Morgunblaðið - 05.02.1980, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980
17
Fylgst meö framsúKU af miklum áhuKa. Ljósmyndir Mbl. SÍKurgeir.
ingarstofnsins fram til 1985 er
sýnd með brotalínunni á mynd 2
og er áætlað að hann muni
sveiflast á milli tæpra 200 þús.
tonna 1981 upp í 345 þús. tonn árið
1983 en fari niður í tæp 260 þús
tonn árið 1985.
Við teljum að þessar tölur muni
endurspegla þær sveiflur er verða
í vertíðaraflanum á þessu tímabili
nema að til komi auknar göngur
frá Grænlandi, en þorskstofninn
þar hefur verið í lægð undanfarin
ár og því litlar líkur á göngum frá
þessu svæði.
Tillögur stofnunarinnar um 300
þús. tonna hámarksafla af þorski
á þessu ári miða að því að byggja
upp hrygningarstofninn svo hann
nái 500 þús tonnum árið 1983 og er
þá fyrst og fremst hugsað að nota
hinn góða árgang frá 1976 til
þessa.
Er hnignun ufsa-
stofnsins stöðvuð.
Stofnstærð ufsans er sýnd á 3.
mynd. Á undanförnum 3 áratug-
um varð aflinn mestur tæp 137
þús. tonn árið 1971 en minnstur
tæp 48 þús. tonn árið 1955.
Allt frá lokum síðari heims-
styrjaldar og fram til 1960 var
klak langt undir meðallagi og
heildarstofninn minnkaði því á
þessum árum úr 790 þús. tonnum
árið 1950 í tæp 300 þús. tonn árið
1961. Upp úr þessu fór klak aftur
batnandi og stofninn stækkaði á
nýjan leik. Hann náði síðan há-
marki 1969 um 870 þús. tonn.
Samfara þessu jókst sóknin og
aflinn varð að sama skapi.
Á árunum 1969—1974 var klak
aftur í rýrara lagi og hafði það
fljótlega áhrif á heildarstofninn
og hrygningarstofninn eins og sést
á 3. mynd.
Áætlað er að heildarstofninn
hér við land sé um 340 þús. tonn í
byrjun þessa árs eða tæp 40% af
því sem hann var mestur árið
1969.
I lok nóvember var ufsaaflinn
orðinn yfir 54 þús. tonn og bendir
allt til þess aö veiðst hafi um 60
þús. tonn eins og stofnunin lagði
til í fyrra.
Miðað við núverandi ástand
stofnsins er því lagt til að kvótinn
verði sá sami á þessu ári og takist
að halda aflanum í samræmi við
þetta þá er búist við að bæði
hrygningarstofninn og heildar-
stofninn svo á þessu ári að unnt
verði að mæta með auknum ufsa-
veiðum þegar árið 1981.
Ýsustofninn á uppleið
Friðunaraðgerðir síðustu ára
hafa haft góð áhrif á ýsustofninn
en á 4. mynd eru sýndir útreikn-
ingar á stærð ýsustofnsins undan-
farna tvo áratugi. Stofninum
hrakaði jafnt og þétt frá árinu
1962 er hann var áætlaður um 450
þús. tonn fram til fyrstu ára
síðasta áratugs. Hér var bæði um
að kenna veiðum á smáýsu og
lélegu klaki. Stofninn fór fyrst að
taka við sér fyrir alvöru er
möskvinn var stækkaður, fyrst í
135m/m og síðar í 155m/m. Eins
og kemur fram á myndinni þá
hefur bæði heildarstofninn og
hrygningarstofninn tekið við sér á
líkan hátt.
Friðun ýsustofnsins kemur vel
fram í þeim tölum sem við höfum
um fjölda fiska landað úr hverjum
aldursflokki. Árið 1973 var landað
9,6 milljón fiskum af þriggja ára
ýsu en 1979 aðeins 1.6 milljón
fiskum. Það ár var landað 9.2
milljónum 6 ára fisks en 1973 var
landað 2.6 milljónum fiska úr
þessum aldursflokki.
Ofveiði ýsustofnsins við ísland á
milli stríðsáranna var notuð víða í
kennslubókum erlendis í fiski-
fræði sem gott dæmi um áhrif
veiðanna á stofninn. Ég held að
þróun stofnsins á undanförnum
árum sýni betur en margt annað
hvernig skynsamlegar friðunarað-
gerðir geta borið árangur.
