Morgunblaðið - 10.01.1980, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980
7
r
Vekur
undrun
Skrif Þórarins Þórar-
inssonar rifstjóra Tímans
og helsta sérfræðings
Framsóknarflokksins í al-
þjóóamálum um innrás
Sovétríkjanna í Afghan-
istan og hernám landsins
hafa vakiö undrun. Hann
taldi í síðustu viku, að
„formlega" væri ekki
unnt að tala um innrás
Rauða hersins og lét að
því liggja, að Kremlverjar
gætu varið geröir sínar
með vísan til vináttu-
samnings við Afghana.
Orö hans um þetta efni
verða ekki skilin á annan
veg en þann, að Þórarinn
viðurkenni _ réttmæti
Brezhnev-kenningarinn-
ar svonefndu um það, að
ráðamenn í Moskvu hafi
úrslitavald um þróun
stjórnmála í þeim ríkjum,
þar sem þeir telja sig
hafa sérstakra hagsmuna
að gæta, og á grundvelii
þess valds geti þeir síðan
beitt ofurefli og vopnum.
Þórarinn hefur leitast
við að færa frekari rök
fyrir þessari skoðun sinni
nú í vikunni. Hann leitar
rakanna með því aö bera
saman herném Afghan-
istan og Víetnamstyrjöld-
ina og segir m.a. í for-
ystugrein:
„Atburðirnir, sem nú
eru að gerast í Afghanist-
an, eru svo keimlíkir því,
sem gerðist í Suður-
Víetnam haustið 1963, að
trauðla er hægt að fé
betri staðfestingu á því,
að sagan endurtekur
sig...
Rússar fordæmdu
ákaft íhlutun Bandaríkj-
anna í Víetnam á sínum
tíma. Bandaríkjamenn
höföu svör á reiðum
höndum. Við getum ekki
látið kommúnista fella
með skæruhernaði ríkis-
stjórn, sem er okkur vin-
veitt. Nú deila Banda-
ríkjamenn harðlega á
Rússa fyrir íhlutunina í
Afghanistan. Rússar hafa
svar á reiðum höndum:
Við getum ekki látið
and-kommúnista fella
með skæruhernaði
stjórn, sem er okkur vin-
veitt.“
Þessi skrif Þórarins
dæma sig best sjálf, þeg-
ar menn íhuga gang mála
i Víetnam og eftirleikinn
eftir aö Bandaríkjamenn
hurfu þaðan á brott í
sárum. Kommúnista-
stjórnin í Hanoi hafði ekki
aðeins það markmið að
ná undir sig öllu Víetnam
með vopnum heldur
stefnir hún að yfirráðum
yfir öllu Indókína með
aðstoð Sovétríkjanna.
Samanburður á þeim
hernaðarmætti, sem út-
sendarar Hanoi-stjórnar-
innar réðu yfir, og skær-
um Múhameðstrúar-
manna gegn Rauöa hern-
um og leppum hans í
Afghanistan er út í hött.
Munurinn á stigmagnaöri
þátttöku Bandaríkja-
manna í Víetnam-stríöinu
Þórarinn
og hernámi Afghanistan
er svo augljós, að skrif
Þórarins Þórarinssonar
geta ekki vakið annað en
undrun.
Hættuleg
samkeppni
Árni Bergmann ritstjóri
Þjóðvíljans hefur fram til
þessa verið iðnastur við
þaö í blöðum aö reyna aö
afsaka gerðir Sovétríkj-
anna meö samanburði
viö Bandaríkin. Þórarinn
Þórarinsson veitir honum
nú hættulega samkeppni,
ef metin er hugmynda-
auðgi í þessum fánýtu
fræðum. En sjáum síð-
asta framlag Árna til
þeirra í blaði sínu:
„Auk þess hafa Sovét-
menn meö þessari innrás
sinni tekið enn eitt veiga-
mikið skref í þá átt að
þurrka burt úr vitund
almennings í heiminum
nokkurn þann greinar-
mun sem menn kynnu að
gera á Sovétríkjunum og
bandarískri heimsvalda-
stefnu. Mönnum hlýtur í
æ ríkara mæli að finnast
að aðferðir þeirra séu
þær sömu í stórum drátt-
um. Ef nokkuð er þá
verður Bandaríkja-
mönnum nú síöast hrós-
að fyrir að senda ekki
herlið inn í Nicaragua,
eins og margir bjuggust
við (eöa þá málaliða frá
Guatemala til dæmis).
