Morgunblaðið - 10.01.1980, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980
Hvað segir þú um innrás og her-
nám Sovétríkjanna í Afghanistan?
Svör nokkurra einstaklinga við þeirri spurningu
Einar Olgeirsson:
„Vil ekkert
láta hafa
eftir mér“
ÞEGAR spurningin var borin
undir Einar Olgeirsson fyrrv.
alþm. svaraði hann: „Ég vil
ekkert láta hafa eftir mér um
þetta mál.“
Ingimar Jónsson:
Vil ekki
tjá mig
INGIMAR Jónsson formaður
íslensku friðarnefndarinnar,
sagði að nefndin hefði ekki rætt
málið, en hann vildi að öðru leyti
ekki tjá sig um það þar sem Mbl.
hefði einhverju sinni haft rangt
eftir honum þegar leitað var til
hans og hann myndi sjálfur
koma skoðun sinni á framfæri,
sæi hann ástæðu til þess.
Jón Múli Árnason:
Ekki kunn-
ugt um
neitt
hernám
MÉR ER ekki kunnugt um að
Sovétstjórnin hafi hernumið Af-
ghanistan og tel ég mig tala af
reynslu af hernámi þar sem
Bandaríkjamenn hafa nú í mörg
ár hernumið ísland, sagði Jón
Múli Árnason.
— En stjórn Afghanistans
bað sovésku stjórnina um aðstoð
og var hún veitt sem betur fer.
María Þorsteinsdóttir:
„Lít á þetta
sem hernað-
araðstoð“
„SVAR MITT er það, að þarna
hefur verið um að ræða í allt
sumar og lengur þó, innrásir í
landið, sem voru gerðar frá
pakistönsku landi, bæði af er-
lendum og innlendum aðilum,
þ.e. bæði af þeirri stétt sem
hrökklaðist frá völdum við bylt-
inguna og ennfremur erlendum
Morgunblaðið leitaði
í gær til nokkurra
einstaklinga, sem ver-
ið hafa baráttumenn
fyrir framgangi sósí-
alisma á Islandi og
spurði þá hvað þeir
vildu segja um innrás
og hernám forysturík-
is sósíalismans, So-
vétríkjanna, í Af-
ghanistan. Svðr
þeirra fara hér á eft-
ir:
Ingimar Jónsson
aðilum. Þeir höfðu búðir í Pak-
istan þar sem þeir þjálfuðu
menn til innrásar í Afghanistan.
Þetta er nokkuð eðlileg afleiðing
af þeim vináttusamningi sem
Taraki gerði við Sovétríkin í
sumar, þar sem þetta atriði er
einmitt skýrt tekið fram, að
Sovétríkin skuldbyttu sig til að
koma til aðstoðar, ef um það yrði
beðið.
Taraki gerði þennan samning
nokkru áður en honum var
steypt af stóli og það er rang-
hermt í einu dagblaðanna, að
það hafi verið Amin sem gerði
hann — það var Taraki.
Ég tel þetta þá þróun, sem ég
var búin að sjá fyrir að gæti átt
sér stað eftir að Taraki beinlínis
lagði áherslu á að það væri tekið
inn í samninginn að Sovétríkin
skuldbyttu sig til að veita þeim
hernaðaraðstoð, ef um væri beð-
ið. Ég lít á þetta sem hernaðar-
aðstoð," sagði María að lokum.
Elín Guðmundsdóttir:
„Of einhæf-
ar upplýs-
ingar, þekki
ekki for-
söguna“
ELÍN Guðmundsdóttir formað-
ur Kvenfélags sósíalista: „Ég get
ekki svarað spurningunni á
þessu stigi þar sem ég hef of
einhæfar upplýsingar og þekki
ekki forsögu málsins."
Jón Múli Árnason
Benedikt Davíðsson
María Þorsteinsdóttir
Elin Guðmundsdóttir
Benedikt Davíðsson:
Flókið og
langt mál
BENEDIKT Davíðsson kvaðst
ekki vilja segja nokkurn skapað
hlut um málið, það væri flókið
og tæki alltof langt mál að fjalla
um skoðun sína á því.
Sveinn Rúnar Hauksson:
„Styð kröf-
una um að
þeir kalli
herlið sitt
tafarlaust
á brott
„ÉG TEL ástæðu til að mótmæla
harðlega þessari ínnrás Sov-
étríkjanna og þetta er dæmi um
hernaðaríhlutun stórveldis í
málefni annarra ríkja. Ég styð
kröfuna um það, að Rússar kalli
herlið sitt tafarlaust á brott úr
landinu.
Mér finnst þessi íhlutun sýna
okkur hve hernaðarbandalögin
eru hættuleg smáþjóðum, sem
vilja vera hlutlausar. Þessi
íhlutun er vatn á millu stríðsæs-
ingaafla í heiminum, ekki sízt í
NÁTO-ríkjunum, og þeirra sem
standa að auknum vígbúnaði og
þannig ógnun við heimsfriðinn,"
sagði hann að lokum.
Sveinn Rúnar Hauksson
Fjölskyldan úr Svefneyj-
um komin í nám í Svíþjóð
Nikulás Jensson, bóndi í Svefneyjum á Breiðafirði, fór i haust til
Svíþjóðar ásamt Lillý konu sinni, fimm börnum þeirra og 84ra ára gamalli
móður hans. Er því engin byggð i Svefneyjum í vetur, en Nikulás sjálfur og
eitthvað af fjölskyldunni hyggst koma heim i júni til að nýta hlunnindin i
eyjunum.
í símtali við Mbl. eftir áramótin
sagði Nikulás, að fjölskyldunni liði
vel, hefði fengið leigt nægilega stórt
hús fyrir svo stóra fjölskyldu, um
tveggja tíma akstur frá Gautaborg.
Svipað húsrými og þau hefðu haft
heima. Börnin tvö á skólaaldri væru
komin í skóla og gengi vel. En
dregist hefði að þau hjónin og
uppkomnu synirnir gætu byrjað ein-
hvers konar tækninám þar sem
kerfið er dálitið þungt, en nú mundu
þau fara að byrja. Hugmyndin er að
allir tækju sænskunám fyrst, en
karlmennirnir færu síðan yfir í véla-
eða verkstæðisnám svonefnt, en þar
væri margra kosta völ í fullorðins-
fræðslunni, og hægt að bæta við sig
eftir þörfum. Lillý færi í bóklegt
nám. En svo mikil aðsókn er og
þröng í sænskunáminu á þessu
svæði, þar sem svo mikið er af
innflytjendum, að þau fóru á bið-
lista. En hvers vegna ekki að fara í
nám heima? Af hagkvæmnisástæð-
um, svaraði Nikulás. Hér er svo
mikið gert til stuðnings fullorðins-
fræðslu og aðstæður svo góðar.
Sagði Nikulás, að þessar harka-
legu ráðstafanir, sem gera þyrfti
Llllý
Nikulás