Morgunblaðið - 10.01.1980, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980
• Blak eins og það gerist best
getur verið tilkomumikil sjón svo
sem sjá má á þessari mynd sem
tckin er í vestur-þýsku deildar-
keppninni. Blak er viða mun
vinsælli iþrótt en hér á landi, t.d.
í Vestur-Þýskalandi. þar sem
félagar í blaksambandi landsins
eru 186.000 talsins, auk fjölda
annarra sem stunda blak ein-
vörðungu sér til heilsubótar.
KR-ingar missa
heimaleikinn
EFTIR leik KR og Vals í úrvals-
deild í desember kærðu dómarar
framkomu áhorfenda. Aganefnd
felldi þann dóm að næsti heima-
leikur KR skyldi tekinn úr þeirra
umsjá.
KKÍ hefur ákveðið að þessi
leikur skuli leikinn í Hafnarfirði
n.k. sunnudagskvöld 13. jan. en
samkvæmt leikjaskrá átti hann
að fara fram mánudaginn 14.
jan. i iþróttahúsi Hagaskóla.
Með þessum leik hefst keppni i
deildinni að nýju eftir mánaðar-
hlé.
Umsjón leiksins er á ábyrgð
sambandsins en samvinna hefur
tekist með körfuknattleiksdeild
Hauks og KKÍ um að halda
„Köfuboltakvold“ i iþróttahúsinu
við Strandgötu og verður áður-
nefndur úrvalsdeildarleikur aðal-
leikur kvöldsins.
Auk þess mun meistaraflokkur
Hauka leika gegn fyrstu
islandsmeisturunum KR og hefst
sá leikur kl. 10.30 en KR og ÍR
leika strax á eftir.
Vakti athygli
ÞAÐ hefur vakið nokkra athygli
i Vestur-Þýskalandi að íslenska
landsliðið i handknattleik notar
ekki þá islensku leikmenn er
leika í Þýskalandi. Fyrsti leikur
íslands fór fram í Minden.heima-
borg Dankersen. Þar hafa þrír
íslendingar leikið þeir Ólafur H.
Jónsson, Axel Axelsson og Jón
Pétur Jónsson. Voru heimamenn
ákaflega undrandi að enginn
þeirra skyldi fá náð fyrir lands-
liðseinvaldinum. Og enn meira
undrandi voru þeir þegar leikur
íslands hafði farið fram. Nú í
Bremerhaven leika tveir íslend-
ingar þeir Gunnar Einarsson og
Björgvin Björgvinsson. Þeir
leika með Grambke. Voru leikir
íslands settir á í þessum tveim
borgum meðal annars með það
fyrir augum að reyna að auka
aðsókn að leikjunum, þar sem
heimamenn myndu fá að sjá
íslendingana leika með landsliði
sinu.
• Mörg félög hafa tekið að sér sölu og á myndinni eru þeir Guðjón
óskarsson, Páll Ólafsson og Tómas Tómasson. Mynd Bragi Guð-
mundsson.
Lukkudagar — ný-
stárlegt happdrætti
Mjög slök
nýting á
móti A-
Þjóöverjum
1 landsleiknum á móti Austur-
Þjóðverjum var sóknarnýtingin
vægast sagt mjög slök. íslend-
ingar skoruðu aðeins 15 mörk úr
50 upphlaupum. Eða um 30%
nýting. Hér á eftir fer svo árang-
ur einstakra leikmanna í leikn-
um fyrst koma mörk svo skot eða
boltanum glatað.
Ólafur Jónsson 5/12
Viggó Sigurðsson 5/12
Steindór Gunnarsson 2/4
Atli Hilmarsson 2/4
Bjarni Guðmundsson 1/3
Sigurður Gunnarsson 0/7
Sigurður Sveinsson 0/1
Þorbjörn Jensson 0/1
Þorbergur Aðalsteinsson 0/3
Guðmundur Magnússon 0/2
Jens Einarsson varði 11 skot i
leiknum — Brynjar Kvaran fjög-
HINN 12. janúar verður stofn-
fundur Evrópusambands Knatt-
spyrnuþjálfara. Stofnfundurinn
verður í Vín, Austurríki og er
hann geysivel undirbúinn.
Knattspyrnuþjálfarafélag
Aðalfundur
Badminton-
deildar KR
AÐALFUNDUR Badmonton-
deildar KR fer fram í KR-heimil-
inu við Kaplaskjólsveg 17. janúar
n.k. og hefst kl. 20.00. Venjuleg
aðalfundarstörf. Stjórnin.
Blakdeild Víkings efnir nú til
nýstárlegs happdrættis sem þcir
kalla Lukkudaga. Það er i alman-
aksformi og á degi hverjum á
tslands hyggst gerast meðlimur i
samtökum þessum. Og fara full-
trúar frá K.Þ.Í., Reynir Karls-
son, Lárus Loftsson og Eggert
Jóhannsson til þessa fundar.
Mun þjálfarafélagið segja nánar
frá ferð þessari síðar.
K.Þ.Í. gekkst nýlega fyrir al-
mennum félagsfundi þar sem
umræðuefnið var m.a. stofnun
U.E.F.
Stjórn K.Þ.Í. hyggst gang-
ast fyrir öðrum félagsfundi þar
sem á dagskrá verður kvik-
myndasýning og almennar um-
rseður um félagsmál. Sá fundur
verður auglýstur nánar siðar.
