Morgunblaðið - 25.01.1980, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 1980
Mirming:
Dr. Jón Gíslason
fyrrv. skólastjóri
Fæddur 23. febrúar 1909.
Dáinn 16. janúar 1980.
Flestir nemendur dr. Jóns
Gíslasonar og samstarfsmenn
munu hafa séð í honum mynd hins
formfasta og agaða læriföður og
stranga skólastjóra, enda átti
hann afar auðvelt með að láta
nemendur sína bera lotningarfulla
virðingu fyrir sér. Framkoman
var hæg og virðuleg, málfarið
hátíðlegt og formfast, en orðin
hnitmiðuð og umræðuefnið gjarn-
an blandað tilvitnunum í forn
fræði Grikkja og Rómverja. Vissu-
lega var. dr. Jón þannig. En
undirritaður átti því láni að fagna
að mega kynnast því, að í honum
bjó ekki aðeins þessi yfirvegaða
persóna, sem hann oftast sýndi,
heldur einnig hlýr og vingjarn-
legur mannvinur sem hafði ríka
þörf fyrir mannleg samskipti og
gleðskap.
Landsmenn allir munu um
•ókomin ár geta kynnst fræði-
manninum dr. Jóni með því að
lesa rit hans og kennslubækur. En
hversu hin fornu grísku fræði
voru orðin samofin hugsun hans
og sálarlífi síðustu áratugina,
kemur bezt fram í ræðum hans,
sem margar hverjar hafa verið
prentaðar í skólaskýrslum Verzl-
unarskólans og víðar.
Lærimeistarann dr. Jón þekkja
vel þeir fjölmörgu nemendur sem
hann kenndi við Verzlunarskóla
íslands og víðar. Margar kennslu-
bækur liggja eftir hann, en við
Verzlunarskólann kenndi hann
latínu, frönsku, ensku og þýzku.
Einkar gott lag hafði hann á að
halda athygli nemenda sinna vak-
andi og ógjarnan vildu þeir mæta
óundirbúnir í kennslustund til
hans.
Stjórnandann dr. Jón sáu menn
aðeins í fjarlægð. Hann náði
markmiðum sínum fremur með
því að hrífa samstarfsfólk sitt
með snjallri orðræðu eða góðu
fordæmi, en með því að láta frá
sér fara mikið af fyrirskipunum,
boðum og bönnum. Nákvæmar
framkvæmdaáætlanir sem fylgt
væri eftir með ströngu eftirliti
munu heldur ekki hafa verið
honum ýkja tiltæk vinnubrögð.
Dr. Jón hafði lag á að láta vilja
sinn sjást fremur en heyrast og
það var erfitt að andmæla honum
og enn erfiðara að breyta gegn
vilja hans.
En hverjar svo sem stjórnunar-
aðferðir hans kunna að hafa verið
þá er það víst að árangurinn varð
stórkostlegur. Samkennarar hans
muna vart eftir að alvarleg stjórn-
unarvandamál hafi svo mikið sem
orðið til, í skólastjóratíð dr. Jóns
og betur er varla hægt að gera.
Framkvæmdamanninn dr. Jón
hafa færri séð en vera ætti. Oft
heyrist sagt að skólastjóratími
hans einkennist meir af festu og
stöðugleika en breytingum og
djörfum ákvörðunum, en þetta er
alrangt. Slíkt álit manna stafar
einungis af því hversu ákvarðanir
og framkvæmdir dr. Jóns gengu
auðveldlega og hávaðalítið fyrir
sig.
I skólastjóratíð dr. Jóns var
gamla skólahúsið að Grundarstíg
24 stækkað um tvær kennslustofur
og miklar endurbætur gerðar á
því, t.d. var það allt þiljað að
innan. Byggt var nýtt skólahús á
aðliggjandi lóð við Þingholts-
stræti og malbikað bílastæði á
báðum lóðunum. Húsið og lóðin á
horni Grundarstígs og Hellusunds
var keypt, þannig að nú á skólinn
alla þá torfu sem þessar þrjár
samliggjandi lóðir milli Grund-
arstígs, Hellusunds og Þing-
holtsstrætis marka. Þá var lóðin á
horni Hellusunds og Grundarstígs
gegnt gamla skólahúsinu keypt.