Talið er að aflinn á sl. ári hafi
farið nokkuð yfir 50 þús. tonn og
leggur stofnunin til að hámarks-
afli á þessu ári verði hækkaður
upp í 60 þús. tonn. Með þessum
hámarksafla mun stofninn halda
áfram að vaxa og má búast við að
mælt verði með enn frekari aukn-
ingu ýsuveiða á næsta ári.
Frá Reykjavíkurmótinu í bridge.
Reykjavíkurmótið
í bridge
Nú er lokið 10 umferðum í
Reykjavíkurmótinu í bridge,
sveitakeppni, og er staða efstu
sveita nú þessi:
Sveit Óðals 153
Sævar Þorbjörnss. 138
Hjalti Elásson 132
Sigurður B. Þorsteinss. 122
Þórarinn Sigþórss. 112
Tryggvi Gíslason 110
Jón P. Sigurjónss. 107
Ólafur Láruss. 107
Kristján Blöndal 99
Helgi Jónsson 97
Fimm umferðum er ólokið í
keppninrii en næstu tvær um-
ferðir verða spilaðar í kvöld.
Síðustu þrjár umferðir verða
spilaðar á sunnudaginn kemur
og hefst keppnin þá kl. 12.30 en í
Brlflge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
kvöld hefst keppnin kl. 19.30.
Spilað er í Hreyfilshúsinu við
Grensásveg.
Reykjanesmót
í sveitakeppni
Reykjanesmóti í sveitakeppni
1180 lauk í Kópavogi' sunnudag-
inn 3. febrúar.
Fyrir síðustu umferð áttu
þrjár sveitir möguleika á sigri og
spenna því nokkur í lokaumferð-
inni. Sigurvegari varð sveit
Skafta Jónssonar, en auk hans
spiluðu í sveitinni: Viðar Jóns-
son, Helgi Jóhannsson, Alfreð
forseti Alfreðsson og bræðurnir
Gísli og Magnús Torfasynir.
Sveit Skafta tapaði engum leik
í keppninni, gerði eitt jafntefli
og hlaut 136 stig af 180 möguleg-
um og var því vel að sigrinum
komin.
Röð efstu sveita varð annars
þessi:
stig
Skafta Jónssonar 136
Ármanns J. Láruss. 132
Ólafs Valgeirss. 115
Vilhjálms Vilhjálmss. 92
Alberts Þorsteinss. 90
Aðalsteins Jörgensen 90
Þrjár efstu sveitir eiga rétt á
þátttöku í undanúrslitum
Islandsmóts 1980.
var hægt
að fcanpa 4ra herb. »hi»ð i fjölbýlishúsi
fyrirsama verð og einbýiishús
fra HUSEININGUM hf a Siglufirói!
Samanburður
Lauslegir útreikningar og saman-
burður á verði og byggingartíma,
befur hvað eftir annað leitt í ijós
kosti húsanna frá Siglufirði. HOm1
einbýlishús hefur ekki vertö dýrara
en 4. herb. ibúð I fjölbýlishúsi.
Gæöi
Húseiningar h.f. á Siglufirði hafa
umfram allt fengið orö fyrir efnis-
gæði og vandaða framleiðslu.
Margvislegar teikningar, sem laga
má að hugmyndum hvers og eins,
ásamt öllum upplýsingum fást í
bókinni ,,Nýtt hús á nokkrum
dögurn".
™ ■* iiMrra«rasi™i
SVARSEÐILL
jjftjif Vinsamlega sendiö
He mér eintak
af bókinni, mér að
kostnaðarlausu! Nafn:
Heimilisfang:
Ókeypís byggingabók
Ef pú fyllir út svarseðil og sendir
okkur, munum við senda þér
ókeypis eintak af bókinni um hæl.
„Nýtt hús á nokkrum dögum" er
rúmlega 50 síður í stóru broti, með
48 tillöguteikningum af einbýlis-
húsum, og ýmsum uppiýsingum.
Þú getur einnig fengið eintak með
þvi að hafa samband við söluskrif-
stofu okkar í síma: 15945. í Rvík
HÚSEtNINGMHF
-xfJ
Póstnr.:
Simi: