Morgunblaðið - 10.02.1980, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 10.02.1980, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1980 pínrgti Útgefandi tdMtafeÍfe hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4.500,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 230 kr. eintakið. Stefnumið ríkisstjórnar Gunnars Thoroddsens í utanríkismálum eru eftir- tektarverð, bæði vegna þess sem í málefnasamningi hennar segir, og einnig vegna hins sem þar er látið ósagt. Ríkisstjórnin ætlar að fylgja sjálfstæðri utan- ríkisstefnu eins og það er orðað og síðan segir: „í því sambandi verði þátttaka í starfi Sameinuðu þjóðanna og Norðurlandaráði sérstak- lega styrkt.“ Athyglisvert er, að hér er ekki getið um Atlantshafsbandalagið. Þeg- ar vinstri stjórn Olafs Jó- hannessonar var mynduð 1. september 1978, var það tek- ið fram í málefnasamningi hennar, að fylgt skyldi óbreyttri utanríkisstefnu. Þá sáu alþýðubandalagsmenn ástæðu til að láta það koma sérstaklega fram, að þeir væru andvígir aðild íslands að Atiantshafsbandalaginu og dvöl varnarliðsins hér á landi. Nú sjá þeir ekki ástæðu til að láta neins slíks fyrirvara getið í málefna- samningnum. Á að skilja það svo, að þeir hafi horfið frá andstöðu sinni? Eða felst í þessu, að þeir telji ástæðu- laust að ítreka andstöðu sína, þar sem Atlantshafs- bandalagsins er hvergi getið í stjórnarsáttmálanum og þar með sett skör lægra en önnur alþjóðasamtök í fyrsta sinn síðan 1949? Enginn vafi er á því, að þessi hrópandi þögn um Atl- antshafsbandalagið á eftir að vekja athygli víða um lönd bæði meðal þeirra, sem eru okkur vinveittir, og hinna, sem vegna eigin hags- muna vilja, að tengsl íslands við Atlantshafsbandalagið rofni. Þögnin krefst þess, að forsætisráðherrann og utan- ríkisráðherrann geri strax með ótvíræðum hætti grein fyrir afstöðu ríkisstjórnar- innar til Atlantshafsbanda- lagsins og varnarsamstarfs- ins við Bandaríkin. Nú eru miklar viðsjár á alþjóðavettvangi og síst til- efni til þess að íslendingar auki á þær með hálfvelgju í öryggisstefnu sinni. Þá hlýtur það að vekja athygli manna ekki síst er- lendra, að í þeim kafla stefnuyfirlýsingar ríkis- stjórnar, sem fjallar um utanríkismál er setning eins og þessi: „Undirbúið verði öflugt átak til atvinnu- uppbyggingar á Suðurnesj- um.“ Þessa setningu á þess- um stað verður að skýra með því að vísa til þeirrar áherslu, sem kommúnistar hafa lagt á það, að „ein forsenda þess að hægt sé að skapa víðtækan skilning fyrir brottför hersins er að atvinnulíf á Suðurnesjum sé eflt þannig að þeir sem nú starfa hjá hernum geti fund- ið sér störf við íslenska atvinnuvegi" eins og Svavar Gestsson orðar þessa stefnu kommúnista í viðtali við Þjóðviljann í gær. Og hann bætir við: „í kaflanum um utanríkismál er þetta ein- mitt viðurkennt með því að leggja þar sérstaka áherslu á atvinnuuppbyggingu á Suð- urnesjum.