Morgunblaðið - 05.02.1980, Blaðsíða 48
Síminn á afgreiðslunni er
83033
3flor0unWníiií>
Lækkar
hitakostnadinn
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRUAR 1980
S-Arabía viU selja okkur
700.000 tonn af hráolíu
Síðustu daga hefur athyglin mjög beinst að tveimur þingmönnum Sjálfstæðisflokks-
ins, þeim Friðjóni Þórðarsyni og Pálma Jónssyni, sem hér sjást á tali við
fréttamann útvarpsins í Alþingishúsinu í gær. Að loknum þingflokksfundi
Sjálfstæðisflokksins í gær var ekki ljóst hvort þessir tveir þingmenn myndu ganga
til liðs við Gunnar Thoroddsen eða fylgja afstöðu þingflokks Sjálfstæðisflokksins til
stjórnarmyndunar Gunnars. Ljósm. mw. ói. k. m.
KJARTAN Jóhannsson viðskiptaráðherra staðfesti í samtali við Mbl.
í gær. að ríkisstjórninni hefði borizt tilboð frá Saudi-Arabíu um sölu á
700.000 tonnum af hráoliu þaðan til íslands. Kjartan sagði. að í
tilhoðinu. sem barst í gegn um sendiráð Islands í Bandaríkjunum.
væri talað um OPEC-verðviðmiðun. í undirbúningi er að senda
viðræðunefnd til Saudi-Arabíu til að kanna þetta mál. Kjartan gat
þess einnÍK. að auk þess. sem í fréttum hefur verið að undanförnu.
hefði verið athugað með kaup a hráolíu frá Venezuela og Mexíkó og
hefðu borizt neikvæð svör frá Mexíkó.
„Ég tel að þarna sé um mjóg
athyglisverðan möguleika að ræða
og þeim mun betri, takist okkur að
finna hentuga leið til að fá olíuna
hreinsaða,“ sagði Kjartan Jó-
hannsson viðskiptaráðherra í
samtalinu við Mbl. í gær.
Kjartan sagði að hann teldi
þetta ýta á samþykkt tillögu hans
um sérstakt fyrirtæki til að ann-
ast olíuinnkaup og viðskiptasamn-
inga okkar á alþjóðavettvangi.„Ég
býst við að ég hreyfi því máli aftur
hið fyrsta," sagði Kjartan.
Maður drukknaði
er bifreið fór í
Reykjavíkurhöfn
ÞAÐ slys varð um klukkan 23,30
í gærkvöldi að jeppabifreið af
Lada-gerð ók fram af vestustu
Loftsbryggjunni í Reykjavíkur-
Stjórnarmyndun á lokastigi:
Fær Gunriar umboö-
ið frá forseta í dag?
SENNILEGT er talið. að dr.
Kristján Eldjárn, forseti
Islands, muni í dag kalla
dr. Gunnar Thoroddsen,
varaformann Sjálfstæðis-
flokksins, á sinn fund og
fela honum formlega um-
boð til myndunar
meirihlutastjórnar.
Viðræður Gunnars
Thoroddsens við fulltrúa
Framsóknarflokksins og
Alþýðubandalagsins stóðu
alla helgina og í gær. Gunn-
ar Thoroddsen sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi, að hann teldi miklar
líkur á því að takast mundi
samkomulag um málefna-
samning og hann sagðist
vonast til að ráðuneyti hans
tæki við völdum í þessarri
viku.
h]ggert Haukdal alþingismaður
lýsti yfir því í gær, að hann mvndi
styðja þá ríkisstjórn, sem Gunnar
Thoroddsen reynir nú að mynda.
Þá lýsti Albert Guðmundsson al-
þingismaður því yfir í gær, að
hann mundi verja ríkisstjórnina
vantrausti. Óvissa ríkir um af-
stöðu tveggja þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins, þeirra Pálma
Jónssonar og Friðjóns Þórðar-
sonar. Þeir lýstu því yfir eftir
þingflokksfund Sjálfstæðisflokks-
ins í gær, að þeir mundu ekki taka
afstöðu til stjórnarmyndunar
Gunnars Thoroddsens fyrr en þeir
hefðu séð málefnagrundvöll
stjórnarinnar.
Fulltrúar í viðræðunum hafa
fátt sagt um innihald málefna-
samnings þeirrar stjórnar, sem
reynt er að mynda. Steingrímur
Hermannsson sagði í gær, að
markmið hennar yrði að ná verð-
bólgunni niður í 30% á þessu ári
og niður á það stig, sem er í helstu
nágrannalöndum okkar, árið 1982.
