Morgunblaðið - 10.01.1980, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980
13
Splunkunýr Skoda 1980
á kr. 2.690.000.-
á meðan gengið helst óbreytt.
— þetta er ekkert verð -
Jafnframt skorar fundurinn á
Sjómannasamband íslands að
taka upp þá þætti í kröfum
frandverkafólks sem að því snúa.
Fundurinn skorar á farand-
verkafólk um land allt að taka
hagsmunamál sín til umræðu,
halda fundi á verbúðum sínum,
eða á vinnustöðum, og búa sig
undir að fylgja kröfum sínum eftir
í komandi samningalotu.
Jafnframt skorar fundurinn á
farandverkafólk að sækja fundi í
verkalýðsfélögum á hverjum stað
og taka þar upp málefni sín.
Baráttuhópur farandverkafólks
mun koma sér upp húsnæði og
síma til þess að farandverkafólk á
komandi vertíð geti haft samband
hvert við annað og hægt verði að
tengja saman krafta alls farand-
verkafólks í landinu fyrir bættum
kjörum þess, og annars verkafólks
til sjós og lands.
Farandverkafólk skipu-
leggur kjarabaráttu sína
M ÁLEFNI f arandverkafólks
voru til umræðu á fundi sem
haldinn var i Félagsstofnun stú-
denta hinn 6. janúar síðastliðinn.
Það var baráttuhópur um mál-
efni farandverkafólks sem stóð
fyrir fundinum, og voru þar
raktar og kynntar kröfur farand-
verkafólks um viðurkenningu
réttinda sinna i kjarasamningum
og reglugerðum.
Á fundinum voru fimm frum-
mælendur, þau Þorlákur Krist-
insson, Björn Gíslason, Gunnar
Karlsson, Erla Sigurðardóttir og
Katarzyna Kasprzyk-Copeland,
sem er ensk-pólsk.
í frétt frá blaðafulltrúa ASÍ
segir að miklar og fróðlegar um-
ræður hafi orðið á fundinum, og
þar var einnig samþykkt eftirfar-
andi ályktun:
„Fundur haldinn þann 6. janúar
1980 í Félagsstofnun Stúdenta
v/Hringbraut, um málefni farand-
verkafólks, vekur athygli á að
þrátt fyrir erfið lífskjör alls
verkafólks í landinu verður far-
andverkafólk tvímælalaust að
oft um 70% af dagvinnutekjum
þess, sem veldur því að það kemst
í skuld við stöðvarvaldið ef vinna
dregst saman, og vegna skipu-
lagsleysis verkalýðshreyfingar-
innar er þetta fólk oft réttlaust
gagnvart hreyfingu sinni hvað
snertir greiðslur úr sjúkra- og
styrktarsjóðum, verkfallsbótum,
atvinnuleysistryggingum og hefur
ekki atkvæðisrétt í kjaradeilum.
Félagsleg staða þessa fólks er
hliðstæð því sem gerðist meðal
meginþorra íslenskrar verka-
lýðsstéttar, er hún í upphafi reis
til skipulagðra átaka við umhverfi
sitt. Barátta fyrir bættum kjörum
og aðbúnaði þess ætti því að vera
verkalýðshreyfingunni allri sér-
stakt kappsmál.
Fundurinn skorar á yfirstand-
andi sambandsstjórnarfund
V.M.S.I. að taka kröfur farand-
verkafólks inn í kröfugerð sína og
koma þeim inn í kröfugerð hreyf-
ingarinnar allrar á komandi
kjaramálaráðstefnu A.S.Í. þann
11. janúar n.k.
teljast sá hópur verkalýðsstéttar-
innar er minnstra réttinda nýtur
og býr við lökust kjör.
Fundurinn bendir á að enn er á
íslandi verkafólk, sem verður að
ferðast á milli staða til þess að
selja vinnuafl sitt á lægsta verði,
án þess að fá nokkurn ferðakostn-
að greiddan, býr oft og tíðum við
afar slæman húsakost og á sífellt
yfir höfði sér fyrirvaralausan
brottrekstur eftir geðþótta stöðv-
arvaldsins.
Fæðiskostnaður þessa hóps er
Karl Helgason:
„Blokk-
skrift44
Hvað veldur því að
skrift unga fólks-
ins er svo stíllaus,
eins og raun ber
vitni og i aftur-
för á síðari árum?
Þessari spurningu verður
ekki svarað nema á einn veg. Á
fyrstu árum þegar börn læra
að draga til stafs, sem nú er
ekki lengur á heimilum heldur
í skólum, er ekki nægilega vel
fylgst með þeim og ég efast um
að börnin hafi lengur þá
skriftarfyrirmynd, sem hinn
þekkti skriftarkennari Guð-
mundur I. Guðjónsson gaf út á
sínum tíma og reyndist mjög
góð fyrir byrjendur. Nú er svo
komið, að fjöldi, ekki aðeins
barna og unglinga, heldur
einnig yngra fólks á ýmsum
aldurskeiðum, blandar saman
venjulegri skrift og „blokk-
skrift", svo í heild verður
„hvorki fugl né fiskur".
Blokkskrift getur verið góð,
þar sem við á og falleg, sé hún
vel gerð, en hún er bara önnur
skriftartegund, sem alls ekki
má blanda saman við venju-
lega skrift. Ég tel skólana ekki
vera nægilega á verði fyrir
þessu, hvorki fylgjast svo vel
með þessum „ósóma“, sem ég
leyfi mér að kalla þetta skrift-
arform, né nógu strangir við
skriftarkennara að þeir láti
nemendur fylgja þeim reglum,
sem um þetta gilda. Það er
engu minni ástæða að fylgjast
vel með þessari námsgrein en
hverri annarri. Skrift er vissu-
lega ein þeirra námsgreina,
sem síst ætti að vanrækja, svo
oft og mikið þarf hver ein-
staklingur á henni að halda
þegar út í lífið er komið. Þetta
þarf sannarlega að brýna bæði
fyrir nemendum og kennurum.
Skriftarpróf ætti síst að leggja
minni áherslu á en ýmsar
námsgreinar, sem oft gufa
fljótt upp úr hugum hins unga
fólks. Énn eru í gildi byrjun
eins ljóðs: „að lesa og skrifa
list er góð“.
Karl Helgason.
Á þessu frábæra verði bjóðast aðeins
örfáir bílar, svo nú er um að
gera að panta strax. |B
JÖFUR
HR
Þú hringireða kemur og hann
Rúnar Skarphéðins tekur einn
frá fyrir þig.
AUOBREKKU 44-46 - KOPAVOGI - SIMI 42600
r