Morgunblaðið - 30.01.1980, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 1980
25
fclk í
fréttum
Fight back
Hataðasta andlitið
+ Við sögðum frá því hér fyrir
skömmu að nú væri hægt að fá í
byssubúðum vestur i Ameriku
Khomeiniskotskífur.
Nú hafa auglýsingamenn þar
vestra, sem búa til vegaskilti
meðfram þjóðvegum. fundið
leið til þess að vekja almenning
til umhugsunar um nauðsyn
þess að þjóðin spari orkuna.
Nota þeir tii þess andlitsmynd
af „hataðasta andlitinu i
Bandaríkjunum" — mynd af
Ayatollah Ruhollah Khomeini,
eins og stendur í textanum með
þessari AP-fréttamynd. — Slík
skilti hafa undanfarið sprottið
upp í San Francisco og út um
allar sveitir norðanverðrar
Kaliforniu likt og gorkúlur á
haug. — Almenningur er hvatt-
ur til að hefja GAGNSÓKN! -
Aka ekki bilum sínum hraðar
en 55 mílur — spara orkuna. —
bað segir að þessi orkusparn-
aðar-hernaður hafi borið um-
talsverðan árangur.
Jarðarför í Belfast
Enn
tíðinda-
laust á
Sardiníu
+ Enn situr allt við sama
suður á Sardiniu i mann-
ránsmálinu, en mannræn-
ingjar þar á eyjunni
rændu brezkri fjölskyldu
þar í sumar er leið. Enn
eru mæðgurnar í haldi,
kona Rolfs Schilds og 14
ára gömul dóttir hans.
Heimilisfaðirinn hefur
haft samband við mann-
ræningjana. Hefur hann
verið önnum kafinn við að
mæta kröfum þeirra um
lausnargjald fyrir mæðg-
urnar. Um skeið, síðsum-
ars, taldi hann sifelld
blaðaskrif um málið skaða
allar tilraunir sínar til
þess að komast að sam-
komulagi við mannræn-
ingjana. Bað hann marga
blaðamenn, sem komnir
voru til eyjarinnar til þess
að fylgjast með framvindu
málsins, um að fara heim
aftur. Munu fjölmiðlar
hafa orðið við þessari ósk
mannsins. Nú segir frá
því í blöðum, að um miðj-
an þennan mánuð hafi
Rolf Schilds enn orðið að
fara heim til Bretlands,
enn einu sinni hafi slitnað
upp úr samningunum við
mannræningjana, en þeir
krefjast nú 2—5 milljarða
isl. króna i lausnargjald
fyrir mæðgurnar.
+ Þessi mynd er tekin fyrir
skömmu i Belfast á írlandi er
þar fór fram útför frú Maguire.
Það er eiginmaður hennar,
Jackie Maguire, sem hér er einn
likmannanna. Litli drengurinn
sem gengur á eftir kistunni er
sonur þeirra hjóna, Mark, 10
ára. Þau hjónin og þá einkum
hin látna eiginkona, sem var 34
ára, var mjög i sviðsljósinu
ofbeldisfregnanna frá Belfast á
árinu 1976. — í þeim stöðugu
átökum sem eiga sér stað i
borginni, gerðist það einn dag-
inn að hryðjuverkamenn sem
voru akandi í bil drápu þrjú
börn þeirra hjóna. — Friðar-
samtök kvenna i Belfast voru
þá stofnuð uppúr því. — Og á
árinu 1976 hlutu þessi samtök
Friðarverðlaun Nóbels. — Þau
munu nú að mestu tilheyra
iiðinni tíð. — En svo gerðist
það 21. janúar síðastliðinn að
frú Maguire fannst látin á
heimili sínu í Belfast. Voru
áverkar á likinu, skurður á
hálsi og púlsinn skorinn.
Orkusamvinna Dana
og Norðmanna dregst
Ósló, 28. janúar. AP.
RAUNHÆFAR viðræður
uiti aukna orkusamvinnu
við Dani geta ekki hafizt
fyrr en í árslok 1980 eða
ársbyrjun 1981 að sögn
Bjartmar Gjerde orkuráð-
herra í gær,
Hann staðfesti að orkumál
hefðu verið á dagskrá óformlegra
viðræðna forsætisráðherranna
Odvar Nordlis og Anker Jörgen-
sens í Kaupmannahöfn um síðustu
helgi. En hann kvaðst ekkert vita
um nýjar orkuviðræður sem væru
fyrirhugaðar í næstu viku og sagði
að engar formlegar áætlanir
lægju fyrir um slíka aukna sam-
vinnu eins og greint hefði verið frá
í danska blaðinu Aktuelt.
Sérfræðingar í orkumálum hafa
áður lýst því yfir að taka muni
einn eða tvo áratugi að undirbúa
sameiginlegt skandinaviskt gas-
dreifingarkerfi með þátttöku
Dana, Svía og Norðmanna. Svíar
hafa einnig áhuga á jarðgasi úr
Norðursjó, en hafa ekkert dreif-
ingarkerfi.
Loksins
snjóar
Lake Placid, 28. janúar. AP.
OFANSNJÓR var í Lake Placid í
gær, sunnudag, og var tími til
kominn, þar sem óttast var að
ella kynni illa að fara fyrir
Vetrarólympíuleikunum, sem
hefjast í borginni eftir rúmar
tvær vikur.
Aö innan algjörlega fullbúin, setustofa, borðstofa, 2
svefnherb., eldhús með öllum búnaði, baðherbergi
m. vatnsklósetti og sturtu, öll húsögn í öllum herb.
Aö utan klætt með áli, byggt á stálgrind, lengd
7,50—10 metrar. Breidd 3 metrar, þyngd 1500 kg. til
2500 kg.
Auðvelt að flytja á vörubfl hvert á land sem er. Verðin
eru ca. frá 5 til 9 milljónir. Húsin verða eingöngu flutt
inn gegn staöfestum pöntunum.
Gísli Jónsson & Co h.f.
Sundaborg, sími 86644.
Sumarhus