Þar eru nú bílastæði en vel mætti
byggja þar gott kennsluhúsnæði.
Allar þessar framkvæmdir eru
fjármagnaðar án framlags frá
ríkissjóði. Dr. Jón var hér vissu-
lega ekki einn að verki. Hann naut
þess hversu áhugasamir og hæfir
menn skipuðu skólanefndina og
þeirra fjölmörgu kaupsýslu-
manna, sem af áhuga einum lögðu
fram fé sitt. En spyrja má hver
skapaði og hvatti áhuga þessara
manna og það er víst að þeir nutu
dr. Jóns.
Skólamaðurinn dr. Jón er
Iíklega mikilvirkastur allra þeirra
persónuleika sem í honum bjuggu.
Því hann þorði að standa gegn
ýmsum tízkustefnum sem þá
flæddu yfir landið, með óvenju-
legri staðfestu, og tryggði með því
tilveru skólans, sem var í mikilli
hættu.
Verzlunarskóli Islands naut
allra hans starfskrafta, sem ent-
ust hálfan annan mannsaldur. Það
sem ég tel að beri hæst og megi
telja til mestra afreka í starfi
hans er að honum skuli hafa tekizt
að halda skólanum utan almættis
ríkisvaldsins, og reka hann sem
einkaskóla, lengst af með háum
skólagjöldum, í samkeppni við
ókeypis fræðslu menntaskólanna,
en varðveita Verzlunarskólann
samt sem einn eftirsóttasta skóla
landsins. Við upphaf skólastjórn-
ar dr. Jóns voru 345 nemendur í
skólanum í 6 bekkjum, en síðasta
ár hans voru um 700 nemendur í 4
bekkjum.
Ekkert ber starfi dr. Jóns betra
vitni en það hversu mikils virði sú
menntun sem hann veitti nemend-
ur skólans hefur þótt og þykir enn.
Gleðimanninum dr. Jóni Gísla-
syni hafa sennilega færri kynnst
en vildu. Við hjónin áttum því láni
að fagna að vera með honum á
fundum um skólamál í Kaup-
mannahöfn nú fyrir fáeinum mán-
uðum. Dr. Jón fór þó ferðina að
þessu sinni fremur til þess að
kveðja norræna skólamenn sem
hann hefur átt mikil samskipti og
samvinnu við um áratuga skeið, og
til þess að kynna eftirmann sinn
og leiðbeina honum við störfin, en
til þess að sinna eiginlegum fund-
arstörfum. Þar var dr. Jón hrókur
alis fagnaðar og síðasti kvöldverð-
urinn þegar hann flutti kveðju-
ræðu sína og gerði upp reikn-
ingana við þessa vini sína líður
okkur seint úr minni. Þær stu'u ‘r
sem við þá áttum saman verða
okkur hjónunum ógleymanlegar
og við erum honum þakklát fyrir
þá miklu vinsemd og hlýhug, sem
hann sýndi okkur.
Vinnusamur var dr. Jón með
afbrigðum og e.t.v. hefur sú hugs-
un hrjáð hann meir en allt annað
að verða að þola það að verða
óvirkur áhorfandi að átökum
lífsins í stað þess að standa í miðri
baráttunni. En fyrir fáum árum
gekk hann undir uppskurði, sem
hann hefur sennilega aldrei náð
sér að fullu eftir. Svo virðist sem
dr. Jón hafi í kjölfar þeirra
veikinda efast um gildi alls
lífsstarfs síns og jafnvel fundist
sem það væ-i af fáum metið. En á
síðastliðnu ári taldi hann sig aftur
finna svo margar órækar sannanir
fyrir því að hann ætti djúp ítök í
hjörtum nemenda sinna að full-
yrða má að hann dó sáttur við
lífsstarf sitt, land sitt og þjóð.
Þorvarður Elíasson, skólastjóri
Verzlunarskóla íslands.
