Morgunblaðið - 02.02.1980, Page 1

Morgunblaðið - 02.02.1980, Page 1
44 SÍÐUR OG LESBÓK 27. tbl. 67. árg. LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1980 _____________________________Prentsmiðja Morgunhlaðsins. Varaformaður sovézku ólympíunefndarinnar: Sovézkir hermenn verða í Af ganistan eins lengi og þarf París, 1. febrúar. AP. „MOSKVU Ólympíuleikarnir verða haldnir eins og fyrirhugað er, þrátt fyrir hótanir um að hundsa þátttöku og sovézkir her- menn verða um kyrrt í Afganist- an eins lengi og ástæða er talin til þess.“ sagði Vitaly Smirnov. fran. 1. febrúar. AP. TUGÞÚSUNDIR manna fóru í göngu til sjúkrahússins i Teheran þar sem Khomeini erkiklerkur ligg- ur rúmfastur til að votta honum hollustu og biðja honum bata. Segir í fréttum, að þetta hafi verið fjölmcnnasta ganga þar um all- langa hríð. Karlar og konur grétu hástöfum, hrópuðu stuðningsyfir- lýsingar við Khomeini og slagorð gegn Bandarikjamönnum og fyrr- verandi keisara. Þegar til sjúkra- hússins kom tókst mönnum að lægja tilfinningaólguna nokkuð til að raska ekki um of ró hins sjúka erkiklerks. Að bænagjörð lokinni fór allmikið f jölmenni til háskólans í borginni þar sem guðsþjónusta fór fram og hvatt var til að menn stæðu einhuga um íslömsku bylt- inguna. Þess var og víða minnzt um varaformaður sovézku Ólympíu- nefndarinnar. á fciknafjölmenn- um hlaðamannafundi i París i dag. Ilann bætti við, að hann væri þeirrar trúar, að „skynsem- in myndi sigra að lokum og að Bandaríkin myndu taka þátt í leikunum“. landið, að ár var í dag liðið frá því |, Khomeini sneri heim. Fór það friðsamlega fram. Sendiherra írans í Kanada, Mo-1 hammed Adeli, sagði fréttamönnum' í Ottawa í dag, að samkomulag um að láta lausa gíslana fimmtíu í sendiráðinu kynni að dragast á langinn vegna þeirrar reiði sem það hefði vakið með mönnum, þegar spurðist að sex bandarískir sendi- ráðsstarfsmenn hefðu sloppið úr landi með kanadísku diplómötunum í vikunni. Takmarkaðar fréttir hafa borizt úr Kúrdahéruðum, en þó er hermt að þar hafi víða komið til átaka og vitað er að nokkrir leiðtogar Kúrda hafa sent Khomeini beiðni um að beita sér persónulega fyrir því að blóðbað- ið í Kúrdistan verði stöðvað. Smirnov, sem er á leið frá Moskvu til Mexiko og Lake Placid, lagði margsinnis á það áherzlu, að stjórnmálum og íþróttum skyldi ekki blandað saman og engar slíkar hótanir myndu þvinga Sov- étríkin til að breyta stefnu sinni. Aðspurður um hvað Sovétríkin myndu gera ef einá ráðið til að bjarga leikunum væri að 85 þús- und sovézkir 'hermenn færu frá Afganistan sagðist hann ekki bera ábyrgð á veru þeirra þar en vitnaði til orða Brezhnevs forseta Sovétríkjanna um að hermennirn- ir yrðu fluttir þaðan, þegar hætt- an á hernaðaríhlutun frá Pakistan vofði ekki lengur yfir. Smirnov sagði aðspurður að hann skildi fullvel ástæðu margra Afríkuríkja fyrir því að hundsa 'leikana í Montreal 1976, en hann neitaði að nokkur hliðstæða væri milli þessa og hugsanlegrar al- mennrar hundsunar leikanna nú. Smirnov var margsinnis spurð- ur um afstöðu sína til Afganistans og brást hann á endanum argur við og sagði: „Ég er að gefa ykkur upplýsingar, en þið neitið að meðtaka þær — þið heimtið að tala öðrum tungum en ég.“ Smir- nov var spurður um, hvort alþýða manna í Sovétríkjunum vissi um framvinduna í Afganistan og svaraði: „Við í Sovétríkjunum vit- um að nokkur ríki hafa hótað að hætta þátttöku og að þeir sem gera það þekkja ekki sáttmála Olympíuleikanna." Þúsundir báðu Khomeini bata í Teheran í gær Alexander Ginzburg (t.v.) tók á móti konu sinni, Irinu, móður sinni og tveimur börnum er þau komu til Parísar í gær með vél Aeroflot. Fjölskylda Ginz- burgs laus frá Sovétríkjunum París. 