Morgunblaðið - 10.01.1980, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980
23
ímyndaða flokkshagsmuni,
og líta til þjóðarheillar —
Sjálfstæðismönnum eins og
öðrum hlýtur að vera ljóst að
þjóðarheill og flokksheill
hljóta og eiga að fara saman.
Pétur Rafnsson
formaður
Heimdallar:
Stjórnar-
myndunar-
viðræður
flokkanna
Mér þótti það hálfnapurt
fyrir formann Sjálfstæðis-
flokksins að fá umboð til
stjórnarmyndunartilrauna í
miðri jólavikunni. Ekki síst
þegar tillit er tekið til þess,
að þeir forkólfar, sem þurftu
6—8 vikur til að útbúa
vinstristjórnarbræðinginn
1978, höfðu enn einu sinni
gefist upp. Enginn hafði í
raun verið að hugsa um
þjóðarhag, heldur hugsan-
lega útkomu hver fyrir sinn
flokk og sinn eigin rass. Að
sjálfsögðu reyndust Alþýðu-
bandalagsmenn þar mestir
auglýsingaskrumarar og eig-
inhagsmunamenn.
Það er kominn tími til
þess, að fólk geri sér grein
fyrir því, að stór hluti ráða-
manna Alþýðubandalagsins
er og verður andsnúinn öllum
þjóðþrifamálum, sem aðrir
flokkar benda á, alla vega
hvað snertir efnahagsmál.
Alþýðubandalagið er ekki
flokkur framfara, heldur
niðurrifs og stéttastríðs.
Hvað tilraun formanns Sjálf-
stæðisflokksins til myndunar
þjóðstjórnar snertir, er ég
þess fullviss, að hún brotnar
á frekju og einstrengingsleg-
um hugsunarhætti forustu-
manna Alþýðubandalagsins.
Bætt lífskjör nást ekki með
undanlátssemi við Alþýðu-
bandalagsforustuna. Síðasta
dæmið um hugsunarhátt og
vinnubrögð kommúnista er
innrás Rússa í Afganistan.
Það er dæmigert fyrir það,
hvernig þeir sitja um hvert
tækifæri til að drottna yfir
öðrum. Þeir hafa heldur ekki
látið tækifærin ónotuð
íslensku skoðanabræðurnir
þeirra. Áróður Alþýðubanda-
lagsmanna fyrir því, að ein-
staklingurinn sé lítils eða
einskis megnugur, hafa borið
töluverðan árangur undan-
farinn áratug. Hér skal allt
þjóðnýta er þeirra allsherjar
boðorð.
Formaður Framsóknar-
flokksins virðist hafa fengið
það í vöggugjöf, að sjálfstæð-
ismenn séu ómögulegir til
hvers kyns samvinnu. Hann
hefur látið það óspart í ljós
bæði fyrir og eftir kosningar,
að slík samvinna sé óhugs-
andi og þar með skapað fleiri
vandamál en hann hefur
leyst. Þannig hljóta viðræður
um þjóðstjórn að vera til-
gangslausar við óbreyttar að-
stæður. Skilyrðin hljóta því
að vera allt önnur en nú, til
að Sjálfstæðisflokkurinn nái
samkomulagi við framsókn
og krata. Samkomulag við
Alþýðubandalagið hlýtur að
vera útilokað meðan verka-
lýðsarmurinn hefur ekki
töglin og hagldirnar í þeim
flokki.
í kosningunum fékk ekki
neinn einstakur flokkur af-
dráttarlausa traustsyfirlýs-
ingu. Þess vegna verða lýð-
ræðisflokkarnir að gera sér
ljóst að einungis samstaða
þeirra getur leyst öll þau
stóru vandamál, sem hrjá
þjóðina.
London. 9. janúar. AP.
BANDALAGSRÍKI Bandaríkjanna halda áfram að fordæma innrás Rússa í Afghanistan, en fá þeirra eru
reiðubúin að fara að dæmi Bandaríkjamanna og grípa til refsiaðgerða gegn Sovétríkjunum.
Þörf á hráefnum og von um að enn megi bjarga slökuninni í sambúð Austurs og Vesturs hafa átt þátt í því
að sumar þjóðir hafa verið tregar til að gera meira en að fordæma aðgerðir Rússa. Dæmigerð voru ummæli
starfsmanns japanska utanríkisráðuneytisins í dag: „Allar harðar efnahagslegar refsiaðgerðir gætu skaðað
japanskt efnahagslíf.“
En nokkur ríki hafa gert ákveðnar ráðstafanir eins og fram kemur í þessari syrpu hér á eftir.
Afstaða Frakka til innrásar Sovétmanna í Afghanistan:
Innrásin „kjaftshögg“
á slökunarstefnuna
Afgreiðsla sovézkra skipa í Bandaríkjunum bönnuð
New York, 9. jan. AP.
Afgreiðsla
bönnuð
Samband bandarískra
hafnarverkamanna bannaði í
dag lestun og losun sovézkra
skipa í bandarískum hðfnum
vegna innrásar Sovétmanna
í Afghanistan. Leyfð verður
þó lestun og losun sovézkra
skipa sem þegar eru í banda-
rískum höfnum.