Stjórn K.Þ.Í.
þessu nýbyrjaða ári verður dreg-
inn út einn vinningur. Alls eru
vinningar á árinu 366 þar sem i
ár er hlaupár. Hugmyndin að
þessu nýstárlega happdrætti er
Vikinga og þeir hafa þróað með
sér.
Andvirði vinninga ársins eru
rétt tæpar 17 milljónir og hæsti
vinningur, sem dreginn verður út í
ágúst er Ford Fiesta bifreið. Verð
hvers spjalds er 2500 krónur og er,
eins og áður sagði happdrættis-
númer á spjaldinu fyrir hvern dag
ársins. Þó Víkingar hafi gefið út
eigin spjöld þá eru happdrættis-
spjöld ekki bara bundin við
Víking.
Önnur félög geta tekið að sér og
selt spjöld og fá þá sölulaun, sem
nema 24% af andvirði hvers happ-
drættisspjalds, eða 600 krónur í
sölulaun. Þegar hafa mörg félög
tekið að sér sölu happdrættis-
spjaldanna. Þessi félög hafa tekið
að sér sölu, HK, Fylkir, Breiða-
blik, ísafjörður, ÚÍA, Þróttur,
ÍMA, KA, ÍA, Fram, FH, ÍBK og
Víkingur. Vinningsnúmer verða
birt jafnóðum í Dagblaðinu auk
þess að vinningsnúmer verða birt í
öðrum blöðum síðasta dag hvers
mánaðar.
ur.
KÞÍ gerist meðlimur
í Evrópusamtökum
• Baldvin Guðmundsson, KR, með hinn glæsilega bikar er hann hlaut
í Frakklandi. Ljósm. Kristján.
Fékk vióurkenningu
fyrir bestu mark-
vörsluna í keppninni
MILLI jóla og nýárs tók íslenska
drengjalandsliðið i knattspyrnu
þátt í alþjóðlegu knattspyrnu-
móti sem fram fór í Suður-
Frakklandi. Eins og greint hefur
verið frá í fréttum var frammi-
staða islensku drengjanna i alla
staði mjög góð. Liðið lék þrjá
leiki og í þeim fyrsta sigruðu
drengirnir lið frá Luxemborg
með 2 mörkum gegn einu. Mörk
íslands í þeim leik skoruðu þeir
Valdimar Stefánsson og Gisli
Hjálmarsson. Næsti leikur liðsins
var á móti Frökkum sem höfðu
sterku liði á að skipa. Endaði sá
leikur með markalausu jafntefli.
Var þetta besti leikur islenska
liðsins i ferðinni. Siðasti leikur
liðsins var á móti ítölum, og var
sá leikur mjög jafn allan leikinn
en þegar tvær mínútur voru til
leiksloka tókst ítölum að skora
og sigruðu í leiknum 1—0. Sex
þjóðir tóku þátt i móti þessu og
var þeim skipt í tvo riðla.
Þjálfari íslenska liðsins var
Lárus Loftsson en hann hefur um
margra ára skeið unnið mikið og
gott unglingastarf á vegum KSI. I
stuttu spjalli við Mbl. kvað Lárus
ferð þessa með piltana, sem voru á
aldrinum 14—16 ára, hafa gengið
mjög vel, og hefðu piltarnir, sem
flestir léku nú sinn fyrsta lands-
leik, öðlast dýrmæta reynslu í
ferðinni. Væri mikið unnið með
svona ferðum upp á seinni tíma að
gera. Þá hefðu piltarnir sýnt góða
leiki og verið í alla staði landi sínu
og þjóð til fyrirmyndar í ferðinni.
Knattspyrna)
Einn íslensku leikmannanna,
Baldvin Guðmundsson, KR, fékk
viðurkenningi í ferðinni. Var hann
kjörinn besti markvörður keppn-
innar og vakti mikla athygli fyrir
yfirvegun og rósemi í markvörsl-
unni. Mbl. spjallaði lítillega við
Baldvin um ferðina og sagði hann
m.a.:
—Þetta var afar vel heppnuð
ferð og í alla staði þroskandi. Þá
var það bæði eftirminnilegt og
ánægjulegt fyrir mig að fá þessa
viðurkenningu. Erfiðasti leikur
var á móti Frökkum, en hins vegar
fannst mér persónulega að ítal-
arnir væru með besta liðið í
keppninni. Mér fundust liðin vera
í betri æfingu enn við. Aðstöðu-
munurinn er augljós. Hér heima
æfðum við lengst af í snjó og
kulda meðan þeir gátu æft á grasi.
Við höfðum aðeins tvívegis leikið
á grasi fyrir keppnina. Andstæð-
ingar okkar voru líka stærri og
viðbragðsfljótari. Sérstaklega á
þetta við um Frakkana. Við börð-
umst hins vegar vel og erum
ánægðir með útkomuna hjá okkur.
Við fórum í skemmtilegar skoðun-
arferðir, þar á meðal til Cannes og
er það eftirminnilegt. Ég er ákveð-
inn í að halda áfram að æfa
knattspyrnu eins og ég hef gert
frá 9 ára aldri með félagi mínu,
KR, sagði þessi geðþekki piltur að
lokum í spjalli okkar. —Þr.