1. febrúar. AP. SOVÉZKI andófsmaðurinn Alex- ander Ginzburg hitti loks á ný fjölskyldu sína í París í dag, en hana hefur hann ckki séð síðan í april, að hann var sendur úr landi, en fjöiskyldan fékk ekki að fara fyrr en nú. Eiginkona Ginz- burgs, Irina, tvö börn þeirra, sem eru fimm og sjö ára gömul. og aldurhnigin móðir Ginzburgs komu með Aeroflotvél frá Moskvu til Parísar síðdegis i dag. Fyrr hafði verið talið að fjöl- skyldan myndi halda áleiðis til Bandaríkjanna. Ljóst er að kjör- sonur þeirra hjóna Sergei Shi- bayev, sem styrrinn stóð um hvort fengi að fara úr landi hefur orðið eftir í Sovétríkjunum. Fram á siðustu stund hélt Irina Ginzburg fast við það að hún færi ekki án hans, en nú er álitið að fjölskyldan hafi verið flutt um borð í vélina. hvort sem hún vildi eða ekki. m mm j&e Maximo Cajal y Lopez, sendiherra Spánar i Guatemala, ræðir við fréttamenn fyrir utan spánska sendiráðið eftir að lögreglan réðst inn í húsið. Sendiherrann sagði að aðfarir lögreglunnar hefðu verið ruddafengnar og hún hefði rofið diplómatahelgi sendiráðsins. Krafa um 200 mílur um hverfis allt Grænland Kaupmannahófn i gær. LANDSTJÓRNIN á Grænlandi hefur krafizt þess af dönsku rikisstjórninni, að fiskveiðitak- mörkin verði færð út í 200 sjómílur umhverfis allt Græn- land að því er formaður græn- lenzku landstjórnarinnar, Jona- than Motzfeldt, sagði í gær í viðtali við Kristeligt Dagblad. Hingað til hefur aðeins verið 200 mílna fiskveiðilögsaga norðan Stjórnin í Madrid rýfur sambandið við Guatemala við 67. breiddarbaug og það hefur valdið engum óþægindum. Ef fisk- veiðilandhelgin verður færð út í 200 mílur umhverfis allt Græn- land snertir það Norðmenn um- hverfis Jan Mayen og þar með íslendinga vegna deilu þjóðanna. Jafnframt mun útfærsla í 200 mílur færa grænlenzku landhelg- ina inn á hefðbundin fiskimið íslendinga á Norður-Atlantshafi. Tilgangurinn með slíkri útfærslu er að vernda fiskveiðar, en ekki sá að tryggja Grænlendingum hugs- anlegar oliuauðlindir á hafsbotni, að sögn Motzfeldts. Madrid. 1. febrúar. AP. SPÁNN sleit stjórnmálasam- bandi við Mið-Ameríkuríkið Guatemala í dag vegna árásar lögreglu á sendiráð Spánar i Guatemalaborg í nótt, að því er spænska stjórnin tilkynnti í dag. Stjórnmálasamband verður ekki tekið aftur upp fyrr en Guatemalastjórn hcfur gefið viðhlitandi skýringu á árásinni sem varð 39 manns að bana. sagði i tilkynningu stjórnarinnar. Meðal þeirra, sem biðu bana, var fyrsti sendiráðsritarinn og spænsk kona. Allir aðrir, sem biðu bana, voru Guatemalabúar sem sögðust vera smábændur og höfðu lagt sendiráðið undir sig. Spænski sendiherrann, Maximo Cajal y Lopez, var annar tveggja sem lifði af árásina. Hann liggur í sjúkrahúsi í Guatemala og fékk minniháttar sár, meðal annars brunasár. Hann komst út úr sendiráðinu sem stóð í björtu báli með því að stökkva út um glugga. í kvöld réðust fimmtán vopnaðir menn inn í sjúkrahúsið þar sem sendiherrann og annar maður liggja. Höfðu þeir á brott með sér þann síðarnefnda, án þess að vörnum yrði við komið. Stjórnin sagði að Venezúela hefði samþykkt að gæta hags- muna Spánar í Guatemala. Cajal y Lopez sendiherra sagði í símtali, að lögregluaðgerðin hefði verið „óþolandi" og að nærveru þeirra í sendiráðinu hefði ekki verið óskað. Lögreglan skundaði til sendi- ráðsins til þess að reka burtu bændurna sem höfðu náð sendi- ráðinu á sitt vald nokkrum klukkustundum áður. í orðsendingu frá spænsku stjórninni segir að ekkert svar hefði fengizt við ítrekuðum til- mælum spænska utanríkisráðu- neytisins um að lögreglunni yrði skipað að fara úr sendiráðinu. Spænska stjórnin fordæmir harðlega framferði yfirvalda í Guatemala í orðsendingunni og segir að grundvallarákvæði al- þjóðalaga hafi verið þverbrotin þar sem lögreglu hafi verið leyft að gera grimmdarlegt áhlaup á sendiráðið. Fram kemur í ummælum í Grönlandsposten, að Jonathan Motzfeldt gerir ráð fyrir því að með slíkri útfærslu geti Græn- lendingar tryggt sér betri samn- ingsstöðu í væntanlegum viðræð- um um fiskveiðar við m.a. íslend- inga og Færeyinga, sem Græn- lendingar vilja hafa góða sam- vinnu við. Jafnframt telur hann að með útfærslunni verði hægt að stemma stigu við áhrifum frá Efnahagsbandalaginu. — Fréttaritari.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.