Morgunblaðið - 10.02.1980, Page 28

Morgunblaðið - 10.02.1980, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1980 Svifaettur atburdur og raunverulegur. Neðri myndin sýnir er blaðafulltrúi kjarnaorkuversins við Harrysburg gefur fréttamönnum yfirlýsingu þess efnis að kjarnorkuverið sé lítillega skemmt en almenningur hafi aldrei verið í nokkurri hættu. Efri myndin er úr kvikmyndinni og þar hefur blaðafulltrúi orkuversins (við hlið Jane Fonda) nýlokið við að gefa sams konar yfirlýsingu. flótta undan ofbeldismönnum og þegar honum skilst hvað til stend- ur sem sé að koma honum fyrir kattarnef, tekur hann byssu ör- yggisvarðar í stjórnsalnum og skipar öllum að fara út. Síðan vill hann veita Kimberley viðtal um öryggi versins. Þegar viðtalið er hafið kemur óspektalögregla á vettvang, stöðvar orkuverið og drepur Godell. En öryggi versins var ekki meira en svo að dæla þess þolir ekki stöðvunina og rifnar og litlu munar að ekki verði stórslys. Fyrir utan orkuverið, að atburð- unum loknum, gefur blaðafulltrúi versins fréttamönnum þær skýr- ingar að Godell hafi verið brjál- aður. Einnig segir hann að smá- vægilegar skemmdir hafi orðið á orkuverinu en að almenningur hafi aldrei verið í nokkurri hættu. Kimberley fær þó samstarfsmann Godell til að játa það að Godell hafi alls ekki verið brjálaður, það hafi verið einlægt álit hans að orkuverið væri hættulegt almenn- ingi. „Ég tek það fram að almenningur var aldrei í hættu“ Fljótlega eftir frumsýninguna fóru viðbrögð Bandaríkjamanna að koma í ljós. Sumum fannst myndin fáránleg og voru jafnvel uppi raddir um að eigendur kjarn- orkuvera í Bandaríkjunum hygð- ust lögsækja kvikmyndafyrirtæk- ið Colombía fyrir að hræða al- menning. En margir fóru að leiða hugann að því hvort kjarnorku- verin væru jafnhættulaus og af væri látið. Gætu þau t.d. þolað jarðskjálfta? Var öryggis þeirra nægjanlega gætt eða voru örygg- isskýrslur falsaðar? Þetta varð til þess að fimm kjarnorkuverum á austurströnd Bandaríkjanna var lokað og fram fór ítarleg könnun á öryggiskerfum þeirra. Munu þau öll hafa fengið leyfi til að taka til starfa á ný. En kvikmyndin komst aftur í sviðsljósið er kjarnorkuslysið varð við Harrysburg þar sem ýmislegt þótti svipað og í hinu sviðsetta slysi og því raunverulega. í báðum tilfellunum var sú hætta fyrir hendi að kjarninn félli niður í vatnskælinn sem er í botni þess hylkis sem kjarninn er geymdur í. Kvikmyndin „Kjarnaleiðsla til Kína“, sem sýnd er um þessar mundir í Stjörnubíói í Reykjavík, hefur verið sýnd víða um heim og alls staðar vakið mikla athygli og umtal. Myndin greinir frá slysi í kjarnorkuveri, en slíkt hafði aldrei gerst er myndin var frumsýnd og fannst ýmsum að framleiðendurnir hefðu tekið fyrir ákaflega fáránlegt atvik. En u.þ.b. mánuði eftir frumsýninguna varð slys í kjarnorkuverinu nálægt Ilarrysburg í Pennsylvania, að sumu leyti ekki ósvipað því og sagt er frá í myndinni. Breyttist þá álit flestra og þykja framleiðendur myndarinnar hafa verið óvenju sannspáir. í „Kjarnaleiðsla til Kína“ segir frá því er sjónvarpsfréttamaður- inn Kimberley Wells (Jane Fonda) fer ásamt kvikmyndatökumanni sínum Riehard Adams (Michael Douglas) í kjarnorkuver í Kali- forníu til að vinna að þætti um orkumál. Meðan þau eru stödd í verinu og horfa niður í stjórnstöð þess gerist óvæntur atburður sem sýnilega vekur mikinnn ugg meðal starfsfólksins. Þótt Richard hafi verið meinað að taka myndir niður í stjórnsalinn setur hann mynda- vélina í gang á laun þegar hann sér að eitthvað óvænt er á seyði. Er hann skoðar myndina síðar og rannsakar svipbrigði stjórnenda versins, meðan þessi atburður átti sér stað, sér hann að líklega hefði eitthvað alvarlegt getað gerst. Þegar þau koma aftur í sjón- varpsstöðina vill yfirmaður þeirra ekki nota filmuna sem sýnir þetta einkennilega atvik og bendir á að það geti kostað mikið málaþras og skaðabótakröfur. Richard sættir sig ekki við það og tekur filmuna úr geymslu stöðvarinnar og fer með hana til sérfræðings til að fá túlkun á atburðunum. Jack Godell (Jack Lemmon) vaktstjóra í orkuverinu grunar einnig að ekki sé allt með felldu. Hann kemst að því að skjöl um logsuðusamskeyti hafa verið föls- uð og enginn veit neitt um öryggi 000 H O 13 BH 08 3 mmm lXéÆ .JZL þeirra. Þegar hann ræðir þetta mál við starfsmann verktakafyr- irtækisins sem reisti verið hefur sá maður í hótunum við hann. Er óhappið átti sér stað var orkuframleiðsla versins stöðvuð en eigendur þess heimta að fram- leiðsla verði hafin að nýju sem allra fyrst og er aðeins efnt til málamyndarannsóknar á atburð- unum. En áður en allt er komið í gang kemur Godell í orkuverið á Jack Lemmon í hlutverki Jack Godells vaktstjóra í orkuverinu í „Kjarnaleiðsla til Kína“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.