Morgunblaðið - 10.01.1980, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980
VfCP
MORötlK/
k'AFf/NU
Úr því þú ert að fara niður í kjallara, náðu þá í eina
Cambertin frá 1974.
Hugsaðu ekki um það, kunningi,
þú færð bara nýtt pappírslak.
Þú þarft ekki að brosa, — þetta
er bara fyrir röntgendeildina.
BRIDGE
Sauðfé í sjóferð
Hér fara á eftir tvö bréf um
sjóferð nokkra sem nokkrar rollur
bónda vestur á fjörðum urðu
aðnjótandi, ef hægt er að taka svo
til orða í þessu tilviki:
„Ástæðan fyrir tilskrifi þessu er
frétt í Morgunblaðinu 1.5. ’80, um
einn góðan hrút sem hlotnaðist sá
heiður að fá að ferðast með
varðskipi frá Laugabóli í Arnar-
firði og inn í Geirþjófsfjörð, til að
gagna þar nokkrum rollum um
fengitímann. Landleiðin til Geir-
þjófsfjarðar mun vera ófær.
Rollur þessar, sem ganga þarna
sjálfala í skóglendi, að sögn blaðs-
ins, misstu af þessari heimsókn
um síðustu jól og hafa sjálfsagt
verið sammála eiganda sínum,
Aðalsteini Guðmundssyni á
Laugabóli, að slíkur skaði mætti
ekki ske aftur. Var því varðskip
fengið til að flytja hrútinn. Manni
furðar ekki lengur á því að
kindakjöt og afurðir séu dýrar, þó
niðurgreiddar séu, fyrst svo dýru
tæki sem heilu varðskipi er siglt
þessa leið fyrir fáeinar rolluskját-
ur.
Annað atriði vakti athygli mína
við lestur þessarar greinar í Mbl.,
að beita sauðfé í skóglendi um
vetrartímann og hélt ég satt að
segja að slík rányrkja væri fyrir
bí á Islandi. Sennilega hefur
ekkert farið eins illa með íslensku
skógana og vetrarbeit sauðfjár á
undanförnum öldum og skógar-
leifarnar í dag svo sorglega litlar
að hörmulegt er að vita að ennþá
skuli rollukjaftar naga greinar og
brum íslenska birkisins.
Virðingarfyllst
Böðvar Guðmundsson
Selfossi.
Umsjón: Páll Bergsson
Sjöunda og síðasta jólaþrautin
var erfið. Þú varst með spil
vesturs. gafst spilið og varst á
hættu.
Norður
S. D109
H. 106
T. ÁKD7
L. KDG9
Vestur
S Q
H. ÁDG9842
T. G542
L. 4
Með hálfum huga opnaðir þú á
þrem hjörtum og hrökkst dálítið
við þegar norður doblaði. Austur
sagði píss og eftir dálitla umhugs-
un sagði suður þrjá spaða. Þú
andaðir léttar og eftir þrjú pöss
spilaðir þú út lauffjarka.
Fyrsta slaginn tók makker með
ás en suður lét sjöið. Áður en varði
hafði makker skipt í hjartafimm,
suður lét sjöið, þú fékkst á gosann
og í hjartaásinn lét austur þrist-
inn en suður kónginn. Eðlilega
voru það þér dálítil vonbrigði, að
makker skyldi skipta í hjarta í
stað þess að spila laufi svo þú
gætir trompað með eina trompinu
þínu. Sjálfsagt hafði hann sínar
ástæður en hverju ætlaðir þú að
spila þegar hér var komið?
Sjálfsagt hefur makker ekki
verið alveg viss um hvort þú ættir
eitt eða tvö lauf. Og ætla verður,
að hann sjái á sínum spilum, að þú
átt ekki mörg tromp. Aðeins eitt
spil á hendi austurs gefur vörn-
inni möguleika og það er trompás-
inn.
Norður
S. D109
H. 106
4 T. ÁKD7
ge^tur L. KDG9
H. ÁDG9842
T. G542 „ .
, . Suður
4 S. K8765
H. K7
T. 983
L. 1072
Þú spilar hjarta, sem makker
trompar eðlilega með ásnum og
eftir þetta er vandalaust fyrir
hann að spila laufi svo þú getir
loks trompað.
Glæsileg vörn og eina leiðin til
að hnekkja spilinu.