Skipting ráðuneyta hefur ekki
verið ákveðin, en reiknað er með
því að Gunnar Thoroddsen og
fylgismenn hans fái þrjá ráð-
herra, Framsóknarflokkur þrjá og
Alþýðubandalag þrjá ráðherra.
Ólafur G. Einarsson, fomaður
þingflokks Sjálfstæðisflokksins,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að það væri ljóst, að ef
einhver þingmanna Sjálfstæðis-
flokksins yrði ráðherra í ríkis-
stjórn, sem flokkurinn styddi ekki,
yrði hann samstundis að víkja úr
þingflokknum.
Stjórnarmyndunartilraunir
Gunnars Thoroddsens: Sjá við-
töl og fréttir á bls. 2, 29 og 31,
fréttaskýringu á bls. 18 og 19,
forystugrein á bls 20, og enn-
fremur: „Aldursforsetinn lætur
til skarar skríða“ á bls. 29.
höfn, verbúðarbryggju við hlið-
ina á Slippnum og drukknaði
ökumaðurinn, 25 ára gamall
maður. Hann var einn í bifreið-
inni.
Fólk, sem átti leið um Ægisgarð
sá Ijós bifreiðarinnar í sjónum og
gerðu lögreglunni þegar viðvart.
Kafarar voru strax kallaðir til og
náðu þeir ökumanninum úr bif-
reiðinni en hann var þá látinn.
Krani var fenginn til þess að lyfta
bifreiðinni úr sjónum og náðist
hún upp um eittleytið.
Ekki er unnt að birta nafn
mannsins að svo stöddu.
Danskur læknir
í fullt starf við
Dýraspitalann?
STJÓRN Dýraspítala Watsons hefur
af eignaraðiljum verið falið að leita
eftir samningum við danská dýra-
iækninn Breth-Hansen um erlendan
dýralækni í fullt starf við Dýraspít-
alann „þar sem fullreynt er, aö
íslenzkur dýralæknir er ekki fáan-
legur á þeim grundvelli."
Sjá nánar blaðsíðu 36.
Ragnar Arnalds á miðstjórnarfundi í gærkvöldi:
Gunnar einangraður
— í skjóli þess þrýstum við á
Á miðstjórnarfundi AJþýðu-
bandalagsins í gærkvöldi voru
miklar umræður um stjórnar-
myndunarviðræður Gunnars
Thoroddsen, Alþýðubandalags
og Framsóknarflokks. Ýmsar
athugasemdir komu fram hjá
fundarmönnum þar sem þeir
gagnrýndu að í þeim málcfna-
grundvelli sem Iægi nú fyrir í
meginatriðum væri ekki byggt
nægilega ákveðið á mörgum
haráttumálum Alþýðuhanda-
lagsins í utanríkismálum. varn-
armálum og áróðursmálum.
Ragnar Arnalds svaraði þá m.a.
að staða Alþýðubandalagsins
yrði á margan hátt sterk í
samstjórn með Gunnari og
Framsóknarflokknum og þá
sérstaklega gagnvart Gunnari
með tilliti til stöðu hans í
stjórnmálum ef af þessari stjórn
yrði. Alþýðuflokkurinn. sagði
Ragnar, var alltaf tilhúinn til
þess að rjúfa stjórnarsamstarfið
í síðustu vinstri stjórn, í raun-
inni í hvert skipti sem þeir
fengu ekki sin mál fram. En
Gunnar Thoroddsen mun hafa
allt aðra aðstöðu, hélt Ragnar
áfram. því hann verður orðinn
einangraður og i skjóli þess
getum við þrýst á og komið
fram ýmsum atriðum scm við
teljum okkur hag í en fást ekki
inn í málefnagrundvöll fyrir
stjórnarmynduninni. Þarna höf-
um við mikinn pólitískan mögu-
leika þótt hann verði ekki á
blaðinu.
Miðstjórn Alþýðubandalagsins
samþykkti með öllum greiddum
atkvæðum í fundarlok að Al-
þýðubandalagið gangi til stjórn-
arsamstarfs við Gunnar Thor-
oddsen og Framsóknarflokkinn á
þeim málefnagrundvelli sem
liggi fyrir í meginatriðum. Fól
miðstjórn þingflokki og framkv.
stjórn með samþykkt sinni að
ganga frá þeim málefnagrund-
velli.
Að loknum fundi ræddi Mbl.
við Kjartan Ólafsson formann
miðstjórnar Alb. og kvað hann
þó nokkuð eftir í vinnu við
málefnagrundvöllinn. „Við ger-
um okkur vonir,“ sagði Kjartan,
„um það að við þurfum ekki að
kalla saman miðstjórnarfund
aftur vegna þessarar stjórnar-
myndunar og erum nokkuð
bjartsýnir á að hún takist."