Morgunblaðið - 10.02.1980, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 10.02.1980, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1980 31 Alfreð Flóki þessum stöðum: Þarna sitja vondu karlarnir." „Ég skal minnast þín í bænum mínurn," sagði Flóki þegar við vorum komnir á leiðarenda, „og það verður ekki neikvæð viðbót við Faðirvorið. Einu sinni þurfti ég að grípa til þess um nokkurn tíma. Þá lentum við Tryggvi Ólafsson list- málari í Kaupmannahöfn upp á kant og eins og sönnum óvinum sæmdi þá töluðum við ekki saman. Þegar kom að fyrirgefningunni og skuldunautunum í bæninni bætti ég alltaf við: Nema Tryggva Ól- afssyni. Svo var það einn dag að Tryggvi kom á heimili mitt sem þá var í Danmörku. Ég tók mér náttúrlega bók í hönd og fór snúðugur út í garð. Maður talaði nú ekki við hvern sem var. Þar sem ég sat í garðinum og las fór að berast til mín þessi stór- kostlegi ilmur. Maður getur diskú- terað um Tryggva sem málara, en hann er snillingur sem kokkur og ég sá mitt óvænna og læddist inn í gúllasið. Síðan höfum við verið beztu vinir.“ „Hvað með hið ljúfa líf, Flóki?“ „Blessaður, maður er farinn að gamlast. Hér áður fyrr gat maður drukkið stanzlaust í tvo sólar- hringa og að því loknu svolgraði maður í sig eitt glas af köldu vatni og settist við teikniborðið. Nú, og ef maður skandaliseraði í þessum lotum þá sprikluðu tærnar á manni af ánægju. Nú er þolið hins vegar farið til fjandans og ef maður slysast til að móðga ein- hvern, jafnvel aðeins miðlungs- borgara, þá skelfur maður og nötrar af vanlíðan. Þetta eru ellimörk, en kúnstnerinn og meist- arinn Flóki fellur ekki undir það fremur en hans eilífu listaverk." ■ tilkynnt, að ekið hefði verið á bifr. R-4773, sem er Mazda 929 grá að lit, við Njálsgötu 108, Rvík. Vinstra framaurbretti er skemmt fyrir ofan hjól og er rauður litur í skemmdinni. Var lagt á fyrr- greindan stað kl. 22,30 þann 2.2. Mánudaginn 4.2. sl. var tilkynnt, að ekið hefði verið á bifr. R-480, sem er Mercedes Benz, grá að lit, á bifr. stæði við Kirkjutorg. Skemmd er á hægri afturhurð. Bifreiðin var á fyrrgreindum stað frá kl. 14.40 til kl. 15.20. Austurstræti 22, 2. ’hæð. Sími 85055. TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS Glæsibæ — Laugavegi 6b. Simi frá skiptiboröi 85055. Austurstræti 22 Sími frá skiptiboröi 85055 \l (il.VSIMí \ SI.MIW KK: 22480

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.