Austur
S. Á432
H. 53
T. 106
L. Á8653
Maigret og vínkaupmaðurinn
Eftir Georges Simenon
Jóhanna Kristjónsdóttir
sneri á islensku
15
- Hér?
— Hér eða elnhvers staðar.
Það er ekki auðvelt að skýra
þetta. Hann gerði þetta svo
eðiilega að það var ekki hægt að
verða reiður út í hann. Ég
þekki aðeins eina sem kom hér
á eftir mér og fór sína leið
þriðja daginn og skellti á eftir
sér.
— Hver vissi að miðvikudag-
ur var yðar dagur?
— Ég býst við að ailir hafi
vitað það. Ég fór með honum
niður og við settumst saman
inn i bílinn. Hann dró ekki dui
á neitt. Þvert á móti.
— Hver vann hér í þessari
skrifstofu á undan yður?
— Frú Chazeau. Hún cr hin-
um megin við ganginn núna.
Hún er tuttugu og sex ára og
fráskilin.
— Er hún falieg?
— Já, og hún er mjög vel
vaxin. Það dytti aldrei neinum i
hug að kalla hana Giraffann.
— Var hún ekkert beizk í
yðar garð?
— Fyrst horfði hún stundum
á mig og brosti undirfurðulega.
Ég hugsa hún hafi búizt við þvi
hann yrði fljótlega þreyttur á
mér.
— Hélt hún áfram sambandi
við hann?
— Það held ég. Hún var oít
eftir þegar vinnu var lokið og
við vissum, hvað það þýddi.
— En hún sýndi aldrei hún
væri reið?
— Ekki þegar ég var nær-
stödd. Henní virtist finnast ég
hlægileg. Það er fjöidi manns
sem tekur mig alls ekki alvar-
lega. Meira að segja móðir min
kemur fram við mig eins og
smástelpu.
— Það gæti ekki hugsast að
hún hafi viijað hefna sin?
— Nei. Hún er ekkert þann-
ig. Hún er iika með ýmsum
öðrum. Henni var oft boðið út
og skemmtir sér töluvert hressi-
lega.
— Og sú þriðja?
— Aline, hún er næstyngst,
þvi að ég er yngst. Hún er
tuttugu og tveggja ára. dökk-
hærð. dálitið duttlungafull og
með tilgerð stundum. I morgun
leið yfir hana eða hún lét að
minnsta kosti eins og liði yfir
sig og á eftir fór hún að gráta
og hljóða.
— Var hún hér þegar þér
byrjuðuð?
— Já, hún vann i stórverzlun
og þegar hún sá auglýsinguna
ákvað hún að breyta til. Þær
hafa aliar komið eftir auglýs-
ingu.
— Var einhver þeirra svo
hrifin af honum að hún hefði
getað skotið hann?
— Madame Blanche hafði
sagt að hún hefði séð í karl-
mannsveru milli bilanna. En
gat það ekki hafa verið kona.
Það hafði verið skuggsýnt þeg-
ar athurðurinn gerðist.
— Það held ég alls ekki. Það
var ekkert svoleiðis, sagði
Giraffinn.
— Ekki heldur kona hans?
— Hún er ekki afbrýðisöm.
Hún lifir eins og henni hentar.
Fyrir hana var hann kunningi
eða vinur sem var gott að eiga.
— Var hann þægilegur mað-
ur?
Hún hugsaði sig um.
— Já. þegar maður þekkti
hann. Fyrst fannst manni hann
frekur og hrokafuliur. Hann
lék hlutverk hins volduga yfir-
manns. Hann leit á það sem
sjálfsagðan hlut að aliar konur
þýddust hann. En þegar maður
kynntist honum betur varð
manni ljóst að hann var einfald-
ari en hann vildi vera láta. Og
auðsærðari. „Hvað finnst þér
um mig?“ gat hann átt tii að
spyrja sérstaklega eftir að við
höfðum notist. „Hvað viljið þér
að ég segi?“ „Elskarðu mig?
Viðurkenndu að þú gerir það
ekki.“ „Það fer eftir því hvað
þér eigið við með því. Mér líður
afar vel með yður ef þér viljið
endilega vita það.“ „Ef ég yrði
þreyttur á þér, hvað myndi þá
gerast?“ „Ég veit það ekki. Eg
yrði víst að sætta mig við það.“
„Og hinar á skrifstofunni. Hvað
myndu þær segja?“ „Ekkert.