höegh opnar grænlenzku listsýninguna en meðal sýningargesta
var forseti íslands, herra Kristján Eldjárn. Ljósmynd Mbl. Kristinn.
Fjölmenni við
opnun grænlenzku
sýningarinnar
GRÆNLENZKA listsýn-
ingin í Norræna húsinu var
opnuð að viðstöddum fjölda
gesta í gær og var það
grænlenzka listakonan Aka
Höegh sem opnaði sýning-
una en einnig fluttu ávörp
Erik Sönderholm og Bodil
Kaalund sem annaðist upp-
setningu sýningarinnar.
Nær 200 verk eru á sýning-
unni sem var opnuð í fyrsta
sinn á íslandi á ferð um
Norðurlönd.
Danski listmálarinn Bodil Kaalund afhendir forseta íslands bók að
gjöf sem hún hefur nýlokið við um grænlenzka list.
Enn eitt innbrot
í gagnfræðaskól-
ann í Hveragerði
Hveragerði 9. jan.
FÖSTUDÁGINN 8.1. var
brotist inn í Gagnfræða-
skólann í Hveragerði og
stolið þaðan fjölritun-
arspíritus og tveimur seg-
ulbandstækjum.
Fréttaritari Mbl. innti skóla-
stjórann Valgarð Runólfsson eftir
þessum atburði og kvað hann helst
líta út fyrir að þarna hefðu verið
að verki menn, sem væru kunnug-
ir í skólanum. Allar hurðir hefðu
verið læstar en hurðir að kennara-
stofu og geymslu verið sparkaðar
upp. Er önnur ónýt en hin stór-
skemmd. Úr geymslunni var stolið
fjölritunarspíritus, sem er talinn
óhæfur til drykkjar. Þá var stolið
tveimur segulbandstækjum úr
kennarastofunni en verð tækjanna
sem keypt voru í staðinn er krónur
346 þúsund.
Þess má geta, að tvö innbrot
voru framin í járnsmíðadeild skól-
ans og stolið þaðan miklum verð-
mætum. Eru þau innbrot óuppl-
INNLEN-T
ýst. Tjón skólans er því tilfinnan-
legt. — Sigrún.
Engin ákvörð-
un um útfærslu
við Grænland
SAMKVÆMT upplýsingum,
sem Morgunblaðið fékk í
gær frá utanríkisráðuneyt-
inu hafa engar fréttir borizt
til þess um fyrirhugaða út-
færslu Dana á efnahagslög-
sögu Grænlands í 200 mílur.
Vegna frétta, sem bárust í
gær frá Noregi um að út-
færslan væri fyrirhuguð
hinn 1. apríl næstkomandi,
komu þær upplýsingar frá
Danmörku í gær, að þessar
fréttir væru alrangar.
Samkvæmt upplýsingunum
frá utanríkisráðuneytinu í
gær er ekkert endanlega ákv-
eðið um útfærslu efnahagsl-
ögsögunnar við Grænland.
Hins vegar munu Danir hafa
haft til yfirvegunar undan-
farið áform um útfærslu
norðan við 67 gráðu. Engin
ákvörðun hefur samt verið
tekin eins og áður segir.
Sæmilegur afli
— en ógæftir í
vertíðarbyriun
VERTÍÐARBÁTAR víða um land hafa nú byrjað
róðra, en útlit er fyrir að allur bátaflotinn verði
tilbúinn til veiða á næstunni. Veður hafa nokkuð
hamlað veiðum fyrstu daga vertíðarinnar, en þó
hefur aflast sæmilega í öllum landsfjórðungum.
Afli netabátanna hefur verið
4—7 tonn, mest þorskur. Að
sögn Ingólfs Falssonar, frétta-
ritara Mbl. í Keflavík, er reiknað
með að nær 30 bátar verði gerðir
út í vetur.
Vertíðin að hefjast í
Eyjum
Nokkrir af þeim um það bil 50
bátum sem gerðir verða út frá
Eyjum í vetur hafa lagt netin og
einnig eru nokkrir að byrja á
línu, en tíð hefur verið vond að
undanförnu. Eyjabátum hefur
fækkað mjög frá sl. ári og eru
heimamenn mjög uggandi yfir
þeirri þróun því þótt seldu bát-
arnir séu flestir gamlir hafa
engir nýir komið í staðinn.
Tregt hjá
Hornafjarðarbátum
Á annan tug Hornafjarðar-
báta stunda nú línuróðra og
hefur megnið af Hornafjarðar-
flotanum hafið vetrarvertíð.
Veiði hefur verið treg. Um helg-
ina höfðu 60 tonn borist þar á
land miðað við 200 á sama tíma í
fyrra. Veiði var þó ágæt fyrstu
róðrana.
Leiðindatíð hjá
Grindvikurbátum
Um 10 Grindavíkurbátar eru
byrjaðir á netum og 4 á línu, en
segja má að vetrarvertíð í
Grindavík sé að komast í gang.
Allir loðnubátar Grindvíkinga
eru farnir á miðin, en hjá
heimabátum sem eru byrjaðir
hefur afli verið tregur enda
leiðindatíð.
„Lúðvík Barði
Kjartan“
Vart er hægt að tala um
vetrarvertíð í Neskaupstað. Það-
an eru Magnús og Börkur farnir
á loðnu og togararnir Birtingur
og Bjartur eru á veiðum, en
Fylkir, sem er 270 lestir að
stærð, er á línu. Þá er von á
hinum nýja skuttogara, Barða,
til Neskaupstaðar upp úr miðj-
um janúar og er áætlað að hann
hefji veiðar um mánaðamótin. Á
Neskaupstað gengur nýi togar-
inn undir sérstöku nafni meðal
gárunga, Lúðvík Barði Kjartan.
Upp í 7 tonn
á línuna
í Keflavík
12—14 Keflavíkurbátar eru
byrjaðir að róa, flestir á línu.
Langt að sækja
hjá Húsvíkingum
Nokkrir línubátar hafa byrjað
róðra á Húsvík og hafa þeir
þurft að sækja mjög langt, eða
allt að 8 tíma stím. Afli hefur
verið sæmilegur. Rækjuveiði er
ekki byrjuð hjá Húsavíkurbát-
um, en verið er að athuga ástand
rækjumiðanna í Axarfirði, sam-
kvæmt upplýsingum fréttaritara
Mbl. á staðnum.
Stórþorskur
í net Sigl-
firðinga
Siglufjarðarbátar hafa verið
að fá upp í 8 tonn í róðri í netin,
en aðallega eru smærri bátar
byrjaðir veiðar eða af stærðinni
11—40 tonn. Mest hefur veiðst af
stórþorski.
Samkvæmt upplýsingum
Matthíasar, fréttaritara Mbl. á
staðnum, komu alls 246 farþega-
og flutningaskip til Siglufjarðar
á s.l. ári, 14 erlend fiskiskip, 107
togskip og 364 önnur fiskiskip,
eða alls 731 skip.
Electropower
GÍRMÓTORAR
RAFMÓTORAR
EIGUM JAFNAN TIL
GÍRMÓTORA:
Ymsir snúningshraðar lns fasa: 3/4 - 1 1/2 hö 3ja fasa: 1/3 - 20 hö
RAFMOTORA:
1400 - 1500 sn/mín. lns fasa: 1/3 - 3 hö 3ja fasa: 1/3 - 20 hö
Útvegum allar fáanlegar stærðir og gerðir.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670