Morgunblaðið - 10.01.1980, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980
11
fegurst um íslenzka náttúru — og
eru þar í fremstu röð ástarjátn-
ingar hans til hinna fjölbreytilegu
töfra átthaganna.
I bókinni eru þrjú alllöng órím-
uð ljóð. Eitt þeirra er lagt í munn
skáldinu Ovídiusi í útlegð, og er
þar sitthvað skáldlegt, enda mun
Helgi hafa getað sett sig í spor
hins aldna snillings, sjálfur finn-
andi sig sem einmana útlaga á
þjáningar- og andvökunóttum.
Annað fjallar um Esaú, sem
kemur í nauðum til Jakobs bróður
síns og afsalar sér ekki aðeins
frumburðarrétti sínum, heldur og
frelsi sínu og sinna. Þetta ljóð
mun Helgi hafa ort sem táknræn
varnaðarorð til þjóðar sinnar í
þeim vanda, sem nú ógnar sjálf-
stæði hennar og gagnvart þeim,
sem heyja heimsstyrjöldina um
auð og völd, þó að enn sé svo að
heita, að ekki hafi heimsfriðurinn
verið rofinn. En nær er mér að
halda, aö skáldið nái í þessu ljóði
skammt til áhrifa, þar þurfi til
beittari orð og markvissari. Þriðja
er ljóðið Ræða góðborgarans,
raunar þar ekkert sagt, sem ekki
fær nokkurn veginn staðizt, en á
ekki frekar skylt við ljóðrænan
skáldskap en þær blaðagreinar,
þar sem sama hefur verið túlkað
og er það þarna eins og jötunuxi í
blómsturpotti.
Þá er að víkja að formi ljóðanna
í þessari bók. I sumum ljóðunum
eru hvorki ljóðstafir né endarím,
önnur eru ljóðstöfuð og rímuð í
fullu samræmi við það, sem al-
gengast var í kveðskap hér á landi
fram yfir 1930, enn önnur eru
ljóðstöfuð, en endarím ekki notað,
og eitt afbrigðið er það, að sum
eru ort eins og tíðkaðist á Norður-
löndum og raunar vítt um hina
siðmenntuðu veröld, endarím not-
að, en ekki ljóðstafir. Fer það
furðu vel í ljóðum með löngum
ljóðlínum. Enn fleiri afbrigði eru í
formi ljóðanna og yfirleitt notuð
af smekkvísi, sem hæfir efninu.
En vandmeðfarin munu sum af-
brigðin, sem Helgi notar þeim,
sem ekki hafa til að bera þjálfað
og nákvæmt mál- og brageyra.
Til ytra útlits bókarinnar hefur
mjög verið vandað og vafasamt að
myndskreyting hefði þar bætt úr
skák.
fyrrum skólastjóri. Jón þýðir
hina miklu grein Engbergs, sem
fyrr er getið.
Guðni Kolbeinsson þýðir
greinar Bjarna. Er þýðing hans
vandvirknislega gerð og lýta-
laus, held ég. Minnist ég Guðna
fyrir skemmtilega íslenskuþætti
í útvarpinu.
Ég flyt vini mínum, Bjarna M.
Gíslasyni, þakkir fyrir bókina
og bið línur þessar fyrir bestu
kveðjur til hans og hans ágætu
konu og barna.
Nú í jólaönnunum er plássið
dýrmætt blaðanna, og má ég
ekki víkja að hinu marga í riti
þessu, sem vekur mann til um-
hugsunar.
Aðeins skal að ummælum Dr.
Jónasar Kristjánssonar vikið —
í „Inngangsorðum" hans, að
„fólkið" hafi staðið á bak við
stjórnmálamennina, og þá
sjálfsagt einnig ýmsir fræði-
menn, í handritamálinu.
Rétt mun það vera. Þykir mér
t.d. vænt um, að Bjarni minnist
verulega í riti sínu vísindastarfa
þeirra Sigurðar Nordals og Jóns
Helgasonar. En engu að síður
má segja, að „fólkið" hafi haft
forystuna. Er þar átt við lýð-
háskólahreyfinguna — einkum í
Danmörku og einnig jafnvel í
nokkrum mæli hérlendis — en í
báðum stöðum hvíldi forysta
fyrst og fremst á Bjarna M.
Gíslasyni.
Menn njóti ágætrar bókar á
heimilum sínum og hvergi má
hana vanta í bókasöfn, ekki síst
skóla okkar.
Vinna þyrfti að stærri bók, en
vart yrði hún betri.
Ævintýrið og
hringvegurinn
Hans W:son Ahlmann:
í RÍKI VATNAJÖKULS
210 bls. Almenna bókafélagið 79
Bók þessi kom upprunalega út í
Svíþjóð árið 1936 og fjallar hún
um leiðangur höfundarins og Jóns
Eyþórssonar á Vatnajökul það ár.