Sá sem þessar línur setur á blað
kynntist dr. Jóni Gíslasyni fyrir
nokkrum árum, vegna tengda. Því
miður kann ég ekki skil á aðal-
fræðigreinum dr. Jóns, sem voru
húmanísk fræði, en þó ég gæti
ekki sem skyldi notfært mér
greinargóðar frásagnir dr. Jóns í
þessum efnum, átti hann svo mörg
önnur hugðarefni, sem hann miðl-
aði manni af, að alltaf lék um
hann hress andblær. T.d. var
gaman að heyra frásagnir hans á
löngu liðnum atburðum íslands-
sögunnar, sem hann átti svo
auðvelt með að túlka á einfaldan
og lífrænan hátt. En þó hugðar-
efni dr. Jóns væru þannig mörg og
margþætt, yfirgnæfði að mínum
dómi eitt þeirra öll önnur, en það
var heill og hamingja skólans, sem
hann veitti svo lengi forstöðu, og
þá einnig velferð og árangur
nemendahna, sem hann hafði
kynnst gegnum árin. En ég hygg
að hann hafi haft einstakan vilja
til að leiðbeina og styðja fyrri
nemendur. Að mínum dómi lagði
dr. Jón þjóðarbúinu til geysimikil
verðmæti með góðri fræðslu vax-
andi æsku þjóðarinnar, þegar hún
er hvað viðkvæmust fyrir hvers-
konar utanaðkomandi áhrifum.
í mörgu minntu eiginleikar dr.
Jóns mig á þær hugmyndir, sem
ég hefi gert mér um skáldið og
bóndann Stephan G. Stephansson.
Vinnusemi og ræktun var þeim
báðum í blóð borin. Auk þess sem
dr. Jón hlúði að kennslumálum og
var æskunni til fyrirmyndar með
líferni sínu, átti hann gróðurreit
upp við Hafravatn, hvar hann
„eyddi“ oft frístundum sínum við
eflzt, og stækkað upp í 700 nem-
enda skóla, þrátt fyrir mikil
þrengsli. Verzlunarskólinn var við
lok þess tíma einn eftirsóttasti
menntaskóli landsins, og vantaði
mikið á, að mögulegt væri að veita
öllum þeim viðtöku, sem til skól-
ans leituðu eftir fræðslu. Þetta
sýnir betur en nokkur orð hverrar
virðingar og trausts skólinn og
skólastjóri hans hafa notið. Skól-
inn hefur verið og er í forystu
viðskiptamenntunar, og við stjórn
skólans hefur klassísk menntun og
víðræk reynsla dr. Jóns blandazt
farsællega þeirri viðskiptamennt-
un, er skólinn veitir. Þar hafa
menningin og viðskiptin átt jafn
farsæla samleið og ávallt áður.
Sem kennari var dr. Jón ná-
kvæmur og athugull, og gerði sér
far um, að nemendur næðu tökum
á grundvallaratriðum námsefnis-
ins, sem allt frekara nám byggist
á. Athyglisvert /ar einnig, hve
góðum aga hann hélt uppi án
fyrirhafnar. Nemendur báru strax
virðingu fyrir þeim sterka pers-
ónuleika, sem dr. Jón var. Hann
að gróðursetja trjáplöntur og
hlynna að þeim. Allir hlutir eru
framkvæmdir af alúð og sam-
viskusemi, eftirkomendunum og
honum sjálfum til lærdóms og
þroska.
Fyrir mína hönd og fjölskyldu
minnar vil ég þakka forsjóninni
fyrir að hafa kynnst þessum
gáfaða og góða manni, en þar sem
slíkir menn fara eru Guðs vegir.
Að endingu langar mig að
minna á hendingar Stephans G.
sem mér þykja lýsa lífsskoðun
mannkostamannsins dr. Jóns
Gíslasonar betur en langt mál. Dr.
Sigurður Nordal 3egir í bók sinni
um skáldið, að hann hafi getað
skilið sáttur og rólegur við lífið og
sagt:
„svo viss, að í heiminum vari þó enn
hver von mín meÓ Ijós sitt og yl,
það lifi, sem best var í sálu min sjálfs,
að sólskinið verður þó til.“
Ég votta frú Leu og sonum
þeirra hjóna innilegustu samúð.
Aðalsteinn Jóhannsson.