“ Greinilegt er af þessu orðalagi Svavars Gestssonar, að kommúnistar telja sig hafa náð áfangasigri í bar- áttu sinni gegn dvöl varnar- liðsins í samningum sínum við Gunnar Thoroddsen þeir eru ekki fyrst og fremst að hugsa um hag manna á Suðurnesjum, sem þó er nauðsynlegt í atvinnu- málum. Engin klókindi duga til að breiða yfir þá stað- reynd. Reynsla kommúnista af ákvæðinu í málefnasamn- ingi fyrsta ráðuneytis Ólafs Jóhannessonar, 1971—1974, þar sem berum orðum var tíunduð brottför varnarliðs- ins í áföngum, hefur kennt þeim að betra er að hafa allt orðalag um þessi efni loðin. Ólafur G. Einarsson for- maður þingflokks sjálfstæð- ismanna kemst svo að orði um þetta atriði í Morgun- blaðinu í gær: „Kann að vera að það sé þetta atriði, sem Ragnar Arnalds talaði um á miðstjórnarfundi Alþýðu- bandalagsins, þegar hann sagði, að Gunnar Thor- oddsen; væri einangraður og því ættu alþýðubandalags- menn auðvelt með að þrýsta á, ekki þyrfti að hafa slíkt ákvæði í málefnasamningn- um. Það myndi nást fram síðar.“ Bæði erlendis sem innan- lands eru menn í vafa um, hvernig beri að skýra ákvæði málefnasamnings nýju stjórnarinnar um utan- ríkismál. Tortryggni manna um það, að fiskur liggi undir steini, stafar ekki síst af því, að kommúnistar eru kampa- kátir yfir árangri sínum, þótt þeir láti einnig orð falla um það, að auðvitað hefðu þeir viljað meira. En að því verður unnið í kyrrþey. Að- eins skýrar yfirlýsingar for- sætisráðherra og utanríkis- ráðherra um öryggi Islands geta komið í veg fyrir þessa tortryggni. Líklega gæti það ekki gerst nema hér á landi í óeðlilegu dekri við kommún- ista, að gengið sé til stjórn- armyndunar á tímum mik- illa sviptinga í alþjóða- málum og ekki eitt orð sagt um stefnu hinnar nýju stjórnar til að tryggja öryggi lands og þjóðar. Eitt megin- einkenni á þeim ríkisstjórn- um, sem Sjálfstæðisflokkur- inn hefur átt aðild að, hefur einmitt verið stefnufesta þeirra í þessu úrslitamáli. Stefnuleysi nýju stjórnar- innar undir forsæti Gunnars Thoroddsens í öryggismálum staðfestir best undir hve' óheillavænlegum áhrifum hún var mynduð. Hver er stefnan í öryggismálum? Rey ki aví kurbréf Laugardagur 9. febrúar Alþýðuflokkur- inn hræddur I forystugrein Morgunblaðsins á þriðjudaginn var komist svo að orði, að eftir kosningarnar 1971 hafi Alþýðuflokkurinn ekki verið til viðræðu um viðreisnarstjórn við Sjálfstæðisflokkinn. Ekki ber að skilja þessi orð þannig, að strax eftir að kosningaúrslitin lágu fyrir 1971 hafi þessi afstaða komið fram hjá Alþýðuflokknum. Á þetta gat ekki reynt þá vegna fylgishruns Alþýðuflokksins og þeirrar staðreyndar, að ekki var meirihlutastuðningur fyrir við- reisnarstjórn á Alþingi. Slíkur meirihluti var ekki fyrir hendi fyrr en eftir kosningarnar 1978. En einm'tt þá þorði Alþýðuflokk- urinn ekki í ríkisstjórn með Sjálf- stæðisflokknum. Vinstra dekur Alþýðuflokksins allt frá kosningunum 1971 hefur verið vatn á myllu framsóknar og komma. Reynslan af ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar dugði ekki einu sinni til. Enn voru kratar þeirrar skoðunar eftir kosn- ingarnar í desember, að þeir ættu best heima hjá Framsóknarflokki og Alþýðubandalagi. Alþýðuflokk- urinn stóð þannig að skiptingu þingmanna í deildir, að útilokaður var möguleikinn á meirihlutasam- starfi við Sjálfstæðisflokkinn. Eftir tvennar kosningar 1978 og 1979 hefur komið í ljós, að Alþýðu- flokkurinn hefur ekki þorað að ganga til samstarfs við