Morgunblaðið - 30.01.1980, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 30.01.1980, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 1980 15 Hneyksli innan samtaka flutningaverkafólks í Svíþjóð: Formanni og varafor- manni vikiö úr embætti Stokkhólmi — 29. janúar — AP. STJÓRN samtaka flutninga- verkamanna samþykkti eftir 18 klukkustunda fund að víkja formanni og varaformanni sam- takanna úr embætti vegna meintra skattsvika. Formanninum, Hans Ericson, og varaformanninum, Alvar Aas- lund, er gefið að sök að hafa falsað reikninga um ferðakostnað á ár- unum 1973—1977 og þannig svikið út miklar fjárhæðir sem þeir hafi ekki greitt skatta af. Um það bil 25 starfsmönnum samtakanna er gefið að sök að hafa stundað samsvarandi fjárdrátt. I tilkynningu samtakanna í dag sagði, að brottvikning Ericsons og Aaslund væri ill nauðsyn í fram- haldi af uppljóstrunum um meint fjármálamisferli innan samtak- anna. Aaslund hefur ákveðið að áfrýja ákvörðuninni til ársþings samtakanna, sem hefur úrslita- vald, . en ekki er vitað hvort Ericson gerir það einnig. Ósló. Washington Rómaborg. London. 29. janúar. AP. TALSMENN Ólympiunefndar og íþróttasambands Noregs sögðu í dag að erfitt yrði að samþykkja, að sent yrði lið norskra íþróttamanna á Ólympíuleikana í Moskvu. Væri það niðurstaða viðræðna við full- trúa allra 36 sérgreinasambanda innan norska íþróttasambandsins. ólympíunefndin tæki úr því sem komið væri ekki afstöðu til þess hvort íþróttamenn yrðu sendir eða ekki fyrr en eftir fund Alþjóða Ólympiunefndarinnar i Lake Piacid í næsta mánuði, en þó fyrir 15. mai næstkomandi. þegar frestur til að tilkynna þátttöku rennur út. I sameiginlegri tilkynningu Ól- ympíunefndarinnar og samband- MacArthur þáði hálfa milljón dollara að gjöf frá Filipseyjaforseta Boston. Massachusetts. 29. jan. AP. SAGNFRÆÐINGUR við Boston College skýrði frá því í dag, að Douglas MacArthur hershöfðingi hefði skömmu fyrir innrás Jap- ana á Corrigedoreyju 1942, þegið hálfa milljón Bandarikjadala að gjöf frá þávcrandi forseta Filips- eyja, Manuel Quezon. 3. janúar 1942 hefði forsetinn, sem þá var heilsutæpur, gefið út gjafabréf fyrir gjöfinni, og hefði þremur aðstoðarmönnum hers- höfðingjans verið gefnir 140,000 dollarar að auki. Samkvæmt bandarískum herlögum hefði gjöf- in verið ólögmæt, en Roosevelt forseta og Henry Stimson stríðs- málaráðherra hefði verið kunnugt um hana, samkvæmt bréfi stríðs- málaráðuneytisins til Chase Manhattan-banka, sem sagnfræð- ingurinn komst yfir í opinberum skjölum. Sagnfræðingurinn fann gjafa- bréf Filipseyjaforseta á skjala- safni, og sagði þar að gjöfin væri gefin „vegna framúrskarandi að- stoðar við Samveldið Filipseyjar". Quezon forseti og fjölskylda hans flýðu til Bandaríkjanna um borð í bandarískum kafbáti rétt fyrir innrás Japana og þar lézt forsetinn tveimur árum seinna. anna sagði, að megnrar andúðar gætti í Noregi á innrás Sovétmanna í‘ Afganistan og handtöku Sakh- arovs. Ef ástandið í Sovétríkjunum breyttist ekki til muna yrði það erfið