í dag verður gerð útför dr. Jóns
Gíslasonar, fyrrverandi skóla-
stjóra Verzlunarskóla íslands, en
hann lézt þ. 16. þ.m., tæplega 71
árs að aldri.
Með dr. Jóni er genginn mikil-
hæfur maður, er var hvort tveggja
í senn, mikill skólamaður og
mikill fræðimaður.
Verzlunarskóli íslands hefur átt
þá gæfu að mega njóta ævistarfs
dr. Jóns um meira en 45 ára skeið,
og hefur hann haft meiri áhrif á
mótun og þróun skólans en nokkur
annar maður. Dr. Jón hóf störf
sem kennari við skólann árið 1935,
fyrsti fastráðni kennail skólans,
en 1942 varð hann yfirkennari og
1952 tók hann við starfi skóla-
stjóra og gegndi því í 27 ár, þar til
hann lét af því starfi 1. sept. s.l.
vegna aldurs. Hann hélt þó áfram
kennslu við skólann í vetur og
hafði hug á að kenna á meðan
starfskraftar entust.
Á skólastjóratíma dr. Jóns hef-
ur Verzlunarskóli Islands stórlega
þurfti ekki að beita valdi. Þessi
stjórnsemi bar ekki síður góðan
árangur í starfi hans sem skóla-
stjóri gagnvart sístækkandi hópi
kennara og nemenda, enda mun
jafn góður samstarfsandi og ríkir
í Verzlunarskóla íslands vera fá-
gætur.
Dr. Jóni var umhugað um vel-
ferð og framtíð Verzlunarskólans.
Hugur hans fylgdist með því, sem
fram fór í menntunarstefnum
þjóðarinnar, og aðvörunarorð
hans gagnvart eftirgjöf, losi og
byltingum í menntunarmálum
hafa reynzt gild. Hann vildi ekki
kasta því burt, sem þrautreynt var
og árangursríkt, til að taka upp
lítt eða óreyndar nýjungar, sem
oft höfðuðu til meðalmennskunn-
ar einnar. Hann gekk að því sem
lögmáli lífsins, að jafn réttur
táknar ekki, að allir skulu verða
eins. Þeir, sem gæddir eru góðum
gáfum, þurfa að fá að nýta þær
öllum til góðs. Allar framfarir
mannkynsins hafa þróast fyrir
tilstilli þeirra, sem skarað hafa
framúr á hverjum tíma.
Dr. Jón bar mjög fyrir brjósti,
hvernig nemendum hans vegnaði í
lífsbaráttunni. Hlýhugur og ein-
læg vinátta hans kom vel fram í
þeim hugvekjum, sem hann gaf
nemendum sínum og öðrum, sem á
hlýddu, við upphaf og lok hvers
skólaárs. í þessum hugvekjum
kom vel fram viðhorf hans til
lífsins og tilverunnar, og hin
djúpa virðing, sem hann bar fyrir
höfundi lífsins og skapara okkar.
Hann leit lífið og þróun mann-
kynsins í stærra samhengi og af
hærra sjónarhóli en mörgum öðr-
um okkar er gefið.
Auk hinna miklu starfa fyrir
Verzlunarskólann lagði dr. Jón
stund á þýðingar úr fjarskyldum,
erfiðum tungum. Orðgnótt hans,
kjarngott, hnitmiðað íslenzkt mál
kemur glöggt fram í þessum
þýðingum, svo að aðdáun og virð-
ingu vekur. Skilningur hans á efni
og innihaldi var slíkur, að líkara
er, að þær bókmenntir séu samdar
á íslenzku en að þýddar séu. Slíkt
verk er þrekvirki, og lýsir vel
atorku og þrautseigju dr. Jóns.
Hann hefur lýst því þannig, að
þegar hann var að berjast við að
þýða gríska harmleiki á okkar
tungu, hafi sér verið eigi ólíkt
innanbrjósts og Sisýfosi, sem var
að bisa við að velta heljarmiklu
bjargi upp bratta fjallshlíð, en
þegar hann hugði sig einmitt vera
að mjaka steininum upp á fjalls-
brúnina, valt hann jafnharðan
niður aftur. Samt stappaði þetta
torleiði stálinu í dr. Jón.