Sjálfstæð- isflokkinn. Að sögn krata sprengdu þeir stjórn Ólafs Jó- hannessonar í þeim tilgangi að koma í kjölfarið á ríkisstjórn, sem þyrði að takast á við aðsteðjandi vanda og verðbólguna. Til hvers hefur upphlaupið leitt? Hefur eitthvað miðað í þá átt, sem Alþýðuflokkurinn þóttist ætla að sækja? Svarið er einfalt, nei. Þvert á móti blasir nú við, að Alþýðuflokkurinn hefur stuðlað að því, að við völdum tekur ríkisstjórn, sem byggir á enn veikari forsendu en sú, er þeir sprengdu. Nú fyrst hefur Alþýðu- flokkurinn raunverulega ástæðu til að vera hræddur. Hvað ræður ferðinni? Erfitt er að gefa við því einhlít svör, hvað hefur ráðið mestu um vilja framsóknarmanna og komm- únista til að setjast í ríkisstjórn undir forsæti Gunnars Thor- oddsens. Á síðasta hausti blasti við öllum, hve óljúft ráðherrum þessara flokka var að yfirgefa stóla sína, þótt stjórn þeirra þá væri öllu trausti rúin og algerlega gagnslaus. Varla er það eftirsjáin eftir þeirri óreiðu allri, sem nú ræður ferðinni hjá þeim. Líkleg- asta skýringin er vonin um að geta komið höggi á Sjálfstæðisflokkinn með því að leiða Gunnar Thor- oddsen til öndvegis í nýrri vinstri stjórn. Skýringar þeirra Steingríms Hermannssonar og Lúðvíks Jós- epssonar á því, hvernig það bar að höndum, að þeir sneru sér til Gunnars Thoroddsens en ræddu ekki um það við Geir Hall- grímsson, að slík stjórn yrði mynduð eða að henni unnið eru ófullnægjandi. Augljóst er, að Geir hafði skýrt þeim Steingrími og Lúðvík frá því, að hann útilok- aði ekki möguleika á slíkri stjórn þótt hann teldi ólíklegt, að af henni gæti orðið við óbreyttar aðstæður. Auðvitað vísaði Geir þar til málefnanna, sem þessa flokka skilja. Við þessar aðstæður héldu Steingrímur og þeir Alþýðu- bandalagsmenn sér að Gunnari Thoroddsen einum í þeirri von, að honum tækist það ætlunarverk sitt að fá nokkra þingmenn úr Sjálfstæðisflokknum til liðs við sig. Það lá ljóst fyrir eftir þing- flokksfund sjálfstæðismanna föstudaginn 1. febrúar, að Gunnar Thoroddsen lét sig engu varða samþykktir flokksbræðra sinna. Hann braut gegn vilja þeirra þá strax um kvöldið með yfirlýsing- um í sjónvarpi. Einkennandi mun- ur var á málflutningi Geirs Hall- grímssonar í sjónvarpinu það kvöld og ræðu Gunnars. Geir var greinilega til þess búinn að bera klæði á vopnin og gera sem minnst úr ólíkum sjónarmiðum þeirra Gunnars. Var samtalið við Geir tekið upp í þinghúsinu síðdegis en Gunnar kom fram í beinni útsend- ingu í fréttatíma sjónvarpsins og skýrði þar frá því í viðurvist alþjóðar, ef þannig má að orði komast, að hann ætlaði að hafa flokk sinn að engu. Hann hafði hvorki greint formanni flokks síns né samþingsmönnum sínum innan Sjálfstæðisflokksins frá því, hvað hann hefði í hyggju. Segja má, að með þessum hætti hafi Gunnar Thoroddsen kastað stríðshanskan- um fram fyrir Sjálfstæðisflokk- inn. Gunnar Thoroddsen sótti síðan ekki fundi þingflokks sjálfstæð- ismanna fyrr en fimmtudaginn 7. febrúar, þegar hann kynnti þar málefnasamning stjórnar sinnar. Á þeim fundi lagði Geir Hall- grímsson til, að Sjálfstæðisflokk- urinn skipaði viðræðunefnd í því skyni að fjalla um efnisatriði málefnasamningsins með full- trúum