Morgunblaðið - 10.01.1980, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980
31
Minning:
Sigurður Jónsson
verkfræðingur
Fæddur 18. júní 1899.
Dáinn 31. desember 1979.
Sigurður Jónsson forstjóri lézt á
Landakotsspítala aðfaranótt 31.
desember s.l. eftir stutta legu á
sjúkrahúsinu.
Sigurður fæddist að Ærlækjar-
seli í Axarfirði, sonur hjónanna
Sigurveigar Sigurðardóttur og
Jóns Gauta Jónssonar bónda á
Gautlöndum.
Stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík lauk Sigurður
1922 og prófi í byggingarverkfræði
frá Norges Tekniska Högskole í
Þrándheimi (sérgrein: fossvirkj-
un) 1926.
Bæjarverkfræðingur Akureyrar
var hann 1926-1928. Verkfræð-
ingur hjá Entreprenörfél. Kamp-
mann Kjerulf og Saxild í Kaup-
mannahöfn árin 1928—1932. Á
þessum árum hafði hann yfir-
umsjón með byggingu Grófar-
bryggjunnar í Reykjavíkurhöfn,
ennfremur hafði Sigurður yfir-
umsjón með byggingu hafnar-
bakka í Siglufjarðarhöfn og fékk
Sigurður h.f. Hamar til þess að
framkvæma járnvinnuna í bæði
þessi verk, t.d. setti Hamar upp
smiðju á Siglufirði, með járniðn-
aðarmönnum, verkstjóra og
skrifstofumanni og stóð þessi
vinna á Siglufirði í um 4 mánuði.
Sigurður var mikill áhuga- og
dugnaðarmaður, og gerði hann
mikla kröfu til sjálfs sín og
annarra sem hann hafði undir
stjórn sinni. Þetta voru fyrstu
kynni mín af Sigurði.
Árið 1932 var Sigurður ráðinn
forstjóri Slippfélagsins í
Guðrún Eyjólfsdóttir
frá Botnum - Minning
Fædd 9. október 1891.
Dáin 1. janúar 1980.
Guðrún Eyjólfsdóttir var komin
af traustum, skaftfellskum
bændaættum og jafnan kennd við
Botna í Meðallandl. Þessi bær má
heita umluktur hrauntungum
Skaftáreldahrauns, og á ungdóms-
árum Guðrúnar var hann auk þess
umvafinn blátærum straumvötn-
um með fádæma fögru fuglalífi,
sem allt til saman söng guði dýrð
með sínu lagi. Var þetta umhverfi,
sem gæddi Guðrúnu þeim hug-
arstyrk og ró, sem einkenndi allt
líf hennar?
í þessu umhverfi fæddist Guð-
rún 9. okt. 1891 á fjölmennu
fyrirmyndarheimili foreldra
sinna, Vilborgar Þorsteinsdóttur
og Eyjólfs Eyjólfssonar. Við þau
skilyrði, sem fyrr segir, ólst Guð-
rún upp við almenn sveitastörf og
m.a. göngur og smalamennsku og
brá ekki við, þótt eltingaleikurinn
bærist stundum út í hraunkarg-
ann, eins og það var kallað, því að
henni var létt um fót á þeim árum.
Þannig liðu árin í Botnum.
Guðrún var um árabil önnur hönd
foreldra sinna. Faðir hennar
veiktist af illkynja útvortisígerð
og var um tíma mikið undir
læknishendi. Náði hann aðeins
litlum vinnukröftum eftir það. Þá
var móðir hennar langþreytt orðin
og heilsuveil. Þess vegna hvíldi
bústjórnin um mörg ár á Guð-
rúnu, en formlega tók hún við
búsforráðum árið 1927. Þá réð hún
til sín ráðsmann, Eyjólf Davíðs-
son, sem hafði verið vinnumaður í
Botnum síðustu fjögur árin, áður
en hún tók við búinu, og var því
kunnugur öllum aðstæðum.
Guðrún eignaðist son með ráðs-
manni sínum, og var hann látinn
heita Eyjólfur. Var þá kominn
alnafni föður hennar. Eins og
gefur að skilja, vakti þessi ungi
sveinn mikla gleði allra á heimil-
inu, og hann breytti ósjálfrátt öllu
til hins betra.
Þannig liðu árin hvert af öðru.
Hinn 12. desember 1949 dró
skyndilega ský fyrir sólu, þegar
húsbóndinn lézt snögglega. Þau
mæðgin voru nú ein eftir í Botnum
og einangrun mikil, enginn sími
og tíu kílómetrar til næsta bæjar.
Var því næsta sjálfgert, að veru
þeirra lyki í Botnum við þessar
aðstæður.
Vorið eftir, 1950, fóru þau
mæðgin þaðan alfarin og dvöldust
eitt ár hjá Eyjólfi, bróður Guðrún-
ar, á Hnausum í Meðallandi. Árið
eftir fluttust þau svo vestur í
Borgarfjörð að Hesti til Guð-
mundar Péturssonar. Þar dvaldist
Guðrún lengst af, en sonurinn
lauk búfræðinámi á Hvanneyri og
vann á Hesti þess í milli.