í starfi mínu í skólanefnd Verzl-
unarskólans hefur mér orðið ljós-
ara en áður, hve mikið og óeigin-
gjarnt ævistarf dr. Jón Gíslason
hefur innt af hendi í þágu Verzl-
unarskóla Islands, verzlunarstétt-
arinnar og íslenzku þjoðarinnar
allrar. í röðum nemenda dr. Jóns
hafa verið menn og konur, sem
hafa komizt til áhrifa og verið
falin forysta á flestum sviðum
þjóðlífsins í ríkari mæli en sem
svarar til stærðar skólans. Slíkur
árangur af starfi dr. Jóns sem
forystumanns í menntunarmálum
talar sínu ótvíræða máli. Árang-
urinn segir meira en mörg orð.
Fyrir hönd Verzlunarskóla ís-
lands þakka ég dr. Jóni Gíslasyni
45 ára ævistarf hans. Konu hans,
frú Leu, og sonum þeirra sendi ég
einlægar samúðar- og vinarkveðj-
ur, og vona, að Guð gefi þeim
nægan styrk.
Sigurður Gunnarsson,
formaður skólanefndar
Verzlunarskóla íslands.
Kveðja frá
Verzlunarráði íslands
I dag kveðjum við dr. Jón
Gíslason, fyrrverandi skólastjóra
Verzlunarskóla íslands, hinstu
kveðju. Sviplegt fráfall hans var
öllum, sem þekktu þennan mikil-
hæfa mann, harmafregn.
Dr. Jón Gíslason helgaði Verzl-
unarskóla íslands starfskrafta
sína í 45 ár og var skólastjóri
skólans frá árinu 1952, unz hann
lét af störfum fyrir aldurs sakir
s.l. haust. Á þessum árum hefur
Verzlunarskólinn tekið miklum
breytingum, stækkað og vaxið að
áliti og virðingu. Verzlunarskólinn
er í forystu viðskiptamenntunar í
landinu á sínu skólastigi og þang-
að sækja aðrir fyrirmyndir og
reynslu, enda stendur skólinn á
gömlum merg. Fyrir störf hans
við Verzlunarskóla Islands stend-
ur Verzlunarráð Islands og við-
skiptalífið í landinu í ævarandi
þakkarskuld við dr. Jón Gíslason.
Hann var unnandi klassískra
fornmennta og íslenzkra. Þýð-
ingar hans og útgáfustörf og starf
hans sem skólamanns efldu hvert
annað. Störf hans eru árangur
mikillar umhugsunar mikilhæfs
fræðimanns, er stóð föstum fótum
í íslenzku þjóðlífi.
Dr. Jón auglýsti ekki ævistarf
sitt, heldur rækti það af hógværð
og lítillæti eins og einkennir
marga mikilhæfa menn. Áratuga
skólastarf í þágu viðskiptamennt-
unar í landinu, útgáfa fjölda
kennslubóka og snilldarlegar þýð-
ingar hans standa nú eftir sem
varanlegur minnisvarði um giftu-
drúgt ævistarf.
Verzlunarráð Islands hefur átt
langt og ánægjulegt samstarf við
dr. Jón Gíslason. I því samstarfi
var hann veitandinn og ráðgjaf-
inn. Þau störf hans fyrir Verzlun-
arráðið verða seint fullþökkuð.
Eftirlifandi konu hans, Leu Egg-
ertsdóttur, og öllum aðstandend-
um sendi ég innilegustu samúð-
arkveðjur.
Hjalti Geir Kristjánsson
Kveðja frá stjórn
nemendasambands
Verzlunarskólans
Hlekkur er brostinn. Dr. Jón
Gíslason skólastjóri Verzlunar-
skóla íslands er í dag kvaddur
hinztu kveðju. Þúsundir Verzlun-
arskólanemenda minnast þakklát-
um huga framúrskarandi fræði-
manns, frábærs læriföður og sér-
stæðs persónuleika.
Kennsla í 44 ár við sama skóla,
og þar af skólastjórn í 27 ár,
markar djúp spor á báða bóga hjá