Morgunblaðið - 10.01.1980, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980
39
íslenska landsliðið í Baltic Cup í V-Þýskalandi
Sagt eftir leikinn
Jóhann Ingi Gunnarsson
sagði cftir icikinn:
Ég er mjög ánægður með
leikinn, sérstaklega fyrri hálf-
leikinn. Þá tókst liðinu að leika
agaðan handknattleik og af mik-
illi skynsemi og mótspyrnan kom
Þjóðverjum í opna skjöldu.
Stenzel, þjálfari Vestur-Þjóð-
verja:
.— Þessi leikur var vel leikinn
frá fyrstu til síðustu mínútu og
þarna voru tvö lið, annað í
uppbyggingu og hitt með heiður
að verja og útkoman varð hörku-
góður leikur. Áhorfendur sem
voru 3712, þeir hjálpuðu vestur-
þýska liðinu yfir erfiðan hjalla
með því að hvetja það á réttum
augnablikum. Það var gott að fá
sona sterkan mótherja áður en
við mætum Austur-Þjóðverjum,
en sá leikur ræður útslitum í
keppninni. íslenska liðið lék mjög
vel tvo þriðju hluta leiksins en
tapaði einbeitingunni. Liðið getur
velgt hvaða liði sem er undir
uggum, en lítil leikreynsla sagði
til sín að þessu sinni.
Bjarni Guðmundsson, 22 ára
gamall hornamaður landsliðsins:
— Leikur okkar í fyrri hálfleik
hafði sýnt hvað þetta nýja lands-
lið getur gert með samstöðu og
baráttu. Slæmi kaflinn verður
ekki lagaður með öðru en því að
æfa meira og betur og að menn
leggi sig enn frekar fram um það
sem verið er að gera. Við erum
líka fúsir til að leggja enn meira
á okkur. Æfa enn betur. Það má
ekki krefjast of mikils af þessu
liði svona í byrjun, en ef það tekst
að halda hópnum saman næstu
tvö ár kemur fyrst í ljós árangur
erfiðisins. Við þurfum að styrkj-
ast verulega, allir í liðinu.
Formaður HSl, Júlíus Haf-
stein:
.— Þetta var góður leikur af
hálfu íslands. Ég er mjög ánægð-
ur með allt skipulag hér í Vest-
ur-Þýskalandi varðandi þessa
keppni. Aðbúnaður er allur mjög
góður og til fyrirmyndar. Nú er
bara spurningin: tekst okkur að
sigra Norðmenn á morgun?
útn. KnlHa.
• Bjarni Guðmundsson hefur átt góða leiki með landsliðinu í Baltic-keppninni. Hér
er Bjarni í kröppum dansi á f jölum Laugardalshallarinnar í landsleik.
Stóðu í heimsmeisturunum en
reynsluna skorti þegar á leið
Frá Guðmundi Guðjónssyni, fréttamanni Mbl. i Bremerhaven.
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik sýndi hvað hægt er að gera gegn sterkustu þjóðum heims ef leikið er af skynsemi og ögun og ef ekki
hefði komið til 8 minútna kafli í upphafi síðari hálfleiks, þessi venjulegi, er engin leið að spá hver úrslit hefðu orðið. Svo jafn og spennandi
hafði leikurinn verið allt fram í byrjun síðari hálfleiks að ekki mátti á milli sjá hvort liðið væri heimsmeistari eða hvort væri kornungt lið í
uppbyggingu. Þegar tvær mínútur voru liðnar af síðari hálfleik var staðan 8—8, þá var eins og slökkt væri á peru í átta mínútur og var þá
staðan skyndilega orðin 16—9 fyrir Vestur-Þjóðverja, eða átta mörk gegn einu. Eftir það jafnaðist leikurinn aftur og til dæmis skoruðu
Vestur-Þjóverjarnir aðeins eitt mark síðustu 9 minútur leiksins. Ekki í fyrsta skiptið sem „slæmi kaflinn“ fellir íslenskt landslið og má
mikið vera ef ekki er löngu orðið um sálrænan hlut að ræða. Ef litið er á björtu hliðina var „slæmi kaflinn“ styttri en oft áður. Lokatölur
þessa ágæta landsleiks urðu 18—12 fyrir Vestur-Þjóðverja eftir að þeir höfðu haft eitt mark yfir í hálfleik. 8—7.
Frábær fyrri
hálfleikur
Fyrri hálfleikur hjá íslenska
liðinu var glæsilega leikinn. Liðið
leyfði sér ekki að skjóta nema í
öruggum færum og lék mjög
agaðan handknattleik. Varnar-
leikurinn var sterkur og vel tekið
á móti. Virtist þessi mikli kraftur
í íslenska liðinu koma þeim mjög í
opna skjöldu. Þegar fyrri hálfleik-
ur var hálfnaður var staðan 5—4,
en oftast var ekki nema eins
marks munur á liðunum.
Slæmi kaflinn stóð
í átta mínútur
í byrjun síðari hálfleiks jafnaði
Þorbergur leikinn fyrir ísland,
8—8, með þrumuskoti. Rétt fyrstu
mínúturnar lék liðið jafn vel og í
fyrri hálfleik og eftir 5 mínútna
leik var staðan 10—9 fyrir heims-
meistarana. Upp úr því fór að síga
ísland — V-Þýskaland
12:18
á ógæfuhliðina. „Slæmi kaflinn"
var byrjaður. Þjóðverjar skora
hvorki meira né minna en sex
mörk í röð án þess að íslendingum
takist að svara. Að vísu gáfust góð
tækifæri en Martin Hoffmann,
hinn heimsfrægi markvörður, sá
til þess að enginn bolti fór í netið.
