Morgunblaðið - 25.01.1980, Síða 14

Morgunblaðið - 25.01.1980, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 1980 Khomeini með hjartakvilla Al* 21. jan. FRANSKA útvarpio skýrði írá því í dag, að Khomeini erkiklerkur hefði verið lagður inn á hjartadeild Rezasjúkra- hússins í Teheran vegna hjartakvilla. Frét.tin var höfð eftir tals- manni Khomeinis í Qom, en var ekki grunduð nánar. Lækn- ar klerksins sögðu fyrr í dag, að “ líðan hans væri góð og engin ástæða til að óttast" en hann myndi þó verða viðloð- andi sjúkrahúsið meira og minna fram til 9. febrúar. I gær hvöttu byltingarverð- irnir við bandaríska sendiráðið til að beðið yrði fyrir Khomeini um landið þvert og endilangt. /^Dcilc ♦ Carnegie námskeiðið Kynningarfundur verður haldinn þriöjudaginn 29. janúar kl. 20.30, aö Síöumúla 35 uppi. Námskeiðiö getur hjálpaö þér aö: ★ Öölast meira hugrekki og sjálfstraust. ir Láta í Ijósi skoöanir þínar af meiri sannfær- ingarkrafti í samræöum og á fundum. ★ Stækka vinahóp þinn, ávinna þér viröingu og viöurkenningu. Starfa af meiri vinnustaö. lífskrafti — heima og á ir Halda áhyggjum í skefjum og draga úr kvíöa. Veriö velkomin aö kynnast því sem Dale Carnegie getur gert fyrir þig. Upplýsingar í síma 82411 DAl.F, CAKNF.GIf. \AMSKFllll V Einkaleyfi á islandi STJÓRNUNARSKOLINN Konráð Adolphsson SINDRA Símamynd Al*. Forseti Afganistan þakk- ar „innilega46 fyrir hjálpina V-þýzku vörubílstjórarnir týndu eru fjórir en ekki tveir Conf 21. jan. Al' AFGANSKIR uppreisnarmenn munu að líkindum hafa ráðizt á þýzku vöruflutningahílana, sem voru á ferð gegnum Afganistan, og frá var sagt í hlaðinu í dag, fimmtudag. Er nú einnig álitið að fjórir menn hafi verið í hilunum í stað þess að álitið var að einn hefði verið í hvorum híl. Ilerma óstaðfestar íregnir að Afganir hafi drepið einn hílstjórann og tekið þrjá til fanga. Samtök vöruflutningabílstjóra á langleiðum sem hafa bækistöðv- ar í Sviss sögðu að þetta hlyti að hafa gerzt fyrir hörmuleg mistök, því að bílarnir hefðu aðeins verið í venjulegum flutningum en líklega hefðu uppreisnarmenn talið þá á snærum stjórnarinnar. Sem fyrr berast nú engar fregn- ir beint frá Afganistan en AP fréttastofan kveðst hafa það eftir traustum heimildum að hinn nýi forseti landsins hafi sagt að lög og reglu hefði verið komið á aftur í landinu og tekizt hefði að bæla niður and kommúniska uppreisn. Forsetinn mun og hafa látið í ljós “ innilegt þakklæti" til Sovét- manna fyrir aðstoð þeirra, sem veitt hefði verið á öldungis réttum tíma. Hann sagði að Bandaríkin og Kína hafi ætlað sér að umturna marxistastjórninni í Kabul, en það hefði mistekizt vegna ómetan- legrar hjálpar Sovétmanna. Neikvæðar heilabylgjur I,a Jolla. Kalifornín. 23. jan. — AP. TVEIR bandarískir heilasér- fra“ðingar, dr. Steven Ilillyard og dr. Marta Kutas. vió Kali- forníuháskóla í San Diego. segjast hafa fundið áður óþekkta neikva'ða heilahylgju. sem menn gefa frá sér þegar eitthvað stangast á við rökrétta hugsun þeirra. Sérfræðingarnir tveir hafa undanfarið hálft annað ár unnið að rannsóknum á rúmlega 100 sjálfboðaliðum, aðallega nem- endum, og viðbrögðum þeirra við margs konar spurningum. Kom í Ijós að þegar spurn- ingarnar voru ekki rökréttar, eða setningunum lauk á annan veg en þær hófust, mældust þessar neikvæðu bylgjur frá heilanum. Sem dæmi um setn- ingarnar, sem lagðar voru fyrir nemendurna, má nefna: „Hann fékk sér sopa af fossinum", og „ég drekk kaffið með rjóma og hundi". Dr. Hillyard sagði að þessar neikvæðu heilabylgjur gæfu til kynna hvenær viðkomandi hik- aði til að hugsa sig um og heimfæra merkingu þess, sem fyrir hann væri lagt. STALHE Fyrirliggjandi í birgðastöð Bitajárn Allar algengar stæröir U.N.P. H.E.B. H I.P.E. I Borgartúni31 sími27222 Hrotur geta verið meinhættulegar Drnvor. ('olorado. 23. jan. AI\ IIÁV/ERAR hrotur geta verið hráðha'ttulegar heilsu manna. og ekki aðeins aðhlátursefni eða ergelsismál maka i viðkom- andi tilvikum. segir í skýrslu sérfra'ðinga um svefn og heil- hrigði sem var hirt í dag. Að skýrslugjörðinni standa Iludgel og I)avid Shuchard sem er doktor í taugasjúkdómum, og starfra'kja sérstaka rannsókn- arstofu um svefnfarir manna. Þar segir að miklar hrotur hindri eðiilega öndun, svefninn verði þar af leiðandi óværari og nýtist ekki til þeirrar hvíldar sem hverjum manni sé nauð- synleg. Ástæðan sé í flestum tilfellum of stórir háls eða nef- kirtlar, og einnig gæti þessa hjá óeðlilega digru fólki. Þar af leiði að sá sem hrjóti stöðugt og mikið sé þreyttári en ella að morgni, honum hætti einnig til að vakna oftar upp á nóttunni og geta ekki fest blund á ný fyrr en eftir langa mæðu og þar með séu komnir af stað aðskiljanlegir erfiðleikar. I skýrslunni segir að svefnleysi hafa aðallega verið kannað af geðlæknum og sálfræðingum, en ljóst sé að viðurkenna verði einnig líkamlega kvilla sem ástæður fyrir litlum eða gagns- litlum svefni. Tverdokhlebov frá Sovétríkjunum VinarhorK 21. jan Al\ SOVÉZKI eðlisfra-ðingurinn And- rei Tvordokhlebov. sem hefur lengi verið náinn samstarfsmaður Sakh- arovs í baráttu fyrir auknum mannréttindum. kom til Vínar- horgar með lest frá Sovétríkjun- um. Ilann hyggst halda forinni áfram til Bandarikjanna. hvar móðir hans og nokkrir aðrir ætt- ingjar búa. Tverdokhlebov var um hríð ritari Moskvu deildar Amnestysamtak- anna. Hann var tekinn höndum árið 1976 og dæmdur til fimm ára útlegðar fyrir undirróðursiðju. Hann var náðaður nýlega og fékk síðan brottfararlevfi úr landi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.