Alþýðubandalags og Fram- sóknarflokks. Þessari tillögu hafn- aði Gunnar Thoroddsen á þeirri forsendu, að plaggið væri að fullu frágengið. Þingmenn Sjálfstæðis- flokksins yrðu að gera það upp við sig, hvort þeir féllust á það eða synjuðu því. Jafnframt greindi Gunnar frá því, að hann ætlaði ekki að virða skipulagsreglur Sjálfstæðisflokksins. Hann myndi ekki leita eftir samþykki flokks- ráðs sjálfstæðismanna við stjórn- armyndun sinni eins og skylt er að lögum Sjálfstæðisflokksins. Með þessari afstöðu sinni undirstrikaði Gunnar ótvírætt, að hann lítur ekki þannig á, að Sjálfstæðisflokk- urinn eigi aðild að stjórninni. Flokkurinn og sann- færingin Gunnar Thoroddsen og fylgis- menn hans úr þingflokki sjálf- stæðismanna hafa lýst því yfir, að heiðri Alþingis verði aðeins bjarg- að með þingræðislegri meirihluta- stjórn. Það er sannfæring þeirra. Jafnframt er það skoðun Gunnars og manna hans, að eins og málum sé komið hafi enginn annar en Gunnar getað myndað slíka stjórn með Alþýðubandalaginu og Fram- sóknarflokknum. Á þeirri for- sendu verði Sjálfstæðisflokkurinn annað hvort að samþykkja mál- efnasamninginn óbreyttan eða vera ella utan stjórnar, í stjórnar- andstöðu. Gunnar Thoroddsen vísar til þess ákvæðis stjórnarskrárinnar, að þingmenn séu einungis bundnir við sannfæringu sína en ekki fyrirmæli kjósenda, þess vegna sé honum í sjálfsvald sett að setja Sjálfstæðisflokknum úrslitakosti. Hér er nauðsynlegt að huga að því, að því aðeins bauð Gunnar sig fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn, að félagsmenn þar, kjósendur, töldu að skoðanir Gunnars og þeirra færu saman. Þingmenn skipa sér í flokka vegna þeirrar sannfær- ingar, sem venjulega er nefnd skoðanir. Þingmenn eru kosnir vegna þess að þeir lýsa því yfir, að skoðanir þeirra og hópsins, sem MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1980 17 * Birgir Isl. Gunnarsson: Ný ríkisstjórn hefur verið mynduð. Kjósendur eiga kröfu til þess að þingmenn skýri af- stöðu sína til ríkisstjórnarinnar, jafnt stjórnarsinnar sem stjórn- arandstæðingar. Meðan þessi nýja ríkisstjórn situr að völdum mun ég verða í hópi stjórnarand- stæðinga í samræmi við ályktun þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Ekki svo að skilja að ég muni ekki fylgja góðum málum, sem hún kann að bera fram. Heldur hitt, að ég mun í grundvallar- atriðum berjast gegn þessari stjórn. Að svo miklu leyti sem hægt er að skýra það í stuttri blaða- grein mun ég hér reyna að gera grein fyrir ástæðum þess. I meginatriðum eru ástæðurnar þríþættar: Aðdragandi stjórnar- innar, málefnasamningur henn- ar og samsetning. Ég vil í stuttu máli gera grein fyrir þessum þremur atriðum. Aðdragandinn Aðalsmerki þessarar stjórn- armyndunar eru óheilindi. Öll mannleg samskipti, sem til gæfu eiga að verða, hljóta að byggjast á heilindum. Gildir einu, hvort um er að ræða samskipti í fjölskyldum, félögum, stjórn- málaflokkum eða í æðstu þjóð- félagsstofnunum eins og Alþingi. Alls staðar eru skoðanir skipt- ar um menn og málefni. Því aðeins er hægt að leysa þau deilumál, þannig að til farsældar verði, að menn geti talað saman af hreinlyndi, skipst á skoðunum