Auk þeirra tóku þátt í leiðangrin-
um þeir Sigurður Þórarinsson og
Jón frá Laug auk tveggja ungra
Svía. Leiðangurinn var farinn til
að gera ýmsar mælingar og rann-
sóknir á jöklinum. Fyrri hluti
bókarinnar greinir frá leiðangrin-
um sjálfum og undirbúningi hans,
en í síðari hlutanum segir
Ahlmann frá ferðalagi um Skafta-
fellssýslu.
Leiðangur þessi vakti töluverða
athygli hér á landi á sínum tíma,
einkum þó sleðahundar þeir er
leiðangursmenn höfðu meðferðis.
Munu þeir hafa komist á forsíðu
flestra íslenskra blaða og vakið
mun meiri eftirtekt en leiðangur-
inn sem slíkur.
Bókin er skrifuð af miklum
Bókmennllr
eftir
SVEINBJÖRN
I. BALDVINSSON
næmleik og einlægni og endur-
speglar mikinn áhuga á og ríka
virðingu fyrir viðfangsefni höf-
undarins, Vatnajökli; og íslandi og
íslendingum yfirleitt.
Það er fróðlegt að lesa um það
hve leiðangursmenn gátu átt í
miklum erfiðleikum á jöklinum
sem lítur svo öfur sakleysislega út
frá hringveginum og maður setur
yfirleitt ekki í samband við pól-
ferðir og íshafsævintýri Nansens,
Freuchens og fleiri slíkra. En það
kemur m.a. fram í bókinni að á
Jón Eyþórsson
Vatnajökli mætti höfundinum síst
minni vandi en í ferðum hans á
Grænlandsjökli og Svalbarða og
jafnvel á Suðurskautslandinu.
Lýsingar Ahlmanns á íslensku
landslagi eru einatt hástemmdar,
en það, sem skilur þær frá svo
mörgum öðrum slíkum landslags-
lýsingum erlendra ferðamanna, er
það að þær verða aldrei væmnar
eða kjánalegar, einfaldlega vegna
þess að þær eru einlægar. Þegar
Ahlmann skortir orð til að lýsa
einhverju, greinir hann bara frá
því, í stað þess að reyna að klessa
saman lýsingarorðum í skap-
kenndar hrúgur og ef honum
finnst hann ekki geta líkt ákveðnu
fyrirbæri yið neitt sem hann
þekkir þá lætur hann það líka eiga
sig að reyna slíkt.
Það kemur fram í eftirmála
Sigurðar Þórarinssonar að
Ahlmann lét mjög að sér kveða í
jökla- og landafræðirannsóknum
allt til ársins 1950 er hann fyrir
þrábeiðni gerðist sendiherra Svía í
Noregi. Hann varð reyndar síðar
forseti Alþjóða landfræðingasam-
bandsins, en lést árið 1974.
Þýðing Hjartar Pálssonar virð-
ist hafa tekist prýðilega, en þar eð
ég þekki ekkert til frumtextans
get ég ekkert fullyrt í því sam-
bandi. Allmargar myndir eru í
bókinni og gegna þær sínu hlut-
verki með sóma, sömuleiðis er
prýði að kápumynd Miles Parnell.
Þessi ferðabók Ahlmanns er
athyglisverð að tvennu leyti að því
er mér finnst og hefur þetta
tvennt fram yfir ýmsar aðrar
ferðasögur.
I fyrsta lagi er hún betur
skrifuð en algengast er, en í öðru
lagi er ferðin sem hún lýsir mun
áhugaverðari en almennt gerist.
Bókin er skrifuð af áhuga en ekki
sem einhvers konar kílómetra-
gjald og leiðin liggur um lítt
kunnar og ævintýralegar slóðir en
ekki eftir hringveginum.
UMBOÐSMENN A NORÐURLANDI:
Hvammstangi Siguröur Tryggvason, sími 1341.
