Morgunblaðið - 10.01.1980, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980
37
VELVAKANDI
r, SVARAR í SÍMA
OIOOKL 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
Ekki skal Velvakandi fullyrða
neitt um réttmæti sjóferðarinnar
en hitt er vitað að Landhelgis-
gæslan sinnir hinum margvísleg-
ustu verkefnum fyrir landsmenn
og aðstoðar þá í ýmsum vanda og
hver veit nema þetta tiltekna
verkefni hafi fallið saman við
eitthvert annað verk á svipuðum
slóðum. En nóg um það annar
bóndi hafði samband við Velvak-
anda út af sama máli þótt hann
gerði að umtalsefni annað atriði í
þessu sambandi, nefnilega um:
• Kindurí
skóglendi
„Ég hélt nú,“ sagði bóndi, „að
ekki þekktist lengur að fénaður
gengi sjálfala af veturinn hér á
landi. Bezt gæti ég trúað að það
varðaði við dýraverndunarlög. Að
minnsta kosti finnst mér að dýra-
verndunarsamtökin ættu að taka
þetta til athugunar. Þá er sagt í
fréttinni að ærnar gangi í skóg-
lendi. Ég held að öruggt megi
teljast að það skóglendi verði að
„fyrrverandi skóglendi" áður en
langt líður. Við hnýtum æði oft í
forfeður okkar fyrir að eyða öllum
skógi landsins og skilja eftir ber
holt. En maður líttu þér nær.
Hvað gerum við ekki sjálf á því
herrans ári 1980 — og það á ári
trésins?"
Og ekki verða fleiri orð um
sauðfé í blaðinu að sinni, en ekki
er að vita nema lesendur hafi
fleiri sögur af búfé til athugunar.
Þessir hringdu . .
jdcc-
• Þakkar ferða-
þjónustu fatlaðra
Gestur Sturluson:
„Undanfarið hafa kjör fatlaðs
fólks verið mjög til umræðu og er
það vel því þar er víða pottur
brotinn og það þarf víða úr að
bæta eins og rækilega hefur verið
bent á. En við sem fötluð erum
megum ekki eingöngu einblína á
það sem á vantar og miður fer,
heldur verðum við einnig að gleðj-
ast yfir og þakka það sem vel
hefur til tekist hvort sem það er
fyrir okkar tilstilli eða annarra.
Það sem ég á hér við er það
framtak að fá sérhannaða bíla til
að keyra fólk í hjólastólum. Sjálf-
ur er ég bundinn við hjólastól og
veit því vel hvaða geysileg breyt-
ing hefur orðið á högum mínum og
annarra sem eins er ástatt um
síðan þessir bílar fóru að ganga.
Áður varð ég að ferðast í leigu-
bílum og var það hálfgert basl, þó
að bílstjórarnir væru oftast liprir
og allir af vilja gerðir, eða þá að
ferðast með lögreglunni. Lög-
reglumennirnir voru og eru mjög
liprir og geðugir og vil ég færa
þeim þakkir fyrir alla hjálp mér
veitta á undanförnum árum. En
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á minningarmótinu um Vidmar
í júgóslavnesku borgunum Bled og
Portoroz í sumar kom þessi staða
upp í skák stórmeistaranna Ri-
blis, Ungverjalandi, og Marjano-
vics, Júgóslavíu.
Sá síðarnefndi, sem hafði svart
og átti leik, fann nú þvingað mát.
þeirra störf eru svo margþætt að
oft hafa þeir engan tíma til að
sinna öðru en sínum skyldustörf-
um. Þeir sem ekki hafa reynt geta
vart ímyndað sér hvað það er
þægilegt að hafa þessa bíla alltaf
vísa þegar á þarf að halda. Og það
á mjög vægu verði.
Um þetta ætla ég ekki að hafa
fleiri orð en að endingu vil ég færa
mínar bestu þakkir öllum sem
unnu að því að koma þessari
ágætu þjónustu á og ekki síst
bílstjórunum á þessum bílum,
liprari og traustari mönnum hef
ég varla kynnst.
HÖGNI HREKKVÍSI
Nýr þingmaður:
Sigurgeír
Bóasson
SIGURGEIR Bóasson, skrifstofu-
stjóri Bolungarvík, tók sæti á Alþingi
sl. þriðjudag sem varamaður Olafs
Þórðarsonar, þingmanns Framsókn-
arflokks af Vestfjörðum, vegna anna
þess síðarnefnda, sem er skólastjóri í
Reykholti. Sigurgeir var 3. maður á
lista Framsóknarflokks á Vestfjörð-
um í síðustu kosningum og hefur ekki
áður setið á Alþingi.
„'BG 6E AÐ HAMN HfeFOP L£/6T ÚE?
MANNI OG KONNA
HAGTRYGGING HF
>!
32.... Hxh2+! 33. Kxh2 - Dgl+,
34. Kh3 — Dhl+, 35. Kg4 — hr+,
36. Kf5 — Dh3+ og hvítur gafst
upp, því að mátið blasir við.
Hollendingurinn Timman sigr-
aði á mótinu, hlaut 11 v. af 15
mögulegum. Næstir komu þeir
Larsen og Ribli með 10 v. Þátttak-
endur á mótinu voru 16, þar af 12
stórmeistarar.
BÖRN ÆTTU EKKI AO LEIKA SÉR AO ELDINUM
HVERT FER
ELDURINN
EIGINLEGA
ÞEGAR BÚIÐ
ER AÐ BLÁSA
ÁHANN?