Morgunblaðið - 10.02.1980, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.02.1980, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1980 heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655 PHILCO þvottavélar og þurrkara hvar sem er... ...jafnvel vid Tjörnina Og það er ekki að ástæðulaúsu. Þeir scm vita best. velja Philco. Því Philco samstæðan er ódýrari en sambæri- legar vélar. Þær eru sterkar og endimragóðar, þola stóðuga notkun da>í eftir dag ok ár eftir ár. Os það er Philco, sem skilar fallegum snjó- hvítum þvotti. Hægt er að setja þurrkara ofan á þvottavél og spara þannig gólfrými. Væntanlegum kaup- endum bendum við á okkar ágætu viðgerðarþjónustu, auk þess sem við segjum þeim að kynna sér reynslu þeirra, sem eiga og hafa notað Philco þvottavélar þurrkara með góðum BMW gæðingurinn sem allstaðar vekur athygli BMW sameinar kosti sportbíls og þægindi einkabíls, kraftmikill, öruggur, stöðugur í akstri, bjartur og rúmgóður, með þægilegum sætum. Það þekkja allir aksturseiginleika þessa vandaða bíls, en þeir halda ílestir að hann sé mun dýrari en hann er. BMW er meira en samkeppnisfær í verði, auk þess sem þú eignast betri bíl en verðið segir til um. BMW - ÁNÆGJA I AKSTRI KRISTINN GUÐNASON Hf. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 í síðasta vísnaleik var þessum fyrrihluta varpað fram af Margréti Ólafsdótt- ur: Má ég, góði, með þér enn munda Ijóða strengi. Móri kvað og þó ekki allskostar ánægður með sjálfan sig: Sungið hróður hafa menn hringatróðum lengi. Sigurgeir Þorvaldsson Keflavík yrkir af gefnu til- efni: Halldór Kristjánsson á Kirkjubóli sendir vísnaleik svofellda athugasemd: Ykkar heyr ég grobb og gól, um græðgina veit ég, hún er stór, — en þaö er lýgi að lagaskjól leyfi Davíð þennan bjór. Þægur maður í þungum stól þóknast Scheving að vísu fór, samt er lýgi að lagaskjól leyfi nokkrum sterkan bjór. Bak viö Sighvats stjórnarstól strákar bjórinn þamba mjög, verða kann það skammgott skjól það skortir hald sem veita lög. Gunnar mikla færöi fórn fyrir landsins vini —, fór að mynda styrka stjórn með Steingrími Hermannssyni. Móri kvað: Svo er Gunnar sæll og kátur sem hann myndar stjórn í dag. Og aö vanda lítillátur, — líka um þjóðar sinnar hag. Ritað hefur hann reglugerð reista skýrum lögum mót, það mun verða fýluferö og fólki þykja heldur Ijót. Þó að drjúgum þambi bjór þeir sem elska hann harla mjög bíð ég laga og réttar rór, reglugerð er engin lög. Afsökunar er beðið á því, að í síðasta vísnaleik skuli Guðmundur Bergþórsson hafa verið kallað „sálma- skáld“, þótt ekki sé fyrir það tekið, að hann kunni að hafa ort sálm eins og ótrúlega margir menn í hans tíð. Hitt er meira um vert að hann var rímnaskáld ágætt og kannski hvort tveggja, ef út í það er farið, eins og í Otúels rímum segir: Ég hef hlotið manndóms magt minnsta af börnum Nóa; hvorki er mér til handverks lagt að heyja, slá eða róa. K-Kristján Karlsson —- kveður „Það er maður í Minnesóta," sagði mærin og tók að hrjóta. „Hvort dvelst honum enn?“ spurðu allir í senn, mínus ergileg rödd að blóta. Og svo er það fyrri hlut- inn: Nýja stjórnin naumast er nema í heiminn borin Ekki verður meira kveðið að sinni. Ilalldór Blöndal J.C. Hafnarfjörður: Því meiri áróður þeim mun færri afbrot J.C. Hafnarfjörður hefur gefið út almanak og dreift inn á heimili í Hafnarfirði. Almanakið er myndskreytt og með ábendingum um hvernig varast megi innbrot og bílþjófnaði. Tilgangur þessa verkefnis er að vekja fólk til umhugsunar um varnaraðgerðir gegn þjófum og segir í fréttatilkynningu frá samtökunum að áróður sé raunhæfasta leiðin til að fyrirbyggja afbrot. íirt þá rriðu■ búínv að taka ttjltUHngutu gfirðtt þirtna. Þú gctur hiotið þitnfíttn ifórti fyrit þjójnað og hnupl baeði fjúr.urktir Ofr fangefdwtel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.