Morgunblaðið - 25.01.1980, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 1980
29
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
“fr n
inn svipur á suma, ef farið væri
að krefjast rannsókna á þessum
eiginleikum karlframbjóðenda.
5. Má vera einhleyp. Þetta krefst
skýringa. Er þetta ekki undir-
strikun á, að sá sem samið
hefur eiginleikaprófið er kona,
full vanmáttarkenndar gagn-
vart karlpeningnum? Hver er
meiningin, eftir alla þessa upp-
talningu á kostum þeim, er
viðkomandi frambjóðandi á að
hafa til að bera, með því að
undirstrika síðan, að hún megi
standa á eigin fótum?
Án nánari skýringa teljum við
að hin góða grundvallarhugsun,
sem örugglega býr að baki þessu
framtaki, falli algjörlega í skugg-
ann fyrir afbakaðri útfærslu.
Konur með jafnréttiskennd.“
• Samstjórn
„í alþingiskosningum kýs þjóðin
sér fulltrúa úr öllum stjórnmála-
flokkum. Hún hlýtur því að ætlast
til að allir flokkar vinni saman og
stjórni málum eftir hlutdeild
hvers og eins. Niðurstöður kosn-
inga geta ekki leitt til annarrar
niðurstöðu, að réttu lagi.
Að útiloka einn eða fleiri stjórn-
málaflokka frá þátttöku í stjórn,
hlýtur því að vera gagnstætt vilja
kjósenda. Þjóðstjórn, stjórn allra
flokka, er hið eina sem samrýmist
vilja kjósenda. Og framgangur
mála á alþingi skyldi vera háður
áliti hvers þingmanns, en ekki
þröngra flokkssjónarmiða.
í þjóðstjórn ætti líka að vera
meiri möguleiki til frjálsra við-
horfa hvers eins þingmanns, og
fylgi hans við einstök mál ætti
ekki að vera eins bundið við klafa
eigin flokks. Samhugur allra þing-
manna þjóðarinnar og samvinnu-
vilji er hið eina, sem leyst gæti
þau vandamál, sem við er að glíma
hverju sinni. 0 0“
• Um sjúkra-
flutninga
Kona, sem vildi láta nefna sig
nöldurskjóðu, óskaði eftir að koma
eftirfarandi á framfæri:
— Ég vil fá að þakka sjónvarp-
inu fyrir ágætan þátt í Kastljósi
fyrir nokkrum vikum þar sem
fjallað var um hjartasjúkdóma og
sjúkraflutninga. Þar kom fram að
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á heimsmeistaramóti sveina í
Belfort í Frakklandi í sumar kom
þessi staða upp í skák þeirra K.
Hansens, Danmörku, sem hafði
hvítt og átti leik, og G. Mass
Garcia, Mexíkó.
13. Bxf7+! - Kxf7,14. Dc4+ - d5
(Ef 14 ... Ke7 þá 15. Rd5+) 15.
Dxd5+ - Ke7, 16. f5! - Ha6, 17.
Bg5+ — IIf6,18, De6 mát.
Þeir Tcmpone, Árgentínu og
Short, Englandi urðu jafnir og
efstir á mótinu með 8V2 v. af 11
hvor. Argentínumaðurinn var
síðan úrskurðaður sigurvegari á
stigum.
þeir einu sem lifa af hjartatilfelli
eru þeir sem njóta strax aðstoðar
þeirra sem kunna blástursaðferð
og helst líka hjartahnoð. Og nú
þegar verið er að opna nýja
Slysavarðstofu finnst mér að taka
þurfi til endurskoðunar skipulag
sjúkraflutninga og athuga hvort
ekki þurfi að samræma þá meira
við spítalana, að þar séu tiltækir
sjúkrabílar sem læknar geti farið
með þegar sinna þarf bráðatilfell-
um af þessu tagi. Mér fyndist það
verðugt verkefni fyrir þá sem
standa að sjúkraflutningum að
þjálfa sjúkraflutningainenn sér-
staklega fyrir þessi tilfelli. I þessu
sambandi langar mig einnig til að
minnast á að við erum að senda
lækna til hjálparstarfa úti í heimi,
sem er í sjálfu sér ekki athugavert
nema vegna þess að nú eru víða
um landið ómannaðar eða illa
mannaðar heilsugæslustöðvar og
ættum við ekki að hugsa um þær
líka?
• Óvönduð mynd
Þá vildi ég aðeins mega gagn-
rýna hina nýju framhaldsmynd í
sjónvarpinu sem Ragnheiður
Steindórsdóttir leikur í og segja
að mér finnst hún ekki nógu
vönduð og held að mynd sem þessi
með geðfúlum byssuhetjum og
tilheyrandi rúmsenum eigi ekki
erindi inn á heimilin, heldur eigi
að sýna aðeins í kvikmyndahús-
um. Ragnheiður stendur sig með
sérstakri prýði í myndinni, en það
er erfitt fyrir íslensk heimili að
útiloka að börnin sjái svona mynd,
það er erfitt að senda ung börn í
háttihn þegar örlítið eldri börn fá
kannski að horfa, þannig að mér
finnst myndin eigi betur heima í
bíói.
• Engin takmörk?
I framhaldi af þessu mætti
spyrja hvort erlend sendiráð geti
óhindrað haft eins marga erlenda
starfsmenn og þau vilja og keypt
eins mörg hús og þau þykjast
þurfa? Jaðrar það nánast ekki við
landráð að láta af hendi svo
miklar húseignir og margar að
hægt sé að hafa riæstum því heilt
þorp erlendra starfsmanna til
ýmissa athafna hérlendis?
a3r> SIG&A V/GGÁ Í iiLVtmi
Ummmm /to ^áauyl-i
\iAN/\ ÓLöxO
tfftV/viM' AILAW A\9;
UiV-
móo m-:
i
LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F.
LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK SIMI 85811
30—60%
afsláttur
Seljum næstu daga meö miklum afslætti. Húsgagna-
áklæöi og áklæðisbúta. Verö frá kr. 2.000,-
Sófasett áöur 490.000.- Nú 390.000.-
Stakur sófi áður kr. 140.000.- Nú 80.000.-
Stakir stólar frá kr. 25.000.-
V-/<É
yíElQuWo
VÚ UQ& V//5A/M/
\JEúYt ómv!5ú\N
\IIQ) Ví()5\9