ákvörðun að samþykkja þátttöku norskra íþróttamanna í leiknum. Forsetar Ólympíunefnda ríkja Efnahagsbandalagsins (EBE) og ef til vill fulltrúar frá 5—6 Evrópuríkj- um til viðbótar, koma saman í Frankfurt í lok vikunnar, þar sem kannað verður hvort hægt er að mynda sameiginlega afstöðu til Ól- ympíuleikanna í Moskvu. Franco Carraro, forseti Ólympíunefndar Italíu, en hann er hlynntur þátttöku í leikunum og að ekki verði blandað saman íþróttum og stjórnmálum, sagði að illt væri ef Evrópuríki yrðu sundruð í afstöðunni til þátttöku í Ólympíuleikunum í Moskvu. Nefnd sú innan öldungadeildar Bandaríkjaþings samþykkti í gær- kvöldi með 14 samhljóða atkvæðum áskorun til bandarískra íþrótta- manna og áhugafólks um íþróttir að fara ekki til Ólympíuleikanna í Moskvu, haldi Alþjóða Ólympíu- nefndin við fyrri ákvarðanir um að leikarnir fari þar fram. Brezka fjölbragðaglímusambandið samþykkti í dag að senda íþrótta- menn til Ólympíuleikanna, en að þeir mættu hvorki til setningar — eða lokaathafnar leikanna í mót- mælaskyni við innrás Sovétmanna í Afganistan. Þetta gerðist 1972 — Pakistan fer úr brezka samveidinu. 1967 — Podgorny, forseti Rússa, gengur á fund Páls páfa. 1965 — Útför Churchills. 1%4 — Nguyen Khanh hers- höfðingi tekur völdin í Saigon. 1948 — Mahatma Gandhi ráðinn af dögum í Nýju Delhi. 1943 — Rússar gersigra þýzka herinn við Stalíngrad. 1941 — Hersveitir Wavells taka Derna og sækja til Benghazi. 1933 — Adolf Hitler skipaður kanzlari Þýzkalands. 1915 — Fyrsta kafbátaárás Þjóðverja án viðvörunar út af Le Havre. 1902 — Bretar gera samning við Japani með ákvæðum um sjálf- stæði Kína og Kóreu. 1875 — Lýðveldisstjórnarskrá samþykkt í Frakklandi með eins atkvæðis mun. 1840 — Kínakeisari bannar alla verzlun við Breta. 1835 — Misheppnað banatilræði við Andrew Jackson forseta — fyrsta tilraun til að ráða banda- rískan forseta af dögum. 1649 — Karl I Englandskonung- ur hálshöggvinn. 1648 — Friðarsamningur Spán- verja og Hollendinga í Múnster. 1641 — Svíar ráðast á Regens- burg og Ferdinand keisari III sleppur naumlega = Portúgalar láta Malakka af hendi við Hoi- lendinga. 1522 — Lýbikkumenn segja Dönum stríð á hendur og leggja Borgundarhólm í eyði. Aímæli — W.S. Landor, brezkur rithöfundur (1775-1864) = F.H. Bradley, brezkur heimspekingur (1846—1924) = Franklin Delano Roosevelt, bandarískur forseti (1882-1945) = Vanessa Red- grave, brezk leikkona (1937-). Andiát — 1888 Edward Lear, Talsmaður norsku Qlympmnefndariimar: Erfitt að samþykkja þátt- töku norskra íþróttamanna Veður Akureyri -10 skýjað Amsterdam 3 skýjaö Aþena 10 heiðskírt Barcelona 13 þokumóða Berlín -4 heiðskírt Brússel 6 þokumóða Chicago 11 skýjaö Dublin -9 skýjað Feneyjar 3 léttskýjað Frankfurt 0 skýjaö Genf 5 heiðskírt Helsinki -7 snjókoma Jerúsalem 10 skýjað Jóhannesarborg 26 heiðskírt Kaupmannahöfn 0 snjókoma Las Palmas 19 lóttskýjaö Lissabcn 18 heiðskírt London 6 skýjað Los Angeles 15 rigning Madrid 16 skýjað Malaga 15 hólfskýjað Mallorca vantar Miami 24 skýjað Moskva -18 heiöskirt New York 1 heiðskírt Ósló -6 skýjað París 5 léttskýjað Reykjavík 1 skýjað Rk> de Janeiro 30 skýjað Rómaborg 11 skýjad Stokkhólmur -9 skýjað Tel Aviv 17 skýjað Tókýó 11 skýjaö Vancouver -1 skýjað Vinarborg -3 skýjað ALIVILL SLÁST í TEHERAN Bomhay. 