og reynt að komast að sameigin- legri niðurstöðu. Stöðugar þreifingar í þingflokki Sjálfstæðismanna eru 21 þingmaður. í síðustu viku fengum við, sem skipum þennan þingflokk það staðfest frá póli- tískum andstæðingum okkar, að einn úr okkar hópi hafi síðan í desember verið með stöðugar þreifingar og tilboð um, að hann væri reiðubúinn til hverskonar samstarfs í allar áttir um stjórnarmyndun. Allt fór þetta fram með mestu leynd og þess greinilega gætt að við samflokksmennirnir, baráttufélagarnir og vinir sumir hverjir, yrðum einskis vísari. Við höfðum allir 21 setið saman fund eftir fund, dag eftir dag, til að ræða horfur og aðstæður. Engan grunaði að einn úr hópn- um væri á sama tíma að fara á bak við okkur hina. Fyrstu fregnir frá and- stæðingum Það var fyrst, þegar forystu- menn annarra flokka skýrðu okkur frá því að þessar stjórn- armyndunartilraunir væru vel á veg komnar, að við hinir fréttum hið sanna í málinu. Allt það sem síðan hefur gerst, hefur verið einskonar áróðursstríð af allra hálfu. Eitt vitum við fyrir víst, sem í þessu höfum staðið. Það var aldrei neinn vilji til þess af hálfu Framsóknar og Alþýðu- bandalags að ganga til stjórnar- samstarfs við Sjálfstæðisflokk- inn. Sá megintilgangur að reyna að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn helgaði öll meðöl. Þó að þessi aðdragandi, sem í smáatriðum hefur þegar komið fram á öðrum vettvangi, væri ærin ástæða til andstöðu við þessa ríkisstjórn, þá kemur fleira til. Kem ég þá að næsta þætti, sém er málefnasamning- urinn. Málefna- samningurinn Því miður ber þessi málefna- samningur þess merki að hann er saminn af vinstri mönnum. í mörgum mikilvægum atriðum gengur hann gegn grundvall- arstefnu Sjálfstæðisflokksins. Verðbólguvandinn er tekinn lausatökum, stefnt er að stór- auknum ríkisútgjöldum og hvergi getið um hverhig. tekna eigi að afla á móti eða hvar eigi að lækka útgjöld. Ríkisstjórn stefnir því að stór- auknum sköttum eða halla á ríkissjóði, aukinni seðlaprentun 98 söfnun eyðsluskulda erlendis. I verðlagsmálum er stefnan sú að fastbinda verðhækkanir án tillits til innlendra kostnaðar- hækkana, en það hlýtur að þrengja mjög hag atvinnulífsins og hafa í för með sér samdrátt og atvinnuleysi. Ekki minnst á varnarmálin Kaflinn um utanríkismál vek- ur og athygli í málefnasamn- ingnum. Þar er ekki vikið einu orði að utanríkis og varnarmál- um. Hinsvegar er í þeim kafla fjallað um öfluga atvinnuupp- byggingu á Suðurnesjum og að öryggismálanefnd skuli hraða störfum. Þetta vekur upp spurn- ingar um, hver se hin raunveru- lega stefna í öryggis- og varn- armálum þjóðarinnar. Með Al- þýðubandalagið innan borðs er meiri þörf en ella á því að fastmóta stefnuna. Andstæö- ingarnir fá mikilvægustu ráðuneytin Þetta eru aðeins nokkur atriði, sem eru gagnrýnisverð í málefn- asamningnum. Þriðja atriðið, sem hlýtur að valda andstöðu við þessa ríkisstjórn er samsetning hennar. Þeir Sjálfstæðismenn, sem gengið hafa til liðs við höfuðandstæðinga Sjálfstæðis- flokksins í stjórnmálum fá ein- ungis þrjú ráðuneyti, þ.e. forsæt- is-, landbúnaðar- og dómsmála- ráðuneyti. Allt hitt er afhent andstæðingum okkar. Ljóst er því að hjá