Var markvarsla hans á köflum
hreint út sagt undraverð. Þegar
níu mínútur eru til leiksloka er
staðan í leiknum 17—10 og sigur
Þjóðverja nokkuð öruggur. Loka-
kafla leiksins tókst landanum að-
eins að draga í land með því að
skora tvö mörk á móti einu.
Þrátt fyrir þessi úrslit sýndi
íslenska liðið svo ekki var um að
villast að þar eru menn framtíðar-
innar á ferðinni. Ungu mennirnir
voru nú einu sinni að leika við
sjálfa heimsmeistarana í íþrótt-
inni. Hvers er hægt að krefjast?
íslenska liðið
Markvarslan í leiknum var ekk-
ert sérstök, skiptust Jens og
Kristján á að vera inn á en virtust
ekki finna sig og vörðu aðeins sjö
skot báðir. Kristján varði fjögur
og Jens þrjú. Liðið í heildina var
nokkuð jafnt. Viggó Sigurðsson
átti stórleik framan af fyrri hálf-
leik en hann skoraði fimm af
fyrstu sex mörkum íslands og bar
hann nokkuð af í liðinu. Sóknar-
leikurinn var lengst af skynsam-
lega leikinn. Þó svo að enginn einn
fyrir utan Viggó hafi verið afger-
andi. Bjarni og Steindór stóðu þó
vel fyrir sínu og eru á góðri leið
með að verða traustustu menn
landsliðsins. Nýting liðsins í sókn-
arleiknum var 50% í fyrri hálf-
leiknum. Varnarleikurinn var vel
leikinn ef frá er skilinn þessi
slæmi kafli í síðari hálfleiknum.
Tekið var á Þjóðverjunum langt
úti á vellinum og mörg leikkerfi
þeirra stöðvuð í fæðingu. Bestu
varnarmenn liðsins voru Friðrik
Þorbjörnsson og Þorbjörn Jens-
son.
Mörk íslands: Viggó 6 þar af 2 víti,
Bjarni Guðmundsson 2, Ólafur
Jónsson, Steindór Gunnarsson,
Þorbergur Aðalsteinsson og Stef-
án Halldórsson eitt mark hver.
Vestur-þýska liðið var mjög sterkt
og lék vel. Bestu menn voru
markvörðurinn Martin Hoffmann
og Klaus Spies.
Danir sigruóu Pólverja
Nýting leikmanna
Þorbergur Aðalsteinsson
Viggó Sigurðsson
Sigurður Sveinsson
Bjarni Guðmundsson
Steindór Gunnarsson
Stefán Halldórsson
Atli Hilmarsson
Friðrik Þorbjörnsson
Þorbjörn Jensson
ólafur Jónsson
6 skot 1 mark
15 skot 6 mörk bolta glatað 1 sinni
1 skot 0 mörk
5 skot 2 mörk bolta glatað 1 sinni
1 skot 1 mark bolta glatað 1 sinni
3 skot 1 mark
4 skot 0 mark
0 skot 0 mark
0 skot
2 skot 1 mark
ÞAU úrslit er komu mest á
óvart í Baltic Cup-keppninni í
gærkvöldi voru þau, að Danir
sigruðu Pólverja með 22
mörkum gegn 20. Koma þessi
úrslit sérstaklega á óvart
vegna þess að í fyrsta leik
sínum í keppninni sigraði
B-lið Vestur-Þýskalands Dan-
mörku með 16 mörkum gegn
13. Danir léku mjög vel á
móti Pólverjum og verðskuld-
uðu sigur í leiknum.
Þá kemur á óvart hversu
sterkir Norðmenn eru í keppn-
inni. Það verður erfiður róður
fyrir íslenska landsliðið í
kvöld í Verder Allen en þá
leika saman ísland og Noreg-
ur. Norðmenn töpuðu aðeins
með þrem mörkum fyrir
Vestur-Þjóðverjum, 19—16, í
fyrsta leik sínum og í gær-
kvöldi með tveimur mörkum,
16—18, fyrir Austur-Þjóðverj-
um. Góð frammistaða það.
Rússar sigruðu Pólverja ör-
ugglega í fyrrakvöld með 19
mörkum gegn 15, og B-lið
Vestur-Þjóðverja í gær með 23
gegn 13.
Staðan í riðlunum er nú þessi:
A-riðill:
A-Þýskaland
V-Þýskaland
Noregur
lsland
Staðan í B-riðli:
Rússland
Danmörk
V-Þýskaland B-lið
Pólland
Það er athyglisvert að Pólland og ísland, sem íesu nu iynr SKommu
hér á landi, eru í neðsta sæti í riðlunum. Á morgun leika Austur- og
Vestur-Þjóðverjar og má ætla að það sé úrslitaleikur keppninnar.
-þr.
2 2 0 0 43-31
2 2 0 0 37-28
2 0 0 2 32-37
2 0 0 2 27-53
2 2 0 0 42-28
2 10 1 35-36
2 10 1 39-26
2 0 0 0 42-35