29. janúar, AP. MUHAMMAD Ali. fyrrum heims- meistari í hnefaleikum. segist vera fús til að keppa við núvcrandi heimsmeistara í Teheran ef það megi verða til að gíslarnir i banda- ríska sendiráðinu þar verði látnir lausir. Ali sagði, að taka gíslanna væri í mótsögn við boðskap múhameðstrú- ar. Gíslarnir hafa verið í haldi í um þrjá mánuði. Gull hækkar London — 29. janúar — AP. VERÐ á gulli var nokkuð óstöð- ugt á gjaldeyrismörkuðum í Evr- ópu i dag, en við lok viðskipta hafði únsan þó hækkað um rúma 20 dollara. Seldist únsan á 645 dollara i upphafi viðskipta í London, en hækkaði fljótt í 665 dollara. í Zúrich kostaði gullið 668 dollara. Staða dollarans breyttist lítið gagnvart helztu gjaldmiðlum. 21 saknað eftir árekstur skipa St. PetersburK. 29. janúar. AP. KA^ARAR fundu í dag lík fjög- urra manna af áhöfn handariska strandgæzluskipsins Blackthorn, sem brotnaði í tvennt og sökk eftir árekstur við olíuskipið Capricorn í mynni Tampaflóa í gærkvöldi. Saknað er 21 manns úr áhöfn strandgæzluskipsins og er óttast að þeir hafi allir farist, en af áhöfninni björgðust 128 manns. Engin slys urðu á áhöfn olíu- skipsins, og ekki kom Ieki að skipinu en það strandaði skömmu eftir áreksturinn. Skipið er 176 metra langt. Einn úr áhöfn strandgæzluskips- ins sagði, að bjalla, sem gæfi til kynna árekstrarhættu, hefði farið af stað um borð í skipinu og að áreksturinn hefði orðið í mesta lagi fimm sekúndum seinna. Hann sagði að ekkert svigrúm hefði verið til að varpa út björgunarbátum, skipið hefði sokkið strax eftir áreksturinn. Þeir sem komust af hefðu bjargað sér á sundi. rithöfundur = 1948 Orville Wright, flugmaður = 1963 Fran- cis Poulenc, tónskáld Innlent — 1835 Fyrsti árgangur „Fjölnis" = 1897 Iðnó vígt = 1959 Lög um niðurfærslu gefin út = 1962 Þrír fórust í Látraröst = 1877 f. Sigfús Einarsson tón- skáld. Orð dagsins — Grunnhyggnir menn trúa á heppni — Ralph Waldo Emerson, bandarískur rithöfundur (1803—1882). Durante er látinn Hollywood, 29. janúar. AP. NEFSTÓRI grínistinn Jimmy Durante lézt á sjúkrahúsi í Santa Monica í dag, 86 ára að aldri. Durante þjáðist af lungnabólgu. ERLENT High Fidelity Hljómgæði í sjónvarpsútsendingu í dag eru ekki eins góð og þau gætu verið. Sjónvarpsstöðvar senda ekki ennþá út HiFi hljóð og margar gerðir sjónvarpstækja vantar hljóðflutningskerfi sem ná fullkomnum hljómgæðum. Hljóðhluti nýja K12 tækisins notar bassa-reflex hátalarakerfi með bassa-keilu fyrir lágu tónana og hátóna-keilu fyrir hátónana. Þegar útsendingar á HiFi hef jast, er fyrir hendi í tækinu kraftmikill magnari sem skilar til hlustenda hámarksgæðum. Philips með eölilegum litum heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 —15655

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.