þessari ríkisstjórn mun vinstri andinn svífa yfir vötnunum. Það kallar á ákveðna andstöðu Sjálfstæðismanna. Ríkisstjórnin Ljósm.: ÓI.K.M. þeir höfða til, falla saman. Kjós- endur eiga þá kröfu á hendur þingmönnum sínum, að þeir fram- fylgi þeim skoðunum, sem þeir setja fram fyrir kosningar. Kjósendum er vel kunnugt um ákvæði stjórnarskrárinnar um sannfæringu alþingismanna. Hins vegar verður enginn kosinn til Alþingis nema hann lýsi yfir sérstakri sannfæringu, sérstakri skoðun. Jafnvel þótt í stjórnar- skránni stæði, að þingmenn skyldu jafnan bundnir við fyrir- mæli kjósenda, getur hver og einn þingmaður, sem þannig er skapi farinn, hvenær sem er gengið í berhögg við fyrirmælin með vísan til þess, að hann hafi það fyrir satt, að kjósendur sínir hafi horfið frá fyrri sannfæringu sinni, skipt um skoðun. Yfirlýsing stjórn- arskrárinnar um þetta er þannig ekki mjög merkileg. Gunnar Thoroddsen og fylgis- menn hans gáfu kjósendum sínum tiltekin loforð í helstu þjóðmálum. Fyrir utan það, að þeir hafa einnig undirgengist að hlíta skipulags- reglum Sjálfstæðisflokksins og forystu flokksins á hverjum tíma eins og hún er valin af meirihluta á flokksfundum hverju sinni. Spurningin nú er ekki um tilvist þessara grundvallarreglna í flokkastarfi heldur hvað sannfær- ing manna býður þeim að brjóta margar af þessum reglum að þessu sinni. Flestir menn hafa einhvern tíma tekið þátt í einhvers konar félagsstarfi. Oþarft er þess vegna að rekja það í löngu máli, hverjar eru almennar forsendur þess, að félög séu starfhæf. Úrslitakostir eru ekki til þess fallnir, að einlægt samstarf þróist. Almennar leik- reglur gera ráð fyrir því, að mönnum gefist tækifæri til þess að segja álit sitt á sameiginlegum viðfangsefnum og koma að sjón- armiðum sínum varðandi þau verkefni, sem allir eiga að hrinda í framkvæmd. Skoðanir þarf að samræma til að bestur árangur náist. Við stjörnarmyndun sína hefur Gunnar Thoroddsen haft þessar leikreglur að engu. Fall Evrópu Morgunblaðið birti um síðustu helgi ítarlega frásögn tveggja breskra sérfræðinga um það, hvernig þeir atburðir kynnu að gerast, sem gætu leitt til þess, að fleygur yrði rekinn milli Vestur- Evrópu og Bandaríkjanna, og Sov- étmenn næðu því markmiði sínu að með ofurvaldi hefðu þeir ráð allra Evrópuríkja í hendi sér. Atburðarásin byggist á því í þessari frásögn, að norska eyjan Svalbarði verði tekin og breytt í sovéska flotastöð. Vegna aðgerða- leysis Bandaríkjanna hætti Evr- ópuþjóðir að treysta þeim og Atlantshafsbandalagið leysist upp í hræðslu manna við að ganga í berhögg við vilja Sovétríkjanna. Athygli manna hefur undanfar- in ár beinst frá Mið-Evrópu, þar sem hersveitir austurs og vesturs standa gráar fyrir járnum and- spænis hver annarri. Umræður um svonefnd jarðarsvæði Atl- antshafsbandalagsins hafa aukist. Tyrkland og Grikkland eru á þessu svæði í suðri og Noregur, Island, Grænland og Kanada í norðri. I frásögninni um fall Evrópu beindist athygli Sovét- manna að Svalbarða, þar sem Atlantshafsbandalagið hefur eng- an viðbúnað, en samkvæmt al- þjóðasamningi um eyjuna er bannað að hafa þar nokkurn her.viðbúnað. Frásögnin byggðist á því, að með klókindum