Forseti sambandsins
sagði, að verkamennirnir
hefðu verið hafðir með í
ráðum, „og með þessu sýndu
þeir að bændur eru ekki þeir
einu sem verða að færa
fórnir í þágu Bandaríkj-
anna,“ en bændur hafa
kvartað sáran undan þeirri
ákvörðun Carters forseta að
setja bann á kornsölu til
Sovétríkjanna vegna atburð-
anna í Afghanistan þar sem
bannið kæmi hart niður á
þeim.
Carter forseti tilkynnti í
dag aukinn fjárhagslegan
stuðning við bændur vegna
bannsins. Búist er við, að
bæði kornsölubannið og af-
greiðslubann hafnarverka-
mannanna komi hart niður á
Sovétmönnum.
Frakkar fordæma
París, 9. jan. AP
Frakklandsstjórn for-
dæmdi innrás Sovétmanna í
Afghanistan formlega í dag,
og voru aðgerðir Sovét-
manna sagðir „í blóra við
undirstöðuatriði" franskrar
stefnu og alþjóðleg sam-
skipti.
Tilkynningin var birt eftir
ríkisstjórnarfund, sem Gisc-
ard forseti stýrði, en á fund-
inum átti hann langt síma-
samtal við Carter forseta um
atburðina í Afghanistan og
íran.
Sagði í tilkynningu Frakk-
landsstjórnar, að aðgerðir
Sovétmanna „væru kjafts-
högg“ á slökunarstefnuna,
sem Frakkar styddu af ein-
lægni, en ekki án skilyrða.
Leiðtoga-
fundur
París, 9. jan. AP.
Giscard Frakklandsforseti
og Schmidt, kanzlari Vest-
ur-Þýzkalands, hittust í dag
og ræddust við í 2Vfe klukku-
stund um atburðina í Mið-
Asíu, en ekki fóru fregnir af
hvort leiðtogarnir náðu sam-
komulagi um sameiginlega
afstöðu til málanna.
Schmidt sagði hins vegar í
dag að ekki ætti að hætta við
viðræður og samkomulag
austrænna og vestrænna
ríkja á sviði afvopnunar,
viðskipta og slökunar vegna
íhlutunar Sovétmanna í Af-
ghanistan. Sagðist hann
vona að Madríd-fundur
næsta haust, sem hugsaður
væri sem framhald Hel-
sinki-ráðstefnunnar frá 1971,
félli ekki niður.
Aðgerðir
Ástrala
Sydney, 9. jan. AP.
Malcolm Fraser, forsætis-
ráðherra Ástralíu, tilkynnti í
dag að Ástralir hefðu ákveð-
ið ýmsar refsiaðgerðir vegna
íhlutunar Rússa í Afghanist-
an. Skýrði Fraser m.a. frá
því, að ef Bandaríkin ákvæðu
að senda ekki íþróttafólk á
Ólympíuleikana í Moskvu í
sumir færu Ástralir að dæmi
þeirra.
Að auki hafa Ástralir
ákveðið að selja Sovét-
mönnum ekki gramm af
hveiti umfram gerða samn-
inga, sem þýðir að þangað
geta Sdvétmann ekki leitað
vegna kornsölubanns Banda-
ríkjamanna. Einnig hafa
Ástralir ákveðið að hætta
öllum viðræðum og fresta
eða fella úr gildi um óákveð-
inn tíma samninga um fisk-
veiðimál, endurskoðaðar
verða ferðir sovézkra fragt-
og skemmtiferðaskipa til
Astralíu, sovézkum rann-
sóknaskipum verður ekki
leyft að koma inn á ástralsk-
ar hafnir, starfsfólki sovézka
flugfélagsins Aeroflot verður
vísað úr landi og ekki fallist
á beiðni flugfélagsins um
beinar flugferðir milli Sov-
étríkjanna og Ástralíu, hætt
verður við öll samskipti á
sviði vísinda og lista um
óákveðinn tíma svo og allar
opinberar viðræður ríkjanna.
Aðgerðum stjórnarinnar
hefur verið vel tekið í land-
inu.
ítalir
hætta
Róm, 9. jan. AP.
Ennfremur hafa ítölsk yf-
irvöld ákveðið að hætta allri
aðstoð við Afghanistan og
sendiherra landsins þar og
ítalir, sem starfa í landinu,
verða kvaddir heim.
Korn-
fundur
Tilkynnt var í Buenos Air-
es í dag, að Argentínumenn
myndu senda áheyrnarfull-
trúa á fund kornframleiðslu-
fulltrúa í Washington á
föstudag þar sem rætt verð-
ur um kornsölubann á Sov-
étríkin vegna íhlutunar
þeirra og innrásar í Afghan-
istan.
Sovéskar herbúðir í Afghanistan — einar af mörgum i landinu. Nú eru yfir 100 þúsund sovéskir hermenn í Afghanistan að
talið er.