Árið 1962 fluttust þau mæðgin
til Reykjavíkur og keyptu sér
fljótlega íbúð að Sundlaugavegi
24. Þar hafa þau búið saman með
miklum myndarbrag og órofa
elsku og virðingu, sem aldrei hefur
fallið skuggi á, þar til Guðrún lézt
á nýársdag.
Áð endingu þakka ég hinni
látnu vinkonu minni fölskvalausa
tryggð allt frá því, er ég ungur að
árum dvaldist um tíma á heimili
foreldra hennar í Botnum. Ég
hugsa með hlýju til vina minna,
Eyjólfs á Hnausum, sem sér nú á
bak systur sinni, háaldraður, og
Eyjólfs yngra, sem reyndist móð-
ur sinni óvenjugóður drengur og
bjó henni fagurt og friðsælt ævi-
kvöld.
Blessuð sé minning hennar.
Eirikur Ormsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og hlýhug viö fráfall fööur
okkar,
BJÖRNS L. BLÖNDAL,
Lérus t». Blöndal, Hjördís Ström,
Bergljót B. Blöndal, Jóhann Jónsson.
Reykjavík og gegndi hann því
starfi til 1. júlí 1968.
Sigurður var mjög vandlátur í
ráðningu manna, t.d. sagðist hann
ekki taka forstjórastöðuna nema
hann fengi Þórð Stefánsson, kaf-
ara og verkstjóra sem vann þá hjá
Hamri h.f. Þessu fékk hann fram-
gengt og réði hann Þórð sem
yfirverkstjóra í Slippfélaginu.
Þórður hafði verkstjórn á vinnu
við uppsetningu dráttarbrautanna
og járnbentri steypuundirstöðu
hliðarfærslubrautanna og hann sá
um köfunarvinnuna við lagningu
teina út í sjóinn.
Öll þessi verk Sigurðar viðvíkj-
andi byggingum Slippfélagsins
voru mikil og vandasöm og leysti
hann þau öll af hendi af mikilli
prýði og vandvirkni.
Þann 4. marz 1931 kvæntist
Sigurður Kristjönu Hannesdóttur
Hafstein skálds og ráðherra. Börn
þeirra: Ragnheiður, gift Walter
Lentz, gleraugnasérfræðingi, Jón
Hannes skipaverkfræðingur, gift-
ur Hlaðgerði Laxdal, Örn, arki-
tekt, var giftur Kristínu Þorvalds-
dóttur og Hrafn skrifstofustjóri,
giftur Guðrúnu Hannesdóttur.
Barnabörnin eru átta.
Kristjana lézt 22. maí 1952.
Þann 13. marz 1966 kvæntist
Sigurður Þóru Emilíu Maríu Júlí-
usdóttur Havsteens sýslumanns,
Húsavík og k.h. Þórunnar Jóns-
dóttur fræðslumálastjóra Þórar-
inssonar. Þau slitu samvistum
eftir skamma sambúð.
Eftirlifandi kona Sigurðar er
Ragna Ragnarsdóttir, dóttir hjón-
anna Guðrúnar Hjaltadóttur og
Ragnars Bjarnasonar, heitins,
skipstjóra frá ísafirði, og eiga þau
einn son, Ragnar, myndarpilt, sem
nú er í menntaskóla. Frú Ragna er
myndarhúsmóðir og hefir hún
annast mann sinn af stakri um-
hyggju og alúð í veikindum hans
síðustu árin og hefir hún reynzt
börnum Sigurðar sem bezta móðir.
Um leið og ég kveð vin minn
Sigurð, votta ég fjölskyldu hans
dýpstu samúð.
Jón Gunnarsson.
í dag verður jarðsettur frá
Fossvogskirkju Sigurður Jónsson
verkfræðingur.
Þegar ég sezt niður til að skrifa
nokkur kveðjuorð um gamlan hús-
bónda, er margs að minnast frá
löngum tíma. Ég ætla ekki að
fjölyrða um ætterni, dugnað eða
störf Sigurðar, það munu aðrir
gera, heldur minnast góðra stunda
með honum. í góðra vina hópi og á
gleðistundum lék Sigurður á alls
oddi og var hrókur alls fagnaðar.
Þó held ég að ég megi fullyrða, að
Sigurður undi sér hvað bézt í
sumarbústað sínum á Þingvöllum,
í þeim friðsæla reit, í faðmi blárra
fjalla.
Sigurður átti miklu barnaláni
að fagna, þess naut hann síðustu
árin, er hann átti við veikindi og
sjúkralegur að stríða, og ekki hvað
sízt naut hann umhyggju ágætrar
eiginkonu sinnar, Rögnu, sem var
honum mikill styrkur alla tíð.
Fyrir hönd gamalla starfs-
manna Slippfélagsins sendi ég, á
þessari kveðjustundu, innilegar
samúðarkveðjur eiginkonu og öll-
um ættingjum.
Blessuð sé minning Sigurðar
Jónssonar.
Þórarinn Sveinsson.
Töskuúrvalið
er í hámarki hjá okkur
í Pennanum þessa dagana.
• Skjalatöskur,
• skólatöskur og
• feröatöskur
í mörgum stæröum og geröum.
Ótrúlega hagstætt verð.
Hafnarstræti 18
Laugavegi84
Hallarmúla 2.