skyldi grafið undan trausti manna á Bandaríkjunum en ekki lagt út í átök við þau. Þess vegna var horfið frá því ráði aö'láta Sovét- menn beita sér á suður-jaðrinum, þar sem sjötti floti Bandaríkjanna er á sveimi. I huga sovéskra herfræðinga er ísland ótvírætt æskilegt herfang en áform um töku landsins stranda á tilvist bandaríska varn- arliðsins í landinu. Auðvelt er að ímynda sér, hvernig með ísland yrði farið, ef hérlendis væri ekki traustur viðbúnaður til varna. Sovétmenn hefðu áreiðanlega fremur staðnæmst við ísland en Svalbarða í frásögninni um fall Evrópu, ef þeir hefðu verið sann- færðir um, að hernám landsins væri ekki of dýrkeypt. Frá sov- éskri flotastöð á Islandi yrði auðvelt að skapa þá aðstöðu á siglingaleiðinni yfir Atlantshaf, að næstum ógjörningur yrði fyrir Atlantshafsbandalagið að sýna fram á, að með liðsauka frá Bandaríkjunum yrði unnt að koma Vestur-Evrópu til bjargar á hættustundu. Á betri veg er varla unnt að grafa undan þeirri öryggistryggingu, sem felst í At- lantshafsbandalaginu. Nýlega birtu Kínverjar yfirlits- grein yfir hernaðarstefnu Sov- étríkjanna, sem miðar að heims- yfirráðum. í þeirri grein er að sjálfsögðu lögð áhersla á þann gífurlega vöxt, sem verið hefur í öllum greinum sovéska hersins undanfarin ár. Þar kemur og fram staðfesting á þeirri kenningu Kínverja, að Sovétmenn hafi uppi áform um skyndiárásir og leiftur- sókn. Hernaðarstefna þeirra byggist ekki síst á því, að þeir verði fyrri til en andstæðingurinn. Segir í greininni, að mikilvægi þessa þáttar í sovéskri hernað- arstefnu megi ráða af því, hvernig heræfingum er háttaö. Til dæmis séu þær sveitir, sem annast lang- drægar eldflaugar Sovétmanna einkum æfðar a frídögum og hefjist æfingarnat oftast um miðnætti og stan<; fram undir morgun. Þá séu ia jfleygar flug- I vélar einkum á ferð tni að nætur- lagi. Segja Kínvei ar, að innrás Sovétrikjanna og f giríkja þeirra í Tékkóslóvakíu 19tí8 hafi sýnt, hvernig unnt er að standa að skyndiárás með venjulegum vopn- um. Sovétmenn hafi beitt þeirri hefðbundnu starfsaðferð sinni að halda fórnarlambinu að inni- haldslausum samningaviðræðum til að slæva það, á meðan aftakan var undirbúin. Herafla hafi verið stefnt saman undir því yfirskini, að um æfingar væri að ræða. Fyrirvaralaust hefðu svo fall- hlifahermenn, skriðdrekar og vélaherdeildir verið sendar inn í Tékkóslóvakíu. Það hefði tekið þessar sveitir sex stundir að leggja undir sig alla mikilvægustu staði landsins frá hernaðarlegu sjónarmiði og þrjá sólarhringa að taka landið allt. Þessir atburðir gerðust 1968 og síðan hefur sovéski herinn stór- eflst. Innrásin í Afganistan var framkvæmd með sama hætti. Fyrirvaralaust var höfuðborg landsins komin á vald fjölmenns sovésks herliðs, sem flutt var með flugvélum í skjóli náttmyrkurs. Menn verða að hyggja að þessu veldi Sovétmanna nú þegar þeir af fláræði sínu eru að búa sig undir nýja friðarsókn, þar sem þeir gerast svo djarfir að setja Evrópu einskonar úrslitakosti um að ann- að hvort sýni hún þeim vinsemd eða hverfi í helkulda kaldastríðs- ins undir handarjaðri Jimmy Carters Bandaríkjaforseta.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.