Blönduós Sverrir Kristófersson, Húnabraut 27, sími 4153
Skagaströnd Guðrún Pálsdóttir, Rööulfelli, simi 4772
Sauðárkrókur Elinborg Garöarsdóttir, öldustig 9, simi 5115
Hofsós Þorsteinn Hjálmarsson, sími 6310
Haganesvik Haraldur Hermannsson. Vsta-Mói
Siglufjöröur Aöalheiöur Rögnvaldsdóttir, Aðalgata 32. sími 71652
ólafsfjöröur Verslunin Valberg, simi 62208
Hrisey Gunnhildur Sigurjónsd. Noröurvegi 37, simi 61737
Dalvik Verslunin Sogn c/o Sólveig Antonsdóttir
Grenivik Brynhildur Friöbjörnsdóttir. Ægissiöu 7. simi 33100
Akureyri Jón Guömundsson, Geislagötu 12. simi 11046
Mývatn Guórún Þórarinsdóttir, Helluhrauni 15. simi 44137
Grimsey ölina Guórnundsdóttir, simi 73121
Húsavik Árni Jónsson, Asgarðsvegi 16, simi 413.19
Kópasker öli Gunnarsson, Skógum, simi 52120
Raufarhöfn Ágústa Magnúsdóttir, Ásgötu 9, sími 51275
Þórshöfn Steinn Guömundsson, Skógum
UMBOÐSMENN A AUSTFJÖRÐUM:
Vopnafjöröur Þuriöur Jónsdóttir, simi 3153
Bakkagerói Sverrir Haraldsson. Asbyrgi, sími 2937
Seyóisfjoróur Ragnar Nikulásson, Austurvegi 22, simi 2236
Norófjoróur Björn Steindórsson, simi 7298
Eskifjoróur Dagmar Óskarsdóttir, simi 6289
Egilsstaóir Aðalsteinn Halldórsson, Laufási 10, sími 1200
Reyöartjöróur Bogey R. Jónsdóttir, Mánagötu 23, simi 4210
Faskruósfjörður Bergþóra Bergkvistsdóttir, Hlíöargötu 15. sími 1951
Stoðvarfjoróur Magnús Gislason, Samtúni
Breiðdalur Ragnheiður Ragnarsdóttir, Holti, sími 5656
Djúpivogur Maria Rögnvaldsdóttir, Prestshusi, simi 8814
Höfn Gunnar Snjólfsson, Hafnarbraut 18. simi 8266
UMBOÐSMENN A VESTURLANDI:
Akranes
Fiskilækur
Melasveit
Grund
Skorradal
Laugaland
Stafholtstungum
Bókaverslun Andrésar Nielssonar, simi 1985
Jón Eyjólfsson
Davió Pétursson
Lea Þórhallsdottir
UMBOOSMENN A SUÐURLANDI:
Kirkjubæjarklaustur Birgir Jónsson. simi 7024
Þorbjörg Sveinsdóttir. Helgafelli, sími 7120
Hafsteinn Sigurösson. Smáratúni, simi 5640
Verkalýðsfélagið Rangæingur, simi 5944
Eirikur Sæland
Vik i Mýrdal
Þykkvibær
Hella
Espiflöt
Ðiskupstungum
Laugarvatn
Vestmannaeyjar
Selfoss
Stokkseyri
Eyrarbakki
Hveragerði
Þorlákshöfn
Þórir Þorgeirsson, sími 6116
Sveinbjörn Hjálmarsson, Bárugötu 2. simi 1880
Suðurgarður h.f, Þorsteinn Ásmundsson, simi 1666
Oddný Steingrimsdóttir, Eyrarbraut 22, simi 3246
Pétur Gislason, Gma^a Læknishúsinu, simi 3155
Elin Guöjónsdóttir, Bretöumörk 17, simi 4126
Ingibjörg Einarsdóttir, C-götu 10, simi 3658
Borgarnes Þorleifur Gronfeldt. Borgarbraut 1
Hellissandur Soluskálinn s f. simi6671
Olafsvik Lara Bjarnadottir Enmsbraut 2 simi 6165
Grundarfjoröur Kristin Kristjánsdottir. simi 8727
Stykkishólmur Esther Hansen. simi 8115
Buóardaiur Oskar Sumarlióason. simi 2116
Mikligarður Margret Guóbjartsdóttir
Saurbæjarhr^ppi
UMBOOSMENN A VESTFJÖRÐUM:
Króksfjaróarnes Halldór D Gunnarsson
Patreksfjoröur Anna Stefania Einarsdóttir. Sigtúni 3. simi 1198
Tálkanfjorður Asta Torfadóttir. Brekku, simi 2508
Bildudalur Guðmundur Pétursson. Grænabakka 3. simi 2154
Þingeyri Margrét Guójónsdóttir. Brekkugötu 46, simi 8116
Flateyri Guórún Arinbjarnardóttir, Hafnarstræti 3, simi 7697
Suðureyri Sigrún Sigurgeirsdóttir. Hjallabyggó 3. simi 6215
Bolungarvik Guðriöur Benediktsdóttir, simi 7220
Isafjorður Gunnar Jónsson, Aóalstræti 22, simi 3J64
Súðavik Aki Eggertsson. simi 6907
Vatnsfjoróur Baldur Vilhelmsson
Krossnes Sigurbjörg Alexandersdóttir
Árneshreppi
Hólmavik Jón Loftsson, Hafnarbraut 35, sími 3176
Borðeyri Þorbjörn Bjarnason, Lyngholti. sími 1111
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
/Vlennt er máttur
Veldu þann umboösmann sem er
sjálfum þér næstur. Þannig sþarar
þú þér ónauðsynlegt ómak viö
endurnýjunina. Óendurnýjaður miði
eyðir vinningsmöguléika þínum.
Veldu því hentugasta umboðið, —
þann umboðsmann sem er sjálfum
þér næstur.
Happdrætti Háskólans hefur lipra
og þrautþjálfaöa umboðsmenn um
allt land. Sérgrein þeirra er að veita
góða þjónustu og miðla uþplýsingum
um Happdrættið, s.s. um númer,
flokka, raðir og trompmiðana. Þeir
láta þér fúslega í té allar þær upplýs-
ingar sem þig lystir að fá.