Það er að vísu sjaldgæft
aö Bandaríkjamenn komi
fram af slíkri varfærni
gagnvart byltingu í Róm-
önsku Ameríku — en
þess ber semsagt aö
geta sem gert er.“
Þá vitum viö það. Meö
vangaveltum um það,
sem Bandaríkjamenn
gerðu ekki, kemst Árni
Bergmann að þessari
niðurstöðu:
„Því hlýtur sú niöur-
staða að koma upp, þeg-
ar þessi mál eru skoðuð,
að enda þótt Sovétmenn
kunni að geta treyst í
sessi með herstyrk
sínum þá stjórn í Kabúl
sem þeir heíst vilja hafa
— þá hafa þeir tapað
mörgu og miklu á öðrum
vettvangi. Og geta að
sjálfsögðu engum um
kennt öðrum en sjálfum
sér.“
Þar sem Árni Berg-
mann finnur ekki fótfestu
í samanburðarfræðum
sínum, skeliir hann
skuldinni alfariö á Sov-
étríkin.
Bíll fauk
Ólafsvík, 9. janúar.
SÍÐDEGIS í gær gerði hér stór-
viðri af suðaustri og stóð það
framundir miðnættið. Olli veðrið
talsverðu tjóni. Stór vöruflutn-
ingabíll frá Kaupfélagi Borgfirð-
inga fauk á hliðina rétt við bæinn
á hliðina
Tröð í Fróðárhreppi. Bílstjórann
sakaði ekki.
Allmikið tjón varð hjá Hrað-
frystihúsi Ólafsvíkur. Skreiðar-
hjallar við Fossá fuku um og með
þeim nokkuð af nýupphengdum
fiski. Sömuleiðis varð tjón á hús-
um fyrirtækisins. Skemmdir
munu einhverjar hafa orðið á
íbúðarhúsum, en að því er ég best
veit ekki stórvægilegar. I fyrradag
var hér einnig slæmt veður og
urðu þá m.a. tafir vegna þess á
löndun úr togaranum Lárusi
Sveinssyni, en þá landaði hann
hér 122 lestum af fiski. Helgi
Verksmiðju-
útsala
hefst í dag
Alls konar fatnaöur á karla, konur og börn á verksmiöjuveröi.
Klæði h.f.
Skipholti 7.
Heildverslun — góð umboö
Af sérstökum ástæöum er til sölu heildverslun meö umboö fyrir mjög
seljanlegar vörur. Tilvaliö fyrir tvo samhenta aöila. Upplýsingar á skrifstofunni,
ekki í síma.
Miðborg fasteignasaia
Nýja bíóhúsinu.
Jón Rafnar sölustj., Guðmundur Þórðarson hdl.
Garðabær
Blaöberar óskast til aö bera út Morgunblaöiö
í eftirtalin hverfi: hluta af Sunnuflöt og
Markarflöt, og Hráunsholt (Ásar).
Upplýsingar gefur umboösmaöur Morgun-
blaðsins í Garöabæ, sími 44146.
IHárgmiÞIftfrft
Þið gerið hagstæð
matarkaup hjá okkur
URVALS KALFAKJÖT
Snitzel ...........kr. 3.380.- kg
Buff ..............kr. 2.980.- kg
Kótilettur.........kr. 1.650.- kg
Framhryggur .......kr. 1.850.- kg
Hakk ..............kr. 1.800.- kg
Hrefnukjöt aöeins kr. 950,- kg
Folaldakjöt
í heilu og hálfu
1.200.- kr. tilb.
í kistuna _ _ ___
i Kiötvörui^
irva*s'
Opið föstudaga til kl. 8
og laugardaga til hádegis
vmiBi
Vörðufell 8, Kópavogi. Símar 42040 og 44140.